Morgunblaðið - 16.02.1994, Page 44
MOHGVNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1 103 REYKJA VÍK
SÍMl 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3010 / AKUREVRI: HAFNARSTRÆTl 85
MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 1994
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK.
Islending-
urgripinní
'Danmörku
með 100 kg
af hassi
ÍSLENDINGUR á fertugsaldri
var handtekinn í gær þegar hann
reyndi að smygla um það bil 100
kíló af hassi til Danmerkur með
ferju frá Þýskalandi. Maðurinn
hefur verið búsettur erlendis um
árabil og komið við sögu fíkni-
efnamála bæði hérlendis og er-
lendis m.a. á Spáni og í Bretlandi.
— > Maðurinn var handtekinn í danska
bænum Ábenrá skömmu eftir komu
frá Þýskalandi en grunur leikur á
að efnin sem hann var með hafi
verið flutt frá Suður-Evrópu en
maðurinn hefur um skeið m.a. verið
búsettur á Spáni.
Lögregluyfirvöldum hér á landi
hafði þó eftir handtökuna í gær bor-
ist fyrirspurn að utan um manninn
og feril hans.
----» ♦ ♦--
-'Umboðsmað-
urinn spáir
Björk fleiri
• • Morgunblaðið/Keli
Oskudagur undirbúinn
KRAKKAR í Isaksskóla voru í óða önn í gær að búa til grímubúninga og öskupoka fyrir öskudaginn sem er í dag. Frí er í skólum og mega
vegfarendur búast við að fá poka hengda aftan á sig ef þeir hafa ekki varan á.
verðlaunum
UMBOÐSMAÐUR Bjarkar Guð-
mundsdóttur, Derek Birkett,
spáir henni fleiri verðlaunum
eftir Brit-hátíðina í fyrrakvöld.
Hann spáir því að hún eigi eftir
að fá að minnsta kosti fern MPI-
verðlaun i næstu viku, að auki
segir Birkett að hún fái Grammy-
-*»verðlaun fyrir besta myndbandið
í næsta mánuði, en Grammy-
verðlaun eru með mestu viður-
kenningum tónlistarheimsins.
Auk þess að taka við verðlaunun-
um í fyrrakvöld söng Björk með
bresku söngkonunni PJ Harvey.
David Bowie óskaði eftir því við
Björk að hún syngi með sér á hátíð-
inni, en hún neitaði.
Sá „Velti ekki...“ á bls. 14.
Und irmálsþ orskur
8% af afla togskipa
Hlutfallið tvöfalt hærra sé miðað við fjölda físka, ekki þyngd
UNDIRMÁLSÞORSKUR í afla togara og togbáta, sem landað var
til vinnslu hérlendis í fyrra reyndist tæplega 5.300 tonn. Það var
8,1% af þeim þorskafla þessara skipa, sem landað var hér heima.
Hlutfallið er svo tvöfalt hærra sé miðað við fjölda fiska en ekki
þyngd. Ekki liggur fyrir hve mikið af undirmálsþorski var í þeim
afla, sem seldur var óunninn á erlenda markaði, í gámum eða
siglingum. Líklega er hlutfallið þar enn hærra, því sumar útgerð-
ir senda allan smáfisk utan, enda fæst þar gott verð fyrir hann.
Skattyfirvöld þurfa á næstunni að fjölga starfsliði sínu
Samkvæmt upplýsingum frá
Fiskistofu lönduðu togarar og tog-
bátar rúmum 65.000 tonnum af
þorski til vinnslu hér á landi í fyrra
og voru 5.278 tonn af því undir-
málsþorskur, eða 8,1%. Mjög mis-
munandi er hvert hlutfalls undir-
málsins er hjá togurum og bátum
og kemur þar margt tii. í nokkrum
tilfellum er ekkert undirmál gefið
upp og er skýringin þá sú, að það
fer utan í gámum, en stærri fiskin-
-Fleiri fyrirtæki þurfa
að leggja fram gögn
um er landað til vinnslu hér heima.
í öðrum tilfellum er hlutfallið mjög
lágt og er þar um sömu skýringar
að ræða.
