Morgunblaðið - 06.04.1994, Page 60

Morgunblaðið - 06.04.1994, Page 60
mggtgmggggggfgfgH 60 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. APRIL 1994 16500 ____ Frumsýning á stórmyndinni 'SILrNCE OF THl LAMBS UMIlSmiiminmiiniMlllBBÍtini TiABflfW m*IS MMSIfflill MHiOiB “HOWimSlil ■MMtKIHiti 'SKEII 1 SSíUIUId SIMH KMIHIIIIBHMII "HHMI -SWMSMSIinMÍMMI “!«iUIKMM[ WOULD TAKE ON THE SYSTEM. FILADELFIA Tom Hanks, Golden Globe- og Óskarsverðlaunahafi fyrir leik sinni í myndinni, og Denzel Washington sýna ein- stakan leik í hlutverkum sín- um í þessari nýjustu mynd Óskarsverðlaunafafans Jonathans Demme (Lömbin þagna). Að auki fékk lag Bruce Springsteen, Streets Of Philadelphia, Óskar sem besta frumsamda lagið. Önnur hlutverk: Mary Steenburgen, Antonio Banderas, Jason Robards ogJoanne Woodward. Framleiðend- ur: Edward Saxon og Jonathan Demme. Leikstjóri: Jonathan Demme. Sýnd kl. 4.40,6.50,9 og 11.20. Miðaverð 550 kr. Bíómiðinn á Philadelpia gildir sem 200 kr. afsl. á Philadelphia geislaplötu í verslunum Músík og mynda. Stórmyndin DREGGJAR DAGSINS ★ ★ ★ ★ G.B. DV. ★ ★ ★ ★ Al. MBL. ★ ★ ★ ★ Eintak ★ ★ ★ ★ Pressan ANTHONY HOPKINS - EMMA THOMPSON Byggð á Booker-verðlaunaskáldsögu Kazuo Ishiguro. Frá aðstandendum myndanna Howards End og A Room With A View er komið nýtt meistaraverk. TILNEFND TIL 8 ÓSKARSVERÐLAUN A þ.á m. fyrir besta karlleikara í aðalhlutverki (Anthony Hopk- ins), bestu leikkonu í aðalhlutverki (Emma Thompson) og besta leikstjóra (James Ivory). Sýnd kl. 4.35,6.50 og 9.05. Takið pátt í spennandi kvikmyndagetraun á Stjörnubíð-línunni í síma 991065.1 verðlaun eru geisladiskar með logum úr myndinni Philadelphia og boðsmiðar á myndir Stjörnubíðs. Verð kr. 39,90 mínátan. MORÐGÁTA Á MAI\I- HATTAIU Nýjasta mynd meistarans Woody Allen. ★ ★ ★ G.B. DY. ★ ★ ★ J.K. Eintak Sýnd kl. 11.30. Síðustu sýningar. TTg*T**g*T»TTTTTTTTTTTTTTTTTTT*TW*TW*TTTTTTTTTTTT« 2ja mánaða kröftug karatenámskeið hjá KARATEFÉLAGI REYKJAVÍKUR í sundlaugarhúsinu í Laugardal. Hefjast 16. og 17. apríl. Fullorðins- og krakkaflokkar. Lyftingaaðstaða! Sundlaugarparadís! Anna Marcus, < au pairfrá Svíþjóð. Bjarki Þór Birgisson, ;‘v nemi í Iðnskólanum. tM Asa Ólafsdóttir, nemi í HÍ. Arnór Bohic, nemi í Kvennó. \ .svona er fólkið okkar, venjulegt fólk og í góðum félagsskap! KEPPNISKARAIE, SJÁLFSVÖRN, SVITI06 SÆLA! Innritun í síma 35025 og 814031, ef einhvern tíma hefur verið tímabært að stunda karate, þá er að núna!!! Grétar Örn Halldórsson 2. dan er aðalþjálfari KFR. Aðstoðarþj: Jónína Olesen 2. dan, Konráð J. Sefánsson 2. dan, Jón ívar Einarsson 1. dan, Lárus S. Welding 1. dan, Davíð Örn Sigþórsson 1. dan, Matthias Br. Matt. 1. kyu, Kjartan Guðmundsson 2.kyu. KFR ER AÐILI AD INTERNATIONAL OKINAWAN COJU RYU KARATE-DO FEDERATION, ÍÞRÓTTASAMBANDI ÍSLANDS OG KARATESAMBANDI ÍSLANDS ÚR DAGBÓK LÖGREGLUNNAR í REYKJAVÍK: 30. mars til 5. apríl Á tímabilinu eru 712 bókanir í dagbókinni. Af þeim eru 78 vegna öivunar fólks, auk 32 vegna hávaða og ónæðis innandyra, 9 vegna há- vaða utandyra, 38 árekstrar, 4 umferðarslys, 28 innbrot, 11 þjófn- aðir, 29 rúðubrot og 6 líkamsmeið- ingar. 