Morgunblaðið - 16.02.1994, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 16.02.1994, Qupperneq 32
32 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 1994 Ólafía Sig- urðsson ogHarald- urA. Sigurðsson Hjónaminning Guðrún Guðrún Ólafía Fædd 8. júní 1909 Dáin 7. febrúar 1994 Haraldur Fæddur 22. nóvember 1901 Dáinn 19. nóvember 1984 „Hvaðan kem ég?“ „Hvert fer ég?“ „... og til hvers í ósköpunum er ég hér?“ Spurningar um tilgang og takmark tilverunnar hafa fylgt mannkyni frá örófi alda - öll höfum við einhvern tíma brotið heilann um þessar eilífðarspurningar, skipst á skoðunum, rökrætt og jafnvel rif- ist. Lífið er og hefur alltaf verið mönnum hulin ráðgáta, nokkurs konar frumskógur þar sem leiðar- vísar eru af æði skomum skammti og eini áttavitinn er tæra röddin í brjósti þér - samviska þín. Það er hún sem hrópar á þig er þú villist af leið. Það er hún sem vísar þér veginn ... ef þú bara hlustar ... og hlýðir. En það skiptir líka máli á ferð okkar um frumskóginn hvetjir sam- ferðamennimir eru - hversu ratvís- ir þeir em, hvert innræti þeirra er. Við sem eigum góða íjölskyldu er: um afar heppin, fordæmi þeirra, umhyggja og ást leiðir okkur í gegnum lífið. Þetta er fólkið, sem huggar þig og hughreystir þegar heimurinn virðist vera að hrynja og segir þér til syndanna þegar þú æðir áfram hugsunarlaust. Þetta er fólkið sem reynir að grípa þig í hvert sinn sem þú hrasar - og ef það ekki tekst - þá sér það í það minnsta til þess að þú standir á fætur á ný. Þetta fólk er fjársjóður þess fmmskógar, sem lífið vissu- lega er. Þegar mamma hringdi í mig fyr- ir rúmri viku og sagði: „Inger mín, hún amma er sofnuð" - fannst mér þessi fjársjóður minn fölna á einu augabragði - andlegu auðæfin mín falla í verði. Það var ekki fýrr en nokkrum dögum seinna sem ég gat í huganum þakkað fyrir að hafa fengið að njóta hennar í þrjátíu ár - þakkað fyrir að hafa átt svo þrautseigan leiðsögumann, sem stöðugt reyndi að stilla áttavitann minn - forða mér frá falli. En það er ekki hægt að dást að dagsbirtunni án þess að lofsyngja nóttina líka. Það er ekki hægt að syngja um sólina án þess að tala um tunglið. Það er ekki hægt að kveðja ömmu Ollý án þess að minn- ast afa Halla. Lengst af voru þau í mínum huga andstæðir pólar - stórbrotnir „karakterar", hvort á sinn hátt - dagur og nótt. Seinna rann það hinsvegar upp fyrir mér að saman náðu þau að spanna allt litróf lífsins - án hins hefði hvorugt þeirra verið heilt. Ljúfustu bernskuminningar mín- ar og bræðra minna tengjast afa og ömmu óijúfanlegum böndum. Þær helgar sem við fengum að gista hjá þeim voru oftar en ekki hrein ævintýri. Meðan við sátum sem dáleidd og hlustuðum 'á sögumar ^hans afa eða sungum inn á segul- bandið hans barst bökunarlyktin hennar ömmu um allt hús. Eftir kvöldmat var látið renna í bað og skömmu síðar mátti heyra ömmu tipla upp stigann með kvöldkaffið á bakka. Þegar Óli lokbrá var far- inn að gerast æði ágengur fór afi með okkur inn í rúm og saman báðum við Jesú um að leiða okkar litlu hendur. Ef augun voru enn opin eftir „amenið“ - fengum við gjaman sögu fyrir svefninn. Afi var mikill dýravinur og sagði okkur ótal sögur af dýrunum, sem hann hafði kynnst í gegnum tíðina - fuglum, köttum, hundum