Morgunblaðið - 24.03.1994, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 24.03.1994, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MARZ 1994 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MARZ 1994 33 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Ritstjórnarfulltrúi Árvakur h.f., Reykjavík Flaraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Björn Vignir Sigurpálsson. Kringlan 1, 103 Reykjavík. Símar: Skiptiborð 691100. Auglýsingar: 691111. Áskriftir 691122. Áskriftargjald 1400 kr. með vsk. á mánuði innanlands. í lausasölu 125 kr. með vsk. eintakið. Hvers vegna þessi mismunur? ær upplýsingar, sem Þjóðhagsstofnun hefur sent frá sér um afkomu sjáv- arútvegsfyrirtækja í einstök- um landshlutum, eru ákaf- lega athyglisverðar, jafnvel þótt stofnunin hafi alla fyrir- vara á þeim tölum, sem byggjast á lauslegum áætl- unum. í stórum dráttum er það niðurstaða Þjóðhags- stofnunar að afkoma sjávar- útvegsfyrirtækja hafí verið jákvæð sl. tvö ár, þegar á heildina er litið og jafnframt er gert ráð fyrir því, að á þessu ári verði einnig smá- vægilegur hagnaður. Hins vegar vekur verulega at- hygli hvað afkoma fyrirtækj- anna er mismunandi eftir landshlutum. í þessum áætlunum Þjóð- hagsstofnunar kemur fram, að í öllum landshlutum voru sjávarútvegsfyrirtæki rekin með hagnaði á árinu 1992, þegar á heildina er litið, en á þessu varð hins vegar breyting á síðasta ári og gert er ráð fyrir því, að það sama gerist á þessu ári. Á síðasta ári voru sjávarút- vegsfyrirtæki á Reykjavik- ur-Reykjanessvæðinu rekin með halla svo og fyrirtæki á Vesturlandi og Vestíjörð- um og á Suðurlandi. Á þessu ári er enn gert ráð fyrir hallarekstri í þessum sömu landshlutum nema á Suður- landi, þar sem búizt er við gjörbreytingu í afkomu sjáv- arútvegsfyrirtækja í ár. Með sama hætti og veru- legt tap er í fyrrgreindum landshlutum er ljóst, að af- koma fyrirtækjanna á Norð- urlandi, bæði vestra og eystra svo og á Austurlandi, hefur verið jákvæð bæði árin 1992 og 1993 og gert ráð fyrir hagnaði á þessu ári. Hvað veldur þessum mismun á milli landshluta? Þetta eru afar forvitnileg- ar tölur og full ástæða til kanna hvað veldur þessari mismunandi afkomu fyrir- tækjanna eftir landshlutum. í upplýsingum Þjóðhags- stofnunar kemur fram, að heildaraflamagn hafi dregizt mest saman frá árinu 1992 á Vestfjörðum, þar sem hrá- efni hefur minnkað um 9,5%, en jafnframt kemur í ljós, að samdráttur í aflamagni er næstmestur á Austur- landi, eða 5,36%. Afkoma fyrirtækjanna á Austurlandi er hins vegar þokkaleg en afleit á Vestfjörðum. Þá kemur einnig fram í þessum upplýsingum, að aflamagn hefur aukizt á Vesturlandi um tæp 8% frá árinu 1992 en þar er afkoma fyrirtækj- anna enn verri en á Vest- fjörðum. Til þess að hægt sé að halda uppi skynsamlegum umræðum um vanda sjávar- útvegsins og finna hag- kvæmar leiðir til úrbóta er nauðsynlegt að skilgreina vanda þessara fyrirtækja eins rækilega og unnt er. Vestfirðingar hafa bent á, að þeir hafi farið verr út úr þorskveiðiskerðingu en nokkur annar landshluti. Forráðamenn sjávarútvegs- fyrirtækja á Vesturlandi hafa ekki látið mikið í sér heyra, þótt staða þeirra