Morgunblaðið - 24.03.1994, Side 38
38
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MARZ 1994
Lífeyrissjóðimir og
Hvalfj arðargöng
eftir Þorgeir
Eyjólfsson
Á undanförnum mánuðum hefur
undirrituðum virst að nokkurs mis-
skilnings gæti um aðkomu og þá
áhættu sem lífeyrissjóðirnir taka sem
kaupendur að víkjandi skuldabréfum
Spalar hf. en það hlutafélag hyggst
standa að byggingu og rekstri ganga
undir Hvalíjörð. Þessari grein er
ætlað að varpa ljósi á þátttöku lífeyr-
issjóðanna sem lánveitenda í málinu.
Greininni er alls ekki ætlað að vera
innlegg í skoðanaskipti um hvort
valinn hafi verið besti kostur um
vegtengingu yfir fjörðinn.
Hinn 5. maí 1990 samþykkti Al-
þingi lög um vegtengingu um utan-
verðan Hvalfjörð. Meginefni laganna
fólst í því að ríkisstjórninni væri
heimilt að fela hlutafélagi, sem stofn-
að yrði í því skyni, að annast að
nokkru eða öilu leyti undirbúning,
fjármögnun og framkvæmdir við
vegtengingu um utanverðan Hval-
fjörð, svo og rekstur um tiltekinn
tíma. Hlutafélagið Spölur hf. var síð-
an stofnað í þessu skyni hinn 25.
janúar 1991. Þann sama dag var
undirritaður samningur milli sam-
gönguráðuneytisins og Spalar hf. um
að hinn síðamefndi stæði fyrir hag-
kvæmniathugunum vegna vegteng-
ingarinnar.
Spölur hf. hefur samkvæmt samn-
ingi við samgönguráðuneytið einka-
rétt á að leggja og reka göng undir
Hvalfjörð og standa straum af kostn-
aði við gerð og rekstur ganganna
með innheimtu gjalds af þeim bílum
sem um göngin aka.
Gerð jarðganganna verður boðin
út með þeim skilmálum að verktak-
inn skili þeim fullgerðum og fái greitt
í einu lagi þegar verkinu er lokið.
Þannig er ljóst að væntanlegur verk-
taki mun kosta framkvæmdir á
byggingartíma en að honum loknum
er áætlað að fjámiagna verkið með
eftirgreindum hætti:
BankaláníUSDogDEM 2.260 m.kr.
Víkjandi skuldabréf í ÍSK 1.240 m.kr.
Hlutabréf 130 m.kr.
Samtals á verðlagi okt.’93 3.630 m.kr.
Það er á grundvelli ofangreindra
staðreynda sem lífeyrissjóðimir hafa
„Engar greiðslur verða
inntar af hendi af hálfu
lífeyrissjóða fyrr en
göngin undir Hvalfjörð
verða fullgerð, þau hafi
verið í rekstri um
þriggja mánaða skeið,
undir eftirliti Vega-
gerðar ríkisins, og á
þeim tíma hafi ekkert
komið fram sem bendi
til að rekstur mann-
virkisins verði ekki með
eðlilegum hætti í næstu
framtíð.“
skrifað undir yfirlýsingu um vilja til
að gera samning um kaup á skulda-
bréfum. Viljayfirlýsingin, sem samin
er á grundvelli viðræðna milli lífeyr-
issjóðasambandanna og hlutafélags-
ins, er undirrituð af einstökum lífeyr-
issjóðum með fyrirvörum um að ekki
verði skrifað undir samning um kaup
skuldabréfa fyrr en ljóst er:
1. að viðkomandi lífeyrissjóður hefur
aflað sér heimilda til kaupa
skuldabréfanna samkvæmt lög-
um, samþykktum eða reglugerð
sem um hann gilda.
2. að íjármögnun verkefnisins muni
takast og verði sem næst í þeim
hlutföllum sem að ofan greinir.
3. fyrr en endanlegar niðurstöður
jarðfræðirannsókna liggja fyrir
Þorgeir Eyjólfsson
og þær gefi ekki tilefni til að
ætla að tæknilegar hindranir ættu
að koma í veg fyrir gerð gang-
anna.
4. að niðurstöður umferðarspár sem
gerð verður áður en samningur
verður undirritaður sýni jafn
mikla eða meiri umferð en núver-
andi spá.
5. að gengið hafi verið frá landa-
kaupum.
6. að samningar Spalar hf. við verk-
taka verði undirritaðir samtímis
samningi við lífeyrissjóði.
7. að ekki hafi verið tekið hærra til-
boði frá verktaka í gerð ganganna
en kostnaðaráætlun Spalar hf.
gerir ráð fyrir eða 3.300 milljón-
um kr. á verðlagi í október 1993
og gengi USD kr. 62,50.
8. að gengið hafi verið frá trygg-
ingaskilmálum.
