Morgunblaðið - 16.02.1994, Side 39

Morgunblaðið - 16.02.1994, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 1994 39 Einn mesti sálfræðiþriller seinni tíma. Hún er hættuleg - hún heimtar fjölskylduna afttu- með góðu eða illu. Jamie Lee Curtis frábær í hlutverki geðveikrar móður. Sýnd kl. 5,7, 9 og 11 . Bönnuð innan 14 ára. I SÍMI: 19000 Vegna gífurlegs þrýstings færum við PÍANÓ í A-sal í tvo daga Tilnefnd til 8 Óskarsverðlauna M.a. besta mynd, besti leik- stjóri, besta aðalleikkona og besta aukaleikkona. PÍANÓ Sigurvegari Cannes-hátíðarinnar 1993 „Píanó, fimm stjörnur af fjórum möguleg- um.“ ★★★★★ G.Ó. Pressan Aðalhlutverk: Holly Hunter, (Golden Globe verðlaunin, besta aðalleikkona), Sam Neill, Harvey Keitel og Anna Paquin. Leikstjóri: Jane Campion. Sýnd kl. 4.50, 6.50, 9 og 11.10. KRYDDLEGIN HJÖRTU Aðsóknarmesta erlenda myndin (USA fré upphafl. ★ ★ ★ ★ Hallur Helgason, Pressan. ★ ★ ★ Júlíus Kemp, Eintak ★ ★ ★ Hilmar Karlsson, D.V. ★ ★ ★ 1/2 Sæbjörn Valdimarsson, Mbl. ★ ★ ★ hallar í fjórar, Ólafur Torfason, Rás 2. Aðalhlutverk: Marco Leonardl (Clnema Paradiso) og Lumi Cavazos. Sýnd kl. 5,7,9 og 11. MAÐUR ÁN ANDLITS ★ ★ ★ A.I. MBL. Aðalhlutv.: Mel Gibson. Sýnd kl. 4.50, 6.50,9 og 11.10. HUTATJAlDiÐ Stepping Razor Stórbrotin mynd um reggímeistar- ann Peter Tosh. Sýnd kl. 5,7,9og 11. nn „Hrífandi, spennandi og crófísk.“ . 41% (Alþýðubl.) í ★ ★ ★ 1/2„MÖST“, Pressan rr „Yngstu lcikararnir fara ■ H á kostum.“ (Morgunbl.) .. a m Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. íslenskt - Já takk! irnar í heild þótt það geti um leið leitt til þess að einstök byggðarlög þurfi að sjá á eftir kvóta sínum. Spurningar um samstöðu Halldór Ásgrímsson, þingmaður Framsóknarflokks, sagðist vera sammála mörgu af því sem sjávar- útvegsráðherra sagði í ræðu sinni, meðal annars því að nauðsynlegt sé að byggja á þeim grunni sem | lagður hefur verið við stjórn fisk- veiða og það sé einnig skoðun Framsóknarflokksins. Hins vegar ríkti verulegt óvissuástand um þessi mál nú, m.a. vegna þess hvernig ríkisstjórnin hefði staðið að málum. ( Þannig hefði ríkisstjórnin ekki leit- að til annarra flokka og hagsmuna- aðila í nægilega ríkum mæli og það hefði leitt til þess að sjómenn hefðu að sumu leyti horfið frá frá stuðn- ingi við málið. En Halldór sagði, að stjórnarand- staðan á Alþingi hlyti að spytja hvort taka eigi frumvarp stjórnar- innar mjög alvarlega. Erfiðlega hefði gengið að ná samstöðu milli stjórnarflokkanna um að leggja frumvarpið fram og það hefði ekki tekist fyrr en undir síðustu jól. Þá hefði verið álitið að stjórnarflokk- arnir væru báðir bundnir af málinu en nýleg samþykkt flokkstjórnar Alþýðuflokksins, þar sem kvóta- kerfinu er hafnað, og leiðarar í Alþýðublaðinu um sama mál vektu spurningar. Halldór sagði mikil- vægt að Alþýðuflokkurinn eyddi efa um hvernig hann myndi standa að málinu á Alþingi. Rannveig Guðmundsdótti, þing- flokksformaður Alþýðuflokks, svar- aði að málamiðlanir í ríkisstjórnum væru sjaldnast stefna eins flokks og ekki væri óeðlilegt þótt flokkur- inn ítrekaði stefnu sína á flokksvett- vangi. Aðrir þingmenn Alþýðu- flokksins, sem tóku til máls í gær- dag, töldu að flokkurinn myndi standa að frumvarpinu sem væri grundvöllur málamiðlunar milli stjómarflokkanna en það yrði að taka frekari breytingum í sjávarút- vegsnefnd þingsins. Efasemdir Bæði Gunnlaugur Stefánsson og Gísli V. Einarsson, þingmenn Al- þýðuflokks, lýstu efasemdum um frumvarpið, einkum ákvæði um smábáta sem kveða á um bann- daga. Þá lýstu þeir einnig efasemd- um við kvótakerfið. Þeir hvöttu til þess að skoða möguleika á að auka þorskkvóta yfirstandandi