Morgunblaðið - 24.03.1994, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 24.03.1994, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MARZ 1994 45 og hestar voru hans vinir og hann þekkti eðli þeirra og þarfir. Enginn vafi er á að hann hefði helst kosið að búa sínu búi í sveit og una þar ævina alla í nánu sambandi náttúru og umhverfis þar sem hæfileikar hans hefðu notið sín best, en örlög ráða. Eins og svo margir aðrir fór Haraldur aftur til Reykjavíkur á stríðsárunum. Þá var meiri vinnu að fá og hann vann hér alla mögulega verkamannavinnu. Hann eignaðist dóttur, Ragnhildi, sem honum var afar kær. Aftur fór hann í sveitina sína og naut þess þar í nokkur ár að hafa litlu stúlkuna sína hjá sér. Hún fluttist uppkomin til Bandaríkj- anna og kemur nú heim um langan veg til að kveðja föður sinn. Sem fyrr segir vann Haraldur alla verkamannavinnu sem til féll hér og hlífði sér hvergi. Við höfnina vann hann löngum og síðast hjá Ríkisskip- um. Hann var traustur og góður fé- lagsmaður í Dagsbrún, ávallt tilbúinn að hjálpa til ef átök voru og hollur og trúr sínu félagi. Hann hafði alla tíð mikið samband við skrifstofu fé- lagsins. Hann var góður kunningi Hannesar Stephensens, fyrrum for- manns og sama góða samband hafði hann við núverandi formann Dags- brúnar, Guðmund J. Guðmundsson. Til hans gat Haraldur alltaf leitað með vandamá! sín, sem voru mörg. Haraldur vann hörðum höndum, hann vildi veita sambýliskonu sinni og barninu sínu hvað hann mátti en sparaði allt og dró við sjálfan sig. Hann var reglumaður, ljúfur í lund og hjálpsamur. Margir vinnufélaga hans og vina áttu hann að þegar þeir voru að basla við að koma sér upp húsnæði. Þá mætti Haraldur gjarnan með verkfærapokann sinn, hægur og hlýr í fasi en verkdijúgur, þó ekki væri á honum fyrirgangur- inn. Sjálfum varð honum ekki fé fast við hendur þótt slíkur reglumaður væri og olli því mest örlæti hans við þá sem hann unni. Einn munað leyfði hann sér þó. Hann átti hesta. Góða hesta. Einn þeirra var slíkur gæðing- ur að til var tekið og vildu margir eiga en Haraldur lét aldrei falan. Hann átti líka gott mark: Sýlt hægra og heilrifað og biti framan vinstra. Þótt. gott fjármark verði ekki talið til verðmætis í peningum þá er það mikils virði góðum kindamanni og ég vona að markið hans gangi til góðs hirðis nú að Haraldi gengnum. Senn fer að vora í Dölum vestur og vakna gróðurnál. Við kveðjum félaga okkar með hlýhug og virðingu og þökkum öllum sem greiddu götu hans og voru honum vinir og sendum dóttur hans, ættingjum og aðstand- endum samúðarkveðjur. Hjálmfríður Þórðardóttir, . ritari Dagsbrúnar. Hillir uppi öldufalda Austurleiðir vil ég halda sestu æskuvon til valda vorsins bláa himni lík. Ég á öllum gott að gjalda gleði mín er djúp og rik. (Stefán frá Hvítadal) Mér komu þessar ljóðlínur í hug er ég minnist frænda míns og vinar okkar Haraldar Stefánssonar er lést 10. mars sl. Hann var öllum þakklát- ur er gáfu sér tíma til að heimsækja hann eða spjalla við hann í síma. Og þeir voru margir, því hann var vinmargur. Þar var ekkert kynslóða- bil, Halli átti mjög auðvelt með að umgangast börn og unglinga. Þau eru mörg bömin sem eiga góðar minningar um samveru með honum. Ætíð átti hann eitthvert góðgæti til að rétta litlu barni. Halli var ljóðelskur og kunni ógrynni af lausavísum, því hann var stálminnugur og svo var allt til hins síðasta. Oft