Morgunblaðið - 06.04.1994, Síða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. APRIL 1994
Morð í Árósa-
háskólanum
DANSKUR námsmaður gekk ber-
serksgang í matsal í háskólanum í
Árósum í gær, hóf skothríð með
riffli og varð tveimur konum að
bana. Sjö íslenskir námsmenn eru
við skólann og að sögn eins þeirra,
Björns Hermannssonar, nemanda í
upplýsingafræðum, var hann á leið
í matsalinn þegar manndrápin áttu
sér stað.
Auk kvennanna, semm létust,
særðust tvær og var önnur talin í
lífshættu. Maðurinn fór síðan á
salerni í kjallara byggingarinnar og
svipti sig lífi.
Björn Hermannsson sagði í við-
tali við Morgunblaðið, að enginn
íslendinganna hefði verið í matsaln-
um þegar skothríðin hófst en sjálfur
var hann nýfarinn þaðan og var á
leið þangað aftur með nestispakk-
ann. „Þá kom fólk hlaupandi á
móti mér í miklu uppnámi og sagði
mér hvað væri að gerast. Lögreglan
kom svo skömmu síðar og rak alla
inn í kennslustofurnar," sagði Björn
en hans sögn er yfirleitt fátt fólk
í matsalnum á þessum tíma eða á
tólfta tímanum fyrir hádegi.
Ekki er vitað hvers vegna maður-
inn hóf skothríðina. Hann var 35
ára gamall og að sögn lögreglu
átti hann við geðræn vandamál að
stríða. í vasa hans fannst miði þar
sem á stóð: „Ég ræð ekki við þetta
lengur."
% Reuter
Einræðisherra í eigin flokki
ZHÍRÍNOVSKÍJ veifaði til viðstaddra við komuna til Helsinki en þar
sat hann ráðstefnu finnska þingsins um hugsanlega aðild Rússa að
Evrópuráðinu. Zhírínovskíj er andvígur henni og segir enga nauðsyn
bera til fyrir Rússa að vera í Sameinuðu þjóðunum.
Zhírínovskíj og Rútskoj
í framboð gegn Jeltsín
Zhírínovskíj með alræðisvald í flokki sínum og hefur afnumið stofnanir hans
Moskvu. Reuter.
FLOKKUR Vladímírs Zhírinovskíjs, Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn,
hefur útnefnt hann frambjóðanda í næstu forsetakosningum og búist
er við, að Alexander Rútskoj, fyrrverandi varaforseti og einn af foringj-
um uppreisnarinnar gegn Borís Jeltsín forseta í október sl., muni fljót-
lega taka ákvörðun um forsetaframboð. í gær hóf hann baráttu fyrir
því að koma Jeltsín og ríkisstjórn hans frá. Zhírínovskíj, sem fengið
hefur eins konar alræðisvald í flokki sínum, var í Finnlandi á mánu-
dag og sagði þá, að gengju Finnar í Atlantshafsbandalagið, NATO,
væri það að sumu leyti stríðsyfirlýsing gegn Rússlandi.
Rútskoj segir í viðtali, sem birtist
í gær í Prövdu, að hann muni ekki
unna sér hvíldar fyrr en Jeltsín og
stjórn hans séu farin frá og hann
vísar á bug yfirlýsingum Jeltsíns um
vopnahlé í stjórnmálaátökunum. Þá
sagði hann, að Jeltsín hefði borið
alla ábyrgð á blóðbaðinu í október,
hann og hans menn ættu sér „enga
framtíð", fyrir þá væru endalokin
nærri. Talið er fullvíst, að Rútskoj
muni bjóða sig fram í næstu forseta-
kosningum og er litið á viðtalið sem
upphaf þeirrar baráttu.
Finnum hótað
Zhírínovskíj sagði við komuna til
Helsinki á mánudag, að Finnar
skyldu halda sig fyrir utan NATO,
að öðrum kosti gætu þeir átt á hættu
að þurfa að kljást við Rússa á vígvell-
inum. Hann lagði hins vegar áherslu
á, að hann væri vinveittur Finnum
og og ranglega hefði verið haft eftir
honum, að hann vildi innlima Finn-
land í Rússland á ný. Hann bað
menn hins vegar að gleyma Eystra-
saltsríkjunum, þau væru rússneskt
innanríkísmál, rússneskt land. Zhír-
ínovskíj sagði einnig, að það væru
mikil mistök hjá Pavel Gratsjev,
varnarmálaráðherra Rússlands, og
Jeltsín að ætla að taka þátt í friðar-
samstarfí NATO-ríkjanna. Tilgang-
urinn væri sá að innlima Rússland í
NATO en Rússar væru á móti banda-
laginu.
