Morgunblaðið - 24.03.1994, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MARZ 1994
ff
Gatnagerð og lagnir
í Borgarholti II
Lægsta til-
boð 46 millj.
BORGARRÁÐ hefur sam-
þykkt að taka 45.956.736
króna tilboði lægstbjóðanda
Vaiar hf, í gatnagerð og lagn-
ir í Borgarholti II. Tilboðið er
79,33% af kostnaðaráætlun,
sem er 57.934.541 krónur.
Átta tilboð bárust í verkið.
Um er að ræða tvískipt útboð
og átti Víkurverk hf. lægsta boð
í hitaveitulagnimar en Völur átti
lægsta boð samtals í bæði verk-
in. Annað lægsta boð í bæði verk-
in samtals áttu Jarðvélar sf. eða
80,56% af kostnaðaráætlun, þá
kom Dalverk sf., sem bauð
84,10% af kostnaðaráætlun,
Klæðning hf. bauð 89,14% af
kostnaðaráætlun, Loftorka hf.
bauð 98,30% af kostnaðaráætl-
un, Glefsir hf. bauð 101,6% af
kostnaðaráætlun, J.V.J. hf. bauð
104,11% af kostnaðaráætlun auk
frávikstilboðs sem var 121,10%
af kostnaðaráætlun og loks bauð
Víkurverk hf. samtals 129,56%
af kostnaðaráætlun.
Nýtt olíudreifingarkerfi útgerðarinnar myndi spara fé
Olíureikningurinn gæti
lækkað um 650 millj. á ári
OLÍUREIKNINGUR útgerðarinnar gæti lækkað um 650 milljónir á ári
ef byggt yrði upp nýtt olíudreifingarkerfi og flutt inn ein tegund af olíu
í stórum förmum til fiskiskipaflotans. Þetta er niðurstaða úttektar sem
verkfræðistofan VSÓ-Iðntækni gerði fyrir Landssamband íslenskra
útvegsmanna. Kristján Ragnarsson formaður LIU segir að útgerðin
hafi í sjálfu sér ekki áhuga á að byggja upp fjórða olíudreifingarkerf-
ið því þótt það sé áhættulítil og arðsöm fjárfesting sé hún í raun óþörf.
Hins vegar vijji LÍÚ sýna fram á hvernig núverandi kerfi sé uppbyggt
og hvað megi spara. „Og verði engin breyting á kerfinu nú í meðförum
Alþingis hljótum við að hugsa okkur um,“ segir Kristján og vísar þar
með til fyrirætlana ríkisstjórnarinnar um að afnema flutningsjöfnunar-
sjóð olíuvara.
í úttekt VSÓ-Iðntækni er miðað
við fob-verð á gasoil 0,2 í Rotterdam
á tímabilinu október 1993 til janúar
1994 og gengi Bandaríkjadollars á
sama tímabili. Miðað er við að heilda-
rolíunotkun flotans sé um 220 millj-
ónir lítra. í niðurstöðum verkfræði-
stofunnar kemur fram að markaðs-
verð á þessari olíu í Rotterdam væri
rúmir 2 milljarðar króna, og' kostnað-
arverð hér á landi væri rúmir 2,7
milljarðar króna. Það þýðir að lítra-
verð yrði 12,46 krónur.
Verð á svonefndri skipaolíu frá
einu olíufélaganna var á sama tíma
15,03 krónur og verð á hefðbundinni
olíu 16,27 krónur. M§ðalverð á olíu
til fisjdskipaflotans var um 15,40
krónur á lítra en 70% af olíusölu til
skipa er skipaolía og 30% hefðbundin
VEÐUR
VEÐURHORFUR í DAG, 24. MARZ
YFIRLIT: Skammt norðaustur af landinu er 962 mb víðáttumikil laegð, sem þokast
austur og grynnist.
SPA: Norðvestlæg átt, víðast gola eða kaldl. Él verða norðanlands en víða léttskýj-
að syðra. Hiti verður rétt fyrir ofan frostmark að deginum, en annars vægt frost.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FÖSTUDAG: Dáiítil norðanátt með éljum norðaustanlands í fyrstu en
annars hæg breytileg átt og léttir til. Frost á bilinu 0 tll 4 stig og hætt við tals-
verðu næturfro8ti í innsveitum.
HORFUR A LAUGARDAG: Haegviðri og sfðan hæg austanátt á landinu. Vfða létt-
skýjað. Heldur hlýnandi.
HORFUR A SUNNUDAG: Austankaidi eða stinningskaldi og fer að þykkna uppsunn-
anlands en áfram hægur víndur og bjartviðri f öðrum landshlutum. Hlti á bilinu 2 tll
6 stig, hlýjast suðvestanlands.
Nýlr veðurfregnatfmar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.46, 12.46, 16.30, 16.30, 22.30. Svar-
sími Veðurstofu fslands — Veðurfregnlr: 990600.
