Morgunblaðið - 24.03.1994, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 24.03.1994, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MARZ 1994 Requiem Mozarts flutt í Kristskirkju SÖNGSVEITIN Fílharmónía flytur á, pálmasunnudag 27. mars aðal- verkefni vetrarins, Requiem eða Sálumessu eftir Wolfgang Amadeus Mozart, í Kristskirkju í Landakoti. Tónleikarnir hefjast kl. 17. í kynningu segir: „Fílharmónía hefur tvisvar áður flutt þetta tónverk, sem er eitt hið þekktasta og fegursta sinnar tegundar; í síðara skiptið fyrir fimm árum, einnig í Kristskirkju." Einsöngvaramir sem taka þátt í flutningnum með söngveitinni eru; Sigrún Hjálmtýsdóttir sópran, Alina Dubik alt, Garðar Cortes tenór og Guðjón Óskarsson bassi, sem kemur hingað frá Osló í þessu skyni. Hljóm- sveitina skipa 25 tónlistarmenn, allir úr Sinfóníuhljómsveit Islands. Stjóm- andi er eins og undanfarin ár Úlrik Ólason organisti við Kristskirkju og Víðistaðakirkju í Hafnarfirði, en kon- sertmeistari er Szymon Kuran. Radd- þjalfari söngsveitarinnar er Elísabet Erlingsdóttir ópemsöngkona og söng- kennari. Tónleikamir, sem að þessu sinni era helgaðir minningu Kristínar Blön- dal kennara, verða endurteknir mánu- daginn 28. og þriðjudaginn 29. mars kl. 21 báða dagana. Aðgöngumiðar fást hjá söngfélögum, í Bókabúðinni Kilju við Háaleitisbraut og við inn- ganginn. Söngsveitin Fílharmónía. Verðið á 1. flokks lambakjöti í hálfum skrokkum lækkar um heil 20%. Fáðu þér ljúffengt lambakjöt í næstu verslun á frábæru verði, aðeins 398 krónur kílóið. ♦Leiðbeinandi smásöluverö LflíflBflKJOTI Bestu kaupin í lambakjöti á adeins 398kr./hg. íncestu verslun Norskur trúður sljóm- ar á Sinfóníutónleikum TÓNLEIKAR Sinfóníuhljómsveitar íslands verða í Háskólabíói laug- ardaginn 26. mars kl. 14.30 og eru þeir tónleikar ætlaðir yngstu hlust- endunum, en væntanlegur er til landsins norski trúðurinn Melvin Tix. Hljómsveitarsljóri er Melvin Tix, einleikari er Melvin Tix og kynnir verður Melvin Tix. Það væri synd að segja að Sinf- óníuhljómsveit íslands hafi ekki gefið æsku landsins gaum þetta árið. í byrjun starfsárs unnu hljóðfæraleik- arar að tónsköpun með nemendum og kennurum Mýrarhúsaskóla og lauk því verkefni með tónleikum í íþróttahúsi Seltjarnarness þar sem Sinfónían lék árstíðir Vivaldis en nemendur fluttu sínar tónsmíðar um árstíðirnar. í byijun febrúar voru haldnir fernir tónleikar fyrir fram- haldsskóla. Seinni hluta febrúarmán- aðar tók Sinfóníuhljómsveitin þátt í hinu stórmerkilega verkefni í tónlist- aruppeldi sem Jónas Ingimundarson og hin ýmsu bæjarfélög, að þessu sinni Akranes, Selfoss og Kópavog- ur, hafa staðið að. Haldnir voru tvennir skólatónleikar á hveijum stað auk almennra tónleika. Vakti það athygli að á almennu tónleikunum á Akranesi, sem haldnir voru á sama tíma og þáttur Hermanns Gunnars- sonar var í sjónvarpinu, mættu rúm- lega tvö hundruð manns. Að mati aðstandenda hljómsveitarinnar sýnir þetta hvaða sess hljómsveitin er að ná meðal landsmanna. í þessari viku ætlar SÍ að snúa sér að yngstu hlustendunum. Vænt- anlegur er til landsins norski trúður- inn Melvin Tix. Laugardaginn 26. mars kl. 14.30 mun hann stjórna tónleikum Sinfóníuhljómsveitarinnar í Háskólabíói. Föstudaginn 25. mars er elstu bekkjum leikskóla Reykjavíkur, þ.e. 4-5 ára börnum, boðið á morguntón- leika kl. 10.30 og 11.30. Undanfarin ár hafa Dagvist barna í Reykjavík og SÍ átt með sér gott samstarf og eru þessir tónleikar árangur af þeirri samvinnu. Trúðurinn Melvin Tix, sem réttu Norski tónlistartrúðurinn Melvin Tix stjórnar sinfóníutónleikun- um á laugardag fyrir yngstu hlustendurna. nafni heitir Petter Vabog, er fæddur í litlum bæ fyrir utan Ósló. Petter byijaði sex ára að leika á blokk- flautu, tveim árum síðar eignaðist hann alto-horn og fór að leika með drengjahljómsveitinni í heimabæ sín- um, Sandefjord. Tónlistaráhuginn óx og tíu ára áskotnaðist honum alvöru franskt horn. Þannig hófst tónlistar- ferill Petters. Fyrir réttum 10 árum varð fyrsti tónlistartrúður Noregs til. Þá starf- aði Petter sem hornleikari í sinfón- íuhljómsveitinni í Stavanger. Síðan 1988 hefur Petter algjörlega helgað sig starfi trúðsins og hefur vart und- an. Melvin Tix hefur verið kallaður „Victor Borge barnanna" þó fullorðn- ir hafi ekki síður gaman af kúnstum hans. Hátíðartónleikar í Islensku óperunni TÓNLEIKARÖÐ í tilefni 30 ára afmælis Tónskóla Sigursveins D. Krist- inssonar lýkur með hátíðartónleikum í Islcnsku óperunni laugardaginn 26. mars kl. 17. Á efnisskrá er íslensk tónlist og verður m.a. frum- flutt nýtt verk eftir John Speight. Verk John Speight heitir Þula frá Týli og er við ljóð Jóhannesar úr Kötlum. 100 nemendur Tónskólans flytja verkið og höfundurinn stjórnar flutningnum. Einnig verða flutt tvö verk eftir stofnanda Tónskólans, Sig- ursvein D. Kristinsson, auk verka eftir Árna Björnsson, Hafliða Hall- grímsson, Atla Heimi Sveinsson, Jón Guðmundsson, Steingrím Sigfússon, Þórarinn Jónsson og Jón Leifs. Tónleikar almennrar deildar Tón- skólans verða síðan í kvöld, fímmtu- dagskvöld, kl. 20.30 í íslensku óper- unni og verða þar m.a. flutt verk eftir Johann Sebastian Bach, Franz Schubert, Carl Maria von Weber, Árna Thorsteinsson, Sigfús Einars- son, George Gershwin og marga fleiri. Aðalhvatamaður að stofnun Tón- skólans var Sigursveinn D. Kristins- son tónskáld og var hann skólastjóri í rúm 20 ár. Markmiðið með stofnun skólans var að gera tónlistina að al- menningseign með því að gera flest- um kleift að leggja stund á tónlist- arnám. Síðan hefur skólinn verið í stöðugum vexti og nemendafjöldinn meira en tífaldast. Starf skólans á afmælisárinu sýnir að hugsjón stofn- andans um tónlistarkennslu fyrir alla er aflgjafi skólans enn í dag.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.