Morgunblaðið - 24.03.1994, Blaðsíða 1
88 SIÐURB/C
STOFNAÐ 1913
69. tbl. 82. árg.
FIMMTUDAGUR 24. MARZ 1994
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Kohl ekki boðið
á D-dagshátíð
Bonn. Reuter.
HELMUT Kohl, kanslari Þýskalands, vildi ekki kannast við það í
gær, að leiðtogar í ríkjum bandamanna í heimsstyrjöldinni síðari
hefðu móðgað hann með því að bjóða honum ekki til hátíðahalda
6. júní nk. í tilefni af því að 50 ár verða þá liðin frá innrásinni í
Normandí. John Major, forsætisráðherra Bretlands, hefur hins
vegar boðið Þjóðverjum að taka þátt í athöfn í London á næsta
ári þar sem stríðslokanna verður minnst en það hefur vægast
sagt fengið misjafnar undirtektir í Bretlandi.
„Þýski herinn þrammar yfir Bret-
land“ sagði Daily Mirror á forsíðu
og ljóst er, að þannig muni margir
Bretar líta á málið. „Þetta verður
erfitt fyrir hermenn, sem misstu til
dæmis félaga sína á vígvellinum,"
sagði Greg Pope, einn þingmanna
Verkamannaflokksins. Teddy Tayl-
or, þingmaður fyrir íhaldsflokkinn,
sagði, að betra hefði verið, að Þjóð-
veijar játuðu ábyrgð sína á stríðinu
eins og Japanir hefðu þó gert.
Major forsætisráðherra segir hins
vegar, að hátíðahöldin 8. maí á
næsta ári verði fyrst og fremst til
að minnast og þakka fyrir hálfrar
aldar frið í Evrópu.
Kohl kanslari sagði í gær, að
tveimur dögum eftir D-dag, sem
er 6. júní, myndu Þjóðveijar og
Frakkar efna til æskulýðshátíðar í
Heidelberg til -að minnast vináttu
þjóðanna eftir stríð og þess á einn-
ig að minnast í sumar að þá fara
síðustu hermenn bandamanna frá
Berlín.
Reuter
Efasemdir um flugöryggi í Rússlandi
RÚSSNESKUR björgunarmaður leitar í braki Airbus
A 310 þotu flugfélagsins Aeroflot sem fórst nálægt
borginni Novokúznetsk í Síberíu í fyrrinótt, 3.750
km austur af Moskvu. Allir sem um borð voru, 13
manna áhöfn og 63 farþegar, fórust en með öllu
var óljóst í gær hvað olli slysinu, getgátur væru
uppi um skemmdarverk. Þotan var hálftóm á flugi
í 30.000 feta hæð á leið frá Moskvu til Hong Kong
er hún hvarf skyndilega af ratsjám. Þrettán mínútum
áður höfðu flugmenn sambandi við flugturn til að
gefa upp staðarákvörðun og gáfu ekkert til kynna
um að eitthvað væri að. Aðeins einu sinni áður hef-
ur þota af gerðinni Airbus A310 farist. Slysið þykir
líklegt til að vekja að nýju upp efasemdir um flugör-
yggi í Rússlandi.
Reuter
Kannar Whitewater-mál
Mikil ólga á svæðum blökkumanna í Suður-Afríku
Blóðugt stríð vofir
yfii’ í heimalöndum
FULLTRÚADEILD Bandaríkjaþings samþykkti í gær að efna til vitna-
leiðslna í Whitewater-málinu en með nokkrum fyrirvörum af hálfu demó-
krata, sem eru í meirihluta á þingi. Stórblaðið The New York Times gefur
í skyn í forystugrein að tilraunir embættismanna Bills Clintons forseta til
að eyða málinu og tefja fyrir rannsókn þess hljóti að auka grun um sekt
forsetahjónanna. Robert Fiske, sérstakur rannsóknardómari í Whitewater-
málinu, sést hér með fréttamönnum en hann hefur varað við því að vitna-
leiðslur á þingi gætu spillt fyrir rannsókninni.
Sjá „Báðar þingdeildir...“ á bls. 31.
Bisho, Jóhannesarborg. Rcutcr.
MANNSKÆÐ átök eru talin yfirvofandi í tveimur heimalöndum
suður-afrískra blökkumanna, Ciskei og Kwa-Zulu, nú þegar stjórn-
völd undirbúa innlimun þeirra í Suður-Afríku eftir kosningarnar í
næsta mánuði. Er óttast að Mangosuthu Buthelezi, helsti leiðtogi
zulumanna, muni boða styrjöld við andstæðinga sína ef ekki næst
fram málamiðlun í deilunum um sjálfræði einstakra héraða sem
hann gerir að skilyrði fyrir þátttöku í fyrstu lýðræðislegu kosning-
um allra kynþátta í Suður-Afríku í næsta mánuði.