virð- ist verri en Vestfirðinganna. Væntanlega sýna tölur um Reykj avíkur-Reykj anes- svæðið fyrst og fremst bág- an hag fyrirtækjanna á Suð- urnesjum. Líklegt má telja, að gjörbreyting á áætlaðri afkomu fyrirtækja í Suður- landskjördæmi á þessu ári miðað við síðasta ár endur- spegli áhrif loðnuveiðanna á stöðu fyrirtækjanna. Morgunblaðið hefur oft gagnrýnt þá meðaltalsút- reikninga, sem ráða ríkjum í sjávarútveginum. Auðvitað er hér einnig um meðaltöl að ræða. En það er þó við- leitni til þess að nálgast málið enn frekar með því að greina á milli fyrirtækja eft- ir landshlutum og stórfróð- legt að sjá, hvað mismunur- inn er mikill. Það er a.m.k. forsenda þess að hægt sé að takast á við vandann að menn átti sig á því í hveiju hann er fólginn. Hitt er svo annað mál, að erfitt er að sjá, hvernig ríkisstjórnin getur staðið gegn áþekkum aðgerðum á Vesturlandi og hugsanlega Suðurnesjum og boðaðar hafa verið á Vest- fjörðum, eftir að þessar tölur liggja fyrir. Óheft sókn í fiskstofna íslenski þorskstofninn 1955-1992. a. Fjöldi 3 ára nýliða þorsks í milljónum. b og c. Stærð veiðistofns (4 ára þorskur og eldri) og hrygningar- stofns (7 ára fiskur) í þúsundum tonna. d. Afli í þúsundum tonna. Hámarksgildi eru skyggð. Hámark í nýliðun skilar sér nokkrum árum síðar í veiði- og hrygningarstofni og að lokum i afla. Stöðugt minnkandi veiði- og hrygningarstofn er augljós. Góð nýliðun 3 ára fisks 1986 og 1987 (árgangar 1983 og 1984) skilaði sér strax í litlu aflahámarki 1987 en ekki í hrygningarstofni síðar, heldur í litlum hrygningarstofni. Mikill hluti þessarra árganga náði því ekki hrygningaraldri. eftir Svend-Aage Malmberg Inngangur Fiskifræðingar á Hafrannsókna- stofnuninni annars vegar og á Veiði- málastofnuninni hins vegar takast á um hvað valdi sveiflum í fiskstofnum og ekki síður minnkandi þorskstofni yfírleitt. Báðir aðilar gera sér grein fvrir áhrifum umhverfís á fískstofna, en þá greinir á um hlut árganga í stofni og hlut sóknar. Þessarri grein er ætlað að skýra málavöxtu hvað varðar þorsk í al- mennu máli og dæmum án þess að gripið sé til tölfræði eða annarra flók- inna þátta til útskýringa. Skal svo séð hvernig til tekst. Úr skýrslu starfsmanna Veiðimálastofnunarinnar Svo vitnað sé til skýrslu starfs- manna á Veiðimálastofnuninni - Tengsl Barentshafs og íslandsmiða eftir Þórólf Antonsson, Guðna Guð- bergsson og Sigurð Guðjónsson (VMST-R/94004) - þá stendur þar orðrétt: „Það að margir fiskstofnar sýna sömu tilhneigingu á stórum haf- svæðum í takt við umhverfíshætti, bendir sterklega til þess að stærð hrygningarstofna, afrán og fískveiðar eða stjórnun þeirra hafi haft minna að segja um stofnsveiflur heldur en hin miklu áhrif umhverfísins, sem all- ir stofnarnir þurfa að undirgangast“. Sem sagt og skrifað, árgangaskipan og veiðar eða sókn mega sín lítils í samanburði við umhverfisáhrif. Úr ritgerð frá dönsku Haf- og fiskirannsóknunum Skal nú vitnað beint í grein í riti dönsku Haf- og fískirannsóknastofn- unarinnar eftir Eskild Kirkegaard fiskifræðing um ástand þorskstofns í Eystrasalti (Fisk og Hav, 44, 1993). „Þorskur í austanverðu Eystrasalti er á mörkum þess svæðis þar