Morgunblaðið - 06.04.1994, Side 67

Morgunblaðið - 06.04.1994, Side 67
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. APRIL 1994 67 Hvöss norðanátt verður fram að næstu helgi LÆGÐ fór með suðurströnd landsins á páskadag og áfram aust- ur fyrir land og snerist í öfugan hring norðvestur af landinu. Spáð er áframhaldandi og vaxandi norðanátt um allt land fram að næstu helgi. Fjallvegir lokuðust víða vegna ófærðar á föstu- daginn langa og á páskadag en þá daga er ekki mokað. Tafir urðu einnig á flugi innanlands vegna veðurs og biðu um 400 farþegar eftir flugi frá ísafirði í gær og ekki hafði verið flogið til Flateyrar frá því á skírdag. Þá tafðist áætlun Iangferðabíla um nokkrar klukkustundir vegna ófærðar á heiðum. Á skírdag var hvöss norðanátt á landinu með snjókomu norðan- lands ojg skafrenningi sunnan- lands. A föstudaginn langa dró heldur úr norðanáttinni en áfram var éljagangur fyrir norðan en skaplegt veður fyrir sunnan og 4 til 5 vindstig. A laugardag var norðvestlæg átt, ekki mjög hvöss og gekk á með dimmum éljum vestanlands en bjart og gott veður var á Austurlandi, samkvæmt upp- lýsingum veðurstofunnar. Á sunnudag var komin austanátt með mikilli snjókomu sunnanlands og 6 til 8 vindstig en 5 til 6 vind- stig og léttskýjað var víða á Norð- urlandi og á Vestfjörðum. Á annan í páskum var hvöss norðanátt vest- anlands en hægari suðvestanátt á Norðausturlandi. Á Vestfjörðum var veður leiðinlegt, hvasst og mikil ofankoma með strekking víða um vestanvert landið. Ófærð á vegum Samkvæmt upplýsingum vega- eftirlitsins var reynt að halda sem flestum fjallvegum opnum yfir páskana. Víða var færð þó orðin slæm er líða tók á kvöld og þeir lokaðir yfir nóttina en rutt var að morgni. Föstudaginn langa og páskadag var víða ófært en það eru frídagar og þá var ekki mokað. Meðal annars lokaðist Hellisheiðin, Mosfellsheiðin og Holtavörðuheið- in. Versta veðrið var á Vestfjörð- um. Þangað var ekki fært landleið- ina nema framan af og lokuðust vegir þangað á annan í páskum. í gær var mokað og voru nær allar leiðir færar um miðjan dag en verst gekk að ryðja á Vestfjörðum og þar var víða talin hætta á snjóflóð- um. Meðal annars var búið að moka Möðrudalsöræfi og var fært suður með ströndinn frá Reykjavík og norður í land. Innanlandsflug Gera má ráð fyrir að farþegar í innanlandsflugi Flugleiða hafi verið um 12.000 yfir páskana og gekk vel að halda áætlun á flesta staði nema til Vestfjarða. Fella varð nið- ur flug Flugleiða til þangað á skír- dag vegna veðurs og var ekki flog- ið þangað fyrr en á laugardag, þar sem innanlandsflug liggur niðri á föstudaginn langa og á páskadag. Á laugardag fyrir páska gekk innanlandsflug hinsvegar vel og náðist að fljúga á alla áætlunar- staði en kvöldflug til Vestmanna- eyja og Sauðárkróks féll niður að sögn Margrétar Gunnarsdóttur vaktstjóra. Ekki var hægt að fljúga til Vestfjarða á annan í páskum en gert var ráð fyrir að farnar yrðu tvær ferðir í gær ef veður leyfði. Þar biðu 400 farþegar eftir ferð suður. 