63 ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur og 16 eru grunaðir um ölvunarakstur. Þar af höfðu 4 lent í umferðaróhöppum áður en til þeirra náðist. Ástæða þótti að kæra 99 og veita 32 öku- mönnum áminningu fyrir umferðar- lagabrot um páskana. Tíðni innbrota um páskahátíðina er svipuð og verið hefur undanfarin ár. í fyrra var tilkynnt um 35 slík, en 26 árið þar áður. Á miðvikudagsmorgun var til- kynnt um innbrot í Langholtsskóla. Tveir piltar voru handteknir og færðir á lögreglustöðina. Á fimmtu- dagsmorgun var tilkynnt um mann vera að gera tilraun til að bijótast inn í íbúð fjölbýlishúss í Breiðholti. Maðurinn var handtekinn í stiga- gangi hússins og færður í fanga- geymslu. Skömmu síðar var til- kynnt um lausan eld í kjallaraíbúð við Laugarnesveg. í ljós kom að húráðandi hafði verið að elda, en gleymt potti á eldavélinni. Eldur var lítill, en töluverður reykur myndaðist þannig að ástæða þótti til að flytja húsráðanda á slysadeild með sjúkrabifreið. Á fimmtudag vitnaðist um að þjófar héldu til í húsi við Grettis- götu. Að úrskurði fengnum voru tveir menn handteknir þar innan- dyra. Grunur var um að þeir hefðu brotist inn í verslun í Keflavík nótt- ina áður. í íbúðinni fannst talsvert magn af vindlingum, peningar og ávísanir. Seinnipartinn á fimmtudag fékk barn á sig heitt vatn úr þvottavél í húsi í austurborginni. Flytja þurfti það á slysadeild. Um kvöldið sást til manns vera að bijótast inn í blómabúð við Snorrabraut. Hann var gómaður á staðnum og færður í fangageymslu. Á föstudaginn langa kom þyrla Landhelgisgæslunnar að Borgar- arspítalanum með tíu ára gamla stúíku frá Landmannalaugum. Stúlkan hafði orðið á milli tveggja vélsleða með þeim afleiðingum að hún fótbrotnaði. Síðdegis á föstudag féll 14 mán- aða gamalt barn á milli hæða innan- dyra í húsi í austurborginni. Flytja þurfti það á slysadeild með sjúkrabif- reið. Skömmu síðar féll maður á milli hæða úr stiga í Hólunum. Hann hlaut skurð á höfuðið, en ástæða þótti til að flytja hann með sjúkrabifreið á slysadeildina. Á aðfaranótt laugardags féll mað- ur úr stiga í Mosfellsbæ. Hann var fluttur á slysadeild með sjúkrabif- reið. Um nóttina var tilkynnt um mann sem hafði ekið bíl sínum á hús sitt. Sá er grunaður um ölvunarakstur. Aðfaranótt sunnudags sást til ungra manna vera að gera tilraun til þess að bijótast inn í söluturn við Langholtsveg. Styggð kom að mönn- unum. Einn náðist þó á hlaupum, en aðrir tveir reyndu að komast undan á rússneskum jeppa, en náð- ist skömmu síðar. Þeim hafði tekist að komast inn í söluturninn. Aðfaranótt þriðjudags sást til tveggja manna vera að reyna að komast inn í verslun við Laugaveg. Þegar lögreglumenn komu á staðinn hlupu þjófarnir. Þeir höfðu verið þrír við iðju sína og voru handteknir skömmu síðar og færðir á lögreglu- stöðina. Þeim hafði ekki tekist að komast inn í verslunina. Um nóttina hafði verið farið inn í hús á Seltjarnarnesi og þaðan stol- ið ýmsum búnaði. Talið er að það hafi gerst á meðan heimilismenn sváfu föstum svefni á annarri hæð hússins. Svo virðist sem þessi páskahelgi hafi einkennst af tiltölulega slæmri veðráttu og miður góðu innræti of margra. Að minnsta kosti þurfti að hafa afskipti af allt of mörgum, sem annaðhvort kunnu ekki fótum sínum forráð eftir óhóflega áfengisneyslu eða kunnu ekki að meta eigur og verðmæti annarra sem skyldi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.