Morgunblaðið - 10.04.1994, Blaðsíða 30
30 B
MORGUNBLAÐIÐ SAMSAFNIÐ SUNNUDAGUR 10. APRÍL 1994
4
DRAUMALAND . . .
HILMARS ARNAR HILMARSSONAR
Vildi eyða
ellinni í Túnis
„Túnis er draumalandið mitt,“ segir Hilmar Orn Hilmarsson.
„Það er bæði fallegt og á mikla sögu að baki. Þar getur maður
bæði séð gamlar rómverskar og grískar rústir, þar finnast alls
konar hlutir frá öllum tímum. Mér líkar sérstaklega vel við araba,
þeir eru gott fólk upp til hópa. Túnismenn bjóða auk þess upp
á bestu vín í heimi. Þeir eru lélegir múhameðstrúarmenn hvað
bindindismálin snertir, þeir eru undir sterkum frönskum áhrifum
í þeim efnum og raunar líka í matargerð. Margir arabar eru
þekktir fyrir að laga ömurlegan mat, en Túnismenn eru snilldar-
kokkar.
Hilmar Örn Hilmarsson tónlistar-
maður
Túnis er mjög gjöfult land að
öllu leyti, enda var það kornf-
orðabúr bæði Grikkja og Rómverja
á sínum tíma, það af landinu sem
er í rækt er ótrúlega fijósamt. Það
kom upp sýking í vínvið Túnis-
manna á síðustu öld, en þá fengu
þeir vínvið frá Ameríku. Síðan
hafa þeir framleitt sérstaklega góð
vín, sem er laust við öll aukaefni,
svo sem saltpétur, og þess vegna
mjög góð fyrir heilsuna. Það er
ekkert skemmtilegra en drekka
vín í Túnis við fagurblátt haf og
hvíta strönd með ævagamlar rúst-
ir bak við sig.
Ég kom til Túnis árið 1987 og
varð ástfanginn af landinu. Mér
finnst reyndar gaman að vera í
Norður-Afríku, en Túnis er þó
sérstakt, það er opnasta landið.
Fyrrum forseti landsins, Bourgiba,
gekk mjög fram í kvenréttindum
og kom því í lög að ekki mætti
gifta konur nema þær væru því
samþykkar sjálfar, þær fengu rétt
tii mennta og losnuðu við blæjuna.
Þetta er í raun heiðarlegasta dæm-
ið um islam, því í þeim trúarbrögð-
um var í upphafi réttur kvenna
sterkur, þær máttu reka fyrirtæki
og hafa mannaforráð og ráða sér
sjálfar til jafns við karlmenn. Þetta
er enn við lýði í Túnis, en því
miður hafa þó hlutirnir breyst til
hins verra. Þegar ég var þar var
ástandið betra en það er í dag.
Þá hafði Bourgiba verið veikur um
tíma og áhrif bókstafstrúarmanna
voru að aukast. Eftir að honum
var velt úr sessi hafa áhrif bók-
stafstrúarmanna orðið ríkari og
óttinn hefur læðst inn í hugskot
landsmanna að sama skapi.
Ég hygg á Túnisferð sem fyrst
og vonast til þess að geta eytt þar
góðum tíma. Seinna mundi ég vilja
eyða þar ellinni við þversagna-
kenndan kóranlestur og rósavín-
drykkju.
ÚR MYNDASAFNINU . . .