Heiðskirt
&
Léttskýjað
r r r
r r
r r r
Rigning
* r *
* r
r * /
Slydda
& &
Hálfskýjað Skýjað Alskýjað
V ý
Skúrir Slydduél
* * *
* *
* * *
Snjókoma
V
Él
Sunnan, 4 vindstig.
Vindörin sýnir vindstefnu
og fjaðrimar vindstyik,
heil fjööur er 2 vindstig._
10° Hitastig
Súld
Þoka
V
stig..
FÆRÐA VEGUM:
(Kl. 17.30ígær)
Vegir í nágrenni Reykjavíkur eru greiöfærir, þó er Mosfellsheiði ófær. Fært er
umSuðurland og með suðurströndinni til Hafnar og þaðan til Austfjarða. Fært er
um Snæfellsnes og um Heydal i Dali og til Reykhóla, en Brattabrekka er ófær.
Færter milli Brjánslækjar, Patreksfjarðar og Bfldudals. Á norðanverðum Vestfjörðum
er ófært um Brelðadalsheiði og Botnsheiði. Fært er um Holtavörðuhelði, en þarer
skafrenningur og snjókoma, þá er fært til Hólmavíkur og þaðan til Isafjarðar. Fært
er um Norðurland, en hálka er á Vatnsskarði og skafrenningur á Öxnadalsheiði.
Fært er um Norðausturland, um Mývatns og Möörudalsöræfi og Vopnafjarðar-
heiði. Aðalvegir á Austfjörðum eru færir. Víða er hálka á vegum.
Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftlrliti f sfma 91-631500 og f grænni
línu 99-6316. Vegagerðin.
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
hiti veöur
Akureyri 1 alskýjað
Reykjavlk 3 úrkomaígrennd
Bergen 4 rigning
Helslnki 0 slydda
Kaupmannahöfn 7 rigningogsúld
Narssarssuaq 46 alskýjaö
Nuuk 47 alskýjað
Osló 4 lémkýjað
Stokkhólmur 4 alskýjað
Þórshöfn 2 haglél
Algarve 19 heiðsklrt
Amslerdam 11 alskýjað
Barcelona vantar
Berlfn 11 rigning
Chicago 20 skýjað
Feneyjar 12 þokumóða
Frankfurt 12 alskýjað
Glasgow 5 skúr
Hamborg 12 rigning
London 13 rigning
Los Angeles 16 léttskýjað
Lúxemborg 10 súld
Madrfd vantar
Malaga vantar
Mallorca vantar
Montreal B léttskýjað
New York 19 heiðskírt
Orlando 26 skýjað
Parfs 13 alskýjað
Madelra 16 skýjað
Róm 16 hálfskýjað
Vín 11 skýjað
Washington 23 skýjað
Winnipeg 46 skýjað
olía. Heildarútgjöld flotans vegna
kaupa á 219,4 milljónir lítra á olíu
yrðu 3.379 milljónir króna hjá því
olíufélagi sem miðað er við, en 2.733
milljónir ef nýtt olíudreifíngarkerfí
yrði tekið upp eða 20% lægri. Sparn-
aður útgerðarinnar gæti því verið
650 milljónir króna. .
Olíuverð hefur farið lækkahdi á
mörkuðum ytra síðustu mánuðina og
hefur raunar lækkað enn síðan út-
tekt verkfræðistofunnar var gerð.
Hér á landi lækkaði olíuverð um ára-
mótin um 40-50% aura án virð-
isaukaskatts og hefur verðmunurinn
því enn aukist.
10% arður
Við uppþyggingu nýs fyrirtækis
miðar VSÓ-Iðntækni við að mið-
punktur olíudreifíngarinnar yrði í
Helguvík en að auki yrðu dreifing-
arstöðvar í Vestmannaeyjum, Nes-
kaupstað, á Siglufírði og ísafirði.
Gert er ráð fyrir að stofnkostnaður
í birgða- og afgreiðslustöðvum yrði
tæpar 500 milljónir króna. Inni í
kostnaðarútreikningum er 10%
ávöxtunarkrafa á eigin fé, lánakostn-
aður, birgðakostnaður, skattar, úti-
standandi viðskiptakröfur, tapaðar
viðskiptakröfur og ófyrirséður kostn-
aður. Er þá miðað við að dreifikerfíð
verði byggt upp frá grunni. Verk-
fræðistofan áætlar að slík uppbygg-
ing myndi taka eitt til eitt og hálft ár.
Ekki samkeppniskerfi
Kristján Ragnarsson sagði á
fréttamannafundi þar sem þessar
niðurstöður voru kynntar, að LÍÚ
hefði í sjálfu sér ekki áhuga á að
byggja upp fjórða dreifingarkerfíð
fyrir olíu en útgerðinni fyndist núver-
andi fyrirkomulag mjög ósanngjarnt.
