Morgunblaðið - 06.04.1994, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 06.04.1994, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. APRIL 1994 59 Snöggsoðið systragervi ____Kvikmyndir Amaldur Indriðason Systragervi 2 („Sister Act 2: Back in the Habit“). Sýnd í Bíó- borginni og Sagabíói. Leik- stjóri: Bill Duke. Aðalhlutverk: Whoopi Goldberg, Maggie Smith, James Coburn, Kathy Najimy. Dukes og hún á meira sameigin- legt með bandarískum sjónvarps- þætti fyrir unglinga en gaman- myndum kvikmyndanna. Sögu- þráðurinn er snöggsoðinn. Gömlu vinkonurnar í klaustrinu ferðast til Las Vegas að fá Whoopi til að snúa aftur vegna neyðarástands sem aðeins hún getur fengist við. Þegar til kemur er neyðarástandið einkar ómerkilegt, einn bekkur í klausturskólanum lætur ekki að stjórn. Menn hafa verið sendir í aðra hreppa af meira tilefni. Okk- ar röggsama söngkona bjargar því með stæl og stælum og kemur metnaði inn í krakkana til að taka þátt í kóramóti í Kalíforníuríki. Það er ekki mikið kjöt á beinun- um hérna og gamansemin er held- ur af skornum skammti. Þetta er ábót við skyndibitagerð í snatri á meðan keimurinn af hinum situr enn eftir. Whoopi virðist á ein- hvern hátt gera sér grein fyrir að hér er um nokkuð síðra verk að ræða og er aðeins svipur hjá sjón miðað við það sem hún var í fyrri myndinni. Hún gefur sig ekki í þessa einfeldningslegu þtjú- bíóstemmningu að fullu. Vinkon- urnar hennar úr klaustrinu, sem eru leiknar m.a. af hinni bros- mildu Kathy Najimy, gegna einn- ig veigaminna hlutverki en sviðs- Líf og dauði Gamanmyndin Systragervi var óvæntur glaðningur fyrir tveimur árum og naut mikilla vinsælda. Þar var enda Whoopi Goldberg í hlutverki sem sniðið var fyrir hana en hún lék hávaðasama söngkonu á skemmtistað sem flúði í klaust- ur undan mafíósanum Harvey Keitel og tókst þar að betrum- bæta sig og umhverfi sitt með kórstarfi. Nú er framhaldsmyndin komin og stendur fyrstu myndinni langt að baki, frumleikinn er horf- inn og hin óvænta gamansemi, sem hlaust af því að setja hálf- gerða dræsu inn í háheilagt klaustur. í staðinn er komið eitt- hvað ótótlegt kórafbrigði af „Fame“ er segir af vandræðabekk í klausturskólanum sem keppir til sigurs á kóramóti undir stjórn Whoopi. Oft er eins og myndin sé í þann veginn að breytast í tónlistar- myndband undir leikstjórn Bill Líf mitt („My Life“). Sýnd í Háskólabíói. Leikstjórn og handrit: Bruce Joel Ruben. Aðalhlutverk: Michael Keaton, Nicole Kidman, Queen Latifah og Haing S. Ngor. í fjölskyldudramanu Líf mitt leikur Michael Keaton mann sem á fáa mánuði eftir ólifaða. Hann er með ólæknandi krabbamein. Nicole Kidman leikur konuna hans og þau eiga von á barni. Til þess að barnið geti gert sér einhveija mynd af föður sínum þegar það vex úr grasi gerir Keaton mynd- bönd af sér þar sem hann talar til barnsins um allt milli himins og jarðar. Og til þess að koma málum sínum á hreint hefur hann aftur samband við fjölskyldu sína, sem hann yfirgaf fyrir mörgum árum af ástæðum sem aldrei- koma mjög skýrt í ljós. Þannig getur hann loksins dáðið sáttur við guð og menn. Krabbameinssögur, ástvina- missir