Morgunblaðið - 06.04.1994, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. APRIL 1994
Skreppum í norðvestur
Áhugaverðar Grænlandsferðir
eftirAra Trausta
Guðmundsson
Nú um stundir er sérstak'ur áhugi
á Mexíkó; landi og þjóð og mexí-
kóskum mat hér á landi. „Kryddleg-
in hjörtu“, bæði ritverkið og kvik-
myndin, og ævintýraljóminn sem
leikur um þetta fjarlæga land heill-
ar fólk. Og það ekki að ósekju. En
líka er hægt að teygja sig skemur
eftir ævintýralegu landl þótt á öðr-
um forsendum sé. Þar eru það ekki
heitar ástríður, sterkur matur og
hitinn undir sólinni sem heillar,
heldur ísauðnin, tröllsleg náttúra
og merkileg menning, sem snertir
meira að segja okkar eigin sögu:
Hér á ég við Grænland; ígildi hálfr-
ar heimsálfu við bæjardyr okkar.
Frá Síberíu til Grænlands
Um þessar mundir er hér staddur
grænlenskur ferðagarpur og bar-
áttumaður fyrir menningu inúíta
að nafni Ono Fleicher. Hann hefur
ferðast þúsundir kílómetra á hunda-
sleðum til þess að tengja saman
byggðir inúíta í Síberíu, Alaska,
Kanada og á Grænlandi og styrkja
sjálfsímynd þeirra 130.000 manna
sem tala svipaða tungu og eiga sér
ævagamla menningu, og ekki að-
eins vistvæna heldur og mannbæt-
andi. Hann kann að segja dapurleg-
ar sögur af boðum, bönnum og
þvingunum sem hafa ekki aðeins
hrifsað þjóðareinkenni frá inúítum
heldur líka útrýmt stórum hluta
frumbyggjanna. Nú þegar Græn-
lendingar hafa heimastjórn og hvert
ár færir inúítum betri stöðu og
meiri skilning á varðveislu tungu
og menningar, er rétt að hlusta á
þá; einmitt meðal smáþjóða eins og
Islendinga og Færeyinga, sem geta
margt lært af grönnum sínum og
sögu þeirra.
Grænland á íslandi
Því miður er fremur lítið til af
mynd- og lesefni um Grænland hér
á landi. Nokkrar bækur, bæði
frumsamdar <pg þýddar, hafa komið
út, t.d. eftir Ása í Bæ og Frakkann
Frei. Enn vantar þó myndabækur.
Þá tók Ósvaldur Knudsen á sínum
tíma upp kvikmyndaefni í Eystri-
PONTUNA RSEOlI.l
imr
erðu
Jaðcjott
fallegri möppu
Kostir. þess að fá þér „ Gerðu það gott" möppu
fyrir uppskriftirnar þínar eru fleiri en einn:
• Þú hefur alla bæklinga Tilraunaeldhúss MS
á einum stað
• Mappan er falleg, handhæg og af hentugri stærð
fyrir alla bæklingana
• í möppunni eru grunnupplýsingar um mál,
vog og ýmis góð ráð
• Hún kostar aðeins 490 kr
....X
Já takk!
□ Ég vil fá senda safnmöppu MS í póstkröfu
□ Ég óska eftir því að uppskrijtarbaklingar MS
númer------------------- fylgi möppunni.
Utanáskrijiin er: Tilraunaeldhús MS, Pósthólf10340, 130 Reykjavik.
NAFN
KENNI TA LA
HEIMILISFANG
PÓSTNÚMER STAÐUR
byggð og Ríkissjónvarpið hefur
stundum flutt efni frá Grænlandi,
t.d. þáttaröð fyrir börn og unglinga
fyrir skömmu og þætti frá Eiríks-
firði (Tunugdiiarfik) í Eystribyggð
undir stjórn Árna Johnsen. Saga
Film framleiddi myndband um
Ammassalik-svæðið í Austur-
Grænlandi 1992 og Flugleiðir og
aðilar í ferðaþjónustu hafa stundum
gefið út bæklinga með ferðamanna-
upplýsingum um Grænland.
