Morgunblaðið - 01.05.1994, Blaðsíða 21
B 21
MORGUNBLAÐIÐ FOLK I FRETTUM SUNNUDAGUR 1. MAÍ 1994
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Drykkirnir skreyttir að tjaldabaki. Allt var gert samkvæmt ströngum reglum Barþjónafélagsins og
kokkteilarnir voru blandaðir á tíma.
KEPPNI
Kokkteilmeistarinn
Fremstu barþjónar landsins
reyndu með sér á Hótel Sögu
á sunnudaginn, þegar haldin var
keppni Barþjónafélagsins. Þar
voru hristir kokkteilar af hjartans
list og keppt til Islandsmeistara í
blöndun „long drinks“. Gunnar
Arnar Hilmarsson reyndist hlut-
skarpastur og sigurdrykkurinn var
grænleitur Kermit-drykkur hans.
Græna línan var ráðandi á
kvöldi barþjóna, en margir kokk-
teilar voru blandaðir með græn-
leitu áfengi. „Þetta er tískan í
dag, en Hollendingar hafa verið
duglegir að framleiða líkjöra sem
hentar vel til kokkteil-blöndunar.
Liturinn setur skemmtilegan blæ
á drykkina," sagði Gunnar í sam-
tali við Morgunblaðið.
Árangur hans er enn athyglis-
verðari fyrir þá sök að hann hefur
ekki mörg ár að baki sem bar-
þjónn, útskrifaðist 1991 frá Hótel
og veitingaskólanum. Hann varð
í fimmta sæti í sömu keppni í fyrra
og hreppti gullið í ár.
Gunnar lærði til þjóns á Hótel
Sögu, en vinnur núna á Naustinu.
Auk þess er hann meðeigandi að
veitingastaðnum Pisa í Reykjavík.
„Það eru engar töfraformúlur til,
menn blanda kokkteila eftir eigin
hugdettum. Það eru þijár vikur
síðan ég datt niður á mína sam-
setningu. Kermit-kokkteillinn
samanstendur af fjórum áfengis-
tegundum, 1,5 cl af Bacardi-
rommi, 1,5 cl af Pisang Ambon,
1,5 cl af Curacao og 1,5 cl af
Creme de Banana Bols. Glasið er
síðan fyllt upp með 9 cl af Florid-
ana-appelsínusafa.“
Árangur Gunnars þýðir að hann
verður sendur ásamt tveimur öðr-
um á heimsmeistaramót barþjóna
1996, en mótið er haldið á'þriggja
ára fresti. í fyrra varð Bárður
Guðlaugsson heimsmeistari í
keppni í Vínarborg, en keppt var
í þremur flokkum. Bárður vann í
flokki þurra kokkteila. „Fólk á
öllum aldri pantar sér kokkteil á
íslandsmeist-
ari í kokkteil-
blöndun,
Gunnar Arnar
Hilmarsson
þjónn á Naust-
inu, með
drykkinn
Kermit, sem
reyndist sá
besti í keppni
barþjóna. Fyr-
ir framan
hann eru teg-
undirnar sem
notaðir voru í
kokkteilinn og
til hliðar
skrautlegar
kampavíns-
flöskur bars-
ins.
börum hérlendis. Léttvín hafa ver-
ið að ryðja sér til rúms í auknum
mæli og vín frá Chile hafa náð
nokkrum vinsældum undanfarið.
Mér fínnst gaman að fikta við
blöndun kokkteila og útbý oft eitt-
hvað sem mér dettur í hug. Ég lét
nokkra smakka Kermit-drykkinn
fyrir keppni og mönnum líkaði
hann vel og dómarar voru á sama
máli. Ég hitti því í mark í þetta
skiptið,“ sagði Gunnar.
CUPOLA
Glæsilegasta úrval matarstella á landinu
Kristalglös, hnífapör, gjafavörur.
Brúðhjónalistar og gjafakort.
Nýjar hársnyrtivörur frá
JHERI REDDING®
VOLUMIZEIT
Gefur hárinu lyftingu og gljáa
Suiiiarlíiiiiim
hjá okkur er frá
átta til fjögur
Vorið er komið og sumarið nálgast óðurn.
Hjá SJÓVÁ-ALMENNUM og
Tjónaskoðunarstöðinni skiptum við yfir í
sumarafgreiðslutíma, sem er frá
klukkan átta til fjögur. Sumartíminn gildir
frá 1. maí til 15. september.
SJOVAaeiALMENNAR
Kringlunni 5
Draghálsi 14-16