sem þorsk gefur. Þess vegna valda jafnvel litlar breytingar á ástandi sjávar miklu um stofnstærð og útbreiðslu físks. Lág selta og súrefnisskortur á hrygningar- slóðum við Gotland og austar hafa á undanförnum árum valdið erfiðleikum fyrir afkomu þorsks, þ.e.a.s. fyrir árangur hrygningar og kiaks. Að- stæður vestar eða við Borgundarhólm eru nokkuð betri. Skilyrði fyrir bættri nýliðun yfirleitt eru batnandi skilyrði á hiygningarslóðum, sem aftur eru háð innstreymi á söltum og súrefnis- ríkum sjó frá Norðursjó. Slíkt inn- streymi gerist óreglulega á nokkurra eða margra ára fresti við sérstök veð- urskilyrði, þegar sjór frá Norðursjó þrýstist um Skagerak og Kattegat og Dönsku Sundin inn í Eystrasalt. Sjór úr Norðursjó er saltari en sjór í Eystra- salti, og því þyngri og streymir við botn inn á hrygningarslóðir þorsks. Þungi salti sjórinn ýtir létta og súr- efnissnauða sjónum burt. Mælingar hafa sýnt að mikið innstreymi átti sér stað á árunum 1992-1993 eftir langt tímabil án innstreymis, og hafa að- stæður við Borgundarhólm þegar batnað til muna. Samt munu líða a.m.k. 3 ár þangað til að batnandi skilyrði skili sér í aukinni nýliðun og vaxandi hrygningarstofni." (í Eystra- salti miðast nýliðun við 2 ára físk og kynþroski þorsks við 3-4 ára fisk, höf.) Svo mörg eru þau orð um áhrif umhverfis á þorskstofna í Eystrasalti, en snúum okkur nú að áhrifum veiða í sömu skrifum dönsku Haf- og físki- rannsóknanna: „Þrátt fyrir að batnandi skilyrði í Eystrasalti hafi væntanlega góð áhrif á afkomu þorsks á næstunni, þ.e.a.s. á árangur hrygningar og klaks, þá þarf eigi að síður að draga úr sókn til að leyfa fískinum að dafna og tryggja afla til frambúðar. Minnkandi sókn skilar sér að sjálfsögðu strax í minnkandi afla en þegar innan fárra ára mun aflinn aftur aukast. Með áþreifanlegri minnkun sóknar verður til lengri tíma litið unnt að auka afla og tryggja að hrygningarstofninn haldi sig ofan hættumarka, þ.e.a.s. mörkin sem skilja á milli hvort hrygn- ingarstofn getur eða getur ekki valdið viðgangi stofns til frambúðar. Auk þess mun afli einstakra skipa aukast verulega, þ.e.a.s. afli á sóknareiningu. Það stafar af því að minnkandi heildarsókn gefur fískinum færi á að vaxa og dafna og jafnvel að hrygna áður en veiddur er. Meðalþyngd fisks í afla eykst einnig verulega og fisk- veiðarnar njóta vaxtarbroddsins í hveijum einstökum físki. Breytt sókn- armynstur þannig að að minna sé veitt af smáfiski mun einnig hafa í för með sér jákvæð áhrif á bæði stofn og afla. Þessu má ná bæði með stórum möskva og með því að forðast veiðar á miðum með smáfiski.“ Umhverfi eða sókn í „danska" textanum hér á undan var fjallað um áhrif umhverfis og veiða eða sókn á fískstofna. Skyldum við á íslandi ekki kannast við málflutning- inn, svo mjög sem deilt er um hvort megi sín meira umhverfi eða sókn þegar gengur á fískstofna? Enginn vafí leikur á því að í danska ritinu eru bæði atriðin talin hafa áhrif, en sóknin talin valda endanlegum úrslit- um. Þetta sjónarmið er einnig ríkjandi hjá fiskifræðingum á Hafrannsókna- stofnuninni. Hverfum hér aftur til danska text- ans. „Ástæðu breytinga í stofnstærð skal leita í