Morgunblaðið - 24.03.1994, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 24.03.1994, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MARZ 1994 Húsleit hjá Berlusconi LÖGREGLA réðst í gær inn í höfuðstöðvar flokks Silvio Ber- lusconi, ítalska fjölmiðlarisans. Hann sagði að um væri að ræða samsæri vinstrimanna sem freistuðu allra bragða til þess að koma í veg fyrir sigur sinn í þingkosningunum á Ítalíu um næstu helgi. Lögregluheim- sóknin var sögð liður í rannsókn á tengslum milli frímúrara, glæpastarfsemi og stjórnmála á Ítalíu. Hvattir til að yfirgefa Alsír FRANSKA stjórnin hvatti í gær franska þegna til að yfirgefa Alsír vegna vaxandi ofbeldis- verka múslimskra strangtrúar- manna. Fordæmdi stjórnin jafnframt morð á frönskum feðgum á heimili þeirra í út- hverfi Algeirsborgar, Burkha- dem, á þriðjudagskvöld. Með því hafa múslimar, sem reyna að koma ríkisstjórninni frá völdum, myrt 32 útlendinga á undanförnum tveimur árum, flesta frá í nóvember sl. Lifrarbólffu- veira fundin JAPÖNSKUM vísindamönnum hefur tekist að einangra veiru sem veldur C-lifrarbólgu. Talið er að uppgötvunin geti leitt til þess að hægt verði að framleiða bóluefni við veikinni. Banna mynd Spielbergs STJÓRNVÖLD í múslimaríkinu Malasíu hafa bannað sýningar á mynd Stevens Spielbergs, Lista Schindlers. Segja þau hana áróðurstæki gyðinga, myndin lýsi þeim sem afburða kynstofni með greind og gáfur umfram annað fólk. Of seinn í eig- injarðarför LAUMUFARÞEGI frá Fiji, sem hafði verið talinn látinn eftir að hafa stokkið í sjóinn í Puget Sound við Seattle í Bandaríkj- unum ásamt fjórum félögum sínum, reyndist sprellifandi. Hafði laumufarþegi villt á sér heimildir og gefið upp nafn og heimilisfang annars manns sem dvaldist meðal vina fjarri heimabænum. Er hann sneri heim hafði fjölskyldan haldið minningarathöfn og táknræna útför hans. Missa hvalir heyrnina? ÁÆTLUN vísindamanna við Scripps haffræðistofnunina í San Diego um að kanna hvort sjávarhiti fari hækkandi vegna hlýnandi loftslags á jörðinni með því að senda öflugar hljóð- bylgjur fram og aftur um undir- djúp Kyrrahafsins veldur sjáv- arlíffræðingum miklum áhyggjum. Þeir óttast að hvalir og önnur sjávarspendýr missi heyrnina vegna hávaðans og bíði tjón á andlegri heilsu. Reuter Kúrdi kveikir í sér Kúrdar í Þýskalandi efndu í gær, fjórða daginn í röð, til mótmæla til stuðnings kröfunni um stofnun sjálf- stjórnarsvæðis Kúrda í Tyrklandi. Lokuðu þeir hraðbrautum við Frankfurt og við það tækifæri hellti einn Kúrdanna yfir sig bensíni og bar eld að. Á myndinni hleypur hann til lögreglumanna sem slökktu strax bálið og varð manninum ekki meint af. Helmut Kohl kanslari Þýskalands sagði að Kúrdunum sem stóðu fyrir aðgerðunum yrði refsað, þeir hefðu með ólátunum gerst sekir um óþolandi misnotkun þýskrar velvildar í sinn garð. Serbar og Svartfell- ingarkæra NATO Haag. Reuter. STJÓRNIN í Belgrad hefur kært Atlantshafsbandalagið (NATO) til Alþjóðadómstólsins í Haag í Hol- landi og sakað aðildaríki þess um að hafa brotið stofnskrá Samein- uðu þjóðanna (SÞ) með því að hóta að beita hervaldi i Bosníu án þess að hafa fengið samþykki SÞ. Ákæran var lögð fram í nafni Júgóslavíu sem nú samanstendur einungis af Serbíu og Svartfjalla- landi. Bosníu-Serbar voru í gær sagðir hafa síðustu daga fjarlægt fjölda stórskotavopna sem fundust um síð- ustu helgi innan griðarsvæðis NATO umhverfis Sarajevo. í gær var opnuð brú sem gengur undir nafninu Bræðralags- og ein- ingarbrúin og'tengir hverfi múslima og serba í Sarajevo. Hún hafði ver- ið lokuð í tvö ár. Mörg hundruð manns fóru um hana á fyrsta degi og notuðu tækifærið til að heim- sækja vini og vandamenn handan hennar. Spennan fer enn vaxandi milli ríkianna tveggja á Kóreuskaga Suður-kóreski herinn settur í viðbragðsstöðu Seoul. Rcuter. RÍKISSTJÓRN Suður-Kóreu skipaði heraflanum að vera við öllu búinn í gær en þá hafði Norður-Kóreustjórn lýst yfir, að með upp- setningu bandarískra Patriot-flauga væru Suður-Kóreumenn að blása til styijaldar. Spennan milli Kóreuríkjanna hefur vaxið mjög síðustu daga og það mun ekki verða til að draga úr henni að ákveðið hefur verið, að sameiginlegar heræfingar Suður-Kóreu og Bandaríkja- manna verði haldnar en áður hafði þeim verið frestað. Varnarmála- ráðherra Suður-Kóreu sagði í gær, að gerðu