800 farþegar íslandsflug flutti um 800 far- þega yfir bænadagana og gekk vel að halda áætlun á alla staði nema Flateyri en þangað hefur ekki verið flogið síðan á skírdag. Að sögn Sveins Ingvarssonar vaktstjóra voru flestar ferðir farnar til Nes- kaupstaðar af áætlunarstöðum fé- lagsins en auk þess var flogið á Siglufjörð, Hólmavík, Gjögur, Eg- ilsstaði og til Vestmannaeyja. Langferðabílum seinkaði Samkvæmt upplýsingum frá Bif- reiðastöð íslands gekk vel að halda áætlun á öllum leiðum og þurfti ekki að fella niður ferðir. Einhver seinkun varð þó á áætlun að norð- an og frá Selfossi og Hveragerði vegna veðurs á annan í páskum. Þá komu þrír bílar að norðan frá Akureyri en yfírleitt nægir einn bíll á þeirri leið. Hjón með barn urðu viðskila við vélsleðahóp í blindbyl við Síðujökul Notuðu númera- plötu sleðans til að grafa sig í fönn „VIÐ hlupum í kringum sleðana og grófum holu í snjóinn til þess að hafa eitthvað fyrir stafni að halda á okkur hita,“ segir Þóra Björk Schram, sem ásamt manni sínum, Gunnari Rafni Birgissyni, og syni, Hjalta Rafni 7 ára, varð viðskila við hóp fólks á vélsleðum við Síðujökul á páskadag. Þóra Björk segir að bylurinn hafi skollið á fyrirvaralaust en þau hafi ákveðið að halda kyrru fyrir. Hún segir að þau hafi ekki orðið mjög hrædd því þeim hafi ekki orðið kalt enda vel búin. Þóra Björk segir að hópurinn, 14 manns, hafi verið á leiðinni frá Síðujökli eftir að hafa staldrað við og tekið myndir í blíðskaparveðri. „Skyndilega skellur á blindbylur. Við vorum í halarófu, með leið- sögumenn fremst og aftast, en það teygðist svo mikið á hópnum að við urðum viðskila enda sáum við ekki nema nokkra metra fram fyrir okkur. Við ákváðum að vera ekki að ana eitthvað í burtu enda áttum við von á að fólkið sem var fyrir aftan okkur væri á leiðinni til okkar,“ segir Þóra. Hún segir að það hafi tekið leiðsögumennina um klukkutíma að koma afgangn- um af hópnum saman, þótt þau hafi í raun verið stutt hvert frá öðru. Hafi hinir snúið við og leitað skjóls við jökulinn, enda ekki verið komnir nema kílómetra í burtu. Biðu í rólegheitunum „A meðan biðum við bara í ró- legheitum þar sem við vorum og snerum sleðunum á móti vindi til að fá skjól af þeim. Við höfðum annan í gangi í einu og ljósin á til skiptis því við vissum ekki hvað við þyrftum að bíða lengi. í fyrstu sátum við kyrr, svo fórum við að velta fyrir okkur hvað við ættum að gera, hlupum liringinn í kring- um sleðana og ákváðum svo að grafa holu. Gunnari tókst að rífa númeraplötuna af sleðanum, þrátt fyrir að hún væri boltuð niður, og við spörkuðum í snjóinn og mokuð- um með númeraplötunni." Þóra Björk segir að þau hafi rétt verið búin að grafa holuna og leggjast í skjól þegar þau hafi fundist. Hafi maðurinn sem kom að þeim verið búinn að hringsóla í kringum þau allan tímann en ekki séð þau fyrir hríðarkófinu. Hún segir að þrátt fyrir að þau hafi verið viðskila við hópinn í tvo klukkutíma hafi þau aldrei orðið hrædd enda hafi þeim verið hlýtt allan tímann. „Ef okkur hefði ver- ið orðið kalt þá hefðum við senni- lega orðið hræddari. En við feng- um galla, hjálma og vélsleðastíg- vél, og vorum í kanínuullarnærföt- um, með skíðagleraugu og trefla. Það var þarna fólk sem fékk sár í andlitið vegna kulda. Það var þykkur klaki á treflunum okkar og eyrnaskjólin frosin föst undir hjálmunum." Aðspurð hvernig þeim hafi tekist að halda ró sinni og stillingu þVátt fyrir allt segir Þóra að ekki hafi vafist fyrir þeim hvernig bregðast ætti við enda sé alltaf verið að brýna það fyrir fólki. „Þetta gerðist alveg ótrúlega snöggt og sýnir hversu erfitt er að treysta á veðrið hér. Það liggur við að ekki borgi sig að ferðast um landið án þess að vera í fylgd með mjög reyndum samferða- manni,“ segir Þóra Björk. Morgunblaðið/Sverrir Svaðilför ÞÓRA Björk Schram og Hjalti Rafn, 7 ára, ásamt kettinum Lovísu, en þau lentu í hrakningum við Síðujökul um