Morgunblaðið - 10.04.1994, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 10.04.1994, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ VELVAKANDI SUNNUDAGÚR 10. APRÍL 1994 B 29 VELVAKANDI TRÚÐU ALDREI FAGURGALA ÞESS SEM SELUR UM ÞAÐ bil hálfum mánuði fyrir páska birtist í frétt í Morgunblað- inu um bílaviðskipti. Ýmislegt í þessari frétt vakti mig tii umhugs- unar, því að í fréttinni kom fram að menn víia ekki fyrir sér að svindla, svíkja og blekkja náung- ann eins og þeir geta, t.d. með því að skrúfa kílómetramælinn niður, sölumála o.s.frv. Sala á „konubíl“ var tekið sem dæmi um sviksam- lega sölu. Þegar kaupandinn upp- götvaði öll þau svik og blekkingar sem hann hafði verið beittur, leit- aði hann til bílasölunnar sem hafði haft miiligöngu um söluna. Bílasal- inn fírrti sig allri ábyrgð á sölunni og eflaust hefur kaupandinn setið upp með hálfónýtan bí! og án þess að geta farið fram á skaðabætur. Síðar í fréttinni var rætt um vænt- anleg lög og reglur fyrir bílasala, til þess að koma í veg fyrir mis- ferli af þessu tagi. Ástæðan fyrir að þessi frétt vakti mig til umhugsunar var að ég keypti fasteign hér í bæ og til að gera langa sögu stutta uppgötv- uðust verulegir steypugallar á eigninni sem ég hef rökstuddan grun um að fyrri eigandi hafi að fullu vitað um og fasteignasalinn sem skoðaði eignina fyrir sölu hef- ur örugglega einnig gert sér fulla grein fyrir ástandinu. í sölulýsingu er hins vegar einungis minnst á herbergjaskipan og ástand gólfa. Við leituðum fyrst til fasteignasal- ans sem seldi okkur eignina, en hann þvoði hendur sínar og fírrti sig allri ábyrgð af þessum viðskipt- um. Hvemig má það vera að fyrir- tæki, s.s. fasteigna- og bílasalar, sem mætti ætla að hefðu einhveija faglega þekkingu á því sem þeir eru að selja, geti haft miiligöngu um sölu verðmæta upp á tugi millj- óna og fírrt sig allri ábyrgð án þess að blikka auga. Hugsa þessir aðilar eingöngu um eigin hagnað, en ekkert um afleiðingarnar? Einstaklingar hafa oft verið í áratugi að safna sér fyrir húsnæði eða bíl og sett sig að auki í veruleg- ar skuldbindingar. Allt í einu þurfa þeir ófyrirséð að standa í viðgerð- um fyrir mörg hundruðir þúsunda króna eða jafnvel milljónir. Það verst er að vilji menn leita réttar síns fyrir dómstólum, þá kostar það verulegar upphæðir. Af síðustu viðskiptum mínum hef ég lært ýmislegt og hef búið mér til tvær þumalfingurreglur (vonandi eru til undantekningar á), sem fasteignakaupendur ættu að hafa í huga, þegar að því kemur. 1. Trúðu aldrei fagurgala þess sem selur. 2. Fáðu allt skriflegt og vottað sem seljandi segir um ástand eignarinnar. Mannskepnan og réttlætið eru undarleg fyrirbrigði, en að lokum vil ég taka undir með Friðriki mikla þegar hann sagði eitthvað á þessa leið: Því meira sem ég kynnist mannlegu eðli þeim mun vænna þykir mér um hundana mína. Það væri fróðlegt að heyra í fleiri einstaklingum sem hafa orðið fyrir barðinu á „sviksamlegum“ sölum og er okkar ágæti Velvakandi kjör- inn ritvöllur fyrir slík skrif. Með páskakveðjum, Fasteignakaupandi. AÐGERÐ ARLE Y SI REYKJAYÍKUR- BORGAR ÓVIÐUNANDI FYRIR hönd íbúa Norðurbrúnar 1 leyfi ég mér að skrifa þetta bréf í þeirri von að það nái athygli borg- aryfirvalda. Um langt skeið hefur það vakið furðu okkar íbúanna og jafnframt vonbrigði að svo virðist sem ekkert viðhald sé á húseign- inni. Girðing umhverfis húsið er bæði brotin og búin auk þess sem tijágróður er illa farinn vegna þess að umhirða er engin. Sum trén eru nú u.