Þá má lesa út úr upplýsingum
Fiskistofu, að hlutfallið er mismun-
andi eftir þvi frá hvað landsvæðum
viðkomandi skip eru gerð út. Greini-
legt er að togarar frá Norðurlandi
eru mest að veiðum þar sem undir-
málsfiskurinn er á ferðinni. Undan-
SKATTSTJÓRINN í Reykjavík segir að skattyfirvöld muni á næst-
unni fjölga starfsfólki í um 20 í eftirlitsdeildum og reiknar hann
með að fjölgunin leiði til þess að fleiri fyrirtæki þurfi að leggja
fram gögn um rekstur sinn en verið hefur til þessa. Þannig fjölgi
um sjö starfsmenn hjá skattstjóra í Reykjavík. Lögfræðingur Verslun-
“írráðs íslands gagnrýndi upplýsingaöflun skattyfirvalda harðlega í
samtali við Morgunblaðið sl. föstudag og dró þar í efa að heimildir
skattyfirvalda til að krefjast upplýsinga frá fyrirtækjum sem leiði
til að fyrirækin þurfi að bera mikinn tilkostnað og fyrirhöfn nái
jafn langt og yfirvöld virðist ætla.
Gestur Steinþórsson, skattstjóri,
kveðst ekki sammála þeirri gagn-
rýni sem meðal annars hefur komið
frá lögfræðingi Verslunarráðs ís-
lands, að skattyfirvöld fari út fyrir
heimildir sínar vegna þeirrar kröfu
að fyrirtæki afli skattyfirvöldum
víðtækra gagna um rekstur sinn.
Fyrirtækjum sé skylt að sanna að
sá kostnaður sem þau telji sig hafa
lagt út sé raunveruiegur og hafi
skattyfirvöld heimildir til þess að
fara fram á slíka sönnun. „Fyrir-
tæki hafa hins vegar e.t.v. orðið
vör við að fleiri fyrirtæki eru krafin
um að gera grein fyrir þessum
kostnaði en áður og auðvitað kostar
það fyrirtækin bæði fé og fyrirhöfn
að þurfa að standa okkur skil á því
hvaða kostnað þau hafa borið, til
að sýna fram á að hann sé réttur.
Það er eðlilegt og allir verða að
gera slíkt ef farið er fram á sönn-
un,“ segir Gestur.
tekningarlítið eru þeir fyrir ofan
meðaltal. Vestfirðingarnir eru yfir-
leitt yfir meðaltalinu líka, þó ekki
eins mikið og Norðlendingar, enda
setja margir þeirra mikið í gáma.
Hlutfall undirmáls í afla Austfirð-
inga er mjög mismunandi, allt frá
engu og upp í 13,62%. Loks eru
það skip frá Suðurlandi og vestur
á Snæfellsnes. Þar er sömu söguna
að segja og af Austljjörðum, ýmist
er ekkert undirmál gefið upp við
löndun til vinnslu hér heima eða
afar lítið, en yfirleitt eru skip af
þessu svæði undir meðaltalinu.
Sjá í Úr verinu bls. B2
Morgunblaðið/Frosti
Eiður Smári Guðjohnsen
Barcelona
bauð Eiði
Smára til sín
EIÐUR Smári Guðjohnsen, 15
ára unglingalandsíiðsmaður í
knattspyrnu, kom heim frá
Barcelona um helgina eftir að
hafa æft ytra í níu daga í
boði Spánarmeistaranna. Fé-
Iagið sýndi honum áhuga, en
sömu sögu er að segja af fleiri
þekktum félögum eins og Fey-
enoord í Hollandi og And-
erlecht í Belgíu.
Eiður Smári er sonur Arnórs
Guðjohnsens, landsliðsmanns
hjá Örebro í Svíþjóð, og Ólafar
Einarsdóttur en Ólöf var með
honum hjá Barcelona, sem er
eitt frægasta knattspyrnulið
Evrópu. Eiður æfði með 18 ára
liði félagsins og kynntist nýrri
hlið atvinnumennskunnar.
„Þetta var miklu meiri harka
en ég hafði kynnst,“ sagði hann
við Morgunblaðið.
Sjá: „Eiður Srnári..." bls. 43.