Allmargir íslendingar hafa ferð-
ast á Grænlandi og birt um það
efni í dagblöðum eða flutt í útvarp.
Nokkur samskipti vinabæja á ís-
landi og Grænlandi eiga sér stað
og nú, þegar Ammassalik er 100
ára, er verið að undirbúa sýningu
á verkum tveggja íslenskra lista-
manna í þeim bænum. Ekki má svo
gleyma starfsemi tengda Grænlandi
í Norræna húsinu, einkum listmiði-
un margs konar. Og nú nýlega tóku
Grænlendingar á íslandi og íslensk-
ir Grænlandsvinir sig til og endur-
vöktu vináttufélag landanna.
Grænlandsferðir
Fjögur ferðasvæði eru einna að-
gengilegust á Grænlandi, að sleppt-
um höfuðstaðnum Nuuk og ná-
grenni. Fyrst skal telja byggðirnar
umhverfis Diskó-flóann allnorðar-
lega, þ.m.t. Ilulissat (Jakobshavn)'.
Þar er mikilfengleg náttúra og m.a.
einn rosalegasti skriðjökull heims
sem kelfir í sjó fram. Þá er það
„Það er full ástæða til
að hvetja fólk til að
fylgjast með fyrir-
lestrarferð Ono Fleisc-
hers um landið í þessum
mánuði og til að kynna
sér sem mest af efni um
Grænland og inúíta.
Enn meiri ástæða er til
að hvetja fólk til Græn-
landsfarar.“
svæðið við Syðri-Straumfjörð og
Vestribyggð; einkum hentugt til
langra gönguferða. Síðan skal talið
Ný lög um fjöleignarhús
Lang’þráðar rétt-
arbætur í höfn
eftir Sigurð Helga
Guðjónsson
Hinn 23. mars sl. var stór og lang-
þráður dagur í réttarsögu íslenskra
húseigenda, en þá voru samþykkt á
Alþingi ný lög um fjöleignarhús, sem
leysa af hólmi fjölbýlishúsalögin frá
1976. Þessi nýju lög gilda um öll
hús, bæði til íbúðar og annarra nota,
sem skiptast í séreignir í eigu fleiri
en eins aðila og í sameign.
Fjöleignarhús er samheiti yfir
margvísleg hús
Lögin gilda um: a) fjölbýlishús
með íbúðum eingöngu, b) hús sem
hafa bæði að geyma íbúðir og hús-
næði til annarra nota (blandað hús-
næði), c) hús sem alfarið eru nýtt
til annars en íbúðar, s.s. fyrir at-
vinnustarfsemi, félagsstarfsemi eða
tómstundaiðkun, c) raðhús og önnur
sambyggð og samtengd hús.
Um öll þessi fjölbreytilegu hús er
notað samheitið FJÖLEIGNARHÚS,
sem er nýyrði og haganlegur sam-
nefnari.
Þar að auki verður lögunum beitt
eftir því sem við á um önnur hús,
þótt ekki teljist fjöleignarhús, ef
fleiri en einn á þau eða nýtir með
líkum hætti. Lögin gilda fyrst og
fremst um fullbúin fjöleignarhús en
verða þó einnig notuð um hús á
byggingarstigi. Loks verður ákvæð-
um laganna einnig beitt um sameig-
inleg málefni sjálfstæðra, ótengdra
fjöleignarhúsa og/eða annars konar
húsa, t.d. einbýlishúsa.
Lögiri taka gildi 1. janúar 1995
Lögin um fjöleignarhús eru mikill
bálkur með 82 greinum, en til sam-
anburðar má nefna að lögin um fjöl-
býlishús frá 1976 eru aðeins 19
greinar. Það skal áréttað, til að fyrir-
Lyggja misskilning, að lögin taka
ekki gildi fyrr en 1. janúar 1995,
þannig að una verður við þau eldri
enn um sinn.
