Morgunblaðið - 16.02.1994, Síða 27

Morgunblaðið - 16.02.1994, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 1994 27 Fjáröflun fyrir iimanlandsstarf eftir Sigrúnu Arnadóttur Rauðakrosshreyfíngin, stærsta mannúðarhreyfing i heimi, sækir styrk sinn í landsfélögin sem eru 161 að tölu og verða ef að líkum lætur 180 áður en langt um líður. Hreyfingin starfar með öðrum orð: um í nær öllum löndum heims. í hugsjón stofnandans, Henry Dun- ants, fyrir 130 árum, fólst að stofna bæri um alian heim „á tímum friðar og spektar hjálparfélög í þeim til- gangi að áhugasamir, dyggir og vel þjálfaðir sjálfboðaliðar annist þá sem særast ef ófriður brýst út“. Þessi hugsjón er enn í fullu gildi og vex fiskur um hrygg, sem best sést á því að landsfélögum fjölgar ár frá ári. Án þeirrar undirstöðu sem landsfélögin eru myndi hreyf- ing Rauða krossins og Rauða hálf- mánans, rétt eins og nærri allar aðrar mannúðastofnanir, ekki vera fulltrúar annars en þeirrar hugsjón- ar, að þeir sem betur mega sín hjálpi bágstöddum. Þess vegna vill þessi stóra hreyfing að öll landsfélögin standi fyrir öflugu starfí heima fyr- ir. Það tryggir hugsjóninni sterkar rætur í menningu allra þjóða og skilning á þörfum skjólstæðinga hreyfingarinnar í hveiju landi, ef til neyðarástands kemur. í dag er öskudagur, sem í 69. skipti er fjáröflunardagur Rauða kross íslands. Á hverju ári síðan 1925 hafa börn og unglingar um land allt lagt hönd á plóginn með því að selja merki fyrir deildir Rauða kross íslands á viðkomandi stað. Fénu sem safnast er varið til mannúðar- og þjóðþrifamála á veg- um deilda RKI heima í héraði, en þær eru nú 50 talsins. í fyrra var brotið blað í sögu þessarar fjáröfl- unar, en þá voru í fyrsta skipti seld- ir pennar í stað merkja. Pennasalan gekk vel og því var ákveðið að end- urtaka leikinn. Ég vil hvetja fólk til að taka sölubömum vel, kaupa penna og styðja þannig við bakið á innanlandsstarfi Rauða krossins, sem er blómlegt en hefur staðið eilítið í skugga alþjóðastarfsins undanfarin ár umbrota á alþjóða- vettvangi. Slysavarðstofa á hjólum Starf deilda Rauða kross Islands er fjölþætt og því verða ekki gerð skil í stuttri blaðagrein. Hér verður því aðeins stiklað á stóru. Saga RKÍ og sjúkraflutninga er samtvinnuð frá upphafi. Með auknu starfí deilda um land allt hafa sjúkraflutningar orðið æ veigameiri þáttur í starfí þeirra. Deildirnar eiga 67 sjúkrabíla og langflestir þeirra eru nýir eða nýlegir. Þeir eru svo vel tækjum búnir að þeim hefur verið líkt við „slysavarðstofur á hjólum". Víða á landsbyggðinni er rekstur og um- sjón bílanna í höndum sjálfboðaliða á vegum deilda, þó að sjúkrahús eða heilsugæslustöð annist rekstur- inn á stærri stöðum og í Reykjavík sé hann í höndum slökkviliðsins. Rauði kross íslands annast líka menntun sjúkraflutningamanna í samvinnu við Borgarspítalann í Reykjavík. Deildir RKÍ hafa hlutverki að gegna í heildarskipulagi almanna- varna í landinu. Komi til náttúru- hamfara er RKÍ meðal annars gert að annast skipulagningu á því sem nefnt er fjöldahjálp og félagslegt hjálparstarf, en í því felst meðal annars að útvega heimilislausum húsaskjól, útvega nauðstöddum fæði og klæði, að halda skrá yfír dvalarstaði fólks og hjálpa til við að sameina fjölskyldur sem sundr- ast og ástvini sem missa sjónar hver af öðrum. í Vestmannaeyja- gosinu hafði Rauði kross íslands þetta hlutverk með höndum og hélt raunar áfram að aðstoða Eyjamenn á margvíslegan hátt í meira en 4 ár eftir að gosi lauk, að mestu fyr: ir framlög frá systurfélögum RKÍ í nágrannalöndunum. Þúsundir læra skyndihjálp „Rauði kross íslands hefur for- ystu um kennslu í skyndihjálp, end- urnýjar námsefni og þjálfar kenn- aralið í hinum ýmsu landshlutum," segir í samningi Almannavarna rík- isins og RKI. I samræmi við þennan samning er skyndihjálp eitt af skylduverkefnum deilda RKÍ og margar hafa þær fengið miklu áork- að á því sviði undanfarin ár bæði innan skólakerfísins og meðal al- mennings. í fyrra gaf RKÍ út 3.650 skyndihjálparskírteini, en til að fá skírteini þarf að sækja minnst 16 tíma námskeið. Þeir sem sóttu styttri námskeið skiptu þúsundum. Margar deildir standa fyrir öflugu starfí í þágu aldraðra. Sjálf- boðaliðar á þeirra vegum stunda heimsóknarþjónustu, standa fyrir orlofsferðum, opnu húsi og alls kyns tómstunda- og íþróttastarfi. Á sjúkrahúsum höfuðborgarinnar rekur kvennadeildin í Reykjavík bókasöfn og sér um dreifingu bóka til sjúklinga. Hún gefur lækninga- tæki sem keypt eru fyrir það fé sem inn kemur í sölubúðunum á sjúkra- húsunum, sem allar eru reknar í sjálfboðavinnu. í Reykjavík er Hús- ið, neyðarathvarf fyrir böm og unglinga, sem RKI hefur rekið í V^terkurog k-J hagkvæmur auglýsingamiðill! „Ég- vil hvetja fólk til að taka sölubörnum vel, kaupa penna og styðja þannig við bakið á inn- anlandsstarfi Rauða krossins.“ átta ár og í fyrra var opnað at- hvarf fyrir geðsjúka sem hlaut nafnið Vin, en rekstur Vinjar hefur farið mjög vel af stað. Það er sjálfgefið að árangur af starfi landsfélags eins og RKÍ er að mörgu leyti undir deildum kom- ið. Félagið hefur lifað og dafnað í 70 ár — þökk sé óeigingirni og fast- heldni sjálfboðaliða á grundvallar- reglur mannúðarstarfs sem eiga rætur í þeirri hugsjón sem einna útbreiddust er í heiminum og bygg- ist á hvötinni til að hjálpa þeim sem veikir eru og varnarlausir. Með því að kaupa penna í dag leggur þú þeirri hugsjón lið. Höfundur er framkvæmdastjóri Rauða kross Islands. Sigrún Árnadóttir BIODROGA Lífrænar jurtasnyrtivörur Hreinsimjólk 400 ml.1.195 kr. Andlitsvatn 400 ml.1.195 kr. BIODRO REiNIGUNGSMIU MILKY CLEANSER - EXIRA MILD - DEMAQUILLANT DOUCEUR jC 400ml 13.6 FLQZ- BADEN-BADEN - PARIS • . ■ Jt . Útsölustaðir: Stella Bankastræti, Kaupf. Eyfirðinga Akureyri, Ingólfsapótek Kringlunni, Snyrtistofan Gresika Suðurgötu 7, Lilja snyrtistofa Akranesi, Vestmannaeyjaapótek. R ým i n hf.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.