Morgunblaðið - 10.04.1994, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. APRÍL 1994
B 13
ur bitnað á örsnauðri alþýðu.
Stjórnkerfi PRI-flokksins er eitt hið
öflugasta og virkasta sem um getur
og því er ekki sjálfgefið að stjórn-
arfar verði lýðræðislegra þótt ein-
ræði flokksins lyki í kosningunum
í sumar eins og margir vænta.
Stjórnkerfi ríkisins gæti allt eins
hrunið til grunna og þá hyrfi sá
stöðugleiki sem PRI-flokkurinn hef-
ur tryggt þrátt fyrir allt síðustu sex
áratugina.
Það eru því ýmsar blikur á lofti
og framtíðin harla óræð. En fram-
tíðin hefur ávallt verið óræð í Mex-
íkó. Á ýmsu hefur gengið og því
ekki líklegt að mexíkanska þjóðin
finni til frekara öryggis á ókomnum
tímum.
Mexíkanskl þjóöareöli
Vegna sögu sinnar og kynþátta-
blöndunar hafa Mexíkanar löngum
átt erfitt með að greina eðli sitt og
stöðu. Meztízinn hefur löngum vilj-
að afneita sínum indíánska eðlis-
þætti án þess honum tækist að
öðlast viðurkenningu eða samlögun
við hinn evrópska kynþátt. Þetta
hefur svipt mestízann fótfestu og
valdið rótleysi í huga hans. Ýmsir
andans menn í Mexíkó hafa velt
þessu fyrir sér, orsökum þessa og
afleðingum. Nóbelsskáldið Octavio
Paz hefur líklega nálgast þetta við-
fangsefni meira og betur en aðrir
í bók sinni „Völundarhúsi einsemd-
arinnar", sem út kom í íslenskri
þýðingu á síðasta ári. Þar greinir
Paz hið mexíkanska þjóðareðli og
lýsir einsemd, óvissu og ótta hins
venjulega Mexíkana. Fimm alda
saga samskipta og blöndunar hefur
ekki dugað til að gefa einstaklingn-
um rótfestu. Octavio Paz segir um
Mexíkanann: „Hann gengur í gegn-
Hún hjálpar okkur einnig að skilja
þann skapandi kraft, þá „dýnamík"
sem alls staðar má sjá í þjóðlífinu,
í listsköpun, bókmenntum og dag-
legu lífi og samskiptum fólksins.
Þarna er engin lognmolla né lá-
deyða hins viðtekna sem við þekkj-
um svo vel í okkar heimshluta,
þarna ríkir gerjunin alvöld, gerjun
sem enginn veit hvert leiðir. Samfé-
lagið minnir mann á ungling sem
knúinn er áfram af lífskrafti gelgju-
skeiðsins, þar sem framtíð þroska-
áranna blasir við, spennandi, girni-
leg en jafnframt býður okkur að
heimsækja sig til þessa ótrúlega
lands sem hefur fóstrað hann. í ljósi
kynna minna af landi og þjóð segi
ég stundum að Mexíkó sé ólækn-
andi, eins og sjúkdómur sem hel-
taki mann. Eða eins og völundarhús
sem knýi mann áfram í óendan-
legri leit að svörum við nýjum
spurningum.
Mexíkó sem teröamannalanú
Á síðustu árum hafa mexíkönsk
stjórnvöld og ferðamálafrömuðir
unnið skipulega að því að búa í
haginn fyrir erlenda ferðamenn og
hefur þeim fjölgað mjög á siðustu
árum. Framboðið er við allra hæfi,
frá dýrasta lúxus til léttrar pyngju.
Á Kyrrahafsströnd landsins, á Kali-
fomíuskaganum svo og frá Mazatl-
án í norðri til Puerto Angel og
Huatulco í suðri, um 1500 km leið,
eru baðstrendur sem vart eiga sinn
líka. Sama má segja um Karíba-
strönd Yucatán-skagans með mið-
stöð í Cancún. Inni í landinu eru
stórar borgir og bæir og þúsundir
smáþorpa, ýmist í alfaraleið eða
afskekkt, sem gaman er að heim-
sækja og upplifa eitthvað alveg
nýtt og einstakt. Alls staðar blasa
BANDARIKIN
m
11 i
” MEXÍKÖ:
kí
/
Mexíkóflói
í/ MEXÍKÓ-
BORG,
AcapglcoV,
Hualulcö'
GUATEMAIÁ < ....... i
aSALVADOR ;
/CTO-v'be
!Ö* < ,'nn
'li Canain
Karíba■
BELIZE haf
HONDÍJRAS
KYRRA-
HAF
nkaraguá)
COSTARICÁ-cr/
PANAMA
Kort af Mexíkó.