og hest- um. En uppáhalds sagan okkar var sagan af apanum, sem hann átti þegar hann var ungur - Jackó. Apinn var nefnilega mikill stríðn- ispúki og afi lék af innlifun öll uppá- tæki hans og svipbrigði svo við veltumst um af hlátri. Jackó átti það nefnilega til að dýfa höndum sínum og fótum ofan í sultu- eða sýrópskrukkur og klifra síðan upp gluggatjöldin ... en þetta gerði hann aðeins þegar gluggatjöldin voru nýkomin úr hreinsun. Hann átti það líka til að binda borðdúkinn við rófuna á sér og stökkva svo af stað ... en bara þegar halda átti veislu og búið var að leggja á borð. Afi Halli var leikari - bæði að atvinnu og af Guðs náð. Hann samdi fjöldann allan af revíum og gamanvísum og þeir sem muna eft- ir honum á sviði segja að um leið og hann hafi birst á sviðinu hafi salurinn velst um af hlátri. Og víst var hann ofboðslega fyndinn - hann gat á augabragði fengið mann til að gleyma því að fyrir hálftíma hafði heimurinn hrunið til grunna og skipti þá engu hvort um var að ræða „ólæknandi ástarsorg" eða hruflað hné. En í mínum huga var afi fyrst og fremst einhver mesta og stærsta manneskja, sem ég hef á ævi minni kynnst. Honum þótti vænt um alla menn - og lagði sig fram um að leggja þeim lið, sem minna máttu sín í þessu lífi. Hann hafði ekki mörg orð um það sjálfur og það var eiginlega ekki fyrr en eftir hans dag sem ég gerði mér grein fyrir hversu mikið gott hann lét af sér leiða. Það var ekki fyrr en ég fór að hitta fólk sem sagði mér sögur af hjartagæsku hans og góð- mennsku sem ég gerði mér grein fyrir því hversu mikill mannvinur hann í raun var. En óneitanlega var mikið hlegið á heimili gamanleikarans og senni- lega hló enginn jafn dillandi og dátt og hún amma mín. Hún hló með honum - og hann með henni ... og hlátur hennar var svó smit- andi að þó svo við börnin botnuðum ekkert í brandaranum, gátum við ekki annað en hlegið með. Amma var líka heilmikill leikari þó svo áhorfendurnir hafí verið færri. Hún hafði næmt auga fyrir því spaugi- Erfidrykkjur Glæsilej^ kiiíii- lilaðborð lidlei»ir salir oi» nijöi* (Í^HÍ |)jÓlllLSlíL llpplýsingar í sínui 2 23 22 FLUGLEIDIR I0TEL Limilllk lega í fari fólks og gat hermt eftir svip þess, rödd og göngulagi. Ég gleymi því seint hvað þær gátu hlegið innilega saman amma og Helga systir hennar þegar þær rifj- uðu upp sögur af bemskuslóðunum á Norðfirði eða árunum sem þær áttu saman úti í Kaupmannahöfn. Hafi hugsjónir og ástríða verið aðalsmerki afa míns vora skynsem- in og nákvæmnin ömmu leiðarljós. Afi gat ekki leynt ást sinni - en amma var lítið fyrir að „röfla um hlutina“ - lét verkin þess í stað tala - og þannig tjáði hún tilfinn- ingar sínar. Hún hitaði kakó á morgnana, straujaði fötin okkar, kenndi okkur kvæði, las með okkur landafræði og burstaði skóna á hveiju kvöldi. Við vissum það kannske ekki þá - en vitum það nú - að í hverri stroku var væntum- þykja - í hverri máltíð var kærleik- ur hennar aðal kryddið. Það var helst að amma gæti tjáð umhyggju sína og þakklæti við þriðja aðila. Þannig átti hún til að segja mér hvað henni þætti mikið til dóttur sinnar, mömmu minnar, koma. Hún elskaði hana af öllu sínu hjarta - án þess að hún gæti nokk- um tímann sagt henni það hreint út. Þegar