Morgunblaðið - 24.03.1994, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 24.03.1994, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MARZ 1994 u Brot reið yfir Hólmanesið á Papagrunni Heilláhúfi EGILL Guðnason, fyrsti stýrimaður, í sæti sínu í brúnni á Hólmanesinu þar sem hann var þegar brotsjór reið yfir skipið í fyrrinótt. Skæðadrífa glers flaug allt í kringum okkur segir Egill Guðnason stýrimaður sem var við annan mann í brúnni BROT reið yfir Hólmanesið SU um klukkan eitt í fyrrinótt þar sem það hélt sjó utarlega á Papagrunni miðjum. Milli 10 og 11 vindstig voru á þessum slóðum og ölduhæð talsverð. Tveir menn voru í brúnni þegar brotið skall á skipinu, 1. stýrimaður sem sat og netamaður, sem stóð bak við hann. „Þessi straumhnútur skrúf- aði sig upp og lamdi brúna fyrirvaralaust og glugginn bakborðs- megin sprakk inn," segir Egill Guðnason stýrimaður. „í glugganum er öryggisgler sem kurlaðist við höggið og skæðadrífan flaug allt í kringum okkur en fyrir einhveija guðs lukku sluppum við ómeiddir. Stóllinn sem ég sat í er hins vegar alþakinn örsmáum glerbrotum, innréttingarnar og veggirnir. Við urðum hundvotir á augabragði og öll tækin í kringum okkur. Þetta kom snöggt og síðan var allt búið.“ Sjórinn streymdi inn um gluggann, lenti á veggnum and- spænis honum og kastaðist síðan á mennina, en þá var mesta afl úr brotinu, að sögn Egils. Hann segir að ekki hafi unnist tími til hræðslu, en þó hafi þeir jafnvel búist við öðru broti. „Við sluppum ótrúlega vel, en hefði einhver stað- ið hinum megin í brúnni þar sem glugginn fór, held ég að ekki hefði þurft að spyija um hann frekar, hvort sem glerið hefði grandað honum eða sjórinn þrumað honum í vegginn," segir Egill. Brotnaði utan af björgunarbáti Sjór náði mönnum í hné í brúnni, að sögn Sigurðar Magnússonar skipstjóra, en rann síðan niður í káetur skipveija og borðsal. Björg- unarbátur þeyttist úr festingum sínum við brotið og brotnaði utan af honum, teppi í káetum eyðilögð- ust og innréttingar eru illa famar. Rafmagn fór af skipinu við brotið og duttu öll stjómtæki út. Nokkra stund tók að byrgja gluggann og gangsetja nauðsynlegan tækjabún- að, en talstöðvarsamband náðist fljótlega við land. Að sögn Sigurð- ar er ekki óhætt að kveikja á tækjunum meðan þau eru gegnsósa í seltu og vatni, og þarf að taka þau I land og hreinsa. Hólmanesið er rúm 450 tonn að stærð og hefur 15 manna áhöfn. Um hálfur annar tími leið áður en skipið hélt til heimahafnar og fylgdi Hólmatindur því þorra leiðarinnar. Matsmenn tryggingafélags skips- ins komu til Eskifjarðar um miðjan dag í gær, en of snemmt er að segja til um umfang tjónsins. Sig- urður kveðst þó áætla að það nemi hundruðum þúsunda króna, og hafi stjórntækin skemmst skipti tjónið milljónum. Hólmanesið fékk á sig brotsjó að aftanverðu i janúar í fyrra, og urðu þá nokkrar skemmdir á síðu þess. Smábátaveiðar I bitna á öðrum - segir Þorsteinn Pálsson, sjávarútvegsráðherra ÞORSTEINN Pálsson sjávarútvegsráðherra segir að við úthlutun fisk- veiðiheimilda fyrir næsta fiskveiðiár verði heimildir annarra en smábát- asjómanna minni sem nemur smábátaveiðunum. Ekki er hægt að segja hver heildaraflinn verður fyrr en eftir að Hafrannsóknastofnun hefur sagt fyrir um hvað ráðlegt sé að veiða í lok maí. „Það sem smábátaveiðin fer um- Þorsteinn sagði að vissulega væru fram það sem ráðgert var, hlýtur að margir aðrir hlutir jákvæðir