þ.b. að deyja vegna þess að rætur 'þeirra eru gengnar upp úr jarðveginum. Sjálft húsið hefur ekki verið málað í langan tíma og þess má geta að síðast þegar það var málað — fyrir rúmlega tveimur árum, var norðurhliðinni alveg sleppt. Þá virðist þak hússins þarfnast endurbóta sem má sjá af því að í hvert skipti sem rignir lek- ur vatn inn á gangana. Svo rammt hefur kveðið að þessum leka að eitt sinn varð háaldraður íbúi að klæða sig upp um miðja nótt vegna þess að vatn lak í stríðum straum- um niður í rúmið hans! Nú er svo komið að íbúar Norðurbrúnar 1, sem allir eru ellilífeyrisþegar, eru fyrir löngu orðnir íangþreyttir á aðgerðaleysi Reykjavíkurborgar. Á árum áður var lagður metnaður í að halda húsinu og umhverfi þess við þannig að sómi var af. Nú er allt að drabbast niður vegna skorts á viðhaldi. Það er von okkar íbú- anna að borgin sjái sóma sinn í að ráða nú þegar bót á þessu. Aldraður íbúi í Norðurbrún 1. LEIÐRÉTTIN G AR Rangt föðurnafn á Lesbókargrein Ranglega er farið með föðurnafn greinarhöfundar í Lesbók Morgun- blaðsins í gær. Þar er greinin Hraunþúfuklaustur í Vesturdal sögð eftir Margréti Matthíasdóttur, en hið rétta er að hún er eftir Margréti Margeirsdóttur. Margrét er beðin velvirðingar á þessum mis- tökum blaðsins. Hríseyin í hvarfi Með frétt um kaup bæjarsjóðs Hafnar í Hornafirði á bátnum Hrís- ey SF 48 t blaðinu í gær birtist mynd sem ekki var af Hrísey. Bát- urinn á myndinni heitir Útlaginn og lá fyrir utan Hríseyna í höfninni og í hana griliti ekki nema rétt aðeins. Hlutaðeigandi eru beðnir velvirðingar á mistökunum. Höfundarnafn féll niður Undir fyrri minningargreininni um Guðjón S. Öfjörð rennismið á blaðsíðu 40 í Morgunblaðinu í gær féll eitt höfundarnafnanna niður. Þar átti að standa: Jóhanna, Guð- laug, Magnús, Birgitta og fjölskyld- ur. Hlutaðeigendur eru innilega beðnir afsökunar á þessum mistök- Rangur tími á ferming’u Sagt var í blaðinu í gær að Þór- hildur Birgisdóttir fermdist klukkan 10.30 í dag frá Grensáskirkju. Hið rétta er að hún er meðal fermingar- barna klukkan 14. Qkuskóli Islands Námskeió til undirbúnings að auknum ' ökuréttindum hefjast 14. apríl. Innritun stendur yfir. J Ökuskóli islands hf, Dugguvogi 2, sími 683841. Geymið auglýsinguna. j SONGMENN! Háar tenór-raddir, djúpar bassa-raddir. Vanir söngmenn óskast í Þjóðleikhúskórinn fyrir flutning á óperunni VALD ÖRLAGANNA. Upplýsingar í síma 11204. II ^ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ FAGOR bVOITAVÉLAR FE§4 & O- Magn af þvotti 5 kg Þvottakerfi 17 Hitar síöasta skoivatn Sér hitastillir 0-9CPC Ryöfrí tromla og belgur Hraöþvottakerfi Áfangaþeytivinda Sjálfvirkt vatnsmagn Hæg vatnskæling Sparneytin Hljóölát VINSAMLEGAST ATHUGIÐ NÝTT HEIMILISFANG RÖNNING BORGARTÚNI 24 SÍMI 68 58 68 \ David Waisglass and Gordon Coulthart / HEYRNARTÆKJA RANNSÓKNIR '777~rrmTTr7 UJA-IS&LACS / Cooc-rrífitP-T qjmdiíeeöðieiiBqa -go8 ,T88lári Tióög ,u>Jíla lu inioM .rmi gia á bljri óigxilðlmij .ipovárV tí J'ioJjio ,inno>lni:)«l ;é skref afturábak

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.