Morgunblaðið - 10.04.1994, Page 8

Morgunblaðið - 10.04.1994, Page 8
8 B MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. APRÍL 1994 eftir Arnald Indriðason HÚN var fyrsta bókin hans og- það tók hann aðeins fjórtán / daga að skrifa hana og hún var ekki lengri en 171 blað- síða og var aðeins prentuð í 29 þúsund eintökum. En hún hefur vakið meiri undr- un og aðdáun en gengur og gerist með bækur nýrra höf- unda í Bandaríkjunum og selst von úr viti. Brýrnar í Madison- sýslu eða „The Bridges of Madison County“ eftir Robert James Waller er nú í sinni 48. prentun í Banda- ríkjunum og hefur hún selst í fjór- um og hálfri milljón eintaka. Hún er ein af söluhæstu innbundnu bók- um sögunnar vestra, var í 35 vikur í fyrsta sæti metsölulista „The New York Times“ og hefur verið á list- anum í meira en 80 vikur í allt. Og eins og allar velgengnisögurnar að vestan endar þessi á því að Ste- ven Spielberg er að íhuga að kvik- mynda bókina. Talað er um að Clint Eastwood eða Robert Redford fari með annað aðalhlutverkið. töfra Sagan hefur verið þýdd á fjölda tungumála og hefur Pétur Gunnarsson rit- höfundur unnið við að þýða hana á íslensku en hún mun koma út hjá Vöku/Helga- felli í maí nk. Waller er áhugaljósmyndari og var að ljósmynda gömlu yfir- byggðu brýrnar í Madison- sýslu í Iowa þegar hann fékk hugmynd að sögunni um ástir ljósmyndarans Ro- berts Kincaids og bóndakon- unnar Francescu Johnson, sem stóð í aðeins fjóra daga en lifði um alla eilíf. Þegar Waller var spurður að því hvort það væri virkilega satt að hann hefði aðeins verið flórtán daga með bókina svaraði hann: „Jú. Það tók mig tvær vikur. Og fimmtíu ár.“ Vinsældir bókarinnar hafa breytt talsvert högum þessa hægláta 54 ára gamla rithöfundar, sem fór ekki að skrifa fyrr en eftir fimm- tugt. Nú starfa tveir lög- fræðingar fyrir hann, bók- haldari, umboðsmaður sem sér um útgáfumál og kvik- myndaréttindi og aðstoðar- maður sem sér um að bóka hann á fyrirlestra og kynn- ingar. Og bráðum verður hann sjálfsagt að fá sér starfsmann til að sjá um póstinn sem berst frá aðdá- endum víðs vegar að. „Þakka þér fyrir að gefa mér aftur vonina,“ skrifar kona. Allt upp í tíu manns á dag hringja til hans eða skrifa honum bréf um löngu gleymdar ástir. Kona ein ferðaðist jafnvel frá Oregon og heim til hans í Iowa. Þó ekki til að hitta hann per- sónulega heldur aðeins til að næla sér í laufblað af trénu í garðinum hans og setja það inní bókina um ástina miklu í Madisonsýsiu. „Ég skil þetta ekki,“ segir Waller og hristir hausinn. „Þetta er bara bók.“ Marlboromaóurinn En þetta er ekki bara bók. Brýrnar í Madisonsýslu er lítið og hógvært kver gætt fádæma töfrum skrif- að í saknaðarfullum og tregablöndnum stíl horfins tíma og heitrar ástar sem lifnaði hjá fólki er hittist af tilviljun og var saman í stuttan tíma en síðan ekki söguna meir. Frásögnin er eins einföld og yfirlætislaus og hugsast getur. Ljós- myndarinn Robert er „síð- asti kúrekinn", karlmannleg einfarasál líklegast mest í ætt við Marlboromanninn. Francesca er gift, blóðheit bóndakona í Madisonsýslu af ítölskum ættum. Fyrir mörgum árum ók hann upp að bænum hennar að spyija Einhvers- konar maður eða síðasti kúrekinn Robert James Waller. Robert James Waller skrifaóí litla bók um óst- ir mióaldra fólks i Madison- sýslu i lowa og virtist hitta ó eitthvaó alveg sérstakt vegar og þá hófst ástar- ævintýri sem varði aðeins nokkra daga en lifði með þeim alla ævi. Viðbrögð við bókinni vestra hafa verið allmögnuð. Waller hefur ekki við að segja fólki að þetta sé skáld- skapur en ekki sönn saga, fólk hringir í hann dag og nótt til að lýsa því hvernig það upplifði bókina og hún breytti lífi þess og hundruð pílagríma ferðast til Iowa að kynna sér sögusvið bók- arinnar og skoða yfirbyggðu brýrnar í Madisonsýslu. í bókinni eru birtar ljósmynd- ir af brúnum sem Waller tók sjálfur. „Margir lesendur líta á mig sem einhverskon- ar töframann," segirWaller. „Ég vil ekki bera slíka ábyrgð.“ Og annars staðar segir hann: „Ég slysaðist á réttu söguna. Hún gekk upp. Ég held ekki að nein snilligáfa hafi verið að verki. Mér var fengin þessi saga.“ Gagnrýnendur hafa yfir- leitt verið á einu máli um ágæti hennar og milljónir hafa tekið upp vasaklútinn yfir lestrinum en þó finnast þeir sem ekki láta segjast af mjúkri, rómantískri frá- sögninni. „Uppalegt klám fyrir konur,“ sagði í einum ritdóminum. „Það er lík- legra að kona lendi í vand- ræðum með kynsjúkdóma eftir svona ástarævintýri en að hún minnist þess hjart- anlega alla ævi.