Zhírínovskíj kom til Helsinki
ásamt fleiri rússneskum þingmönn-
um á ráðstefnu, sem finnska þingið
boðaði til um hugsanlega aðild Rússa
að Evrópuráðinu, en hann kvaðst því
andvígur, að Rússar gerðust aðilar.
Kvaðst hann sjálfur vera með á
pijónunum annað ráð fyrir Austur-
Evrópuríkin og væri það betra fyrir
Finna að fylgja því. Þá kvað hann
enga nauðsyn bera til, að Rússar
væru aðilar að Sameinuðu þjóðunum.
Um helgina var Zhirínovskíj ekki
aðeins valinn forsetaframbjóðandi
flokks síns, heldur afhenti flokks-
þingið honum alræðisvald í málefn-
um flokksins fram til 2004.
Fékk óskorað vald
Á þinginu sagði Zhírínovskíj, að
flokkurinn gæti ekki haldið flokks-
þing á hveiju ári, sérstaklega með
tilliti til þess, að erlendar leyniþjón-
ustur færu með milljarða dollara til
þess eins að grafa undan honum.
Krafðist hann óskoraðs valds fram
til 2004 til að ráða og reka starfs-
menn flokksins, sérstaklega þá, sem
sýndu honum mótþróa.
„Á Ieið til valda“
„Við munum endurreisa lýðræðis-
legar stofnanir flokksins í framtíð-
inni en við höfum ekki ráð á þeim
núna,“ sagði Zhírínovskíj en ástæðan
fyrir algerri valdatöku hans í flokkn-
um er sögð sú, að sumum samstarfs-
mönnum hans Iíkar ekki við yfir-
gengilegar yfirlýsingar hans. Var
einum þingmanni flokksins, Vyatsj-
eslav Marytsjev, vísað frá þinginu
og sagt að stunda sitt „skítkast"
annars staðar.
Síðasta flokksþing Fijálslynda lýð-
ræðisflokksins var haldið á-bænda-
býli fyrir utan Moskvu en nú var það
haldið í stóru leikhúsi undir einkunn-
arorðunum „Á leið til valda“ og kom-
ust færri að en vildu. Erlendir gestir
voru tjölmargir, nýnasistar, öfga-
sinnaðir þjóðernissinnar og „undar-
Iegt“ fólk af ýmsu tagi en mest var
Iátið með Gerhard Frei, öfgafullan,
þýskan hægrimann. Þar voru einnig
fulltrúar frá Þjóðarfylkingu Le Pens
í Frakklandi, stjórnarflokknum í írak
og nokkrir Serbar, þar á meðal ein
nunna.
SAAB-skrúfuþota ferst við Schiphol-flugvöll við Amsterdam
Hreyfilbilun ekki
nægileg skýring
Heemstede. Frá Kristínu Waage og Reyni Þór Finnbogasyni. Reuter. Daily Telegraph.
HOLLENSKIR sérfræðingar sem vinna að rannsókn þess að SAAB
340B skrúfuþota flugfélagsins NLM, sem er dótturfyrirtæki KLM, fórst
við Schiphol flugvöllinn á mánudag sögðu í gær að líklega væri hreyf-
ilbilun ekki eina skýringin.
Flugstjóri flugvélarinnar og tveir
farþegar biðu bana er flugvélin
steyptist til jarðar við flugbrautar-
endann. Þrettán slösuðust lífshættu-
lega en um borð voru 24 manns, þar
af þriggja manna áhöfn. Flugvélin
var á leið frá Amsterdam til Cardiff
í Wales en 18 mínútum eftir flugtak
tilkynntu fiugmennirnir um bilun í
hægri hreyfli, slökktu á honum og
sneru við til Schiphol-flugvallar. Er
aðflugi var um það bil að ljúka reis
flugvélin upp á rönd, sveigði til hægri
og steyptist til jarðar.