Lögbundið væri að hvert olíufélag
skuli selja hveijum sinna viðskipta-
vina olíu á sama verði hvort sem um
stór eða lítil viðskipti er að ræða.
Að auki væri lögbundin flutnings-
jöfnun gegnum flutningsjöfnunar-
sjóð þar sem jafnað væri flutnings-
kostnaði til viðskiptavinanna hvar
sem þeir væru.
„Við erum að sýna fram á að
núverandi dreifingarkerfí þriggja ol-
íufélaga er ekkert samkeppniskerfí
heldur lokað kerfí þar sem ekki er
eingöngu við olíufélögin að sakast
heldur löggjafann sem fyrirbyggir
alla samkeppni. Við höfum bjarg-
fasta trú á því að ef þetta kerfí verð-
ur afnumið þá muni okkur bjóðast
aðrir kostir hjá olíufélögunum. Þá
eigum við kost á því sem stórkaup-
endur að fá olíuna á lægra verði.
Nú hefur viðskiptaráðherra lagt
fyrir ríkisstjórnina að afnema flutn-
ingsjöfnunarsjóðinn og afnema
lagaákvæðið um að allir eigi að fá
olíu á sama verði. Við viljum nú bíða
átekta og sjá hvað stjórnvöid vilja
gera til að skapa fijálsræði og sam-
keppni um olíu. Við höfum orðið
varir við að viðbrögð sumra alþingis-
manna eru neikvæð við þessu, og
þeir telja sig vera að vemda ein-
hveija hagsmuni heimafyrir. En það
er samstaða um það innan LÍÚ að
beita sér fyrir því að þetta kerfi verði
afnumið. Það er reiknað með því að
útgerðarmenn úti á landi muni fá
olíu á sambærilegu verði sem útgerð-
armenn á Stór-Reykjavíkursvæðinu
myndu fá vegna þessara miklu við-
skipta sem þessir aðilar búa til handa
olíufélögunum," sagði Kristján
Ragnarsson.
FRÁ afhendingunni í gær. Talið frá vinstri Hólmfríður Sigurðardótt-
ir, formaður samtakanna Náttúrubörn, Ingibjörg Elín Viðarsdóttir
ásamt móður sinni Fríðu Einarsdóttur, ljósmóður, Guðrún Magnús-
dóttir og Árni Sigfússon, borgarsljóri.
Fæðingarheimilið eflt
og rekið til frambúðar
Samtökin Náttúrubörn eru lands-
samtök þeirra sem láta sig varða
rétt kvenna og barna við barnsburð
og hefur eitt helsta baráttumál þeirra
verið að tryggja konum val á fæðing-
arstað. Fulltrúar samtakanna og aðr-
ir velunnarar færðu borgarstjóra
blóm en einnig var kveikt á kerti.
Fríða Einarsdóttir ljósmóðir sagði í
samtali við Morgunblaðið að kveikt
hefði verið á kertinu til þess að minna
á baráttuna fyrir því að fá Fæðingar-
heimilið opnað að nýju. Hafa mót-
mæli samtakanna Náttúrubama
meðal annars falist í því að láta loga
á kertum fyrir utan Fæðingarheimil-
ið til að minna á örlög þess en um
leið hafí logandi kertin átt að tákna
þá von að betri tímar væru í vændum
fyrir heimilið. Kom fram í máli Hólm-
SAMTÖKIN Náttúrubörn, ásamt öðrum velunnurum Fæðingarheimilis
Reykjavíkur, áttu fund með Arna Sigfússyni borgarstjóra í gærdag.
Tilefnið var undirritun samnings Reykjavíkurborgar og Ríkisspítala
um að hefja rekstur Fæðingarheimilis Reykjavíkur í byrjun apríl en
samtökin leggja áherslu á að rekstur þess verði efldur og tryggður
til frambúðar.
\í
I
<
*
!i
i
i
|
i
i
i
i
fríðar Sigurðardóttur formanns sam-
takanna að vonandi væri þetta í síð-
asta sinn sem kveikt yrði á kerti af
því tilefni. „Árni Sigfússon borgar-
stjóri hjó á þann hnút sem máiið var
í,“ segir Fríða Einarsdóttir ljósmóðir,
„við áttum fund með Árna 17. jan-
úar síðastliðinn og þar sýndum við
fram á að í ársskýrslu Ríkisspítala
fyrir 1992 kæmi skýrt fram sem við
höfðum haldið fram. Því það sýndi
sig að eftir lokun Fæðingarheimilis-
ins fjölgaði fæðingum með keisara-
skurði um 25% og einnig fjölgaði
endurkomum á fæðingardeild um
18%. Einnig segja hjálparmæður að
miklu fleiri konur hafi leitað til þeirra
vegna ýmissa vandamála eftir barns-
burð en áður, þótt það sé ekki skráð,“
segir Fríða loks.
I
I
I
I
«