ÓLAFUR K. MAGNÚSSON
Barátta í bæjarstjórn
Nú líður senn að því að lands-
menn gangi að kjörborðinu
og kjósi sér bæjar- og sveitar-
stjórnir fyrir næstu fjög-
ur ár. Sjálfsagt er kom-
inn glímuskjálfti í fram-
bjóðendur og stuðnings-
menn þeirra enda tals-
vert í húfi að vel takist
til, þótt sumir séu á því
að sami rassinn sé undir
þeim öllum. Pólitísk átök
og sviptingar eru hins
vegar ekki ný bóla og hér áður
fyrr var baráttan jafnvel enn illvíg-
ari en á okkar dögum. Við grípum
hér niður í bæjar- og sveita-
stjórnarkosningar sem háðar voru
í ársbyijun 1954, en þar segir
meðal annars í baksíðugrein Morg-
unblaðsins á kjördag, sunnudaginn
31. janúar: „Jafnframt því að kjósa
sér bæjarstjórn velja Reykvíkingar
í dag borgarstjóra sinn. Ef D-list-
inn sigrar og fær hreinan meiri-
hluta verður Gunnar Thoroddsen
áfl'am borgarstjóri
Reykjavíkur. Ef tæt-
ingsliðið sigrar og
kommúnistum skapast
hér forystuaðstaða veit
enginn, hvað við tekur.
Glundroðaflokkarnir
fjórir hafa ekki getað
svo mikið sem nefnt
neinn mann, sem fengist til þess
að taka að sér borgarstjórastarf
fyrir þá.“ Svo mörg voru þau orð
og það þarf ekki að taka það fram
að Sjálfstæðisflokkurinn vann sig-
ur í kosningunum og fékk hreinan
meirihluta, eins og svo oft áður
og síðar. Myndirnar eru teknar á
fyrsta bæjarstjórnarfundi eftir
kosningarnar 1954.
Auður Auðuns í ræðustól, en hún var kjörin forseti bæjarstjórnar,
fyrst kvenna til að gegna því embætti.
ÞANNIG . . .
HELDUR SIGURÐUR HALL SÉR FRJÓUM
MEISTARAIiOKKARNIR
ÓSKAR OGINGVAR
Vond samviska betrumbætt
Spennandi
að vasast
ímörgu
ÞAÐ er ekkert grín að stunda krefjandi
starf sem þarf stöðugt að endurskoða með
tilliti til ferskleika í hugmyndum og úr-
vinnsiu þeirra. Margir landsmenn eru hæfi-
leikamenn á sínu sviði og því mætti nefna
marga til í hugrenningum sem þessum.
Einn í hópnum er sá landsfrægi kokkur,
Sigurður L. Hall, sem oft hefur miðlað les-
endum Morgunblaðsins úr uppskrifta-
brunni sínum. Það væri fróðiegt að spyrja
kokkinn hvernig hann fer að því að halda
sér ferskum og fijóum í hugsun þegar
matseld er annars vegar. Hvort það tengist
því ef til vill, að allt frá því að hann kom
I hingað til lands árið 1988 eftir dvöj í Nor-
egi um árabil og hóf störf á Hótel Örk og
í veiðihúsinu við Laxá í Kjós hafi hann
nánast verið á stöðugum þönum úr einni
vinnu í aðra? Sigurður, sem er nú kominn
aftur á Hótel Örk sem nokkurs konar verks-
stjóri, svarar þessu þannig:
*
Eg var í veitingarekstri í Noregi öll þessi
ár og það var auðvitað mikill skóli. Þegar
ég kom svo heim byijaði ég í Kjósinni og var
. j þar með 20 tii 25 manns í mat alla daga allt
sumarið. Mér var sagt að gera hvað sem ég
■ vildi, eina skilyrðið var,, að. maturinn yrði /að
I vera „delux“. Það eru yndislegustu skilaboð sem
Tiáégt'ér ‘að'húgsa s'ér til kökks: Kjósarsumrin;
Sigurður L. Hall
sem urðu flögur, voru því frábær tími og ég
gat leyft mér að þróa og prófa allt milli himins
og jarðar. Ég bý að því. Samhliða Kjósinni var
ég svo í ýmsu, á Örkinni, hjá Islenskum matvæl-
um, útflutnignsráði, sjónvarpskokkur hjá Stöð
2 og ritstjóri Matar- og vínklúbbs AB. Ég hef
aldrei verið hrifínn af því að festa mig á einum
stað. Elnhveiju veitingahúsi. Að vasast í mörgu
er spennandi og heldur manni fijóum. Maður
verður að tefla stöðugt fram einhveiju nýju og
leiðinleg vanabinding á ekki við. í matargerð
virðist vera af nógu að taka,“ segir Sigurður.