„Þessi nýju lög fela í sér
miklar og mikilvægar
réttarbætur, enda hafa
lögin frá 1976 þótt óljós
og ófullkomin og gölluð
um margt.“
Miklar réttarbætur - Eldri lög
gölluð
Þessi nýju lög fela í sér miklar
og mikilvægar réttarbætur, enda
hafa lögin frá 1976 þótt óljós og
ófullkomin og gölluð um margt og
svarað fáu en vakið upp því fleiri
spurningar og álitaefni, sem gjarnan
hefur leitt til magnaðra deilna með
eigendum, stundum kórónuðum með
harðvítugum málaferlum.
Itarleg, skýr og aðgengileg lög
Við samningu laganna var kostað
kapps um að hafa þau eins ítarleg
og skýr og auðskiljanleg og aðgengi-
leg almenningi og framast var unnt.
Löggjöf á þessu sviði þarf að vera
þannig úr garði gerð, að eigendur
geti áttað sig á efni hennar og réttar-
stöðu sinni á eigin spýtur án aðstoð-
ar lögfræðinga eða annarra sérfræð-
inga. Þetta er sú löggjöf, sem bein-
ast og mest snertir daglegt líf þorra
fólks í landinu og eignir þess og
hagsmuni. Oft eru þetta einu lögin,
sem venjulegt fólk les og kynnir sér
um dagana, önnur löggjöf er því
gjarnan mjög framandi og fjarlæg.
Hér eru ekki tök á að gera grein
fyrir þeim mörgu breytingum og
nýmælum, sem fjöleignarhúsalögin
nýju hafa að geyma, það verður að
bíða betri tíma og meira rýmis en
hér gefst.
Níu mánaða aðlögunar- og
undirbúningstími
Eins og áður segir taka lögin
ekki gildi fyrr en um næstu áramót.
Næstu níu mánuðir sem í hönd fara
fram að gildistökunni er nauðsynleg-
ur og mjög þýðingarmikill undirbún-
ings- og aðlögunartími til að ráðrúm
gefist til að kynna vel efni laganna
og nýmæli þeirra og til að semja og
setja reglugerðir samkvæmt þeim.
Eins til að eigendum og húsfélögum
gefist tóm til aðlögunar að nýjum
fyrirmælum og siðum, sem lögin
fela í sér.
Vanda verður kynningu og
fræðslustarf
Það er afar brýnt að vandað verði
til alls í þessum efnum og ekki síst
í kynningar- og fræðslumálum.
Hætt er við að löggjöf á þessu sviði,
hversu góð sem hún er, missi marks
og nái ekki tilgangi sínum ef megin-
atríði hennar verða ekki strax kunn
almenningi. Svona löggjöf má ekki
sveipast dulúð og verða einkamál
lögfræðinga og innvígðra, heldur
verður hún strax frá upphafi að
verða kunn og handgengin almenn-
ingi.
Húseigendafélagið býður fram
krafta sína, þekkingu og
reynslu
Húseigendafélagið býr yfir mikilli
þekkingu á þessum málum og hefur
margra áratuga reynslu á þessu
sviði. Félagið átti frumkvæðið að
þeirri endurskoðun fjölbýlishúsalag-
anna, sem var undanfari þessara
nýju fjöleignarhúsalaga og þau eru
að miklu leyti byggð á þessari þekk-
ingu og reynslu félagsins. Hefur
Húseigendafélagið lýst sig reiðubúið
til að taka að sér kynningu á lögun-
um og annast þá ráðgjöf og upplýs-
ingamiðlun til eigenda sem þau
mæla fyrir um. Félagið stendur á
gömlum merg og er traust og öflugt
og hefur alla burði til að annast
þessi verkefni vel og er þessum
málum örugglega hvergi betur borg-
ið en hjá því.
Þakkir til Jóhönnu
Sigurðardóttur
Húseigendur á íslandi standa í
mikilli þakkarskuld við Jóhönnu Sig-