Flugvélin skall til jarðar steinsnar
frá svæði þar sem áhugamenn um
flugvélar standa gjarnan og voru
þeir því fyrstir á vettvang og gátu
hjálpað farþegum úr flugvélarbrak-
iMÉIÍMBMHkÉÉÍÍkJÍIÉÍH
Sérfræðingar í flugmálum sögðu
í gær að flugvélin hefði átt að geta
lokið flugi og lent auðveldlega á öðr-
um hreyfli. Talsmaður hollensku
flugmannasamtakanna sagði að gera
yrði ráð fyrir að fleiri ástæður lægju
að baki slysinu. Fulltrúi samgöngu-
ráðuneytisins sagði að rannsókn
væri hafin á flug- og hljóðrita flug-
vélarinnar en þeir geynía upplýsingar
sem leitt gætu í ljós hvað fór úrskeið-
is.
Hollenskir fjölmiðlar höfðu í gær
eftir ónafngreindum flugumferðar-
stjóra að flugvélin hefði farist er
flugmennirnir hefðu hætt við lend-
ingu og ákveðið að heíja fráhvarfsk-
lifur. Eldsprenging varð er flugvélin
kom niður en bálið slökknaði jafn
harðan eþ talið er víst að fleiri hefiðu
Reuter
A slysstað
SÆNSKUR flugslysafræðingur að störfum í flaki SAAB 340B flugvél-
ar hollenska flugfélagsins KLM sem fórst við Schiphol-flugvöllinn í
Amsterdam í fyrradag.
beðið bana ef eldur hefði komist í
brakið.
KLM á 12 flugvélar af gerðinni
SAAB 340B og eru þær notaðar á
stystu flugieiðum félagsins. Tals-
maður SAAB-verksmiðjanna sagði
að þetta væri í fyrsta sinn sem flug-
vél þessarar gerðar yrði fyrir óhappi
sem kostaði mannslíf.
Rússar til
Friðar-
samstarfs
VÍTALÍJ Tsjúrkin, aðstoðarut-
anríkisráðherra Rússlands
sagðist í gær búast við því að
Rússar myndu undirrita Frið-
arsamstarf við Atlantshafs-
bandalagið 21. apríl í Brussel.
Náinn aðstoðarmaður Borísar
Jeltsín, Rússlandsforseta,
sagði í lok mars að Rússar
kynnu að bíða með undirritun
í hálft ár.
Börn við
stjórnvöl fyrir
brotlendingu
NEFND sem hefur rannsakað
flugslysið í Síberíu þann 23.
mars sl., er 75 manns fórust,
upplýsti í gær að einn úr áhöfn
vélarinnar hefði verið að kenna
börnum sínum hvernig stýra
ætti vélinni fáeinum mínútum
áður en hún fórst. Nefndar-
menn fullyrtu þó ekki að það
hefði verið ástæða slyssins.
18% kosn-
ingaþátttaka
KJÓSENDUR í Pétursborg
hunsuðu aðra umferð borgar-
stjórnarkosninga um helgina
en kjörsókn var aðeins um
18%. Fijálslyndir umbótasinn-
ar hlutu tæplega helming at-
kvæða um helgina en aftur-
haldsöfl og miðjuflokkar skiptu
með sér hinum helmingi at-
kvæða. Þriðja umferð kosning-
anna verður síðar á árinu.
Kommúnistar
sigra í Ukraínu
KOMMÚNISTAR og banda-
menn þeirra unnu þriðjung
þeirra sæta sem kosið var um
til úkraínska þingsins um helg-
ina samkvæmt bráðabirgða-
tölum. 450 sæti eru á þinginu
og var kosið um 33 sæti í ann-
arri umferðinni. Þriðja umferð-
in verður 10. apríl. Búist er við
að kommúnistar muni verða
stærsti flokkur á úkraínska
þinginu að loknum kosningum.
Var Brian
Jones myrtur?
BRESK æsi-
fréttablöð
fullyrtu á
sunnudag að
Brian Jones,
gítarleikari
hljómsveitar-
innar Rolling
Stones, sem
fannst látinn
í sundlaug
sinni árið 1969, hefði verið
myrtur. Talið var að Jones
hefði drukknað fyrir slysni en
News of the World og The
People fullyrða að tveir menn
hafi drekkt honum. Vísa blöðin
til játninga mannanna á dánar-
beði þessa efnis.
Seinkun á
opnun Ermar-
sundsganga
PRÓFUNUM á ýmsum þáttum
í starfsemi Ermarsundsgang-
anna hefur seinkað að undan-
förnu og verður það til þess
að göngin verða ekki opnuð
fyrir almenna umferð fyrr en
í fyrsta lagi í september. Allt
kapp verður þó lagt á að vöru-
flutningar geti hafist um göng-
in í vor en þrátt fyrir tafir verða
þau formlega vígð 6. maí nk.
Jones