og dauði eru sérstaklega vandmeðfarin efni því það er allt- af stutt í væmni og smekkleysu þar sem kvikmyndagerðarmenn nýta sér aðstæðurnar og auðveld- ar aðferðir til að kalla fram tilfinn- ingar í áhorfendum og misbrúka þær jafnvel. Bruce Joel Ruben er betri kvikmyndagerðarmaður en svo að leiðast út í auvirðilega smekkleysu en þessi 20 klúta mynd hans ber þess þó merki að stefnt er beint á tárakirtlana og hvert tækifæri er nýtt til hins ýtrasta til að hreyfa við tilfinning- um áhorfandans. Líf mitt lýsir alla tíð miklu ástríki og er fallega tekin í mjúk- um tónum og ríkmannlegu um- hverfi; Hollywoodmyndir um eitt- hvað „mikilvægt“ eiga það til að gerast á meðal þess eina prósents landsmanna sem á allt. En mynd- in er svolítil ráðgáta. Kínverski heilunarlæknir Keatons, leikinn af Haing S. Ngor, segir að í hon- um búi mikil reiði, sem hann þarf að losna við áður en hann deyr og til þess að finna upptök reiðinn- ar fer hann aftur í foreldrahús. I ljós kemur að hann á aðeins góð- ar minningar þaðan og maður skilur hvorki reiðina, sem vissu- lega virðist búa í honum, né þetta af hveiju hann flutti í burtu J fússi og hafði aldrei samband meira. Bruce Joel Ruben virðist ljósinu er beint að unglingunum í bekknum, sem flestir eru svárt- ir, og myndin verður baráttuóður þeirra um hvernig hinir síðustu verða fyrstir (Rocky). James Co- burn fer fyrir hópi aukaleikara, „ sem flestir koma úr sjónvarpi, og það kemur aldrei mjög skýrt i ljós hvort hann er vondi kallinn í sög- * unni eða ekki. Systragervi 2 fellur þannig í gryfju ófárra framhaldsmynda að bjóða ekki upp á meira og betra heldur meira og mun síðra. ekki vita það heldur því einhver- staðar í myndinni hættir þetta að skipta máli. Þess í stað fellur fólk í faðma, fjölskyldusamheldnin verður ein- stök, allir elska alla á þessa fal- legu bandarísku vísu sem á að innihalda boðskap um gifturíkt fjölskyldulíf. En samt er eins og andrúmsloftið sé þvingað, eins og allir séu að leggja sig aðeins of mikið fram. Þetta er mynd um það hvernig þú býrð bæði sjálfan þig og ástvini þína, jafnvel ófædda afkomendur, undir dauðann og það að þú verður ekki lengur til staðar og myndin virkar best þeg- ar hún heldur sig á þeim skyn- sömu nótum. Michael Keaton sýnir óvenju markvissan og agaðan leik og Kidman er skynsemin uppmáluð í hlutverki eiginkonunnar. En þrátt fyrir allt tekst myndinni ekki að hrífa mann með sér. Heilbrigðisráðherra á ferðalagi um Austurland Ekkí áformað að loka neinum sjúkrahúsum Egilsstöðum. GUÐMUNDUR Árni Stefánsson heilbrigðisráðherra lýsti því yfir á Egilsstöðum fyrir páska, að engar lokanir, sem byggðu á hinni umdeildu skýrslu frá því í haust um sjúkrahúsmál, væru fyrirhugað- ar á Austurlandi eða annars staðar á landinu meðan hann sæti sem heilbrigðisráðherra. Skýrsla þessi, sem birtist á síð- asta hausti, og unnin var á vegum heilbrigðisráðuneytisins, gerði ráð fyrir miklum breytingum á starf- semi heilbrigðisstofnana á Austur- landi. En þó svo að ekki standi til að gera breytingu á skipan sjúkra- húsmála á Austurlandi í kjölfar skýrslunar taldi ráðherra, að hún hefði komið nauðsynlegum