Morgunblaðið - 06.04.1994, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 06.04.1994, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. APRIL 1994 21 Virk samkeppni í sjóflutningum í skýrslunni kemur fram að skýrsluhöfundur telur að flutn- ingsaðilar hafi verið fáir og það hafi haft takmarkaða samkeppni í för með sér og stærð flutningsað- ila hafi gert þeim kleift að ráða verðmyndun fremur en markaður- inn. Hið rétta er að fjöldi skipafé- laga hefur komið og farið á þess- um markaði á undanförnum árum. Dæmi um það eru Hafskip, Gláma, Ok, Sjóleiðir, Víkurskip, Van Ommeren og Skipafélagið Föroy- ar. Samkeppni á þessum markaði hefur ávallt verið virk og á köflum mjög harðvítug. Það vita allir flutningakaupendur að skipafélög- in beijast um hvern viðskiptavin. Því fer víðs íjarri að skipafélögin geti einhliða ráðið flutningsverð- um. Einnig má nefna að höfundur- inn fullyrðir að íslenski flutninga- markaðurinn líkist fremur vernd- uðum innanlandsmarkaði en opn- um alþjóðlegum markaði á alþjóð- legri siglingaleið. Siglingar hingað hafa verið frjálsar og útlendingar hafa því getað flutt vörur til og frá landinu ólíkt því sem verið hefur í mörgum öðrum atvinnu- greinum á íslandi. Hafnaraðstaða er til staðar fyrir hvaða fyrirtæki sem er, íslenskt eða erlent. Full- yrðingar um lokaðan innanlands- markað eru því eins fjarri raun- veruleikanum og frekast getur. Samstarf við viðskiptavini hefur skilað árangri Hinn erlendi ráðgjafi, sem ber ábyrgð á gerð skýrslunnar, dregur upp mjög neikvæða mynd af þeim árangri sem náðst hefur við lækk- un flutningskostnaðar til og frá landinu á undanförnum árum og Eimskip hefur átt þátt í að skapa. Mikil hagræðing hefur þannig átt sér stáð í rekstri Eimskips á undaf- örnum áratug. Þessari hagræð- ingu hefur Eimskip skilað til við- skiptavina sinna með lækkun flutningsgjalda. Aðgerðir Eimskips til hagræð- ingar hafa skilað þeim árangri að flutningsgjöld t.d. í innflutningi hafa lækkað að meðaltali um 5% á ári allt frá 1986. Framsækin fyrirtæki í inn- og útflutnings- verslun hafa stöðugt nýtt sér bet- ur nýja flutningatækni með því að breyta sínum innkaupavenjum, breyta lagerstýringu, nýta sér heilgámaflutninga auk ýmissar annarrar hagræðingar í flutning- um sem leitt hefur til lægri flutn- ingskostnaðar. Sú staðreynd stendur því óhögguð að Eimskip hefur ásamt fyrirtækjum í inn- og útflutnings- verslun náð verulegum árangri við að lækka flutningskostnað til og frá landinu. Þessi árangur hefur náðst með þrotlausri vinnu og nánu samstarfi og hefur verið kynntur fyrir öllum viðskiptavin- um félagsins og öðrum lands- mönnum á liðnum árum. í vörubfla, vagna, rútur nn vinnunÁhr Draumurmn skuggi Eftir að hafa skoðað áðurnefnda Drewry skýrslu ítarlega er niður- staðan sú að um sé að ræða mark- lítið plagg, því þar er einfaldlega lagt út af röngum forsendum um flutningsmagn og flutningsgjöld. Frekari umræða um flutningsgjöld á grundvelli þessarar skýrslu þjón- ar því engum tilgangi í ljósi þeirra margvíslegu rangfærslna og rang- túlkana sem þar eru sett fram. Þróun flutningsgjalda í innflutningi frá Evrópu 1986-1993, 1986=100 íISKverðl. ÍDEM 1986 100 100 1987 82 85 1988 72 78 1989 66 70 1990 64 68 1991 58 67 1992 54 62 1993 55 58 Höfundur er framk væmdastjóri flutningasviðs Eimskips. eftirÞórunni Þórsdóttur Draumurinn sjálfur er ekki annað en skuggi, sagði Hamlet Dana- prins, og nú er mál að minnast þess. A skírdag birtist hér í Morg- unblaðinu grein fnerkt Hrólfi Sveinssyni undir fyrirsögninni Draumur á laugardagsnótt. Efni hennar sýnist þríþætt. Fyrst segir að ég, sem þetta skrifa, hafi hitt greinarhöfundinn, Hrólf, í draumi. Síðan, efnislega, að blaðamenn séu lygamerðir og labbakútar. Þess vegna hafi höfundurinn, Hrólfur, þá ófrávíkjanlegu reglu frá ferm- ingarbróður sínum, Helga Hálfdan- arsyni, að eiga aldrei við þá orða- stað. Loks kveðst Hrólfur þó kunna að efast ef við hittumst í draumi. Hans draumi þá. Slíkur fundur virð- ist engin fjarstæða því víst dreymir Hrólf mikið. Hann hefur til dæmis dreymt fermingu sína með Helga Hálfdanarsyni. Ég fletti af áhuga fyrir þeim vin- um upp í kirkjubók Sauðárkróks- prestakalls frá 1926 og fann þar nöfn þessara fermingardrengja: Garðar Haukur Hansen Friðriks- son, Ingvar Þorkell Magnússon, Jón Ólafur Möller, Kristján Guðmunds- son, Kristján Þórður Sölvason, Helgi Hálfdanarson, Lárus Sigur- berg Sveinsson, Pétur Jónsson, Sig- urður Bernharð Laxdal Grímsson. Enginn Hrólfur þar. Svo draumur minn um hann er ekki annað en skuggi. Líkast til skugginn af Helga Hálfdanarsyni. Óðum versnar, sagði Ófelía við Hamlet og mér virðist horfurnar þungar um vinskap okkar Hrólfs — eða ætti ég að segja Helga. Þó er mér hlýtt til þeirra beggja, nær ókunnugri konu, sem skrifar litla kynningu á lestri grískra harm- leikja hér í þetta blað (26/3). Það var upphaf orðaskipta okkar Helga og Hrólfs á síðum blaðsins og ég sný mér enn að Shakespeare og segi við þá eins og Gullinstjarni við Hamlet: Æ, herra prins, sé skyldu- rækt mín of nærgöngul, er vinsemd mín of ókurteis. Höfundur er blaðamaður á Morgunblaðinu Einstakt áskriftartilboð: ÞÚ FÆRÐ BLAÐI|>Á AÐEIHS ttS iROHUR! Við bjóðum þér vinsælasta myndasögublað á íslandi, Andrés Önd á aðeins kr. 225 hvert blað - sent heim til þín. • Efað þú tekur tilboðinu innan 10 daga færðu vandaða 700 krónu safnmöppu undir blöðin að gjöf. Tryggðu þér að Andrés Önd komi heim til þín í hverri viku - og að þú fáir safnmöppuna ókeypis!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.