samverkandi áhrifum um- hverfis (hitastig, selta, súrefni) og sóknar. Umhverfisbreytingar hafa al- mennt ekki áhrif á stofna fullorðins fisks (nema vaxtar, höf.) en aftur á lífsmöguleika eggja (hrogna) og seiða. Þá fyrst þegar nýju árgangamir koma fram í 2-3 ára nýliðun, veiðistofni og hrygningarstofni, verður vart áhrifa umhverfis á stofnana. Aukin sókn gefur strax aukinn afla en minnkandi stofn, og aldursdreifíng fisksins breyt- ist. Meðalaldur fisks Iækkar og hlutur stórra og kynþroska fiska þá einnig. Árangur nýliðunar getur eftir sem áður haldist svo lengi sem hrygningar- stofn er nógu stór. Þá fyrst þegar sóknin verður þvílík að fáir fiskar ná hrygningaraldri og hrygningarstofn nær lágmarksstærð þá er hætta á viðkomubresti. Lágmarksstærð mið- ast við stofnstærð þegar hrygningar- stofn er orðinn það lítill að hann veld- ur ekki viðgangi stofns til frambúðar eða viðkomubresti." Stór og lítill hrygningarstofn Enn skal vikið að ritgerð um líf- fræðilega stjórnun fiskveiða í danska ritinu, nú eftir fískifræðinginn Poui Degnbol, þar sem segir eftirfarandi: „Fiskstofn getur rýrnað það mikið að viðkoma hans minnkar. Nýliðun ræðst af stærð hrygningarstofns og umhverfísaðstæðum. Þegar hrygning- arstofn er stór veldur umhverfið eins og m.a. fæðuframboð mestu um fram- vinduna. Góð umhverfisskilyrði fyrir árangur hiygningar og klaks frá hluta hrygningarstofns eru takmörkuð í tíma og rúmi, og heildarnýliðun er ekki háð stórum hluta hrygningar- stofns sem hrygnir utan þessara tak- markana í tíma og rúmi. Ef hrygning- arstofn er aftur á móti lítill lækka hættumörkin og hætta er á að hrygn- ing misfarist. Lítill hrygningarstofn hefur þá í för með sér litla nýliðun og lítil nýliðun leiðir síðan til lítils hrygningarstofns. Stofninn lendir í öngstræti og getur ekki náð sér á strik af því að lítill hrygningarstofn gefur aftur af sér litla nýliðun." I stuttu máli sagt: stór hrygning- arstofn gefur af sér nýliðun í takt við umhverfisáhrif, „góð“ eða „vond“, lít- ill eða lágmarks hrygningarstofn verð- ur fyrir sömu áhrifum umhverfís en með lægri hættumörkum hvort sem umhverfísáhrifin eru „góð“ ' eða „vond“. „Seltufrávikið mikla“ Hér að framan var einkum vísað til þorsks í Eystrasalti sem er á mörk- um útbreiðslu svæðis þorsks í norðan- verðu Norður-Atlantshafi. Sömu við- horf gilda örugglega um þorskstofna vestast í Norður-Atlantshafí eins og við Nýfundnaland og Vestur-Græn- land. Einnig þar skiptir saltur og hlýr Atlantsjór máli annars vegar en ekki súrefni heldur kaldur og seltulítill pólsjór hins vegar. Á þessum slóðum féllu þorskstofnar í óheftri sókn sam- fara umhverfisbreytingum ti! hins verra á áttunda áratugnum þ.e.a.s. hlýr Atlantsjór (Irminger straumur) vék fyrir köldum og seltulitlum pólsjó. Tengsl þessarra miklu umhverfís- breytinga í hafínu vestur þar má m.a. rekja til u.þ.b. 14 ára straumhringrás- ar um norðanvert Norður-Atlantshaf og Norðurhaf, sem gengur undir nafn- inu „seltufrávikið mikla“. Upphaf þess er rakið til ástands sjávar í Norðurhöf- um (hafísárin svonefndu við ísland 1965-1971). Fyrstu vísbendingar um ferlið sunnan og vestan úr hafí, þ.e.a.s. lág selta í hlýsjónum, komu fram í íslenskum og skoskum sjórann- sóknagögnum 1976, vísbendingum sem síðan urðu skýrari og skýrari á árunum þar á eftir. Þannig hafði ferill- Svend-Aage Malmberg „A Hafrannsóknastofn- uninni eru tengsl hafeðl- isfræðinga eða sjófræð- inga við fiskifræðinga mikil og þróast þau stöð- ugt í löngum starfsferli bæði til sjós og lands.“ inn áfram áhrif á seltuna í sjónum við Norður-Noreg 1979 og aftur á miðunum fyrir Norðurlandi 1981- 1983. Eðli aðstæðna eru ekki að fullu þekktar og víst er að áhrifin voru í eðli sínu mismunandi frá einu haf- svæðinu til annars. Skýrt var frá nið- urstöðum m.a. í ritum Alþjóðaha- frannsóknaráðsins 1982-1984, og í Riti Fiskideildar, sem Hafrannsókna- stofnunin gefur út (Sv.A.M. 1985). Ýtarleg ritgerð um viðfangsefnið birt- ist svo 1988 (Dickson og fél.) og önn- ur síðan um tengsl umræddra um- hverfísbreytinga og ástands fisk- stofna á norðanverðu Norður-Atlants- hafí 1992 (Jakob Jakobsson) í safnriti frá ráðstefnu Alþjóðahafrannsóknar- áðsins um breytileika sjávar og lífrík- is í Norður-Atlantshafi, sem haldin var á Álandseyjum 1991. íslandsmið og Barentshaf Andstætt aðstæðum í Eystrasalti og við t.d. Vestur-Grænland má e.t.v. telja að á íslandsmiðum og Noreg- smiðum mætist „örugg“ útbreiðslu- svæði þorsks (hrygning í heitum sjó á Selvogsbanka og við Lófót) og „óör- ugg“ svæði (uppvaxtarslóðir á Norð- urmiðum og í Barentshafi). Þessar aðstæður við Ísland og Noreg gera málin á ýmsan hátt flóknari en í Eyst- rasalti og t.d. við Vestur-Grænland. Á það sérstaklega við um íslandsmið vegna legu landsins á neðansjávar- hryggjum sem ákvarða að miklu leyti straumamótin í hafinu við landið. En á íslands- og Noregsmiðum getur einnig orðið vá fyrir dyrum ef hrygn- ingarstofn verður lítill eða fer undir hættumörk. Of mikil sókn getur leitt til ófarnaðar og ekkert fær bjargað því nema verndun eða sóknarminnk- un, sama hvað lýtur umhverfísbreyt- ingum. Að þegar sé svo komið á íslands- miðum kemur e.t.v. fram á 1. mynd. Myndin sýnir nýliðun á 3 ára físki (a; 100 millj.), stærð veiðistofns (c), stærð hrygningarstofns (b) og afla (d) á íslandsmiðum (allt mælt í þús. tonna) árin 1955-1991/94. Samhengið milli nýliðunar (3 ára), veiðistofns (4 ára og eldri), hrygningarstofns (7 ára) og afla virðist augljóst. Væntanlega vekja fyrst athygli sveiflur með hámarks og lágmarks gildi allra þátta með vissu millibili en þó með stöðugum síganda niðurávið. Einnig gefur myndin vísbendingu um betra ástand íslenska þorskstofnsins í góðærinu fyrir hafísárin svonefndu 1965-1971 en eftir. Síðan þá hafa skipst á heit og köld ár á norðurmið- um, þ.e.a.s. ár með ríkjandi hlýsjó (Atlantssjór) að sunnan eða kaldsjó (pólsjór, svalsjór) að norðan. í þessu sambandi skal áréttað, að kaldur sjór á norðurmiðum stafar af straumum að norðan, en heitur sjór stafar af innstreymi hlýsjávar sunnan úr hafí. Hlýindi eða svonefnd „uppsveifla" í hafinu á norðurmiðum eru í mesta lagi tengd því að lát verður á áhrifum strauma að norðan, en að öðru leyti tengjast þau ekki ástandi sjávar í Barentshafi heldur hlýja sjónum sunn- an úr Atlantshafí. Ongstrætið lítill hrygningarstofn, lítil