Norður-Kóreumenn árás, yrði henni svarað af öllu afli og landið sameinað. Suður-kóreska herráðið skipaði hernum að vera í viðbragðsstöðu vegna yfirlýsinga Norður-Kóreu- manna og sem varúðarráðstöfun á meðan forseti landsins, Kim Yo- ung-sam, er erlendis. í yfirlýsingu, sem norður-kóreska fréttastofan flutti í gær, sagði, að uppsetning Patriot-flauga umhverfis Seoul, höfuðborg Suður-Kóreu, væri ögr- un, sem leitt gæti til stríðs. „Fyrir- skipun Clintons er ógnun við Norð- ur-Kóreu, sem hæglega getur hleypt öllu í bál og brand á Kóreu- skaganum," sagði í yflrlýsingunni en í Seoul telja þó flestir ólíklegt, að til átaka komi og ekki hefur orðið vart við óeðlilega liðsflutn- inga í Norður-Kóreu. Heræfingar í næsta mánuði Hugsanlegt er, að sameiginlegar heræfingar Suður-Kóreu og Bandaríkjanna verði í næsta mán- uði eða í maí en ákveðið hafði ver- ið að fresta þeim til að auka líkur á, að Norður- Kórea leyfði eft- irlitsmönnum Al- þjóðakjamorku- málastofnun- arinnar að kanna kjarnorkuver í landinu og ganga Chang-jun úr skugga um að þar væri ekki verið að vinna að smíði kjarnasprengna. „Ráðist herafli Norður-Kóreu suður fyrir landamærin mun sam- einaður her Suður-Kóreumanna og Bandaríkjamanna hrinda árásinni samstundis og við höfum áætlun um að sameina allt landið að því búnu,“ sagði Rhee Byoung-tae, varnarmálaráðherra Suður-Kóreu, í gær en í suður-kóreska hernum eru 650.000 hermenn en rúmlega 1,1 milljón í Norður-Kóreu. Norðanmenn hafa líka miklu fleiri þungavopn og flugvélar en vopna- búnaður Suður-Kóreu er miklu full- komnari. HERNAÐARMATTUR KOREURIKJANNA TVEGGJA Alþjóðakjarnorkumálastofnunin, IAEA, samþykkti á mánudag að gefa Norður-Kóreu síðasta frest til að leyfa alþjóðlegum eftirlits- mönnum að skoða kjarnorkuver landsins, ella yrði gripið til aðgerða gegn ríkinu. | ^ ~ »» I N0RÐUR- KOREA SUÐUR- KÓREA Landhs T Herlið 1,127,000 633,000 «!■> “ Skríðdrekar 3,700 1,800 -dt' Stórskotavopn 9,000 6,000 A Eldflauga- nf vagnar 2,280 140 | Eldflaugar | (landhemaður) 84 12 ✓ Eldflaugar < (til loftvama) 10,000 850 Flugtw r te i Orrustuflugvélar 730 445 Árásarþyrlur 50 133 Sprengiflugvélar 80 None Floti li* . Herskip 3 ' 38 Kafbátar 25 4 ■ -.r. Eftirlits- og strandgæsluskip 387 120 BANDARÍKIN HeHlð8ari(tefil<|aiti#nna I SJtðwu ^ Landher 26,000 © Flugher 9,500 > —1 Orrustuflugvélar 84 flo« BandarikiamBnna (í Peari Hartour) Herskip* 68 te Kafbátar 41 mi Láðs- og lagartækl 28 ’ Deilast i tvo hluta. 7. tlotlnn (með aðal- bækistöð sfna í Yokosuka í Japan) ann- ast vesturhluta Kyrrahats og Indlandshaf. REUTER Líkamsárásin á bandarísku skautadrottninguna Naney Kerrigan Ekkja Fellinis látin GIULETTA Masina, ein- hver frægasta leikkona Italíu og ekkja leik- stjórans Fed- erico Fellini, lést í gær. Banamein hennar var krabbamein. Aðeins fimm mánuðir liðu milli andláts þeirra.hjóna.. 111 Sakborninffarnir opna símalínu Porf.Ianri. Ronfpr. ^111 ^ Portland. Reuter. MENNIRNIR sem ákærðir eru fyrir að ráðast á skautakonuna Nancy Kerrigan í janúar sl. og berja hana í fótlegginn með járnstöng, hafa nú opnað símalinu þar sem þeir segja sögu sína fyrir um 360 kr. mínútuna. Á upptökunni, sem er þriggja og hálfrar mínútu löng, veita Shane Stant og Derrick Smith nýjar upplýsingar um þátt Tonyu Harding, en Dawn Eckhart, lífvörður hennar, fékk þá tií að ráðast á Kerrigan. Mennirnir neita árásinni en viðurkenna að hafa lagt á ráðin um hana. Stant og Smith segja lögfræði- kostnað vegna réttarhaldanna svo háan, að þeir hafi neyðst til að afla sér fjár á einhvern hátt og þá hafi hugmyndin að símalínunni komið upp. Þá hyggjast þeir einnig hefja sölu á stutterma- bolum og húfum í fjáröflunarskyni en þeir hafa nú þegar fengið greitt fyrir að koma fram í sjón- varpsþætti. Smith sagði Nancy Kerrigan fréttamönnum að hann hefði undir höndum upplýs- ingar um að Harding .hefði haft vitneskju um málið. Fyrst hefði verið ætlunin að ráðast á Kerrigan á herbergi hennar en erfiðlega hafi gengið að hafa upp á herbergisnúm- erinu. Þá hafi Jeff Gillooly, fyrrum eiginmaður Harding, sagt að hún hefði það undir höndum. í upptök- unni á símalínunni segir; „Ætti Tonya Harding að fara í fangelsi? Það er ykkar að dæma.“ Ekki er hægt að hringja í símalínu þeirra Stants og Smiths ,frá íslandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.