En er það ekki viss vanabinding að vera nú
kominn í hring, aftur á Hótel Örk?
„Nei, nei, ekki lít ég nú þannig á það. Mér
þótti það reyndar svolítið fyndið fyrst og mér
leið eins og ég hefði aldrei farið úr sporunum.
En Örkin er svo mikið breytt til hins betra síð-
an að ég var þar að þetta var eins og allt ann-
ar staður. Ég er auk þess þarna meira sem
nokkurs konar verkstjóri og verð bara fram á
■yprjð, þá tek ég við Hótel Valhöll. Alltaf á ferð-
inni, það er það sem beífurs!", segir Sigurður
fc.'hafhað'iokunr--------* -------------------
eistarakokkar Morgunblaðsins og Rásar
2, þeir Óskar og Ingvar á Argentínu
steikhúsi, eru með línurnar í huga að þessu
sinni, enda nýafstaðin ein af mestu átveislum
landsmanna, páskarnir eins og þeir leggja
sig, eða eins og þeir segja: — Eftir páskana
þjást margir af þeirri hugsun að hafa ekki
gætt hófs í mat og drykk, rétturinn hans
pabba hefur reynst honum mikil hjálp við
þessar kringumstæður. Tekur hann ávallt
gleði sína aftur eftir að hafa eldað þennan
rétt og öll hugsun af frekari megrun er óþörf.
Vonum við að þessi aðferð geti orðið fleirum
að liði í baráttunni við ofátshugsunina.
Megrunarrétturinn
hans pabba
fyrir 4
800 g ýsuflök, bein- og roðhreinsuð
1 msk. matarolía
1 stk. sítróna
1 stk. sellerí
1 stk. gulrót
2 stk. tómatar
1 stk. paprika, lítil rauð
1 stk. epli, grænt
salt — pipar
Aðferð:
Þessi réttur er eldaður á pönnu sem er
með þéttu loki ef það er lpftgat á Ipkiriu ■ -
er því lokað ávÓ rétVú7iWrLhárað<jirfusjöðá!:' IIJ
■Pannan smurð með olíunni. Ýsuflökin eru -
skorin í u.þ.b. 100 g bita og raðað á pönn-
una, sítrónan er kreist yfir, kryddað með
salti og pipar. Grænmetið skorið í strimla,
gulrótin er þó skorin þynnra svo hún nái
að eldast jaf nt og annað hráefni í réttinum,
þar sem hún þarf lengri eldun. Eplið og
tómatarnir skorið í þunna báta. Grænmetið
sett yfir ýsuna, lokið sett á pönnuna og eld-
að, gætið þess aðeins að ofelda fiskinn ekki
Meðlæti: ferskt salat.
Gratinerad Farfalle
fyrir 4
300 g Farfalle, slaufur
10 stk. sveppir
1 stk. paprika, rauð
1 stk. blaðlaukur
4 stk. sellerí
4 stk. smjörbaunir
10 sneiðar ostur
4 msk. ólífuolía
krydd: basilikum, svartur pipar, salt
Aðferð:
Pastað er soðið á hefðbundinn hátt með
matarolíu út í vatninu. Grænmetið er skorið
smátt niður og ristað í ólífuolíunni, síðan
er pastanu blandað saman við, kryddað
með basilikum, nýmuldum svörtum pipar
og salti. Þessu er blandað vel saman og
að lokum er ostinum raðað yfir og gratiner-
^iAfofrÍfí^9 !9S VÞ °?8 .ílinxoiaiifib
Meðlæti: fersktealat og nýbakað brauð.-