nýliðun og aftur lítill hrygningarstofn Snúum okkur nú aftur að 1. mynd. Við nánari skoðun á myndinni vek- ur athygli stöðugt lítil 3 ára nýliðun síðan 1987 og minnkandi veiði- og hrygningarstofn nokkrum árum síðar. Sérstaka athygli vekur að góð 3 ára nýliðun 1986 og 1987 skilaði sér strax í litlu aflahámarki 1987 en ekki í hrygningarstofni síðar - heldur í litlum hrygningarstofni og aftur í lítilli nýlið- un og það þrátt fyrir góðæri í sjónum á norðurmiðum 1991-1994. Von er að óttast sé að komið sé í öngstrætið lítill hrygningarstofn - lítil nýliðun - og aftur lítill stofn sem leiðir enn til lítillar nýliðunnar o.s.frv. á íslandsm- iðum. Vonir um „uppsveiflu" hafa þó verið bundnar við góðærið á norðurm- iðum eftir 1990 og friðunar hrygn- ingarstöðva í apríl hin síðustu ár. Fari svo að þetta skili sér í góðum 1993 árgangi, þá er eigi að síður nauð- synlegt að gæta hófs í sókn og leyfa fiskinum að dafna og vaxa í nokkur ár enn. . Að lokum, hvað sem líður ágrein- ingi um ástæður fyrir sveiflum í físk- stofnum, umhverfi eða veiðar, þá verða menn að gera sér* grein fyrir því að íslenski þorskskifninn er í sögu- legu lágmarki, lágmark sem alls ekki verður rengt eða véfengt með tilvitnun í einhver ónákvæm vísindi. Það eru beinar mælingar á hlut árganga í afla ár eftir ár sem standa að baki þessum niðurstöðum, mælingar sem vart verða véfengdar, og eru ekki einhver véfrétt ófullkominna vísinda eins og stundum er gefið í skyn. Fjölmenn alþjóðleg ráðstefna um þorsk og veð- urfar, sem haldin var á vegum Al- þjóðahafrannsóknaráðsins í Reykjavík sl. sumar (1993) komst einnig að svip- uðum niðurstöðum og haldið er fram af hálfu íslenskra haf- og fískifræð- inga á Hafrannsóknastofnuninni, þ.e.a.s. að sókn í fískistofna á Norður- Atlantshafi hefur verið og er langtum of mikil. Ofveiðin felst í of mikilli sókn miðað við bæði ástand sjávar og físk- stofna, eða með öðrum orðum of mik- ‘ illi sókn í sveiflugjömu ástandi sjávar. Lokaorð Enginn skal efast um samhengi veðurfars og ástands sjávar í stórum dráttum á Norður-Atlantshafi allt frá Barentshafi um íslandsmið til Ný- fundnalandsmiða. Mikið hefur verið fjallað um það efni fyrr og síðar. Áhrifin á lífríkið á hveijum stað, líf- ríki sem þó er ekki samhangandi eins og sjór og loft, hefur einnig verið mikið til athugunar. Viðbrögð lífríkis á mismunandi slóð á einhveiju skeiði geta einnig verið áþekk þótt fleira komi til. Höfundur þessarar greinar hefur lagt sitt að mörkum í því efni í árafjöld í starfí sínu á Hafrannsókna- stofnuninni. Þeir ágætu félagar á Veiðimálastofnuninni hafa einnig komið í smiðju á Hafrannsóknastofn- unina og fengið bæði gögn, skýringar og ritgérðir eins og vera ber. Á Haf- rannsóknastofnuninni eru tengsl haf- eðlisfræðinga eða sjófræðinga við fiskifræðinga mikil og þróast þau stöðugt í löngum starfsferli bæði til sjós og lands. Greinarhöfundur fagnar því að sjálfsögðu að aðrir aðilar eins og ágætir félagar á Veiðimálastofnun og jafnvel á Veðurstofu íslands leggi sitt að mörkum á sviði haf- og físki- rannsókna, að þeir leggi orð í belg, brýni kutana og leiti að hinum ýmsu tengslum umhverfís og lífríkis. Það er