Morgunblaðið - 24.03.1994, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MARZ 1994
23
Opinber heimsókn
umhverfisráðherra
til Bretlandseyja
ÖSSUR Skarphéðinsson fór í gær í opinbera heimsókn til Bretlands
í boði bresku ríkisstjórnarinnar. Umhverfisráðherra mun eiga fund
með umhverfisráðherra Breta og breskum þingmönnum, auk þess
sem hann mun hitta embættismenn breska umhverfisráðuneytisins
og landbúnaðarráðuneytisins.
í gær átti Össur Skarphéðinsson
fund með umhverfisráðherra Breta,
John Selvin Gummer. í dag og á
föstudag mun ráðherra heimsækja
og ræða við starfsmenn breska
umhverfisráðuneytisins og land-
búnaðarráðuneytisins um sameigin-
leg alþjóðleg viðfangsefni á sviði
umhverfismála. Auk þess mun Öss-
ur Skarphéðinsson umhverfisráð-
herra eiga fund með umhverfís-
nefnd breska þingsins og fleiri full-
trúum yfírvalda sem fara með mál-
efni fiskveiða, eyðingu hættulegra
efna og umhverfisrannsókna. Á
mánudag og þriðjudag í næstu viku
mun umhverfísráðherra heimsækja
rannsóknastofnanir í Lowestoft,
Norfolk, sem m.a. annast rannsókn-
ir á geislavirkni í hafínu og fylgjast
með breytingum á ósonlaginu.
Að lokinni heimsókninni til Bret-
lands nk. þriðjudag, mun umhverf-
isráðherra fara í tveggja daga heim-
sókn til Skotlands í boði skosku
náttúruverndarsamtakanna. Þar
mun ráðherra m.a. eiga fund með
Magnúsi Magnússyni, formanni
samtakanna. Einnig mun hann hitta
yfirvöld friðaðra svæða, landbúnað-
ar og skógræktar í Skotlandi til
þess að ræða náttúruverndarmál.
Með umhverfísráðherra í för er
Birgir Hermannsson, aðstoðarmað-
ur ráðherra.
Píslargrátur Jóns
Arasonar lesinn
í Kristskirkju
PÍSLARGRÁTUR Jóns Arasonar verður lesinn í Kristskirkju, Landa-
koti, föstudaginn langa, 25. mars,
Eyjólfsson og Baldvin Halldórsson
list eftir Atla Heimi Sveinsson.
Á undan lestrinum flytur Hamra-
hlíðarkórinn Harmljóð Jeremía
(Lamentationes) eftir Palestrina, en
í ár er 400 ára ártíð hans. Stjórn-
andi er Þorgerður Ingólfsdóttir.
Giovanni Pierluigi da Palestrina
er af mörgum álitinn mesta tón-
skáld trúartónlistar sem uppi hefur
verið. Ekki ber heimildum saman
um hvenær hann fæddist og eru
einkum þrú ártöl nefnd 1514, 1515
eða 1526. Hins vegar lést hann í
Rómaborg 2. febrúar 1594. Jóhann-
es Páll II páfí minntist Palestrina
á dánardegi hans og sagði að margt
mætti enn læra af tónskáldinu á
sviði trúartónlistar og trúariðkunar
við upphaf þriðja árþúsundsins.
kl. 20.30. Lesarar verða Gunnar
og verður flutt við lesturinn tón-
Sagðist páfi sannfærður um að 400
ára ártíð Palestrina myndi færa
okkur tímabært framlag í þeirri
viðleitni að endurvekja gagnrýna
viðmiðun í allri helgri listsköpun.
Palestrina tók við embætti kór-
stjórnanda við Jóhannesarkirkju í
Laterna, sem er dómkirkja páfa,
biskups Rómaborgar, árið 1555 og
var í því embætti til ársins 1561. Á
því tímabili samdi tónskáldið þrjú
af frægustu verkum sínum, La-
mentationes (Harmljóðin) við ang-
urljóð spámannsins Jeremía um fall
Jerúsalem árið 587 f. Kr. og hörm-
ungar lýðsins og herleiðingu íbú-
anna til Babýlonar, Magnificat
(Lofsöngur Maríu) og Improperia.
Aðalfundur BHMR stendur í dag og á morgun
Fjallað um þekk-
ingu o g menntun
AÐALFUNDUR BHMR 1994 verður haldinn dagana 24. og 25. mars
1994 í Þingsal A á Hótel Sögu. Fundurinn hefst í dag, fimmtudaginn
24. mars, kl. 13 með setningarávarpi formanns BHMR, Páls Halldórs-
sonar.
Yfirskrift aðalfundarins er:
Þekking og menntun er þjóðarhag-
ur. Á fundinum verður m.a. fjallað
um atvinnustöðu háskólamanna,
réttarstöðu þeirra í atvinnuleysis-
tryggingakerfinu og samningsrétt.
Fyrir fundinum liggur skýrsla
nefndar um starfshætti og framtíð-
armarkmið samtakanna.
Fjármálaráðherra, Friðrik Soph-
usson, og formaður Evrópusamtaka
fagstéttafélaga, dr. Vittorio d’A-
gostino, munu ávarpa fundinn að
lokinni setningarræðu formanns.
Rektor Háskóla íslands mun flytja
erindi 25. mars um spurninguna:
Hvernig eigum við að nýta unga
fólkið?
HEILBRIGT HÁR MEÐ NÁTTÚRULEGUM HÆTTI
RAKARASTOFAN
KLAPPARSTIG
SÍMI 12725
Stofnuð 1918
kr
kr
kr
lauKana
Taukarfa úr basti hvít eða
ólökkuð. Hentug undir
þvott, fatnað o.fi.
Hæð 50, breidd 40 4 oqa
ogr dýpt 27 sm 1 **
Hæð 58, breidd44 4 aqa
og dýpt 34 sm ■ w
Hæð 64, breidd 47 ^ 00Q
Reykjarvíkurvegi 72
Hatnarfiröi
Aðeins:
1490® Tennis
10 por
Þurrkgpinð
12905
flöeins: