Morgunblaðið - 06.04.1994, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. APRIL 1994
Snjóflódahætta á
Flateyri og í Hnífsdal
HÆTTUÁSTANDI vegna snjóflóðahættu var lýst yfír í gær á Flat-
eyri og í Hnífsdal. Á Flateyri var á milli 20-30 manns í efstu húsum
hreppsins gert að fíytja úr þeim þangað til hættuástandi væri af-
létt, og álíka margir íbúar beðnir um að yfirgefa híbýli sín í Hnífsdal.
Morgunblaðið/Helga Halldórsdóttir
Snjóflóð meðfram Núpi
Þingeyri.
SNJOFLÓÐ féll rétt fyrir innan Héraðsskólann á Núpi í Dýrafirði sl.
mánudag og flaut nokkuð hundruð metra yfír veginn og niður á tún
fyrir neðan bæinn. Flóðið kom úr svonefndum Krossgiljum og Iá leið
þess nánast meðfram innstu húsum á Núpi og verður að teljast mikil
mildi að enginn var þar á ferð.
Siglufjörður
Fylgst með
snjóalögum
í fjöllunum
Siglufirði.
ALMANNAVARNANEFND Siglu-
fjarðar hefur verið í viðbragðs-
stöðu síðustu tvo sólarhringa
vegna hugsanlegrar sryóflóða-
hættu og hefur hún m.a. fylgst
mjög náið með snjóalögum í fjöll-
unum allt í kringum fjörðinn.
Bjöm Valdimarsson, bæjarstjóri
og formaður almannavamanefndar
Siglufjarðar, telur ekki mikla hættu
á snjóflóðum í fjöllunum við óbreytt-
ar aðstæður, en snúist vindur til
norð-vestlægrar áttar getur skapast
verulegt hættuástand.
Hreinn Júlíusson, bæjarverkstjóri
á Siglufirði, tjáði fréttaritara Morg-
unblaðsins að smásnjóskriða hefði
fallið í fyrradag á veginn á Strönd-
inni, Siglufjarðannegin við Stráka-
göng. SI
Kristján Jóhannesson, sveita-
stjóri ogj formaður almanna-
vamarnefndar Flateyrar, kvaðst
gera ráð fyrir að hættuástandi
yrði fyrst aflétt í dag þar sem
veðurspá gerði ráð fyrir hvas-
sviðri, ásamt þungri og blautri
ofankomu í nótt sem magna myndi
hættuna á snjóflóði veru síðari
hluta nætur og snemma morguns.
Lítil snjóðflóð féllu á veginn til
Flateyrar um Breiðdal snemma í
gærdag og var hann lokaður fyrir
umferð og ekki ruddur, þar sem
leiðin var álitin ótraust með tilliti
til frekari flóða að sögn Kristjáns.
Hann sagði að íbúar húsanna sem
yfirgáfu þau hafí brugðist vel við
tilmælum um brottflutning, enda
ekki óvanir því að rýma hús sín
vegna snjóflóðahættu þó að það
hafi ekki gerst nú í tvö til þijú
ár. Seinustu ár hafa allnokkrar
snjóflóðavamir verið reistar við
Flateyri en þeim hefur ekki verið
lokið að fullu, að sögn Kristáns.
í Hnífsdal var fólk í fyrstu flutt
í félagsheimilið á staðnum en það-
an dreifðist hópurinn í húsaskjól
hjá vinum og skyldmennum í
grenndinni.
Auðbjörg Halla Knútsdóttir á
Ytri-Húsum var á gangi þar skammt
frá og sagðist allt í einu hafa heyrt
miklar drunur, litið til fjalls og þá
séð hvar hlíðin flaut niður og rann
fram hjá Núpsbænum með ógnar-
hraða. Flóðið hafi svo skipt sér í
nokkra tauma sem æddu niður tún-
ið, nánast eins og járnbrautarlestir.
Að sögn Bergs Torfasonar, spari-
sjóðsstjóra á Núpi, hafa komið hlaup
úr þessu gili á nokurra ára fresti
en þetta mun vera það stærsta síðan
um 1950. Þetta var svokallað fleka-
hlaup og var óvenju mikið magn af
snjó í því en skýringuna sagði Berg-
ur vera þá að öll hlíðin hafí hlaupið,
alveg ofan frá brún. Snjórinn var
mjög blautur en hann breiddi ekki
mikið úr sér, heldur hljóp í mjóum
taumum og eru þeir um fimm metra
háir. Einn taumanna stefndi beint á
kirkjuna á Núpi en stöðvaðist um
flmmtíu metra frá henni. Flóð úr
þessu gili hafa ekki farið svo nálægt
byggingum þarna áður. Mjög harður
snjór var undir og þess vegna var
hraði flóðsins mun meiri en venu-
lega.
- Helga.
40 íbúðarhús rýmd
vegna snjóflóðahættu
Sérstakt átak verður gert í uppgræðslu á Haukadalsheiði í sumar
Bolungarvík
Almannavamanefnd Bolungar-
vikur kom saman til fundar í gær-
morgun, þar sem veruleg spjó-
flóðahætta hafði skapast í Traðar-
hymu, en íbúðarbyggðin liggur
undir þvi fjalli.
Yar það þá mat nefndarinnar að
ástæða væri til að lýsa yfir hættu-
ástandi eftir mikið fannfergi síðustu
sólarhringa.
Því var ákveðið að fara þess á
leit við íbúa efstu íbúðarhúsunum í
bænum að vera ekki í húsunum sín-
um fyrst um sinn.
Almannavamanefnd Bolungarvík-
ur kom svo aftur saman til fundar
síðdegis í gær og eftir að nefndin
hafði farið yfir gögn frá veðurstofu
og víðar var ákveðið til að gæta ít-
rasta öryggis að rýma um fjörutíu
íbúðarhús sem næst liggja fjallshlíð-
inni.
Þá verður Björgunarsveitin Emir
með menn á vakt í aila nótt og
munu þeir fylgjat grant með ástand-
inu í fjallinu þar til hættuástandi
verður aflýst.
- Gunnar.
Dregið úr uppblæstri
með stíflu við Sandvatn
UMHVERFISFÉLAG íslands-
banka og starfsmannafélag bank-
ans hafa ákveðið efna til fjársöfn-
unar meðal starfsfólks bankans i
þeim tilgangi að berjast gegn
Hrafn Gunnlaugsson lætur af starfí framkvæmdastjóra sjónvarpsins
„Margar hugmyndir hafa orðið
að veruleika á skömmum tíma“
HRAFN Gunnlaugsson lét af starfi framkvæmda-
stjóra sjónvarpsins um mánaðamótin þegar Pétur
Guðfínnsson kom aftur til starfa eftir eins árs leyfi
frá störfum. Hrafn sagði í samtali við Morgunblað-
ið að þó eitt ár væri skammur tími, þá hefði hon-
um tekist að gera ýmsar breytingar á dagskrá
sjónvarpsins. Hins vegar væru tregðulögmálin í
yfirstjórn stofnunarinnar meiri en svo að hægt
væri að breyta rekstrinum og leysa skipulags-
vandamálin á einu ári.
„Verkin sýna væntanlega að margar af þeim hug-
myndum sem ég kynnti varðandi dagskrána í umdeild-
um sjónvarpsþætti á sínum tíma hafa orðið að veru-
leika,“ sagði Hrafn. „En hins vegar hefur mér ekki
tekist að ná fram þeim rekstrarbreytingum á stofnun-
inni sem ég tel nauðsynlegar eigi hún að komast inn
í nútímann. Stofnunina vantar ekki hærri afnotagjöld
heldur breytingar í rekstrinum. Þá væri hægt að auka
innlent efni til mikilla muna," sagði hann.
Hrafn var spurður hvort hann teldi að þetta ár í
stó) framkvæmdastjóra sjónvarpsins hefði verið þess
virði í Ijósi þeirra deilna sem ráðning hans vakti á
sínum tíma; „I ljósi þess hvemig brottvikningu mína
úr starfí dagskrárstjóra bar að, þá tel ég að það hafi
ekki verið um neitt annað að ræða en að þiggja starf
framkvæmdastjóra, þótt aðeins væri til eins árs, þegar
Pétur Guðfmnsson óskaði eftir þvi að fara í eins árs
launalaust leyfi. “
Hrafn sagðist hafa átt mjög gott samstarf við þá
deildarstjóra sem störfuðu undir stjóm framkvæmda-
stjóra hjá sjónvarpinu, og aldrei borið neinn skugga á
það. „Þau skrif sem maður hefur verið að lesa í blöðun-
(jUm um einhver gífurleg, átök iimaii sjónvarpgins eru
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
HRAFN Gunnlaugsson afhenti Pétri Guðfínns-
syni lykla að skrifstofu framkvæmdastjóra sjón-
varpsins í gærmorgun þegar Pétur kom aftur
til starfa að loknu eins árs leyfi frá störfum.
algjörlega úr lausu lofti gripin. Hins vegar getur vel
verið að það hafí verið mikil átök innan Ríkisútvarps-
ins, en ég hef fundið minna fyrir þeim,“ sagði hann.
Ýmis verkefni á sviði lista
Aðspurður um hvað nú tæki við sagðist Hrafn hafa
fengist við margvísleg störf um ævina en hann væri
þó fyrst og síðast listamaður. „Ég hef gaman af því
að stjóma, þó ég sé listamaður, og bregða mér stund-
um í einhverskonar bírókrataföt. Fyrst um sinn bíða
mín ýmis kvikmyndaverkefni, verkefni við sjónvarp
og á öðrum sviðum lista eins og til dæmis skrif, og
svo verður maður bara að sjá ti!,“ svaraði Hrafn.