minntist hann uppvaxt- aráranna að Breiðabólsstað í Miðdöl- um þar sem hann dvaldi ásamt föður sínum. Það voru bjartar minningar, hvort sem hann sagði frá hjásetu þegar hann var barn eða smala- mennsku og fjárgæslu þegar hann varð eldri. Það voru, trúi ég, hans bestu stundir er hann var í fjárstússi og smalamennsku. Hestar voru hon- um mikil lífsfylling, ekki síst síðustu árin er hann dvaldist að mestu í Reykjavík. Við hérna á Sauðafelli minnumst hans við sauðburð og fjallrekstur á vorin, og svo göngur og réttir á haust- in. Þá voru tímar ævintýranna. Hann var afar jákvæður og jafnlyndur mað- ur, þó að stundum væri þyngra'fyrir fæti, þá gat enginn merkt það, því alltaf var Halli eins. Við þökkum honum fyrir samfylgd- ina, og ég á enga betri ósk honum til handa en að hinum megin verði nóg að sýsla við hross og sauðfé. Fel þú mig, Svefn, í svörtum, þykkum dúkum sveipa mig reifum, löngum, breiðum, mjúkum réttu svo stranpnn þínum þögia bróður þá ertu góður. (S.J.) K.Á. í dag er til moldar borinn vinur minn, Haraldur Stefánsson, Aust- urbergi 36 hér í bæ. Mig langar að minnast hans með SIEMENS STÓRSKEMMTILEG STÆÐA Á MJÖG GÓÐll VERÐI! • Geislaspilari • Tvöfalt segulbandstæki • Alvöruútvarp • Tónjafnari • 2 x 30 W • Gæðahátalarar • Fullkomin fjarstýring Alltþetta fyrir aðeins kr.: 37.810,- Bjóðum einnig fleiri gerðir af hágæða hljómtækjum. Komið og skoðið! Munið umboðsmenn okkar um land allt. SMITH & NORLAND NÓATÚNI 4 • SÍMI 628300 VHjir þú endingu og gæði velur þú SIEMEIUS nokkrum fátæklegum orðum. Það eru ekki nema sex ár síðan ég kynntist þessum öðlingsmanni, og er ég þakklát fyrir allan þann vinskap sem hann sýndi mér og mínu fólki. Fyrir fjórum árum fór hann með mér austur í sveitir til að velja hest handa barnabarni mínu. Þá sá ég hversu grandvar og vandaður þessi maður var. Hann var mjög hjálpsamur og tryggur og vildi allt fyrir alla gera. Það er ekki orðum aukið þótt ég segi að ég hafi ekki kynnst heiðar- legri og betri manneskju, og heim- urinn væri öðruvísi í dag ef við ætt- um fleiri slíka hrekklausa menn. Hann var mjög ræðinn og skemmtilegur og vel heima í flestum málefnum, en hafði sínar sjálfstæðu skoðanir. Haraldur var fæddur á Breiðabóls- stað, Miðdölum í Dalasýslu, 15. sept- ember 1910 og hefði því orðið 84 ára í haust ef hann hefði lifað. Hann kom til Reykjavíkur á stríðs- árunum eins og fleiri í þá daga, vann í bretavinnu, síðar við höfnina eða hjá Eimskip meðan starfsaldur ent- ist. Hann var samviskusamur og trúr sínum húsbændum. Hann var í sambúð með Sjöfn Helgadóttur í mörg ár og áttu þau eina dóttur, Rögnu, sem búsett er í Bandaríkjunum og kemur nú heim til að kveðja þennan góða mann. Ekki get ég rakið ættir Haraidar þar sem ég er ekki nógu fróð til þess, það gera mér fróðari. Síðast þegar ég sá Harald um áramótin í vetur, datt mér ekki í hug að ég væri að kveðja hann í síðasta sinn. Hann var hress og bar sig vel. Það var búið að skipta um mjöðm í honum og kunni hann sér ekki læti að vera orðinn laus við verki og óþægindi, gekk óhaltur en mæði háði honum mikið. Hann varð bráðkvaddur á heimili sínu 10. mars sl. svo nú er hann kominn í Sólskinsgarðinn mikla, sem við öll endum í. Við söknum hans öll og hans fal- legi persónuleiki verður mér ógleym- anlegur svo og hlýtt viðmót. Eg og fjölskylda mín sendum inni- legar samúðarkveðjur til aðstand- enda. Ég kveð hann með söknuði og