Yiðbragðsflýtirinn í Buckingham-höll til umræðu
Málverkarán uppgötv-
aðist eftir þrjá mánuði
Lundúnum. The Daily Telegraph. Reuter.
GAGNGER endurskoðun á öryggiskerfi Buckingham-hallar
stendur nú fyrir dyrum eftir að upp komst um þjófnað á hol-
lensku málverki rúmum þremur mánuðum eftir að hann átti
sér stað. Verkið, „Gömul hjón í forsælu" eftir Adrian Van
Ostade, sást síðast í gestaherbergi hallarinnar í nóvember og
hafði enginn gert sér grein fyrir því að verkið væri horfið
fyrr en það stakk upp kollinum á málverkauppboði í Lundúnum
í síðustu viku.
Talsmaður hallarinnar sagði, málverkasafni konungsfjölskyld-
að þrátt fyrir að öryggiskerfi unnar, væri ekkert kerfi fyllilega
væri fyrir hendi til eftirlits með öruggt. Sagði hann, að treysta
yrði starfsfólki hallarinnar. Ekk-
ert bendir til innbrots og hefur
fyrrum starfsmaður, 22 ára
gamall, verið ákærður um að
hafa stolið verkinu í janúar.
Verkið er frá átjándu öld,
23 x 19 cm og er metið á
15.000 til 20.000 pund, en gæti
selst á allt að 200.000 pund eða
rúmar 20 milljónir íslenskra
króna á uppboði.
Zam Titus, fulltrúi Fram-
kvæmdaráðsins, TEC, sem er sam-
eiginleg nefnd fulltrúa allra kyn-
þátta og deilir völdum með ríkis-
stjórninni í Pretoriu næstu fimm
árin, sagði í gær að stjórn Oupa
Gqozos í heimalandinu Ciskei hefði
verið leyst frá störfum. „Gqozo er
búinn að vera, ráðherrar hans eru
búnir að vera. Ég hef heyrt að hann
sé heima hjá sér að pakka niður
og búa sig undir brottför". Upp-
reisnarmenn í Ciskei kröfðust þess
í gær að Gqozo ávarpaði þá á
íþróttaleikvangi í höfuðstaðnum
Bisho. Svo virtist sem Gqozo ætlaði
ekki að verða við kröfu þeirra.
Hann sagði af sér á þriðjudag vegna
uppreisnar liðsmanna öiyggissveita
landsins og óskaði eftir aðstoð
S-Afríkustjórnar við að afstýra
stjórnleysi og blóðsúthellingum.
Ostaðfestar fregnir hermdu að
uppreisnarmennirnir héldu 30 hátt-
settum embættismönnum í gíslingu
á leikvanginum. Skýrt var frá því
að tveir embættismenn S-Afríku-
stjórnar hefðu fengið það hlutverk
að stjórna Ciskei til bráðabirgða.
Suður-afrískir hermenn voru í við-
bragðsstöðu í gær við landamærin
að Ciskei.
Innbyrðis stríð zulu-manna?
Svipuð uppreisn varð til þess að
Lucas Mangope, einræðisherra í
öðru heimalandi, Bophuthatswana,
neyddist til að segja af sér fyrir
tveimur vikum. Fréttaskýrendur
telja að hætta sé á blóðugu innbyrð-
isstríði zulu-manna, stærstu
blökkumannaþjóðar S-Afríku, í
heimalandi þeirra, Kwa-Zulu,
vegna þeirrar ákvörðunar þarlendra
ráðamanna að sniðganga kosning-
arnar í næsta mánuði.
„Þetta gæti orðið mjög grimmi-
legt og blóðugt stríð,“ sagði Jakkie
Cilliers, varnarmálasérfræðingur í
Jóhannesarborg. Hann bætti þó við
að enn væri möguleiki á að finna
friðsamlega lausn í viðræðum Afr-
íska þjóðarráðsins, ANC, og Ink-
atha-frelsisflokksins, flokks But-
helezis. Cilliers sagði að Buthelezi
kynni að fallast á málamiðlun í við-
ræðunum, en ef það gengi ekki
'eftir myndi hann heyja stríð til að
halda völdunum í Kwa-Zulu.