Morgunblaðið - 24.03.1994, Page 50
50
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MARZ 1994
fclk í
fréttum
POPP
Strandvörður í poppinu
*
IVesturheimi og hér á landi er
sólbrúna vöðvatröllið Davíd
Hasselhoff þekktastur sem stærsti,
myndarlegasti og sólbrúnasti
strandvörðurinn að því ógleymdu
að hann er einnig yfirmaðurinn á
ströndinni í sjónvarpsmyndaflokk-
inum um strandverðina í Los Angel-
es og framleiðandi þáttanna. Færri
vita, að hann er einnig virkur popp-
söngvari. Hann hefur þó aldrei náð
að slá í gegn heima fyrir og undir-
strikar það þá fleygu setningu að
enginn er spámaður í sínu föður-
landi. Öðru máli gegnir um megin-
land Evrópu og alveg sérdeilis
Þýskaland. Þar er hann þvílík popp-
stjarna, dýrkaður og dáður, að það
kemur varla út tölublað af „Bravo“
að Hasselhoff sé ekki opnufígúran.
Það er uppselt á alla tónleika hans
í Þýskalandi og plötur hans renna
út eins og heitar lummur.
David er nú að vinna að nýrri
hljómplötu og gerir sér að sögn
vonir um að ná hylli víðar um lönd.
Er hann t.d. að undirbúa markaðs-
sókn á Bretlandseyjum þar sem
hann ætlar m.a. að heimsækja veik
börn á sjúkrahúsum og taka lagið
fyrir þau. Hann hefur og ákveðið
að spila á fleiri strengi en áður,
m.a. með því að velja franska
barnastjörnu, hina 11 ára gömlu
Nadége Trapon frá Strassbourg, til
að syngja með sér nokkur lög.
1994
Hð¥EI. IB0KC
Lýðveldi Islands
50 ára
Það kemur fram í Morgunblaðinu 13. júní
1944 að þann 12. júní hafi verið lagt fram
fmmvarp á Alþingi af þeim Ásgeiri
Ásgerissyni (síðar forseta), Ólafi Thors,
Eysteini Jónssyni og Einari Olgeirssyni, þess
efnis að taka Hótel Borg ieigunámi í eitt
kvöld, þann 18. júm', til þess að fagna
stofnun lýðveidis íslands. Þetta var gert
vegna verkfalla og deilna sem hótelið átti í
á þeim tíma. Frumvarpið var samþykkt í
báðum deiidum samdægurs og afgreitt
sem lög frá Alþingi og veislan haldin með
pompi og prakt. Á þessu ári 1994 em iiðin
50 ár síðan þetta átti sér stað. Við á Hótel
Borg bjóðum í tilefni 50 ára afmælis
íslensks lýðveldis upp ásérstakan afmælis-
matseðil, þar sem tveggja rétta máltíð
kostaraðeins 1944 kr. (forrétturog
aðalréttur) og eftirréttur 50 kr. Það er
matreiðslumeistarinn okkar, Sæmundur
Kristjánsson, sem sér um eldamennskuna
af sinni alkunnu snilld. Opið öll kvöld í
Gyllta sal og Pálmasal.
1944
LvðveldÍHmalscðill kr. 1.944
Forréttir:
H.B. fiskisúpa með fínnt skomu grænmeti
Ferskmarineraður lax með kryddjurtasósu og salati
Salat með súrsætu graskeri, sveppum og stökkri svartrót
Kjúklinga- og ostapasta með parmesan og ratatouille
Aðalréttir:
Grilluð sinnepskjúklingabringa með hnsgrjónum og hunangssoya
Ofnbakaður lax með gljáðu grænmeti og tómatestragonsósu
Grillaður nautavöðvi með sveppum, sellerírót og shallottulauk
Steikt lambafilé með röstikartöflum og snjóbaunum
Kr. 1.944
Eftirréttir:
Súkkulaðimousseterrine með ferskri vanillusósu og jarðarberjum
Heit heimabökuð eplakaka með vanilluís og karamellusósu
Myntuís með berjasósu og ávöxtum
Kr. 50
Ath. Eftirréltur ú 50 kr. aðeintt með lilboði
Tillmri i>ildir ölI kiöld ökiiiniiir lil jiiní
Borðað í Gyllta sal - slappað af í Pálmasal
Opið til kl. 01 virka daga og kl. 03 um helgar.
Njótið lífsins á Borginni
- það er aðeins ein Hótel Borg
II ó i I II o rg s í m a r 114 4 0 o g 112 4'
David Hasselhoff ásamt Nadége
Trapon hinni frönsku..
Vinningshatar
í páskasprelli
Nóa-Síríus,
Vífilfells og
Bylgjunnar
þann 18. mars:
Bjargey Stefánsdóttir,
Kleppsvegi 104, Rvík.
Pálmar T. Pálmarsson,
Suðurvangi 23A, Hafnarf.
Arnór F. Rúnarsson,
Frostafold 20, Rvík.
Rut Þorsteinsdóttir,
Guðrúnargötu 1, Rvík.
Heiga Ágústsdóttir,
Hlaðhömrum 42, Rvík.
Olga Rannveig,
Suðurhvammi 5, Hafnarf.
Magnús Ramíarz,
Sæbóli 31, Grundarf.