bara hollt til umhugsunar. Þá ber þeim þó að varast vítin og álykta ekki of djarft um málefni sem þeim eru ekki nægilega kunn. Þannig eru það mjög vafasöm „fræði“ sem álykta að umhverfishættir einir skipti megin máli varðandi minnkandi veiðistofna, og að jafnvel öll núverandi fískveið- iráðgjöf Hafrannsóknastofnunarinnar sé alröng. Það er stórt upp í sig tekið og fylgir því einnig mikil ábyrgð. Um það stendur deilan milli fískifræðinga á Hafrannsóknastofnuninni og Veiði- málastofnuninni. Skyldu þeir hinir sömu aðilar t.d. á Veiðimálastofnun- inni telja, að óheft sókn í laxastofna, þá einnig á hafi úti, skipti litlu eða engu fyrir laxagöngur í ámar? Hvað er þá fengið með kaupum á laxveiði- kvótum fyrrum úthafslaxveiðiþjóða í austri og vestri? Sitja þessir fyrrum laxveiðimenn nú auðum höndum heima í stofu og brosa í kampinn yfir heimsku mannana sem kaupa? Að lok- um, er ekki vænlegra til árangurs að leita fanga á víðum velli og nota þekk- ingu á viðfangsefninu sem fyrir ligg- ur, fremur en stjörnublik (veiðivon) sem verður að stjörnuhrapi (bresti) þegar á reynir? Forðumst fals eða vill- ur í nafni vísinda. Allt er þetta skrifað til að reyna að efla almenna þekkingu á lífríki sjávar við landið og fjöreggi lands og íslenskrar þjóðar, sem er þorskur eða fískur. Guðlaun fyrir lífið i landinu. Höfundur er hnffræðingur. Thorvaldsen - mynd- höggvarinn mikli Hundrað og fimmtíu ár liðin frá dauða Bertels Thorvaldsens Á horni Skothússvegar og Fríkirkjuvegar stendur stytta af gróður- guðinum Adónis, tákni jarðargróðursins sem lifnar á vorin en deyr á haustin. Ungur og nakinn hallast hann fram á spjót sitt og horfir eilítið þunglyndislega yfir uinferð Reykjavíkurborgar meðan köld slyddutár renna niður vanga hans. Hundrað og fimmtíu ár eru í dag liðin siðan Bertel Thorvaldsen, skapari þessarar fögru styttu, var borinn andvana út úr Konunglega leikhúsinu í Kaupmannahöfn. Bertel Thorvaldsen var fæddur 19. dag nóvembermánaðar árið 1770 og var því 74 ára þegar hann lést. Faðir hans, prestssonurinn Gottskálk Þorvaldsson, var fæddur á Reynisstað í Skagafírði árið 1741 en fluttist sextán ára gamall til Kaupmannahafnar og átti þar heimili til dauðadags. Hann kvænt- ist jóskri stúlku sem Karen hét og eignuðust þau saman einn son, hinn fræga myndhöggvara Bertel Thor- valdsen. I ævisögu Thorvaldsens, sem séra Helgi Konráðsson skráði, segir að Bertel Thorvaldsen hafi alist upp í fátækrahverfum Kaup- mannahafnarborgar og byijað snemma að teikna myndir, á hús- veggi ef ekki vildi betur. Vinur for- eldra hans sá myndir eftir hann og hvátti þau til að setja hann til náms í listaháskóla. Ellefu ára gamall hóf hann nám í teikniskólunum, þar sem kennt var ókeypis. Faðir hans vann við útskurð og fór Bertel fyrr en varði að hjálpa honum við það starf, jafnframt því sem hann hélt áfram teiknináminu á kvöldin. í ársbyijun 1785 fór hann inn í þá deild listaháskólans, sem kölluð var gipsskólinn. Eftir fermingu hætti Thorvaldsen í listaháskólanum og fór að vinna með föður sínum. Ári síðar hóf hann nám á ný og hinn 30. maí 1789 vann hann stóru silf- Adónis. Reykjavík lét gera af- steypu af frummyndinni og setja