Morgunblaðið - 06.04.1994, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 06.04.1994, Qupperneq 34
34 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. APRIL 1994 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Ritstjórnarfulltrúi Árvakur h.f., Reykjavík Flaraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Björn Vignir Sigurpálsson. Kringlan 1, 103 Reykjavík. Símar: Skiptiborð 691100. Auglýsingar: 691111. Áskriftir 691122. Áskriftargjald 1400 kr. með vsk. á mánuði innanlands. í lausasölu 125 kr. með vsk. eintakið. Skoðanamunur um vaxtamál Athyglisverð skoðanaskipti hafa farið fram á milli sér- fræðinga um möguleika á frekari vaxtalækkun. Formaður banka- stjórnar Seðlabanka íslands dreg- ur í efa, að um frekari vaxtalækk- un geti orðið að ræða en forstjóri Þjóðhagsstofnunar telur ekki tímabært að kveða upp úr með það. í ræðu á ársfundi Seðlabanka íslands fyrir tæpum tveimur vik- um sagði Jón Sigurðsson m.a.: „Samanburður við önnur lönd er mikilvægur því að hann sýnir okkur m.a. að vextir hér á landi muni tæplega lækka almennt meira en orðið er nema samfara frekari vaxtalækkun í umheimin- um, einkum í Evrópu, því að eng- ar forsendur eru til þess að vext- ir geti almennt verið lægri hér á landi en annars staðar. Raun- vaxtastigið hér á landi, sem og víða í Evrópu, er þó enn allhátt. Hins vegar virðist nær útilokað að þrýsta langtímaraunvöxtum neðar nú með peningaaðgerðum eingöngu eins og mikil kaup Seðlabankans á verðbréfum að undanförnu sýna. Lykillinn að því að ná raunvöxtum niður á stig, sem samrýmanlegt er eðlilegu langtímajafnvægi, er þess vegna sá, að ríkissjóður dragi úr láns- fjáreftirspurn sinni á komandi árum, eins og ég hef þegar vikið að.“ Þórður Friðjónsson, forstjóri Þjóðhagsstofnunar, lýsti nokkuð öðrum sjónarmiðum í samtali við viðskiptablað Morgunblaðsins á skírdag. Hann sagði m.a.: „Mér finnst ekki tímabært að kveða upp úr með það, að vextir á íslandi geti ekki lækkað meira. Raun- ávöxtun ríkisverðbréfa til langs tíma er um 5% um þessar mund- ir. Til samanburðar eru raunvext- ir hliðstæðra bréfa víða á bilinu 3-4% í öðrum löndum. Við þetta má svo bæta, að í áætlunum al- þjóðaefnahagsstofnana til lengri tíma er gjarnan miðað við að slík- ir vextir séu nálægt 3‘/2% ... Með þessum orðum er ég ekki að full- yrða, að vextir geti lækkað nú þegar, heldur benda á, að vaxta- lækkun á íslandi er ekki afgreitt mál. Ríki hins vegar jafnvægi áfram i þjóðarbúskapnum og verði aðhaldi fyigt í opinberum fjármálum er síður en svo sjálf- gefið, að vextir geti ekki lækkað frekar á næstu misserum.“ Hér kemur fram viss skoðana- munur á milli tveggja sérfræð- inga, þótt þeir séu bersýnilega sammála um, að aðhald í opinber- um fjármálum sé grundvallarat- riði í sambandi við vaxtaþróunina á næstu misserum. Það sem að atvinnulífi og heimilum snýr er hins vegar þetta: raunvextir á verðtryggðum innlánum og útlán- um hafa lækkað verulega á und- anförnum árum. Raunvextir af óverðtryggðum útlánum hafa ekki lækkað að sama skapi. Það lánaform er enn mun dýrara en verðtryggðu lánin og ekki lengur sjáanleg rök fýrir því, að svo þurfi að vera. Þegar bankar