páskana. Þýsk stúlka villt- ist í Eldhrauni Fannst köld og hrædd ÞÝSK stúlka lenti í hrakningum á páskadag í Eldhrauni. Hafði stúlkan, sem er við nám í Reykja- vik, verið gestkomandi á Edduhót- elinu á Kirkjubæjarklaustri. Að sögn Pálma Harðarsonar varafor- manns björgunarsveitarinnar Kyndils var stúlkan bæði köld og hrædd þegar hún fannst. „Hún var í gallabuxum og lopa- sokkum og stakk eða þunnri úlpu og var auðvitað köld en aðallega hrædd, enda var veðrið kolvitlaust og maður sá ekki handa sinna skil,“ segir Pálmi. Segir hann að líklega hafi stúlkan ætlað að reyna að húkka sér far í bæinn. „Hún virðist hafa lent á afleggj- aranum íýrir vestan Kirkjubæjar- klaustur," segir Pálmi. „Síðan fer hún framhjá afleggjaranum að Hunkubökkum, út í Eldhraun og fer afleggjara heim að eyðibýli, senni- lega af því að þannig hafði hún veðr- ið í bakið og þar náðum við henni." 13. lelkvika , 2-4. apríl 1994 Nr. Leikur: Röflin: 1. Göteborg - Trcllcborg 1 2. Halmstad - Norrköping • 3. Hammarby - Háckcn - X - 4. Landskrona - AIK - 2 5. Malmö Degerfors 1 - 6. Frölunda - Östcr - 2 7. Örebro Helsingborg 1 - 8. Blackbum - Man. Utd. 1 - 9. Coventry - Wimbledon - 2 10. Man. City - Aston V. 1 - 11. Norwich • Tottenham - 2 12. Oldham -QPR 1 • 13. Sheff. Wed - Everton 1 - Heildarvinningsupphæðin: 100 milljón krónur 13 réttir: 111.460 1 kr. 12 réttire 4.120 kr. 11 réttire 460 1 kr. 10 réttire 0 1 kr. Ovenju djúpar lægðir fóruyfir landið Loftþrýstingur nálægt meti TVÆR óvenju djúpar lægðir fóru yfir landið um páskana og ollu illviðri víða um land. „Þær réðu ríkjum alla pásk- ana,“ sagði Haraldur Eiríks- son veðurfræðingur. „Það má segja að skársta veðrið hafi verið á laugardag þegar fyrri lægðin fór að grynnka.“ í seinni lægðinni mældist loft- þrýstingur um 951 miilibar á Dalatanga sem er nálægt meti miðað við árstíma. Að sögn Haraldar var mjög djúp lægð fyrir suðaustan land, milli íslands og Skotlands, á skírdag sem þokaðist hægt norður á bóginn. Þann dag gerði. leiðinda norðanátt um allt land en daginn eftir, á föstudaginn langa, var lægðin fyrir austan landið og var áfram mjög djúp. Seinnihluta dagsins var lægðin komin norðaustur fyrir landið og farin að grynnka. Á laugardag var lægðin kyrr- stæð fyrir norðan og norðaust- an land og hélt hún áfram að grynnast. „Þá er hins vegar farið að sjá í mjög vaxandi lægð fyrir suðvestan land og að morgni páskadags kemur hún upp að landinu," sagði Harald- ur. „Fyrst um morguninn er austlæg átt um nær allt land með snjókomu en um tíma gerði hvassa vestanátt syðst á land- inu með blindbyl.“ Lægðin var undan Austurlandi um kvöldið og var þá óvenju djúp miðað við árstíma eða rúmlega 951 millibar og lítið eitt dýpri en fyrri lægðin. Þessi lægð hélt kyrru fyrir fram á annan í páskum og var viðloðandi Norðurland en þok- aðist þá heldur vestur með norð- urströndinni og grynntist lítil- lega en var þó áfram mjög djúp. 13. Icikvika, 2. april 1994 | Nr. Leikur: Röflin: 1. Atalanta - Udinese - X - 2. Cremonese - Sampdoria - X - 3. Foggia - Piacenza 1 - - 4. Gcnoa - Lazio 5. Juventus - Inter 6. Lecce - Torino - X - 1 - - - - 2 7. Milan - Parma - X 8. Reggiana - Napoli 1 - 9. Roma - Cagliari 1 - 10. Ancona - Bresda 1 - 11. Cosenza - Padova - X 12. Modena - Cesena 1 • 13. Palcrmo- Ascoli 1 - Heildarvinn ingsupphæðin: 10,8 milljón krónur 12 réttire 11 rettir: 10 réttir: 57.700 |kr. 2.760 ] kr. 330 jkr. 0 | kr.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.