megi algóður guð vernda sálu hans. Hvíl í friði. Sigríður Þorvaldsdóttir. Minning Vilborg Guðjónsdóttír Mér er það bæði skylt og ljúft að minnast nöfnu minnar og móðursyst- ur, Vilborgar Guðjónsdóttur, sem lést á Kristneshæli þann 10. mars síðast- liðinn, eftir nokkuð löng veikindi. Borga, eins og við vinir hennar og vandamenn ætíð nefndum hana, var fædd og uppalin á Eyrarbakka, ein af níu börnum þeirra Guðjóns Jónssonar og Guðrúnar Vigfúsdótt- ur. Það heid ég að hljóti að hafa verið gott að alast upp sem barn á Eyrarbakka, ijaran, brimið sem er þar svo stórkostlegt. Ég sé hana fyrir mér sem litla snaggaralega hnátu að leik og staríi. Borga frænka fluttist ung norður á Akureyri, kynntist þar manni sín- um, miklum öðlingsmanni, Kristjáni Helgasyni. Þau eignuðust fjögur in- dæl og mannvænleg börn. Móðir mín fluttist einnig norður í Eyjafjörð og settist þar að. Ófáar ferðirnar fengum við systur að fara inn á Akureyri til Borgu frænku og var það alltaf tilhlökkunarefni. Hann Stjáni tók nú ekki síður vel á móti okkur, þessi hægláti góði maður. Ég man enn eftir hlýja handtakinu hans, við vorum alltaf velkomin á þeirra heimili. Get ég örugglega talað fyrir hönd okkar allra systkinanna og for- eldra okkar. Borga var mikil hannyrðakona og veit ég að mikið af þeim fallegu dúkum sem hún heklaði hafa farið víða um frændgarðinn. Meðal annars á ég marga fallega dúka bæði smáa og stóra frá henni, sem mér þykir afar vænt um. Já, hún Borga var Diplomat fístölva alvðru 486 Ippfæranleg 25-66 MIIz Doddi^StatíiMi -JþBOÐEIND Austurströnd 12. Sími 612061. Fax 612081 V______________________________________/ Verður viðhaldinu sinnt í sumar 9 ■ Hvernig nærðu lágmarkskostnaði og besta árangri? Fundarboð. Á morgun, föstudaginn 25. mars kl. 16:00 verður fræðslufundur um þetta efni haldinn í húsakynnum verkfræðistofunnar að Nethyl 2. Áfundinum munu starfsmenn Verkvangs fjalla um eftirtalið efni: Viðgerðir á ytra byrði húsa. Útboð/tilboð. Kostnaðaráætlanir /ábyrgðir. Verkáætlanir/verksamninga. Eftirlit eða ekki eftirlit -kosti og galla. Geymslufé/verktryggingar/ábyrgðartryggingar. Fundurinn er opinn húseigendum og fulltrúum húsfélaga meðan húsrúm leyfir. Aðgangseyrir er enginn. VERKVANGUR h.f. VERKFR/EÐI OG VERKÞEKKING Nethylur 2, 110 Reykjavík ® C91) 677690 • Fax (911677691 Verkfræðistofan Verkvangur hefur nú i 9 ár sérhæft sig á sviði viðhalds, endumýjunar og viðgerða á húsum. Á þessum tima hefur hún annast u.þ.b. 600 verk af þessu tagi, sparað húseigendum ótaldar milljónir króna og stuðlað að besta órangri í hveiju tilfelli. myndarleg til allra verka, hún var fljót að öllu sem hún gerði en gerði samt allt svo vel, það var hennar stíll. Nú hefurðu Jfengið hvíldina, kæra vina og þykist ég vita að hún hafi verið þér kærkomin þrátt fyrir allt. Rögnvaldur þakkar þér fyrir þær móttökur sem hann fékk á heimili þínu að Munkaþverárstræti 14, þær voru góðar Borga mín. Ég veit að þegar við hittumst næst þá mæti ég hlýja, fallega brosinu þínu. Vertu sæl í bili — Guð varðveiti þig og geymi. Vilborg Axelsdóttir. iSjEElilEEli S í m a k e r f i Áreiðanleg, sveiöjjanleg, hagkvasm, auðveld í notkun og fallegt útlit. Yfir 900 fyrirtaski og stofnanir nota símakerfi frá ístel hf. Síðumúla 3710& Rvk. Sími 6&7570 ..sérfræðingar í símamálum Bílavörubúöin UÖDRIN SKEIFAN 2, SÍMI 812944
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.