Morgunblaðið - 10.04.1994, Page 21

Morgunblaðið - 10.04.1994, Page 21
B 21 losnaði úr fangelsinu með því að segja fangelsisyfirvöldum að hann hefði fengið góðar móttökur í Líbýu sem var talið „vonda“ landið en hins vegar fengi hann slæma með- ferð í þessu „góða“ landi. Þeir sáu sér ekki annað vænna en sleppa honum „vegna þessa leiða misskiln- ings“, segir Emilio og ypptir öxlum brosandi. „Ég var líka settur í fangelsi í Zimbabve, vegna þess að þeir héldu að ég hefði falsað passann. Sömu- leiðis í Afríku vegna myndatöku,“ heldur hann áfram. „Eitt sinn var ég þó í lífshættu. Það var í Sóm- alíu, en ég var þar þegar stríðið hófst og lenti í miðri skothríð milli hermannanna og fólksins. — Hvað um það, þetta er það líf sem ég lifi. Fólk hefur oft spurt mig hvað gerist þegar ég hef lokið ferðalag- inu. Hjá mér er aldrei mánudagur eða þriðjudagur eða klukkustundir eða mínútur. Ég lifi bara við það að sólin kemur upp á morgnana og tunglið birtist á næturnar," segir hann. „Ég get aldrei búið við það að eitthvað ákveðið eigi að gerast kl. 8 á mánudagsmorgni eða 9 á þriðjudegi." Er nú betri efnum búinn Á sama hátt og Emilio gekk erf- iðlega að fá menn til að leggja fé til ferðarinnar í upphafi hafa streymt til hans styrktaraðilar nú. Má þar nefna Pepsi Cola, sem er stærsti styrktaraðili hans, Honda, ýmsar sjónvarpsstöðvar og fleiri aðilar. „Vegna þessara fyrirtækja get ég frekar einbeitt mér að vinnu í stað þess að vera sífellt að leita fjármögnunarleiða. Nú hef ég efni á að eiga góða myndavél og get þannig gefið fólki kost á að sjá það sem ég sé á ferðalögum mínum.“ Vegna þess að fiökkueðlið er orðið Emilio svo eðlilegt segist hann ætla að stofna fyrirtæki og bjóða fólki upp á að kynnast löndum á annan og meira spennandi hátt en tíðkast hafi hingað til. Auk þess muni hann flytja fyrirlestra og gefa út bækur. „Mig langar líka til að búa til kvikmynd um ferðina. Þar sem ég hef ágæt sambönd í Banda- ríkjunum ætla ég að reyna að fá Steven Spielberg eða annan þekkt- an leikstjóra til að taka verkið að sér.“ Hann sér þó ekki sjálfan sig í hlutverkinu heldur góðan leikara, enda er kannski óþarfi að fara í þriðju heimsreisuna strax aftur? LIST Leikari og- málari Leikkonan Juliette Binoche, sem hlaut Frönsku Cesar-verð- launin fyrir leik sinn í kvikmynd- inni Blue er ekki aðeins hæfileika- ríkur leikari, heldur hefur hún fengist við málaralist. Á síðast- liðnu ári málaði hún hvorki fleiri né færri en tuttugu málverk og tvær veggmyndir ásamt leiktjalda- málaranum Christian Fenouillat. Juliette, sem gekk ung í lista- skóla, fékk fyrstu pensla sína og liti níu ára gömul. Juliette Binoche og Christian Fenouillat. » i MORGUNBLAÐIÐ FOLK I FRETTUM SUNNUDAGUR 10. APRÍL 1994 Sá eini rétti Leikkonan Brooke Shields hefur lýst því yfír, að hún sé ekki í vafa um að tennisleikarinn André Agassi — sem lengi var vinur Barbra Streisand — sé sá eini rétti fyrir sig. Þau hafa verið saman í hálft ár en reynt að leyna sam- bandinu. Að sögn Brooke vildu þau að sambandið þróaðist á eins eðlilega hátt og mögulegt væri. Brooke sem er 28 ára segist gjarna vilja gifta sig áður en hún verði þrítug en upplýsir jafnframt að André hafi ekki talað um neitt brúðkaup ennþá. „En við getum bæði hugsað okk- ur að eignast þtjú börn og höfum sömu áhugamál. Er þetta ekki góð byijun?“ sagði leikkonan í samtali við National Enquirer fyrir skömmu. Brooke Shields virðist ætla að halda fast í ástmann sinn, André Agassi. Hún segist gjarnan vilja giftast innan þrítugs og aðeins eru tvö ár eftir í það. cm«ss Hiii 9:00 til 18:00* 10:00 til 16:00 ('Föstud. Hér gefur að lítafjórar meirlháttar góðaf } plotur. Hver með sínu sniði en eiga það sameiginlegt AÐ VIRKA. Algjört Kúl Hrikalega góð og fjölbreytt blanda af poppmúsík. Hérna er það nýjasta og ferskasta í íslenskri tónlistarflóru, Þúsund Andlit, Fantasía, Vitrun, Blackout ofl. Hérna er indírokkpopp með St. Etiene, Suede, Boo Radleys og Manic Street Preachers. Hérna er danspopp með K7, Rozalla, Jam & Spoon, og Paparazzi Mama. Hérna eru 16 stórgóð lög. Þrumuklokteill. Það verður ekki öllu meira Kúl. .#\ /f ■% o i IXa L? / *.W RjHKD00W|S7 MUSI- M-Y-N-D-hR AUSTURSTRÆTI22 ■ s: 28319 • ÁLFABAKKA 14 Mjódd ■ s: 74848 REYKJAVÍKURVEGI64 Hatnarfirði • s: 651425 Plata númer 5 i þessari vmsælu dansplotusenu er gjörsamlega pottþétt. Af íslensku efni eru fjögur lög. So Cool með Tweety, Furious með Bong og Show the People með D.J. Fusion. Einnig Bongadelic mix af laginu Do You Remember. Af erlendu efni er hér rjóminn af því sem vinsælast er úti í Evrópu núna . Eins og t.d. Doop með Doop, D.J. Miko með What's Up, 2 Brothers on the 4th Floor með Never Alone, 24/7 með Take Me Away, Max með Get Away, 2 Unlimited með Murpys Megamix Part 2 ofl. ofl Meira en 70 mínútur af því besta í þessari deild. Reif í tólið Öll vinsælustu lögin í dag og að undanförnu. Bong/Do You Remember, Ace of Base/The Sign, 24/7/ls It Love, Funkdoobiest/Wopbabal ubob, Shané/Hey Mr. D.J. ofl ofl. Eitthvað sem þú verður að eiga viljirðu að græjan virki. OPNUNARTÍMI : Virkadaga Laugardaga Álfabakki 9:00 til 23:30 10:00 til 23:30 Reykjavíkurvegur 10:00 0123:30 12:00 til 23:30 14:00 0123:30 Sunnudaga 13:00 til 23:30

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.