Morgunblaðið - 06.04.1994, Page 53
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. APRIL 1994
53
Baldur Guð-
mundsson
Minning
t
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, stjúpfaðir, tengdafaðir, afi
og langafi,
ÖGMUNDUR SIGURÐSSON,
Álfheimum 72,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 6. apríl
Fæddur 26. apríl 1924
Dáinn 19. mars 1994
Örfá síðbúin kveðjuorð skulu
færð fram í mikilli og hlýrri þökk.
Af mörgum, ólíkum þáttum skal
manninn reyna, en þegar á stuttri
og stopulli samleið myndast verm-
andi vináttubönd þannig að manni
þyki verulega mikils um vert, þá
segir slíkt ærna sögu um samferða-
manninn.
Ég átti með Baldri mági mínum
sérstaklega góðar og gjöfular
stundir, aðeins allof fáar, en hver
og ein sannaði mér mikla mann-
kosti hans, staðfestuna í hlýrri hóg-
værð hans, góðar gáfur í glöggum
svörum, heiða hugsun að baki vel
ígrunduðum skoðunum, og hvergi
fór milli mála einstök eljusemi þessa
verkhyggna og vinnuglaða manns.
Ævileið hans öll var mörkuð af
góðu uppeldi á miklu menningar-
heimili og dýrmætum, meðfæddum
eðliskostum þar sem drenglund og
einörð viljafesta áttu farsæla sam-
leið með hjartahlýju og glögg-
skyggni.
Hver sá er stýrir fleyi sínu heilu
í höfn, svo oft sem hann gerði, er
maður mikillar gæfu, en að baki
býr aðgát góð og athyglisgáfa og
umfram allt trúmennska samvisku-
seminnar hjá þeim sem veit ábyrgð
sína og miðar allar ákvarðanir og
athafnir við það.
Öll vitum við að farsæll og fisk-
inn skipstjórnarmaður er dýrmætur
þessari þjóð, en öllu sjávargulli
dýrra er sá mannauður er felst í
heilsteyptum og hollráðum mann-
kostamanni sem á örlæti hjartans
og auðlegð vakandi huga sem lífs-
förunauta.
Baldur var maður sem ávann sér
allra traust, hann gekk ekki með
gný og látum til verka sinna, en
vannst því betur. Fágætlega góð
eru þau eftirmæli er allir hafa um
þennan trúa þegn, sem hvarvetna
lagði góðu lið í grundaðri einbeitni
sinni og fastri eftirfylgju.
Góðri lífsgöngu er lokið. Hún var
vörðuð mörgu mætu verki, verm-
andi orðum um leið, sem fengu
endurómun sína í öllum gerðum
hans.
Við leiðarlok þökkum við hjónin
hinar mætu stundir á heimili þeirra
hjóna, þar sem saman fóru sérstök
gestrisni og alúðarfull vinhlýja hús-
bóndans, sem nú hefur kvatt okkur
svo alltof fljótt. Hugljúf er björt
minning Baldurs og hana varðveit-
um við í mikilli þökk.
Við sendum eiginkonu hans,
börnum og aðstandendum öðrum
okkar einlægustu samúðarkveðjur.
Megi hinar góðu minningar um
mætan dreng ylja þeim á lífsins
leið og létta sáran söknuð. Baldur
trúði því staðfastlegá að þegar jarð-
lífsgöngu lyki tæki eilífðarlandið
við, sólstöfum signt. Þangað fylgja
honum ljúfar kveðjur okkar sem
ennþá eigum hér dvöl.
Blessuð sé hin mæta minning
Baldurs Guðmundssonar.
Helgi Seljan.
EriSdrykkjur
Glæsileg kaffi-
hlaðborð íallegir
salirogmjög
g()ð þjónusta.
Upplýsingar
ísíma22322
FLUGLEIÐIR
U(l7£l MlflllM
I vi;fi|!
kl. 13.30.
Sigurfljóð Jónsdóttir,
Sigrún Ögmundsdóttir, Þórarinn Böðvarsson,
Halldóra Guðmundsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Móðir okkar,
DÝRUNN JÓNSDÓTTIR THULSTRUP
frá Ólafsvík,
Helenevej 23,
5000 Odense,
Danmörku,
lést að kvöldi 1. apríl.
Jarðarförin fer fram frá Fredens Kirke, Odense, miðvikudaginn
6. apríl.