og spari- sjóðir lækkuðu vexti af óverð- tryggðum útlánum fyrir nokkrum vikum héldu þeir því fram, að þar með væri nóg að gert. Það fer hins vegar ekki á milli mála, að raunvextir þeirra útlána eru enn- þá mun hærri en á verðtryggðum lánum. Hvers vegna? Það er svo alveg ljóst, sem Jón Sigurðsson vék að í ræðu sinni á ársfundi Seðlabankans, að sam- dráttur í lánsfjárþörf ríkissjóðs er lykill að umtalsverðri vaxta- lækkun hér á næstu árum. Mar- grét Thatcher, fyrrum forsætis- ráðherra Breta, lýsir því með glöggum hætti í ævisögu sinni, sem út kom á sl. ári, hvernig ríkis- stjórn hennar barðist fyrir því fyrstu árin að draga úr halla- rekstri ríkissjóðs og lánsfjárþörf ríkissjóðs til þess m.a. að geta lækkað vaxtakostnað fyrirtækja og heimila. Þessi barátta hefur ekki verið háð af nægilegri hörku hér, því miður. Það er alveg ljóst, að þótt vext- ir hafi lækkað verulega síðustu mánuði eru þeir enn of háir. Ein af forsendunum fyrir því, að ný uppsveifla geti hafizt í atvinnulífi okkar, er sú, að vextir lækki veru- lega. Fyrirtæki og einstaklingar leggja ekki út í miklar nýjar fram- kvæmdir með því vaxtastigi, sem nú er, þótt ekki fari á milli mála, að hreyfing hefur komizt á fjár- festingaráform margra aðila vegna vaxtalækkunarinnar seint á síðasta ári. Sjálfstæðismenn í Reykjavík hafa lagt fram athyglisverðar hugmyndir um flýtifyrningar til þess að örva atvinnulífið. Almenn og frekari vaxtalækkun í kjölfar harkalegri niðurskurðar á ríkisút- gjöldum og minnkandi lánsfjár- eftirspurnar opinberra aðila þ. á m. sveitarfélaga mundi ekki síður og raunar fremur ýta undir nýjar fjárfestingar og framkvæmdir. Það-hefur nýlega komið fram í opinberum umræðum, hvað fjár- festingar eru orðnar takmarkaðar hér á landi. Það er vísasti vegur- inn til hnignunar, ef skynsamleg- ar fjárfestingar stöðvast vegna vaxtastigsins. Það er svo annað mál, að á undanförnum árum og áratugum hefur of lítil fjárfesting ekki verið aðal vandamál þessarar þjóðar heldur of mikil fjárfesting! Skoðanaskipti þeirra Jóns Sig- urðssonar og Þórðar Friðjónsson- ar verða vonandi til þess að örva umræður á meðal forysturrianna í stjórnmálum og fjármálaheimin- um um hvaða leiðir eru færar til þess að knýja fram enn frekari vaxtalækkun. Þessir aðilar mega ekki láta staðar numið, þegar hér er komið sögu. M'ESTU SNJOFLOÐ í SÖGU ISAFJARÐAR HÚSGÖGN, leikföng og aðrir hlutir sem tilheyrðu sumarbústöðunum standa víða upj: Einn maður lést en þrjú björguðust þegar stórt snjóf Skíða-og- sumarbúst hverfí Ísfírðínga rústí ísafirði, frá blaðamðnnum Morgunblaðsins Helga Bjarnasyni og Brynju Tomer. SNJÓFLÓÐIÐ sem féll á skíða- og sumarhúsahverfi ísfirð- inga í Seljalandsdal og Tungudal í gærmorgun skildi eftir sig mikla eyðileggingu, auk þess manntjóns sem varð. Tveir sumarbústaðir standa eftir af liðlega 40 húsum. Af flestum sést spýtnabrak eitt og er það dreift um stórt svæði ásamt innanstokksmunum. Þá hefur flóðið rifið upp flest trén úr Simsonsgarði sem er um 50 ára gamall gróðurreitur á sumar- húsasvæðinu. Lögreglan fékk tilkynningu um snjóflóðið rétt fyrir klukkan 6 í gærmorgun frá hjónum sem kom- ust úr einum