Kvaðst hann jafnframt ætla að passa sig á að flækja
sig ekki strax aftur inn í reglubundinn vinnutíma,
heldur hugsa fyrst og fremst um að fást við skapandi
gróðureyðingu á Haukadalsheiði.
Fyrirhugað er að nota þá fjár-
muni sem safnast til þess að gera
stíflu við Sandvatn sem er efst á
heiðinni. Talið er að með því að
stífla vatnið sé hægt að draga
umtalsvert úr sand- og moldroki
á Haukadalsheiði. Islandsbanki
hefur heitið því að leggja fram
tvær krónur fyrir hverja eina
krónu sem starfsmenn safna.
í sumar er fyrirhugað að gera
átak í sáningu á Haukadalsheiði.
Það er fyrst og fremst fyrir fjárst-
uðning frá starfsmönnum íslands-
banka og frá Olís sem hægt er að
ráðast í þetta brýna verkefni. Talið
er að þúsundir tonna af mold og
sandi fjúki af heiðinni á ári hverju
yfir Suðurlandsundirlendið og á haf
út.
Megninu af fjárframlagi Olís til
gróðurverndar á þessu ári verður
varið til baráttunnar gegn gróður-
eyðingu á Haukadalsheiði. Fjársöfn-
un starfsmanna íslandsbanka kemur
þar til viðbótar. Jón Gunnar Aðils,
formaður Umhverfísfélags Íslands-
banka, sagði að tilefni þessarar fjár-
söfnunar væri 50 ára afmæli lýðveld-
isins. „Það kviknaði sú hugmynd í
tilefni afmælisins að gefa okkur
sjálfum og þjóðinni gjöf. Við vildum
að sú gjöf yrði á svið okkar stærsta
umhverfisvanda sem er uppblástur
og eyðing landsins. Haukadalsheiðin
varð fyrir valinu.“
Hver starfsmaður gefi
1800 krónur
Jón Gunnar sagði markmiðið vera
að hver starfsmaður bankans gefi
1.800 krónur til þessa verkefnis.
Bankinn hefur lofað að gefa tvær
krónur fyrir hveija eina sem starfs-
menn safna. Jón sagði að stefnt
væri að því að safna með þessum
. h^tti þremur milljónpm krpna. Þess-
ttingúm ýéfíðtír-ýáfíð' til þess
að gera stíflu við Sandvatn, sem er
efst á Haukadalsheiðinni. í vatnið
rennur jökulá sem kölluð er Farið.
Hún ber með sér mikið af leir og
öðrum jökulruðningi. í þurrkatíð
minnkar mikið í vatninu og þessi
jökulruðningur fýkur yfir heiðina og
yfir Suðurland. Með því að hækka
vatnsborð vatnsins er talið að hægt
sé að draga umtalsvert úr moldroki
á heiðinni.
Sveinn Runólfsson, landgræðslu-
stjóri, sagði að mjög brýnt sé að
hækka vatnsborð Sandvatns. Það
leysi hins vegar ekki þau gróðurfars-
vandamál sem séu til staðar á
Haukadalsheiði í dag. Þau verði ekki
leyst á annan hátt en með sáningu.
„Það sem hefur verið gert þama
fyrr á árum lofar ákaflega góðu.
Það er t.d. athyglisverð breyting sem
hefur orðið á svæði sem sáð var í á
dögum þjóðargjafarinnar. Það er að
koma víðir inn í þær grassáningar
og svæðið er að breytast smátt og
smátt í kjarrlendi aftur eins og
Haukadalsheiðin hefur verið fyrr-
um,“ sagði Sveinn. Hann sagðist því
ekki í neinum vafa um að sáning á
Haukadalsheiðinni skili árangri.
Heiðin sé hins vegar stór og langan
tíma taki að hefta algerlega landeyð-
ingu á henni.
Hafa gróðursett 60 þúsund
plöntur
Umhverfismál hafa ætíð verið
mikilvægur þáttur í starfsemi ís-
landsbanka. Starfsmenn bankans og
fjölskyldur þeirra hafa á síðastliðn-
um þremur árum gróðursett um 60
þúsund tijáplöntur á 14 stöðum á
landinu. Fyrir ári síðan var Um-
hverfisfélag bankans stofnað. Félag-
ið hefur m.a. beitt sér fyrir því að
bankinn kaupi umhverfisvænan
pappír og umhverfisvænar rekstrar-
vörur. Félagið hefur ennfremur
reynt með skipulögðum hætti að
draga úr pappírsnotkun í bankanum.