mamma var lítil orti afi til hennar þessa vísu: Þú vekur mig af værum blund, minn vanga strýkur lítil mund. Það var mín gleði og gæfustund er Guð þig sendi á minn fund. Mamma var þeirra gleði og gæfa - allt til enda. Samband hennar við foreldra sína var einstaklega náið og ástúðlegt. Hún hafði samband við þau oft á dag og síðustu árin snerist líf hennar að miklu leyti um ömmu. Amma var geysilega þakk- lát dóttur sinni fyrir alla hennar hjálp, hlýju og nærgætni - þáð sagði hún mér enda hefði hún ekki getað verið heppnari með dóttur. Amma Ollý var skarpgreind kona sem fýlgdist með fréttum fram á síðasta dag. Það var sama hvort um ættbálkadeilur í Afríku eða ál- verð á heimsmarkaði var að ræða - amma var með þetta allt á hreinu. Oft greip ég Morgunblaðið með mér þegar ég fór að heimsækja hana og las það í flýti á leiðinni til henn- ar - því fátt fór meira í taugamar á henni en illa upplýst ungt fólk. Stundum varð ég þó að játa mig sigraða enda ekki á margra færi að fylgjast með öllu sem gerist - allsstaðar. Þegar ég hafði játað á mig fáviskuna horfði amma hneyksluð á mig, hristi höfuðið og spurði: „Hvar hefurðu eiginlega verið, bam?“ Þetta fannst henni með öllu óafsakanlegt sinnuleysi. Við gerðum stundum grín að því krakkamir að hún hlyti að hlusta á allar útvarpsstöðvamar samtímis - því hún virtist geta vitnað í alla þætti - allra stöðva - allan sólar- hringinn. Amma ræddi trúmál lítið - enda hefur henni vafalaust þótt trúin vera einkamál hvers og eins, rétt eins og tilfinningamar. Afi var hins vegar mikill trúmaður og ég man það eins og það hafi gerst í gær þegar við sátum og horfðum á snjó- tittlingana kroppa í kornið á svölun- um hans - að afi spurði annars hugar: „Hvernig geta menn svo efast um að Guð sé til?“ - Oft hef ég spurt þess sama þegar ég hef orðið djúpt snortin af fegurð lífsins - hvernig geta menn efast um Guð? Afi lifði líka samkvæmt trú sinni. Hann hlúði að lífínu, hvar sem það varð á vegi hans. Hann keypti jörð uppi í Skorradal fyrir rúmum sextíu árum, sem þá var bara grasi vaxið flæmi. Hann byijaði að plantatijám og bókstaflega gældi við gróðurinn svo nú er þar myndarlegur og hár skógur - minnisvarði um þennan mikla mann - griðastaður fyrir okkur, afkomendur hans. Hann var barngóður með eindæmum og alltaf átti hann súkkulaði í skúffunni sinni handa börnunum sem komu til að selja merki eða rukka fyrir Morgun- blaðið. Hins vegar keypti hann Vísi af blaðsölubörnum niðri í bæ. Ég fór oft með honum í bæinn á laugar- dagsmorgnum og fylgdist með því þegar börnin flykktust í kringum hann og buðu honum Vísi. Eins og við mátti búast gat afi með engu móti gert upp á milli barnanna svo við enduðum venju- lega með því að kaupa tíu eða tólf eintök og jafnmörg súkkulaðistykki í litla söluturninum hjá Eymundsr son. Afi fór þó aldrei með öll þessi blöð heim - vissi sem var að amma hefði ekki séð neina skynsemi í þeirri fjárfestingu. Þess í stað gaf hann utangarðsmönnum í Austur- stræti blöðin og ýmist einhveija aura eða bakkelsi úr bakaríinu. Þegar við komum heim úr bæjar- ferðinni stóð amma og raulaði yfir pottunum í eldhúsinu - búin að þurrka af og þrífa. Hún var nefni- lega snyrtimenni fram í fmgurgóma og á hennar heimili átti hver