bústaðnum. Jafnframt tilkynntu þau að heyrst hefði í slös- uðu fólki í öðrum bústað, að sögn Ólafs Helga Kjartanssonar sýslu- manns sem stjórnar aðgerðum al- mannavarnanefndar ísafjarðar. Talið er að snjóflóðið hafi fallið töluvert fyrr, eða um klukkan 5.15 miðað við stöðu rafmagnsklukkna. Komin úr lífshættu Lögreglan fór þegar á staðinn ásamt sjúkraliði og björgunarsveitir voru kallaðar út. Að sögn sýslu- manns var byrjað að kanna hvort eigendur annarra bústaða þarna gætu gefið upplýsingar um fólk í bústöðunum og svæðið grófleitað. Niðurstaðan af þvi varð sú að fólk væri aðeins í þessum tveimur hús- um. Farið var með fólkið úr bústöðun- um á Fjórðungssjúkrahúsið á Isafírði. Þar lést Kristján Knútur Jónasson af meiðslum sem hann fékk í flóðinu. Eiginkona hans, Hansína Einarsdóttir, slapp með skrámur. Hún var hins vegar orðin mjög köld en á sjúkrahúsinu tókst að ná upp hitanum svo hún var úr lífshættu síðdegis í gær og líðan hennar eftir atvikum. Þau voru í snjóflóðinu á annan klukkutíma. Hjónin sem komust af sjálfsdáðum úr hinum bústaðnum heita Ásgeir Lýðsson og Sólveig Guðnadóttir. Þau sluppu með skrámur og fengu að fara heim af sjúkrahúsinu þegar gert hafði verið að sárum þeirra. Kófhlaup ofan í Tungudal Að sögn Ólafs Helga Kjartans- sonar er talið að snjóflóðið hafi verið svokallað flekahlaup ofan úr brúnum Seljalandsdals og ýtir á undan sér lausum snjó. Hlaupið fór yfir skíðasvæðið á Seljalandsdal og yfir flest mannvirki sem þar voru, skíðaskálinn Skíðheimar var þó ut- an flóðsins. Úr skíðalyftunum fjór- um standa nú eftir 5-7 möstur af um 30 og allir lyftuskúrarnir eru farnir. Þá tók snjóflóðið með sér Harðarskála, sem endurbyggður var fyrir nokkrúm árum, og færður út á skíðasvæðið. Megnið af flóðinu stöðvaðist á brún Seljalandsmúla, fyrir ofan Tungudalinn, og gróf þar mannvirkin af skíðasvæðinu. Tjón nemur 130 millj. Áfram hélt svokallað kófhlaup, það er laus snjór á mikilli ferð, nið- ur í Tungudalinn og lagði í rúst sumarhúsasvæðið. Þar voru 42 bú- staðir og gjöreyðilögðust 40. Af flestum sést ekki annað en spýtna- brak í snjónum. Talið er að loft- þrýstingurinn á undan hlaupinu hafi valdið mestum skemmdunum. Brak úr húsunum og innanstokks- munir og stór tré úr skrúðgörðun- um dreifðist um stórt svæði, meðal annars hluta golfvallarins og hluti fór yfir Tunguá í dalbotninum. Flekahlaup renna yfirleitt um 30-50 metra á sekúndu en kóf- hlaup geta runnið allt að 110 metra á sekúndu. Snjóflóðið féll úr 600-700 metra hæð af brúnum Eyrarhlíðar og end- aði niður í á. Flóðið var vel á annan kílómetra að lengd og 400-500 metra breitt að meðaltali. Það var víða 2ja-3ja metra þykkt. Áætla má að tjónið nemi um 130 milljónum króna, þar af nemur tryggingarupphæð bústaðanna um 90 milljónum króna, Harðarskála um 7 milljónir króna og tjón á lyft- um og tækjum um 25-30 milljónir, samkvæmt upplýsingum Morgun- blaðsins. Fullnaðarkönnum á tjóni lýkur þó ekki fyrr en snjóa leysir, en tjónið verður að verulegum hluta bætt af Viðlagatryggingum ís- lands, þ.e. allar tryggðar eignir samkvæmt mati. Ljóst er orðið að hamfarirnar á
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.