fiskveiði- árs og lagði Gísli til, að auka kvóta um 20 þúsund tonn og úthluta helmingnum til þeirra byggða sem hefðu orðið verst úti við skerðingu á kvótanum og hinn helmingurinn yrði settur á kvótakaupamarkað til að styrkja tillögur nefndar þriggja ráðuneytisstjóra. Gunnlaugur lýsti miklum efa- semdum um að kvótakerfið hefði náð tilgangi við að vernda fiski- stofnana, auka hagræðingu í sjáv- arútvegi eða treysta byggð og bú- setu í landinu. Hann sagði að svör við þessu yrðu að fást í sjávarút- vegsnefnd áður en frumvarpið yrði afgreitt þaðan. Þá sagðist hann halda, að sjómenn hefðu ekki stuðl- að að núgildandi fiskveiðistjórnun- arlögum árið 1990 ef þeir hefðu séð þá þróun fyrir sem orðið hefur varð- andi frjálst framsal og þátttöku þeirra í kvótakaupum. Gunnlaugur sagði að þróunin í þessum málum væri ör og lögin þyrftu því stöðugr- ar endurskoðunar við. Nýr stjórnarmeirihluti? Anna Ólafsdóttir Björnsson, þingmaður Kvennalistans, sagði að ósamlyndi stjórnarflokkanna hefði sett svip sinn á umræðuna og það væri sóun á tíma þings og þjóðar ef í ljós kæmi að ríkisstjórnin hefði ekki meirihluta eigin fulltrúa á bak- við sig í þeim tillögum sem þarna væru ræddar. Hún sagði að nýr stjórnarmeirihluti virtist vera að myndast í þessu máli og það væru tíðindi sem útheimtu ekkert minna en nýjar kosningar. Anna vakti athygli á að sjávarút- vegsráðherra hefði óskað eftir því að tillögur ráðuneytisstjóranefndar- innar um kvótaþing tengdust um- fjöllun í umíjöllun sjávarútvegs- nefndar um frumvarpið um stjórn fiskveiða. Anna sagðist telja að hugmyndin um kvótaþing tæki ekki á kvótabraskvandanum og spurði Vilhjálm Egilsson, þingmann Sjálf- stæðisflokks og annan formann tví- höfðanefndarinnar, hvort hann væri sammála því að kvótaþing sé æski- leg lausn og bæri að taka inn í frum- varpið um stjórn fiskveiða. Vilhjálmur svaraði að hann teldi kvótaþing ekki til bóta og drægi úr hagkvæmni í sjávarútvegi. Með því væri verið að vega að fiskvinnsl- unni sem yrði að búa við stöðug- leika í aðdráttum á hráefni. Þá gæti slíkur kvótamarkaður leitt til þess að kvótinn færðist á færri hendur og slíkt yrði dapurleg niður- staða. Jóhann Ársælsson, þingmaður Alþýðubandalags, sagði, að núgild- andi kerfi byggðist á að koma eign- arrétti á auðlindirnar í sjónum. Aðaltillaga ríkisstjórnarinnar nú væri að festa kvótakerfið í sessi með öllum þeim göllum sem á þvi væru. Frumvarpið nú væri um smá- vægilegar lagfæringar og Alþýðu- bandalagið gæti skrifað upp á sum- ar þeirra en ekki allar. Hann var til dæmis andvígur því að setja veiðitakmarkanir á smábáta undir 6 lestum og sagðist telja eðlilegra að framlengja það kerfi sem í gildi væri um þennan hluta flotans. Við það myndi draga úr sókn þessara báta, því því eigendur þeirra hefðu átt von á að fá úthlutað kvóta mið- að við veiðireynslu síðustu ára og því sótt mun meira en ella. Þá taldi . r Jóhann ekki koma til mála að út- hluta aflaheimildum til fiskvinnslu- stöðva. Steingrímur J. Sigfússon, þing- maður Alþýðubandalags, sagði að skipulag fiskveiðistjórnunar yrði alltaf málamiðlun og spurningin væri um að ná sanngjarnri niður- stöðu sem sátt geti náðst um. Frum- varp ríkisstjórnarinnar væri skammgóð lausn og þar væri engin tilraun gerð til að leysa úr vanda- málum sem tilfærsla veiðiheimild- anna hefði skapað. Það væri furðu- legt í ljósi þeirra deilna sem af þeim 1 hlutum hefur sprottið á undanföm- um mánuðum. Spurningin væri þá sú hvort Alþingi og sjávarútvegs- nefnd bæri gæfu til þess að taka þessi mál til sjálfstæðrar skoðunar, óháð ríkisstjórn eða deilum fortíðar- innar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.