Fyrir hönd fjölskyldu, vina og vandamanna,
Kjeld Thulstrup,
Steen Thulstrup.
t
ARNDÍS BENEDIKTSDÓTTIR
fyrrum prestsfrú
á Hólmavík,
síðar aðstoðarkirkjuvörður
íDómkirkjunni,
andaðist í Borgarspítalanum að kvöldi
páskadags 3. apríl.
Útför hennar fer fram frá Dómkirkjunni
þriðjudaginn 12. apríl kl. 13.30.
Fyrir hönd aðstandenda,
Andrés Ólafsson og synir.
t
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
RAGNA PÉTURSDÓTTIR,
Lækjartúni v/Vatnsveituveg,
Reykjavik,
verður jarðsungin frá Breiðholtskirkju í
dag, miðvikudaginn 6. apríl, kl. 15.00.
Guðrún Lárusdóttir, Arne Jonasson,
Pétur E. Lárusson,
Þórunn E. Lárusdóttir, Jakob Jakobsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
BJÖRG ÓLAFSDÓTTIR,
Strandgötu 3,
Patreksfirði,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 7. apríl
kl. 13.30.
Magnús Guðmundsson,
Aron Magnússon, Kristbjörg Kristmundsdóttir,
Ingibjörg G. Magnúsdóttir, Björn Sigmundsson,
Anna Magnúsdóttir, Róbert Tomólilló,
Flosi Magnússon
og barnabörn.
t
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
DÝRLEIF ÁRNADÓTTIR,
Hæðargarði 33,
verður jarðsungin frá Bústaðakirkju
fimmtudaginn 7. apríl kl. 13.30.
Þeim, sem vildu minnast hennar, er
bent á Krabbameinsfélag íslands.
Guðmundur Kristinsson, Þórunn Erlendsdóttir,
Guðrún Lóa Kristinsdóttir, Guðmundur Björnsson,
Stella Kristinsdóttir, Þorvaldur Jónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
LEGSTEINAR
- VETRARTILBOÐ -
@[?(Í1GD6G SÆ SÍMI 91-652707
t
Hjartkær sonur okkar og bróðir,
SIGMAR BJÖRNSSON,
Grundarstíg 2,
sem lést 29. mars, verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu föstu-
daginn 8. apríl kl. 13.30.
Björn Gunnlaugsson,
Ragnhildur Magnúsdóttir,
Magnús Björnsson.
t
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug vegna fráfalls og jarðarfarar
JÓNS KR. ELÍASSONAR
frá Bolungarvík.
Aðstandendur.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð vegna andláts og útfarar eigin-
konu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og
langalangömmu,
ÓLAFÍU ÞÓRÐARDÓTTUR,
Austurgötu 29b,
Hafnarfirði.
Stefán Hannesson
og aðrir aðstandendur.
t
Við þökkum innilega samúð og vinarhug við fráfall og útför
STEFÁNS BJÖRNSSONAR
fyrrverandi forstjóra.
Inga Ólafsdóttir,
Hrafnhildur Stefánsdóttir,
Sigurður Stefánsson, Marta Ólafsdóttir,
Hafdís Ólafsdóttir, Atli Hauksson
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir færum við öllum,
er auðsýndu samúð og hlýhug vegna
fráfalls
MATTHILDAR KRISTJÁNSDÓTTUR
PETERSEN.
Fyrir hönd vandamanna,
Anton Kristjánsson.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og út-
för bróður okkar, mágs og frænda,
ÞORSTEINS JÓNSSONAR
rafvélavirkja,
Breiðagerði 10.
Halldór Jónsson,
Katrín Jónsdóttir,
Svanborg Jónsdóttir,
Laufey Jónsdóttir.Valbjörn Guðjónsson,
systrabörn og fjölskyldur þeirra.
t
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
HERMANN GUÐMUNDSSON,
hjúkrunarheimilinu Skjóli,
áður Miðtúni 6,
verður jarðsunginn frá Áskirkju á morg-
un, fimmtudaginn 7. apríl, kl. 13.30.
Guðfríður Hermannsdóttir,
Kristín M. Hermannsdóttir
Klemenz Hermannsson,
Guðbjörg Hermannsdóttir,
Pétur Ólafur Hermannsson,
tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.
Lokað
Vegna jarðarfarar HARALDAR PÁLS
ÞÓRÐARSONAR verður skrifstofa okkar lokuð í
dag frá kl. 10-13.
Skipafélagið Jöklar hf.,
Aðalstræti 8.