og þrátt I i I koma niður á veiðiheimildum annarra sjómanna. Við reiknuðum með að samkomulag næðist um að takmarka smábátaveiðarnar við 13-14 þúsund lestir og að veiðar annarra sjómanna skertust á núverandi fiskveiðiári í samræmi við það. Nú er ekki sam- komulag í þinginu um slíka takmörk- un sem þýðir að á næsta fiskveiðiári verða veiðiheimildir annarra sjó- manna sem því nemur minni,“ sagði Þorsteinn. Hann sagðist ekki geta sagt á , þessu stigi hver heildaraflinn yrði. „Það getum við ekki fyrr en eftir að við höfum fengið ráðgjöf Hafrann- sóknastofnunar í lok maí.“ fyrir þessa takmörkun á afla væru horfur á að tekjuafgangur yrði af rekstri sjávarútvegsins í heild á þessu ári. Það hefði tekist með almennum ráðstöfunum í efnahagsmálum, þeim ráðstöfunum sem fyrirtækin hefðu gripið til og í þriðja lagi vegna þess að við hefðum fengið búhnykk í öðr- um veiðum eins og loðnunni. „Þetta er auðvitað umtalsverður árangur þrátt fyrir þessa minnkun þorskveiða og lækkun afurðaverðs. Við vitum að það eru alltaf sveiflur í þessari atvinnugrein en ef forsendur haldast óbreyttar þá á að vera hægt að halda þessu áfram," sagði Þorsteinn. !: 1 Dómsins beðið Morgunblaðið/John MacKinnon ERLAND Olsen, skipstjóri togarans Rex, til vinstri, bíður dómsniður- stöðu ásamt einum skipverja sinna fyrir utan umdæmisdómstólinn í Stornoway í Skotlandi. Skipstjórinn greiði 1,3 máljómr í sekt I Stornoway, Skotlandi. Frá Iain Maciver, fréttaritara Morgunblaðsins. UMDÆMISDÓMARI í Stornoway í Skotlandi dæmdi skipstjóra tog- arans Rex í gær til að greiða 12.500 punda sekt, um 1.350 þús- und krónur, fyrir ólöglegar veið- ar um 170 mílur vestur af Roc- í dag í steininn eftir þrekraun Sjómaður sem bjargaðist á ótrú- legan bátt úr sjávarháska var látinn gista fangageymslur 22 Ihuga þotukaup J'orráðamenn Flugfélags Norð- urlands íhuga að kaupa aðra Metro-skrúfuþotu 24 Thorvaldsen 150 ár eru nú liðin frá dauða myndhöggvarans Bertels Thor- valdsen 33 Leiðari Hvers vegna þessi mismunur? 32 JHorgunblnbib VIÐSKIPn AIVINNUIÍF ► íhuga stofnun verksmiðju í nágrannalöndunum - Bankarn- ir grafa undan eigin hagsmun- um - Skyndibitamarkaðurinn stækkar Jfiorjjunbíaíiib ► Leikari Iætur gott af sér Ieiða - Stuttmyndin Seppi fær góðar viðtökur - Líkams- klukkurnar stjórna lífi okkar - Myndbönd Veitíng dýralæknastöðu kærð til Jafnréttisráðs GUÐBJÖRG Þorvarðardóttir, héraðsdýralæknir í vesturumdæmi Þingeyjarsýslu, hefur ákveðið að kæra til Jafnréttisráðs veitingu landbúnaðarráðherra á héraðsdýralæknisembætti í Borgarfjarðar- héraði. Á mánudag veitti landbúnaðarráðherra Gunnari Gauta Gunn- arssyni, dýralækni á Hvanneyri, embættið, en Guðbjörg, sem hafði flesta punkta 11 umsækjenda, samkvæmt svokölluðu punktakerfí sem embættisveitingar til dýralækna hafa jafnan tekið mið af síðari ár, telur að með skipuninni hafi verið brotinn á sér réttur samkvæmt jafnréttislögum. Ráðherra hafði áður veitt emb- ættið, en sá sem hlaut það þá sagði því lausu vegna andstöðu og undir- skriftasöfnunar bænda í héraðinu, sem vildu að Gunnar Gauti fengi embættið. Það var auglýst aftur, og var Guðbjörg þá meðal 11 um- sækjenda. Samkvæmt fyrrgreindu punkta- kerfí var Guðbjörg að eigin sögn ein hæst umsækjenda eftir að ann- ar jafnhár dró umsókn sínatil baka, en sá sem hlaut stöðuna var eftir það í 3.