um lífið eins og hann hafi verið fleg-
inn; allt getur sært hann, orð og
grunsemdir um orð. Mál hans er
fullt af þögnum, myndlíkingum og
óbeinum tilvísunum, hálfkláruðum
setningum; í þögn hans má finna
uppgjöf, blæbrigði, óveðursský,
óvænta regnboga, óræðar ógnir ...
hann reisir múr á milli raunveru-
leikans og sjálfs sín, múr sem er
ekki síst ókleifur vegna þess að
hann er ósýnilegur, óhreyfanlegur
og fjarlægur. Mexíkaninn er alltaf
fjarlægur, fjarri heiminum og öðru
fólki. Og einnig fjarri sjálfum sér.“
Þessi lýsing á eðli og sjálfsvitund
Mexíkanans gæti verið lykill og
veganesi okkar til að heimsækja
þessa undarlegu þjóð. Greining Paz
hjálpar okkur að skilja það rót sem
er á samskiptum fólksins innbyrðis.
Sólarpíramídinn í Teolihuacán.
við andstæður hins gamla og hins
nýtískulega.
Fyrir kaupglaða Islendinga eru
’tækifærin óendanleg í silfurmun-
um, leðui-vöru og ekki síst hinu
óendanlega úrvali alþýðlegra list-
muna.
Mexíkó er ekki bara fyrir augað.
Alþýðutónlistin, þessi undarlega
blanda indíánskrar hefðar og evr-
ópskrar með dágóðum bragðbæti
afrískrar arfleifðar, er bæði gríp-
andi og seiðandi. Síðast en ekki
síst er það matargerðin sem heillar.
Ferðamaðurinn kynnist Mexíkó
ekki síst í gegnum magann. Sú
bábilja virðist nokkuð ríkjandi að
allur matur í Mexíkó sé logandi
sterkur. Þetta er auðvitað misskiln-
ingur. Fiskréttirnir eru óteljandi,
gómsætir og girnilegir og síðan eiga
Mexíkanar lengri hefð en nokkrir
aðrir í matreiðslu úr þeim hráeAium
sem upprunnin eru í Mexíkó og
nágrenni. Má þar nefna maís, kakó,
alls kyns baunir, piparávexti, lár-
perur, papaya, grasker, nopales
(kaktusblöð), ananas, tómata að
ógleymdum blessuðum kalkúninum.
Þeim sem vilja reyna eitthvað óvænt
má benda á hið ljúffenga græneðlu-
kjöt (iguana) og alþýðudiykkina
mezcal og pulcue (agavabrennivín
og agava-öl).
Mexíkó er því draumur og ævin-
týri og einstök upplifun fyrir öll
skilningarvit.
Höfundur er sagnfræðingur.
.......
HESTRAPLATTAN
. .
>Ú FÆRÐ EKKI BETRIFLÍSAR
HESTRAPIATTAN eru slitþolnar drenflísar
Flísunum er smellt soman og lagðar ó gólfið yfir
niðurföllin. Þéttriðið og fingert munstrið hleypir
vatni niður í 12 mm holrúm undir flísunum, þar
sem greið leið er í niðurföllin.
Styrktarpróf í Tækniskólanum í Lundi sýndi að
HESTRAPLATTAN stenst yfir 110 tonna þunga
ó fermetra.
H ESTRAPALTTAN flísarnar þola flestar olíur og
kemísk efni, einnig mikinn hita og frost
Fy rirtækið
• Verkstæðið
• Lagerinn
• Vörumóttako sendibíla
• Geymsla óhalda
og vinnuvéla
• Bílaþvottastöðvarnar
• Þilförin
• Bílosalirnir
• Anddyrin
• Við sundlaugina
• Búningsklefarnir
H eimilið
• Bílskúrinn
• Geymslon
• Svalirnar
• Þvottahúsið
• Hjólageymslan
• Blómaskólinn
• Sturtubotninn
• Guf uboðið
1S-20 óra ending við eðlilegar aðstæður og
meira en 10 óra ending við erfiðar aðstæður.
Auðvelt að taka burt slitnar flísar
og smella nýjum í staðinn
HESTRAPLATTAN
eru hörkuflísor!
HÚSASMIÐJAN
nnm
u ym
Umboð og dreifing
Sími 91-676052 Fox 91-684736