umræð- um að stað og gott hefði verið að fá staðreyndirnar upp á yfirborðið. Eftir stæði þó að nýtingu þjón- ustunnar væri ennþá ábótavant, en hann vonaði að það stæði til bóta. Tillaga nefndarinnar gerði ekki ráð fyrir svæðissjúkrahúsi með sér- fræðiþjónustu á Austurlandi heldur yrði sjúklingum vísað á sjúkrahúsin í Reykjavík og á Akureyri. Ekki var gert ráð fyrir því, að efla Fjórðungs- sjúkrahúsið í Neskaupstað vegna þess hve samgöngur þangað eru erfiðar að vetri. Ólíklegt var einnig talið að takast mætti að beina Hér- aðsbúum til Neskaupstaðar og þar af leiðandi væri íbúafjöldi upptöku- svæðis sjúkrahússins einfaldlega of lítill. Forsendur þær sem lagðar voru til grundvallar áframhaldandi sjúkrahúsrekstri á Austurlandi voru þær, að samgöngur við Neskaup- stað yrðu stórbættar og sérfræði- þjónusta aukin. í annan stað að sjúkrahúsþjónusta yrði byggð upp á Egilsstöðum, sem miðuð væri við 6 þúsund manns. Sú þjónusta yrði í góðum tengslum við Eskifjörð og Seyðisíjörð. Jafnframt þessu var áætlað að sjúkrahúsin á Austur- landi yrðu skilgreind sem hjúkrun- arsjúkrahús og jafnvel að sjúkra- húsið á Seyðisfirði yrði skilgreint sem hjúkrunarheimili. Þessu undu austanmenn ákaflega illa. Ánægja með svör ráðherra Einar Rafn Haraldsson fram- kvæmdastjóri sjúkrahússihs á Eg- ilsstöðum lýsti yfir mikilli ánægju með yfirlýsingar ráðherra varðandi þessi málefni, og sagði þær góðar fyrir alla landsbyggðina, ekki að- eins Austurland. Talsmaður sjúkra- hússins í Neskaupstað taldi þetta góð tíðindi og sagði sjúkrahúsfólk ánægt með, að ráðherra tæki af öll tvímæli um skerðingu á þeirri þjónustu sem sjúkrahúsið nú veitti. Anægja sjúkrahúsfólks í Neskaup- stað er vel skiljanleg í ljósi þess að sjúkrahúsið þar hefði sennilega far- ið verst út úr þeim breytingum sem orðið hefðu ef tillögur nefndarinnar hefðu náð fram að ganga. Auk þess er sjúkrahúsið stór vinnuveit- andi á staðnum. Lárus Gunnlaugs- son framkvæmdastjóri sjúkrahúss- ins á Söyðisfirði sagði tíðindin ekki koma á óvart, enda hafi hann ekki reiknað með því að til skerðingar á þjónustu kæmi. Alla vega ekki á þessu ári, eða næsta. Hann tók hins vegar undir með þeim er haft var samband við, að nauðsynlegt hefði verið fyrir ráðherra að taka af öll tvímæli um hlutverk og framtíð sjúkrahúsmála á Austurlandi. __. - Ben.S. SANDSPARTL BREPLASTA Verð pr. kg. 35,- kr. m/vsk. Upplýsingar í síma 678000. Slippfélagið, málningarverksmiðja Sigtryggur Jónsson - Sálfræðistofa Nýtt heimilisfang: Lágmúli 4,108 Reykjavík, s. 68 85 50 Frá og með 1. apríl 1994 hef ég flutt sálfræðistofu mína frá Álftamýri 3 í Lágmúla 4 ásamt Heilsugæslunni. Símanúmer er óbreytt 68 85 50. Tímapantanir frá kl. 9-17 alla virka daga. Sálfræðileg ráðgjöf og meðferð. Persónuleg vandamál. Fjölskylduvandamál. Kynlífsvandamál. Áfengis- og vfmuefnavandamál. Námskeið og ráðgjöf við fyrirtæki og stof nanir varðandi samstarf, samvinnu og stjórnun. ENQJATEIQUR 17-19, REYKJAVÍK, SlMI 91-811314 3M Tilboð a P«*unarlín»bön aðeins þessum ArvIk ÁRMÚU 1 • REYKJAVÍK * SÍMI 687222 • MYNDRITI 687295 ■æ&sSSSZ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.