Sigríður Sigmarsdóttir,
Stuðlabergi 112, Hafnarf.
Margrét Sævarsdóttir,
Háaleitisbraut 14, Rvík.
Alexandra Herleifsdóttir,
Iðufelli 10, Rvík.
Edda Steingrímsdóttir,
Hrafnagilsstræti 30, Akureyri.
Vala H. Jónsdóttir,
Stangarholti 4, Rvík.
Kristín Kristinssdóttir,
Mýrarási 11, Rvík.
Margrét Hannesdóttir,
Einholti 5, Akureyri.
Bergsveinn Norðdahl,
Laufvangi 1, Hafnarf.
Inga V. Guðmundsdóttir,
Torfufelli 50, Rvík.
Helga Lillian Guðmundsdóttir
Þrastarima 20, Selfössi
Baldur Kristmundsson,
Flúðaseli 90, Rvik.
Eva Þ. Vignisdóttir,
Foldahrauni 420, Vestm.
Vigdís Sigurðardóttir,
Breiðvangi 37, Hafnarf.
Páskaeggjana skal vitja hjá
Nóa-Síríus, Hesthálsi 2-4,
á skrifstofutíma.
Vinningshafar utan höfuð-
borgarsvæðis frá páskaeggin send.
Morgunblaðið/Hallgrímur Gunnarsson
Magnús Ö. Guðmarsson i sjónvarpsviðtali hjá Stöð 1 í Vilnius.
^ VEISLA
Islenskí fiskurínn
rann ljúflega niður
Vináttufélag íslands og Lithá-
ens gekkst fyrir fískréttar-
kynningu í húsakynnum sínum í
uppgerðu Fransiskusklaustri í
Traku, hjarta Vilníusar, höfuð-
borgar Litháens fýrir nokkru. Til-
efnið var að þrjú ár voru liðin frá
því að íslendingar, fyrstir þjóða,
urðu til að viðurkenna sjálfstæði
Litháens.
Kynningin var í formi móttöku
þar sem 60 manns mættu og
snæddu valinkunn sýnishom af
fískréttum sem Magnús Öm Guð-
marsson matreiðslumeistari eldaði
með aðstoð harðsnúins liðs lithá-
ískra kokka sem lærðu í leiðinni
handtökin á íslenskum físki. Meðal
hinna 60 gesta, sem gerðu góðan
róm að matnum, má nefna aðstoð-
armann forseta Litháens, borgar-
stjórana í Vilníus og Kaunas,
sömuleiðis rektora háskólanna í
sömu borgum, félagsmálaráðherra
landsins auk aðila úr menningar-,
fjölmiðla- og viðskiptalífínu. Eftir
ræðuhöld og matarsmakk í móttök-
unni fluttist samkundan yfír á
Hótel Karolinas, sem er nýjasta
og veglegasta hótelið í Vilníus og
þar hófst veislan fyrir alvöru með
ræðu Björgvins Guðmundssonar,
deildarstjóra í utanríkisráðuneyt-
inu. Síðan var borið á borð og þar
mátti sjá, reyktan lax, laxamús,
ferskar rækjur, rækjur í hlaupi,
marineraða síld og síld í sinnepi.
Aðalrétturinn var síðan pönnu-
steiktur ufsi og karfí.
Tókst þetta með þvílíkum ágæt-
um, að Magnús var í framnhaldi
fenginn til þess að elda fyrir 80
manns í veislu á vegum litháíska
forsetaembættisins og að auki var
hann beðinn að koma fram í þar-
lendum sjónvarpsþætti og pönnus-
teikja ufsa og karfa. Var það þátt-
urinn „Bon Apetite" sem fjallar
um erlenda matargerð og er unnin
og sýndur af sjónvarpsstöðinni
Tele 3, en það er einkarekin sjón-
varpsstöð í Litháen og telur 3,5
milljónir áhorfenda. Er það um það
bil 90 prósent allra Litháa.“
Björgvin Guðmundsson og Vladislav Domarkas aðstoðarutanrík-
isráðherra Litháens ræðast við.
SKULDIR
Zsa Zsa Gabor
í greiðslustöðvun
Leikkonan Zsa Zsa Gabor hefur
óskað eftir greiðslustöðvun í
þijá mánuði vegna erfiðrar
greiðslustöðu. „Skuldir hennar
nema líklega nokkrum milljónum
dala,“ sagði Bennet Spiegel, lög-
maður Gabor. „Verðmæti eignanna
er óþekkt."
Zsa Zsa Gabor fæddist í Ung-
veijalandi, er komin af auðugri fjöl-
skyldu og hefur aldrei farið dult
með ástríðu sína fyrir dýrum mun-
aðarvarningi. „Ég hrífst af falleg-
um fötum, fallegum feldum og fal-
legum skartgripum, af mikilli
ástríðu. Ég er hræðilega dýr kona,“
var eitt sinn haft eftir henni.
Gabor kveðst vera fædd 7. febr-
úar en hefur alltaf neitað að gefa
upp fæðingarárið. Blaðamenn í
Zsa Zsa Gabor. Fyrir aftan hana
stendur Friðrik prins af smásýsl-
unni Anhalt í Þýskalandi, en
hann er eiginmaður hennar.
Hollywood áætla að hún sé 69-71
árs gömul.