Morgunblaðið - 16.02.1994, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 16.02.1994, Qupperneq 28
28 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 1994 Guðmundur Þórð- arson — Minning Guðmundur Þórðarson var fæddur 13. desember 1918 í Ólafsvík og lést 6. febrúar síðastliðinn í Reykjavík. Foreldrar hans voru Svanfríður Aðal- björg Guðmundsdóttir, fædd 30. októ- ber 1885, dáin 27. ágúst 1964 og Þórður Matthíasson, fæddur 12. maí 1873, dáinn 17. október 1923. Guð- mundur var næstelstur fimm alsystk- ina. Þau voru: Sveinbjöm, fæddur 23. desember 1916, dáinn 25. september 1991, móðir okkar Kristín, fædd 8. maí 1921, dáin 13. október 1972, tvíburabróðir hennar Sigurður, sem býr í Grindavík og Þóra Marta, fædd 27. mars 1924 og býr á Seltjamar- nesi. Þórður átti áður sex böm sem öll eru látin, og Svanfríður eignaðist Harald Sigurðsson, f. 9. október 1926, sem búsettur er í Kópavogi. Skömmu eftir að Þórður lést leystist heimilið upp. Guðmundur var sendur í fóstur til afa síns og nafna Magnússonar og seinni konu hans, Guðrúnar Bjamadóttur. Þau reyndust Guð- mundi vel og þótti honum mikið til fóstru sinnar koma. Á unga aldri veiktist Guðmundur illa af bijósthimnubólgu og var rúm- liggjandi á þriðja ár. Þessi veikindi urðu til þess, að hann var lungnaveik- ur alla tíð. Guðmundur fór snemma að vinna í smiðju Guðjóns, sonar Guðrúnar. Þótti hann mjög handlaginn á vélar og búnað. Það varð til þess að hann fluttist til Reykjavíkur þar sem hann hóf störf hjá Agli Vilhjálmssyni með þeim ásetningi að læra bifvélavirkjun. Heilsa hans kom í veg fyrir að draum- ur hans rættist. Hann þoldi ekki verk- stæðisvinnuna og varð'að hætta þar. Hann hafði áður tekið meirapróf bif- reiðastjóra og sneri sér að akstri lang- ferðabifreiða hjá Helga Péturssyni næstu árin. Hann kom aftur til Ólafsvíkur 1949. Bjó hann fyrstu árin að Útskál- um með móður sinni, en þar bjó hún með Sveinbimi og bróður sínum, Jó- hanni Lúther. Þau fluttust síðan í Skúlahús 1953 og síðar að Gmndar- braut 24 sem þeir bræður byggðu. Guðmundur bjó á Grundarbrautinni síðan þar til hann fluttist alkominn suður. Á árunum 1949 til 1953 starfaði Guðmundur sem bílsjóri hjá Kaupfé- lagi Ólafsvíkur. Þá sneri hann sér næst aftur að bílaviðgerðum, nú á Klifí, því bflar áttu hug hans allan. 1954 réðst hann til starfa sem bfl- stjóri að Hraðfrystihúsi Ólafsvíkur og vann þar til ársins 1963. Eftir það gerðist hann afgreiðslumaður Sölu- skálans í Ólafsvík í eigu Marísar Gils- ijorð, sem reyndist honum vel. Auk afgreiðslustarfa þar sinnt hann olíu- flutningum í Ólafsvík og til Grundar- fjarðar. Ökukennararéttindi fékk hann 1969 og hafði hann ökukennslu að aukastarfí í allmörg ár. Árið 1975 og næsta rúman áratug á eftir starfaði hann við fískverkun hjá Hróa hf. Þar vann hann undir stjórn Péturs Jóhannssonar. Pétur og Guðrún kona hans urðu nánir vinir Guðmundar. Hann naut gestrisni þeirra í ríkum mæli bæði á meðan hann bjó í Ólafsvík og síðar á ferðum sínum þangað að sunnan. Síðustu árin hjá Hróa hf. Varð Guðmundur að draga mikið úr vinnu vegna versn- andi heilsu. Þess vegna varð hann að flytjast til Reykjavíkur á hjúkran- arheimilið Skjói. Eftir tæpt ár þar flutti hann sig um set til Hrafnistu við Skjólvang í Hafnarfirði þar sem honum leið vel síðustu