hlutur sinn stað. Þegar ég hugsa til baka til þess- ara ára er sem ég finni matarilm- inn, heyri hana raula „Blátt lítið blóm eitt er“, finni stóra hendurnar hans afa umlykja mína og ég fyllist ólýsanlegri tregablandinni öryggis- kennd/ Afi sagði einhveiju sinni í viðtali við Gylfa Gröndal: „Ég er ekki ung- ur lengur. Og heilsan er farin að bila. En þetta er allt í lagi, vinur minn. Ég trúi á annað líf. Ég trúi því að Alfred sé að leika hinum megin. Emsi er þar líka, Indriði Waage og Tryggvi Magnússon. Ég er viss um að þeir bjóða mér rullu, þegar ég kem til þeirra ...“ Ég er líka viss um að þeir hafa boðið honum rullu - en um leið og „leikhúsi Lykla-Péturs“ barst liðs- auki fyrir tæpum tíu árum misstum við mikið og þá sér í lagi amma. Hún missti ekki aðeins lífsföranaut sinn heldur einnig sinn besta vin. í einn áratug lifði hún án hans ... en nú er komið að endurfundunum. Ég er viss um að hún gengur beint inn í stóra, hlýja faðminn hans afa - og ég er viss um að henni líður betur nú en nokkru sinni fyrr. Ég get aldrei fullþakkað ömmu og afa fyrir allt það sem þau gáfu og vora mér - það er einfaldlega ekki hægt. En þegar afi missti sinn besta vin, Alfred Andrésson leikara, kvaddi hann vin sinn með þessum orðum, sem ég geri nú að kveðju minni til þeirra beggja. „Til era þær stundir í lífi hvers manns, að hann skortir orð til að lýsa tilfinningum sínum á viðeig- andi hátt. Þess vegna verð ég að láta mér það nægja að votta þér að lokum mitt innilegasta þakklæti fyrir hveija stund, sem ég fékk að njóta návistar þinnar. Það að hafa átt því láni að fagna að eiga þig sem vin og mega umgangast þig, tel ég veralegan hlut af þeirri ham- ingju sem manni getur hlotnast hér í þessu lífi.“ Ég bið góðan Guð að styrkja alla ástvini ömmu minnar; sér í lagi mömmu mína í hennar sáru sorg, Helgu systur hennar ömmu, Halla bróður, sem amma hélt svo mikið uppá, og Skorra bróður, sem kynnti sig alltaf sem sólargeislann hans afa, þegar hann var lítill. Að lokum óska ég ömmu minni, Ollý, góðrar heimkomu. Inger Anna Aikman. Guðrún Ólafía Sigurðsson lézt í Skjóli 7. febrúar sl., 84 ára að aldri. Jarðarförin fór fram í gær í kyrrþey að hennar ósk. Það er dæmigert fyrir lífshlaup Ollýjar, en svo var hún ævinlega nefnd, að hún skyldi t Konan mín og móðir okkar, LINDA BJÖRK SIGURVINSDÓTTIR, Bárðarási 3, Hellissandi, verður jarðsungin frá Ingjaldshólskirkju föstudaginn 18. febrúar kl. 14.00. Halldór Pétur Andrésson Sigurvin Jón Halldórsson, Jón Oddur Halldórsson, Rakel Lilja Halldórsdóttir. t Ástkær faðir okkar, ÞORSTEINN SÆTRAN, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 18. febrúar kl. 10.30. Fyrir hönd aðstandenda, Sfvert Bjarni Sætran, Sigrún Kristín Sætran. t Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, mágkona, amma og langamma, GÍSLLAUG ELÍASDÓTTIR frá Hellissandi, Höfðagrund 9, Akranesi, verður jarðsungin frá Akraneskirkju fimmtudaginn 17 febrúar kl. 14.00. Sigurjón lllugason, Gunnar Sigurjónsson, Kristný Pétursdóttir, Leópold Sigurðsson, Sigurlaug R. Sævarsdóttir, Einar ísleifsson, Eydís Rut Gunnarsdóttir, Hörður Þorsteinn Benónýsson, Sævar Jón Gunnarsson, Guðmundur Geir Guðmundsson og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.