“ Næsta saga Wallers, „Slow Waltz in Cedar Bend“, hefur vakið svipuð viðbrögð og sú fyrsta (hann skrifaði hana á aðeins tíu dögum) en hún segir af há- skólakennara sem verður ástfanginn af giftri konu, sem býr yfir ákveðnu leynd- armáli. Hún rauk upp met- sölulistana á andartaki og Hollywood keypti kvik- myndaréttinn með það sama. Vióskiptafrœói- kennari Waller lætur sér fátt um finnast og vill helst ekkert skipta sér af umræðum um bækur sínar. Hann er við- skiptafræðikennari og hefur verið kvæntur sömu kon- unni í 32 ár. Hann fór í við- skiptafræði af því að faðir hans, sem þekkti vel til kreppunnar miklu, vildi að hann fengi „góða vinnu“. En hann var aldrei sáttur við sig í brauðstritinu. „Mig dreymdi um það sem krakki að lifa af listum en þaðan sem ég kom vannstu annað- hvort í dekkja- eða traktors- verksmiðjunni.“ Hann ólst upp í þúsund manna bæ, Rockford í Iowa, og þótt honum líkaði aldrei körfubolti æfði hann stíft þá íþÆtt því faðir hans var sérlega áhugasamur um hana. Hann komst á körfu- boltastyrk í háskólann í Iowa þar sem hann nam í eitt ár áður en hann færði sig í háskólann í Cedar Falls. Hann lauk prófi í við- skiptafræði og tók að kenna hana fram til ársins 1985. Hann vakti athygli fyrir frjálslyndar skoðanir og út- litið sem fylgdi, gallabux- urnar, kúrekastígvélin og sítt, gráleitt hárið. Nemend- um fannst sem hann hefði aldrei náð að jafna sig á hippaskeiðinu. Hann dró nokkuð úr háskólakennsl- unni eftir taugaáfall sem hann fékk um miðjan níunda áratuginn. Stessið var að drepa hann. „Læknirinn minn sagði að skáldið í mér hefði lent í átökum við hitt lífið.“ Kennslan var líka orð- in leiðinleg á þessum tíma fyrir fijálslyndan kennara eins og hann. „Ég leit einu sinni yfír nemendahópinn og hrópaði hvort enginn hérna inni hefði einhvern tímann viljað verða skipstjóri á Amazonfljótinu. Þeir horfðu á mig eins og ég væri bilað- ur.“ Árið 1991 tók hann sér loksins launalaust leyfi frá kennslunni og fór að lifa af eftirlaunasjóði sem hann hafði komið sér upp. Dag einn það haust var hann á ferð ásamt vini sínum með- fram Mississippiánni að taka myndir þegar Waller sagði skyndilega að hann langaði til að aka yfir í Madisonsýslu að ljósmynda yfirbyggðu brýrnar þar. Tveimur vikum seinna lauk hann við handritið að „Brún- um“. Hann sendi það fáeinum vinum sínum og einn þeirra kom honum í samband við umboðsmann. „Mér fannst hún vel geta átt möguleika því þetta var ekki minna en 20 klúta saga,“ er haft eftir honum. Nokkrir útgefendur höfnuðu henni þar til út- gáfustjóri hjá Warner-bóka- útgáfunni bauð 32.000 doll- ara í hana. Bókin spurðist hratt út á meðal bóksala og brátt tók við æði sem náði um allt landið. Waller hélt áfram að skrifa, „Slow Waltz“ kláraði hann á auga- bragði og vinnur nú við bækur þijú, fjögur og fimm. Stíflan var greinilega brost- in. Ljósglampi Allar hafa sögurnar verið að geijast í Waller í langan tíma og nú hefur hann leyft sér að sinna þeim. Hann byijar skriftir klukkan fjög- ur á morgnana, snæðir sam- loku um ellefuleytið, fær sér kríu á dýmruppi á háalofti, skokkar nokkra kílómetra og heldur svo áfram að skrifa. Eftir kvöldmat spilar hann svolítið á gítarinn sinn — eitt sinn spilaði hann og söng fyrir Robert Kennedy á kosningaferðalagi og hann hefur gefíð út plötu — og svo er hann kominn í rúmið klukkan níu. Hann er allt í einu einn af þessum nýríku en hann reynir að láta það ekki hafa áhrif á sig. Fyrir skömmu keyptu þau hjón sér borð- stofuborð, það fyrsta á ævinni. Það kostaði nokkuð hundruð dollara og þau köll- uðu það strax Steve. „Við höfðum ekki efni á að kaupa það fyrr en við fengum pen- ingana frá Steven Spiel- berg,“ segir eiginkona Wall- ers, Georgía. Annars segja þau að peningarnir fari allir í banka og þau líti ekki við þeim. Frægðin hefur komið skyndilega yfir Waller og hún gæti horfið jafnsnögg- lega. Honum stendur á sama. Hann gerir sér engar grillur um ódauðleika. „Það skiptir ekki máli hvað aðrir hugsa,“ segir hann og talar eins og síðasti kúrekinn. „Ég er bara ljósglampi í heildarmyndinni. Einn dag- inn hverf ég og enginn á eftir að muna neitt af þessu.“ I

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.