æviárin. Hann átti góðar stundir með félögum sínum á Hrafnistu, ekki síst vinkonum sínum sem hann hafði gaman af að skrafa við. Við færam starfsfólki á Hrafnistu okkar bestu þakkir fyrir mikinn hlý- hug sem það sýndi í garð Guðmundar frænda okkar. Kiwanishreyfíngin var honum mjög hugleikin og var hann einn af stofn- endum Kiwanisklúbbsins Korra í Ól- afsvík. Hann tók virkan þátf í starfí klúbbsins og var mjög stoltur af því að hafa verið gerður að heiðursfélaga hans. Eftir að hann fluttist suður var hann iðulega gestur á fundum og skemmtunum Kiwanisklúbbanna í Hafnarfirði og víða á suðvesturhom- inu. í heimsóknum sínum til Ólafsvíkur síðastliðin ár hafði hann ávallt sam- band við sína gömlu félaga í Korra og sótti fundi og skemmtanir klúbbs- ins ef færi gafst. Við færum Kiwanis- félögum þakkir fyrir að hafa haft samband við Guðmund og fært hon- um fréttir af starfinu, því það þótti houm vænt um. í dag kveðjum við Gumma frænda okkar, eins og við systkinin kölluðum hann alltaf. Þegar litla brúna taskan hans stóð frammi í gangi í Glaðheim- um vissum við að Gummi frændi var kominn í heimsókn. Gladdi það okkur mikið því Gummi var einstaklega bamgóður. Tók hann mann í fangið og spurði ávallt sömu spumingarinn- ar: „Hver er uppáhalds frændi þinn?“ Hann vissi auðvitað hvert svarið var. Eftir að það var fengið skellihló hann og tók í nefíð. Gummi frændi var mikill gleðimað- ur og naut þess fram í fíngurgóma að skemmta sér meðgluðu fólki á góðri stund en hann var þó ekki allra. Gummi frændi ferðaðist mikið erlend- is allt frá Færeyjum til Flórída. Hann ferðaðist oft til Mið-Evrópu og enn oftar til sólarlanda við Miðjarðarhaf. Úr þessum ferðum sínum kom hann með mikið af minjagripum sem við krakkarnir höfðum gaman af að skoða og alltaf færði Gummi frændi okkur einhveijar gjafir. Gummi frændi talaði ávallt hlýlega um ömmu og þegar hún dó varð það honum mikill missir. Við voram oft vitni að því þegar Gummi frændi sýndi mömmu okkar hvað hann ætlaði að færa ömmu þegar hann kæmi vestur. Ófáar ferðimar fór hún mamma oftan í bæ til að kaupa fyrir Gumma frænda hluti sem honum fannst ömmu vanta. Eftir að við urðum fullorðin og eignuðumst börn var hann jafn góður við þau og hann var við okkur þegar við vorum böm. Elsku Gummi frændi okkar. Nú er kvðjustundin komin fyrr en við áttum von á. Við þökkum þér hjart- anlega fyrir stundimar sem við áttum saman og alla þá ást og umhyggju sem þú hefur sýnt okkur og ijölskyld- um okkar. Við söknum þín meira en orð fá lýst. Guð blessi minningu þína, hvíl þú í friði. Þú guðs míns iífe, ég loka augum mínum í líknarmildum fóðurörmum þínum og hvíli sætt, þótt hverfi sólin bjarta, ég halla mér að þínu föðurhjarta. (MJoch.) Erlingur, Hrafnhildur, Guðmund- ur og Hólmfríður Aðalbjörg. ATVIN WWAUGL ÝSINGAR Hárgreiðslustofa íHafnarfirði Sveinn eða meistari óskast sem verktaki á stofu. Einnig er óskað eftir snyrtifræðingi í hálfsdagsvinnu. Stúdíó hárog húð, Reykjavíkurvegi 16, sími654166. Vélvirki/bifvélavirki Verktakafyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu óskar að ráða mann á verkstæði. Aðeins vanur maður með réttindi kemur til greina. Áhugasamir leggi inn tilboð á auglýsingadeild Mbl., merkt: „L - 10242“, fyrir 21. febrúar. Hlutastarf óskast Ég leita að hlutastarfi (50-70%). Ensku- kunnátta. Vön tölvum og sölumennsku. Upplýsingar í síma 629421. Amal Rún Qase. RADAbGl YSINGAR LANDSSAMBAND ALDRAÐRA Tilkynning Að gefnu tilefni vill Landssamband aldraðra taka fram, að söfnun á auglýsingum og styrktarlínum í svonefndar Silfursíður er félögum eldri borgara og landssambandinu með öllu óviðkomandi. Fyrir hönd Landssambands aidraðra, Ólafur Jónsson, formaður. Frá menntamálaráðuneytinu Styrkir úr íþróttasjóði Samkvæmt lögum um breytingu á verka- skiptingu ríkis og sveitarfélaga nr. 78/1989 veitir Alþingi árlega fé í íþróttasjóð. Framlög úr íþróttasjóði skal veita til sér- stakra verkefna á vegum íþróttafélaga eða íþróttasamtaka í því skyni að bæta aðstöðu til íþróttaiðkana sbr. Reglugerð um íþrótta- sjóð nr. 609/1989. Tekið skal fram að ekkert liggur fyrir um fjár- veitingar til sjóðsins 1995, en þær eru ákveðnar í fjárlögum hverju sinni til eins árs í senn. Felur árleg fjárveiting þannig ekki í sér skuldbindingar um frekari styrkveitingar. Umsókn um stuðning úr íþróttasjóði vegna styrkveitinga ársins 1995 þurfa að berast fyrir 1. maf nk. íþróttanefnd ríkisins, mennta- málaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, á þar til gerðum eyðublöðum ásamt greinargerð um fyrirhuguð verkefni. Leirböðin við Laugardalslaugina Sérstakt kynningarverð dagana 14. - 28. febrúar. Komið og kynnið ykkur málin, Lppiýsingar og pantanir í síma 88102$ „Tómstundir ungs fólks“ Menntamálaráðuneytið, íþrótta- og tóm- stundaráð Reykjavíkur (ÍTR) og Æskulýðsráð ríkisins (ÆRR) gangast fyrir kynningar- fundi í Borgartúni 6, Reykjavík, fimmtudaginn 17. febrúar nk. kl. 16.00 um niðurstöður úr könnuninni „Ungt fólk“. Sérstaklega verður fjallað um tómstundir og félagsstörf ungs fólks, auk þess sem komið verður inn á íþróttaiðkun og hassneyslu. Fulltrúar frá Rannsóknastofnun uppeldis- og menntamála sem önnuðust rannsóknina munu koma á fundinn og segja frá rannsókn- inni og kynna helstu niðurstöður og svara fyrirspurnum. Laxá í Kjós Veiðileyfasala í síma 91-678526 virka daga frá kl. 9.00-17.00. Atvinnuhúsnæði óskast Óska eftir að kaupa ca 100 fm húsnæði á góðum stað á höfuðborgarsvæðinu fyrir snyrtistofu. Vinsamlegast sendið svartil auglýsingadeild- ar Mbl. fyrir 21. febrúar, merkt: „X -13088“. SmO auglýsingor I.O.O.F. 9 = 1752168V2 = Hörgshlíð 12 Boðun fagnaðarerindisins. Almenn samkoma I kvöld kl. 20.00. □ HELGAFELL 5994021619 VI 2 Frl. □ GLITNIR 5994021619 II - 4 SAMBAND ÍSLENZKRA KRISTNIBOÐSFÉLAGA Háaleitisbraut 58-60 Samkoma í kvöld kl. 20.30 í Kristniboðssalnum. Ástríður Haraldsdóttir er ræðumaður. Þú ert verlkomin(n). Hjálpræöis- herinn Kirkjustræti 2 Konukvöld í kvöld kl. 20.30. Sýnikennsla í gerbakstri. Veitingar og happdrætti. Fimmtudag kl. 20.30: Kvöld- vaka. Major Liv Gundersen talar. I.O.O.F. 7 = 1752168'A = FL Hvítasunnukirkjan Ffladelfía Skrefið kl. 18.00 fyrir 10 til 12 ára krakka. Almenn samkoma kl. 20.30. Feðginin Thor Johnny og Caroline tala og synnia Allir hjartanlega velkorr. Hedd stórsvigs- mót Víkings Stórsvigsmót Víkings verður haldið 26. febrúar f Sleggju- beinsskarði. Keppt verður f flokkum 11-12 ára og 9-10 ára. Þátttökutilkynningar berist fyrir kl. 18 föstudaginn 18. febrúar á myndsendi 689456. Mótsstjórn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.