9. að framkvæmdir við gerð gang-
anna verði hafnar í síðasta lagi á
árinu 1994 og þeim lokið og
rekstur hafinn eigi síðar en þrem-
ur árum og níu mánuðum eftir
undirritun samnings. Viðkomandi
lánveitandi mun því verða óbund-
inn samningi ef fyrrgreindum
tímamörkum verður ekki fylgt.
Engar greiðslur verða inntar af
hendi af hálfu lífeyrissjóða fyrr en
göngin undir Hvalíjörð verða full-
gerð, þau hafi verið í rekstri um
þriggja mánaða skeið, undir eftirliti
Vegagerðar ríkisins, og á þeim tíma
hafi ekkert komið fram sem bendi
til þess að rekstur mannvirkisins
verði ekki með eðlilegum hætti í
næstu framtíð.
Svo sem sjá má af ofanrituðu taka
lánveitendur enga áhættu vegna
lagningar jarðganganna, þar sem
formleg kaup skuldabréfanna munu
ekki eiga sér stað fyrr en þremur
mánuðum eftir að göngunum hefur
verið fulllokið. Verði göngin ekki
tekin í notkun af einhveijum orsök-
um, verður ekki af lánveitingu lífeyr-
issjpðanna vegna verksins.
Áhætta lánveitendanna verður
vegna umferðarinnar um göngin.
Göngin munu stytta vegalengdina
milli Akraness og Reykjavíkur um
61 km ogvegalengd milli höfuðborg-
arsvæðis og Vestur- eða Norðurlands
um 46 km. Tekjur af göngunum, og
þar með endurgreiðslutími þeirra,
munu ráðast nánast alfarið af um-
ferðarþunganum.
Reiknað er með að gangatollur
verði 625 kr. á verðlagi í júlí 1993 en
í þeirri tölu er innifalinn afsláttur til
bíla sem fara oft um göngin svo og
14% virðisaukaskattur. Reiknað er
með að gangatollur þungaflutnings-
bifreiða verði 2.700 kr. á sama verð-
lagi. Ferðatími milli Reykjavíkur og
Akraness mun styttast úr 1 klst. og
15 mín. niður í 30 mín. Umferðarspá
sem byggð var á umferð árið 1990
og tók til bíla sem óku fyrir Hval-
ljörð, bíla sem fluttir voru með Akra-
borginni og fjölda farþega Akraborg-
ar sem ekki höfðu bíla meðferðis
sýndi umferð sem samsvarar 1.530
bíla umferð á sólarhring á leiðinni,
eða sem svarar 560.000 bílum á ári.
I samningi Spalar hf. og ráðuneytis-
ins er kveðið á um að ríkisstyrkur
til reksturs bíla- og farþegaferju
milli Reykjavíkur og Akraness skuli
----FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ-----
Málþing um
samkeppnisútboð
og val ráðgjafa
Fjármálaráðuneytið og Framkvæmdasýslan, í samstarfi
við Félag ráðgjafarverkfræðinga og Arkitektafélag
íslands, gangast fyrir málþingi um Samkeppnisútboð og
val ráðgjafa í Borgartúni 6, föstudaginn 25. mars 1994
kl. 14.00- 16.30.
Dagskrá þingsins verður sem hér segir:
1. Friðrik Sophusson, fjármálaráðherra setur málþingið.
2. Útboðsstefna ríkisins og kaup á þjónustu. Þórhallur
Arason, skrifstofustjóri í fjármálaráðuneytinu.
3. Ríkið byggir - sjónarmió arkitekta. Ormar Þór
Guðmundsson, formaður Arkitektafélags íslands.
4. Stefna FRV í útboðsmálum. Runólfur Maack, formaður
Félags ráðgjafarverkfræðinga.
5. Kostir samkeppnisútboða við val ráðgjafa. Steindór
Guðmundsson forstöðumaður Framkvæmdasýslu
ríkisins.
6. Samantekt. Magnús Pétursson, ráðuneytisstjóri í
fjármálaráðuneytinu, Árni Björn Jónasson, verkfræðingur
og Ögmundur Skarphéðinsson, arkitekt.
Ráðstefnustjóri verður Jóhann Már Maríusson,
aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar
Allir sem áhuga hafa á þessum málum eru velkomnir.
þátttöku skal tilkynna til Framkvæmdasýslunnar í síma
(91) 62 36 66 fyrir 24. mars n.k.
2X30 W. geislaspilari m/bitstream, tvöfalt
segulband, EXTRA BASSI og SURROUND
'X70 W, geislaspilari m/bitstream,tvöfalt
segulb. nti/High speed Dubbing og
autoreverse, DBB Dynamic Bass Boost,
SURROUND
Heimilistæki hf
SÆTÚNI 8 SlMI 69 15 OO
mm