Morgunblaðið - 24.03.1994, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MARZ 1994
55
FullTime 4WD
Rokksveit með þessu undarlega nafni skipa Hlynur
Aðils Vilmarssonj Halldór Geirsson hljómborðsleik-
ari, Gunnar Örn Ármannsson og Elmar gítarleikarar
og Viðar Egill bassaleikari. Sveitarmenn koma úr
Kópavogi og meðalaldur þeirra er slétt átján ár, en
tónlistina segja þeir ótilgreinda.
Zarah
Zarah er norðansveit, liðsmenn hennar eru Akur-
eyrskir og leikur norðlenskt þungarokk. Sveitina
skipa Ágúst Sigvaldason og Jakob Jónsson gítarleik-
arar, Karl Hákon Hákonarson bassaleikari og söngv-
ari og Guðmundur Rúnar Brynjarsson trommuleik-
ari. Meðalaldur þeirra félaga er um sextán ár.
Því viðeigandi nafni Torture heitir húsvísk dauða-
rokksveit skipuð þeim Arngrími Arnarsyni og Snæ-
birni Ragnarssyni gítarleikurum, Brynjólfi Sigurðs-
syni bassaleikara og söngvara og Hlyn Þór Birgis-
syni trommuleikara. Meðalaldur sveitarmanna er
rétt rúm sextán ár.
FYRIR réttum tveimur vikum hófst í félagsmiðstöð-
inni Tónabæ árleg hljómsveitakeppni sem kallast
Músíktilraunir. Sú keppni er opin bílskúrshljómsveit-
um hvaðanæva af landiuu, sem koma saman til að
keppa um hljóðverstíma. í kvöld er svo þriðja og
síðasta undanúrslitakvöldið og úrslitin annað kvöld.
Bílskúrshljómsveitir hvaðanæva af landinu koma sam-
an til að keppa í Músíktilraunum ár hvert, þetta ár þó
áberandi flestar af Suðvesturlandi, sem vonlegt er. Sem
fyrr er fátt um stúlkur í keppninni, þó einu stúlknasveit-
irnar sem þátt hafa tekið hafi komist vel áfram og næg-
ir þar að vísa til Kolrössu krókríðandi sem kom sá og
sigraði í Músíktilraunum 1992. Nokkur breyting hefur
reyndar orðið á tilraununum síðustu ár og til að mynda
hefur framsækin tónlist sótt verulega í sig veðrið, en
svok'allað sumarpopp, sem bar sigur úr býtum 1986,
1988 og 1989, hefur farið halloka og það þóttu tíðindi
að dauðarokksveit vann sigur 1991.
Músíktilraunir Tónabæjar eru nú haldnar í tólfta sinn,
en nú keppa þrjátíu hljómsveitir um hljóðverstímana eftir-
sóttu, en Skífan gefur 25 tíma í Sýrlandi í fyrstu verð-
laun, Spor 25 tíma í Gijótnámunni í önnur verðlaun og
Hljóðriti gefur 20 tíma í þriðju verðlaun. Þessu til viðbót-
ar gefur Stúdíó Stef athyglisverðustu hljómsveitinni 20
tíma. Hljóðfæraverslun Steina veitir besta gítarleikara
Mósaík
Mósaík heitir hljómsveit úr Reykjavík skipuð þremur
stúlkum og tveimur piltum og með eftirtektarverða
hljóðfæraskipan. Sveitina skipa Guðrún D. Salómons-
dóttir hljómborðsleikari, Benedikt H. Hermannsson
gítarleikari, Svanhildur Snæbjörnsdóttir söngkona,
Halldór H. Jónsson trommuleikari og Hanna Rut
Ólafsdóttir sellóleikari. Meðalaldur sveitarinnar er
sá lægsti í þessum músíktilraunum, aðeins tæp fjór-
tán ár.
úrslitakvöldsins gítar, besti söngvarinn fær Shure hljóð-
nema frá Tónabúðinni á Akureyri, besti bassaleikarinn
úttekt frá Skífunni og besti trommarinn úttekt frá Sam-
spili. Aðrir sem gefa verðlaun eru Rín, Paul Bernburg,
Pizzahúsið og Japís. Styrktaraðilar Músíktilrauna eru
Hard Rock Café, Jón Bakan og Vífilfell/Coca Cola. Einn-
ig á Tónabær samstarf við Ríkisútvarpið um kynningu
á tilraununum í Rás 2 og verður úrslitakvöldinu meðal
annars útvarpað beint og Sjónvarpið myndar það til síð-
ari sýninga aukinheldur sem fylgja á sigursveitinni eftir.
Undanúrslitakvöldin greiða áheyrendur atkvæði um
hljómsveitirnar og tvær þær atkvæðahæstu komast
áfram. Dómnefnd getur einnig lagt sitt af mörkum og
valið þriðju hljómsveitina í úrslit, ef henni finnst einhver
hljómsveit eiga erindi þangað. Úrslitakvöldið gilda at-
kvæði dómnefndar svo 70% á móti atkvæðum áheyr-
enda, en þá verða einnig kallaðir til sérfróðir til að velja
besta gítarleikara, bassaleikara, trommuleikara og söng-
vara úrslitanna, en athyglisverðustu hljómsveitina velur
dómnefnd ein.
Sigurhljómsveit síðasta árs, Yukatan, leikur í kvöld
til upphitunar fyrir keppnina sjálfa, en dansrokksveitin
Bubbleflies leikur á meðan atkvæði eru talin. Annað
kvöld, úrslitakvöldið, leikur svo KK Band fyrir keppnina
og á meðan atkvæði eru talin.
Árni Matthíasson tók saman
Tennessee-Trans
Tennessee-Trans kemur úr Reykjavík og leikur gítar-
kryddaða danstónlist. Sveitina skipa Sigurður Jóns-
son söngvari, Sigtryggur Ari Jóhannsson hljómborðs-
leikari, Arnar Omarsson trommuleikari, Einar Töns-
berg bassaleikari, Sigurður Örn Jónsson liljómborðs-
leikari, Haraldur Gunnlaugsson gítarleikari og Jón
Fjölnir Thoroddsen söngvari. Meðalaldur sveitar-
manna er um tuttugu og tvö ár.
Morgunblaðið/Kristinn
Léttlynda rós
Léttlynda rós er hljómsveit frá Ólafsfirði sem feng-
ist hefur við ballspilamennsku. Sveitarmenn eru Ólaf-
ur Þór Jósepsson gítarleikari og söngvari, Gunnlaug-
ur Helgason gítarleikari, Arnþór Benediktsson bassa-
leikari, Andrés Benediktsson trommuleikari og Andr-
és Bertelsen söng-vari. Meðalaldur sveitarmanna,
sem segjast leika popprokk, þó erfitt sé að skilgreina
það svo vel sé, er um tuttugu ár.
Winnie the Pooh
Því lýsandi nafni Winnie the Pooh, eða bara Bangsím-
on upp á íslensku, heitir rokksveit úr Vestmannaeyj-
um. Sveitina skipa Árni Hafsteinsson söngvari, Magn-
ús Elvar Viktorsson og Helgi Thorshamar gítarleik-
arar, Jóliann Ágúst Thorshamar bassaleikari, Sigur-
geir Viktorsson trommuleikari og Ingólfur Arnason
hljómborðsleikari. Meðalaldur sveitarmanna er rúm
tuttugu ár, en þeir segjast leika venjulegt melódískt
rokk, sinn eigin stíl.
Ath.: BREYTTUR OPNUNARTÍMI
Opið frá kl. 9-21 virka daga
HAGKAUP
Skeifunni — sími 635000