upp í tilefni af 1100 ára afmæli Islandsbyggðar 1974. Sjálfsmynd Thorvaldsens í Hljóm- skálagarðinum. Frummyndin er gerð árið 1839 og gefin íslandi af Kaupmannahöfn 1874. urmedalíu skólans fyrir lágmynd sem heitir Amor hvílist. Á næstu árum hlaut hann bæði minni og stærri gullmedalíur listaháskólans og einnig utanfararstyrk. Thorvaldsen kom til Rómar vorið 1797 og byijaði þá að höggva myndir í marmara. í bréfi til listahá- skólans í Kaupmannahöfn 1798, sem styrkti hann til náms á Ítalíu, segist hann hafa valiðforn listaverk til að æfa sig eftir. Árið 1805 var Thorvaldsen skipaður prófessor við Listaháskólann í Kaupmannahöfn og forstöðumaður hans árið 1833. Árið 1808 var hann skipaður pró- fessor við San Luca-listháskólann í Róm. Þá hafði hann komið sér upp stóru verkstæði. Þar gerði hann m.a. styttuna af Adónis auk fy'ölda lágmynda og fleiri verka, t.d. skírn- arfont í kirkjuna á Brahetrollenborg á Fjóni, en annan mjög líkan honum gaf hann seinna í Dómkirkjuna í Reykjavík. Thorvaldsen bjó og starfaði að mestu í Róm í hálfan fimmta áratug og skapaði þar mikil listaverk. I júlímánuði 1838 kom freigátan Róta til Ítalíu til þess að sækja Bertel Thorvaldsen og listaverk hans. Hann var þá viðurkenndur sem einn fremsti myndhöggvari nýklassíska stílsins og hafði verið sæmdur hinum margvíslegustu orð- um og heiðursmerkjum fyrir list sína. Þrátt fyrir ýmis ástasambönd kvæntist Thorvaldsen ekki en eign- aðist eina dóttur barna. Hann þótti mikið glæsimenni og gleðimaður meðan hann var yngi'i en einrænn og fáskiptinn á efri árum. Árið 1830 arfleiddi Thorvaldsen Kaup- mannahafnarborg að listaverkum sínum. Þá var hafin bygging safna- liúss yfir verk Thorvaldsens í Kaup- mannahöfn. Thorvaldsen var undir miklum áhrifum frá list Fórn-Grikkja og er tíguleiki og rósemd talið eitt helsta einkenni flestra verka hans. Hann sótti myndefni gjarnan í gríska og rómverska goðafræði. Af helstu stórverkum Thorvaldsens má nefna Kristslíkneski og polstulana tólf í Frúarkirkjunni í Kaupmannahöfn og minnisvarða um Píus 7. páfa í Péturskirkjunni í Róm. Thorvaldsen eyddi ævikvöldi sínu á herragarði í Nyso í Danmörku. Þar var opnað minjasafn helgað honum árið 1926. í auglýsingu sem Thorvaldsen birti í blöðum þegar hann fór frá Róm segir m.a.: „Það er von mín og ætlun að snúa aftur til heima- lands míns að ári, þegar þess er að vænta að safnabyggingin verði nær fullger, og flytja þá verk mín, sem enn eru ókornin á varanlegan stað í faðmi fósturlandsins, þar sem ég sjálfur mun leita hinsta hælis." í Thorvaldsenssafni í Höfn eru frummyndir og afsteypur af öllum helstu verkum Thorvaldsens, teikn- ingar hans og skissur. Þar í garði umluktum veggjum safnsins hvíla bein þessa fræga myndhöggvara sem sagður var sækja kraft og at- gervi til síns íslenska föður en næmi og ríkt fegurðarskyn til danskrar móður. Hvað hæft er í þeirri um- sögn skal ósagt látið en víst er að sjaldan hafa Islendingar og Danir blandað blóði á svo áhrifamikinn hátt sem í Bertel Thorvaldssyni og enn í dag gleðja verk hans augu manna í báðum ættlöndum hans. Texti Guðrúnu Guðlaugsdóttur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.