-4. sæti. „Síðustu ár hefur í öllum tilvikum verið farið eftir punktakerfinu við veitingu dýralæknisembætta, þótt það sé ekki skylt í lögum,“ sagði Guðbjörg við Morgunblaðið í gær. „Ég mun senda málið til meðferðar í Kærunefnd jafnréttismála," sagði hún og kvaðst, auk þess að vera hæst samkvæmt punktakerfinu, sem miðast við starfsaldur, fyrri embættisstörf og ábyrgð, og tekur mið af þjónustu í afskekktum hér- uðum, hafa það umfram þann sem embættið hlaut að hún hafí lokið framhaldsnámi í dýralækningum. kall um síðustu helgi. Dómarinn sagði hins vegar að upp hefði komið mjög óvenjuleg staða, þar sem sáttmáli Sameinuðu þjóð- anna, sem tæki gildi f nóvember, stangaðist á við bresk lög og sam- kvæmt honum væri ekki um refsi- vert athæfi að ræða. Þar vísar dómarinn til Hafréttarsáttmála SÞ, en íslendingar hafa löngum haldið því fram að samkvæmt í I Tíu þúsund titlar BÓKAMARKAÐUR Félags íslenskra bókaútgefenda hefst í dag og eru um 10 þúsund titlar í boði að sögn Benedikts Kristjánssonar. Verð er svipað og í fyrra og meira framboð er á gömlum bókum. Hann segir helstu breytinguna Líkt og í fyrra eru nýjustu bæk- frá í fyrra vera að hlutfall gamalla umar frá 1991. Sama verð er á bóka hafi aukist, en aðsókn í fyrra(. , bókunum og í fyrra, þrátt fyrir að hafi sýnt að verulegur áhugi sé á virðisaukaskattur hafi veríð lagður þeim. Meðal þeirra sé að finna- á þær í júlí á síðasta ári; segir handinnbundnar og sjaldgæfar Benedikt. Markaðurinn er til húsa bækur, en elsta bókin á markaðin- á annarri hæð í Þönglabakka 1 í um var gefín út árið 1877. Mjóddinni. Guðbjörg sagðist sjá þá skýringu helsta á málinu að gengið væri fram hjá sér vegna kynferðis. „Ráðherra var áður búinn að veita stöðuna á grundvelli punktakerfísins öðrum en þeim sem bændur studdu en bregður frá því núna eftir að staðan hefur verið auglýst aftur. Það getur verið að hann hafí talið auðveldara að ganga fram hjá konu,“ sagði Guðbjörg og sagði að sama dag og Borgarfjarðarembættið var veitt hefði punktakefið ráðið því að karl- manni var veitt embætti í Eyjafirði. Hún sagðist gera ráð fyrir að um málið yrði fjallað innan félags dýra- lækna, sem í eru um 60 dýralækn- ar, enda hefði félagið lagt mikla áherslu á að stöður yrðu veittar samkvæmt punktakerfinu. honum eigi Bretar ekki rétt til veiða á þessu hafsvæði. Breska strandgæslan vísaði togar- anum, sem er í eigu dótturfyrirtækis Skagstrendings á Kýpur, til hafnar í Skotlandi um helgina. Skipstjórinn, Færeyingurinn Erland Olsen, lýstí því yfir fyrir réttinum í gær, að hann væri sekur um brot gegn breskum lögum um fiskveiðitakmarkanir. Debbie Wilson sýslumaður, sem sótti málið, sagði að leiðarbók skips- ins sýndi að því hefði verið siglt frá Killybegs á írlandi á veiðisvæðið Hatton-banka, vestur af Rockall. „Á þessu svæði mega aðeins þau skip veiða sem fengið hafa til þess heim- ild og slíka heimild hafa skip skráð í Kýpur ekki,“ sagði hún. Lögmaður skipstjórans, John Morris, sagði að brotið hefði ekki komið í ljós nema vegna þess hve leiðarbók Rex væri nákvæm og ákvæði um upptöku veiðarfæra og afla ættu ekki við í þessu tilfelli. Þegar umdæmisdómarinn, Ian Cameron, kvað upp dóminn sagði hann að staðan væri mjög óvenjuleg. „Mál af þessu tagi gætu verið ógilt ef á þau bresku lög, sem hér eiga við, verður látið reyna fyrir Alþjóða- dómstólnum í Haag.“ Dómarinn til- kynnti jafnframt að sektina yrði að greiða að fullu áður en skipið yfir- gæfi Stornoway.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.