Morgunblaðið - 10.07.1994, Side 1
72 SÍÐUR B/C
154. TBL. 82. ÁRG.
SUNNUDAGUR 10. JÚLÍ 1994 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Kim Il-sung, leiðtogi Norður-Kóreu, látinn
Herir Norður- og Suður-
Kóreu í viðbragðsstöðu
Seoul, Tókýó, Genf. Reuter.
KIM Il-sung, leiðtogi Norður-Kóreu,
lést af völdum hjartaáfalls aðfara-
nótt föstudags. (Klukkan 17.00 á
fimmtudag að íslenskum tíma).
Forseti Suður-Kóreu, Kim Young-
sam, fyrirskipaði að her sunnan-
manna skyldi hafður í viðbragðs-
stöðu, og her norðanmanna mun
hafa fengið samskonar fyrirskipan- ~—tt
ir. Kim var 82 ára gamall, og hafði im
verið leiðtogi Norður-Kóreu allt frá því rík-
ið var stofnað árið 1948. Viðræðum Norður-
Kóreu og Bandaríkjanna um kjarnorkuá-
ætlun þeirra fyrrnefndu var frestað í Genf
í gær. Leiðtogar sjö helstu iðnríkja heims,
sem funda nú í Napólí, lýstu yfír samúð
sinni við norður-kóreönsku þjóðina, en ít-
rekuðu nauðsyn þess að viðræðunum um
kjarnorkuáætlunina yrði haldið áfram.
Viðbrögð fólks í Norður-Kóreu hafa ein-
kennst af mikilli geðshræringu, að
sögn fréttamanns pólsku fréttastof-
unnar PAP. „Fólk sem reyndi að
fara í búðir sagði það tilgangslaust
vegna þess að starfsfólk þar gerði
ekkert nema gráta.“ Lýst hefur
verið yfir níu daga þjóðarsorg í
Norður-Kóreu.
Hersveitum bæði norðan og
i-sung sunnan landamæra ríkjanna
tveggja á Kóreuskaga hefur verið fyrirskip-
að að vera í viðbragðsstöðu. Suður-Kóre-
anskir hermenn sem voru í leyfi hafa feng-
ið tilskipanir um að mæta til búða sinna.
Kim Yong-il, 52 ára gamall sonur Kims
Il-sungs, hefur lengi verið talinn væntanleg-
ur arftaki föður síns í leiðtogaembætti, en
hann er lítt þekktur. Segja fréttaskýrendur
að allt bendi til þess að sonurinn taki nú
við. Útvarpið í Pyongyang hefði hrósað
honum og kallað hann hinn „kæra leið-
toga.“ Auk þess hefði Yong-il verið skipað-
ur formaður útfararnefndarinnar, og litu
fréttaskýrendur í Seoul á það sem sterka
vísbendingu um að hann verði næsti leið-
togi.
Engir útlendingar
viðstaddir jarðarförina
Jarðarför Kims Il-sungs mun fara fram
í Pyongyang 17. júlí. Engum erlendum
gestum verður leyft að koma til jarðarfarar-
innar, og hefur það vakið grunsemdir með-
al þeirra sem fylgst hafa náið með fram-
vindu mála í Norður-Kóreu, um að ef til
vill séu fréttir um hjartaáfall leiðtogans
fyrrverandi ekki með öllu áreiðanlegar.
Ekki sé hægt að útiloka þann möguleika
að valdabarátta hafi í raun verið orsök
dauða Kims.
Á fögrum sumardegi
Morgunblaðið/Sverrir
1400 farast
í flóðum
GÍFURLEG flóð í suðurhluta Kína
hafa orðið að minnsta kosti 1.410
manns að fjörtjóni síðan í mai, og
valdið fjárhagsskaða sem nemur rúm-
lega 420 milljörðum íslenskra króna.
Málgagn kínversku stjórnarinnar
greindi frá þessu í gær. Mikið hvass-
viðri og flóð hafa eyðilagt um 1,2
milljónir heimila og valdið annarri
óáran fyrir um 85 milljónir manna í
sex héruðum, að sögn málgagnsins.
Undir lok júnímánuðar hafði flætt yfir
rúmlega fimm milljón hektara rækta-
lands.
Ilundar og kettir
til leigu í Japan
EIGANDI gæludýrabúðar í Japan, sem
var orðinn þreyttur á því að fólk starði
á dýrin í gluggum búðarinnar en kom
aldrei inn, hefur komið á fót gælu-
dýraleigu. Frú Chieme Sawabe leigir
út hunda og ketti, klukkutíma í senn
og greiðir fólk fyrir dýrin eftir stærð.
Þau stærstu fara á um 1.300 kr. á
klst., miðlungsstór á 1.000 kr. og þau
minnstu á 700 kr. Segist frú Sawabe
með þessu getað komið til móts við
fólk sem búi svo þröngt að vart sé rúm
fyrir alla fjölskylduna, hvað þá gælu-
dýr. Fjölda fólks hafi langað í gæludýr
og komið í búðina til að skoða þau,
en ekki getað fengið sér dýr vegna
plássleysis eða vegna þess að bannað
er að vera með dýr í mörgum íbúðar-
húsum. A meðan hundarnir seljast
ekki, þýðir útleigan að þeir fá hreyf-
ingu, frú Sawabe græðir og hunda-
aðdáendur fá nokkuð fyrir sinn snúð.
Enginn hefur hins vegar leigt sér kött
og allir hundarnir hafa skilað sér úr
leigunni, enda Japanir löghlýðnir með
eindæmum.
Reykingar
leyfðar í bíó
REYKINGAMENN, sem líka hafa
gaman af því að fara í bíó, geta nú
leyft sér að njóta beggja í senn. „Ci-
nema Fumee“ heitir staður sem verður
opnaður í suðurhluta London í næsta
mánuði, og er hugarsmíð Cardins
Tafts, kvikmyndaframleiðanda sem
ekki reykir, en vill að „fólk komi til
þess að njóta alls í einu.“ Matur, drykk-
ur og reykingar, allt verður leyfilegt
í þessu bíói. Taft er að sögn orðinn
leiður á fjölsalabíóum, því þau séu
geld og andrúmsloftið þar ómögulegt
til þess að horfa á kvikmyndir.
Áldamóta-
ríkið ísland
10
ÚRFÓRUM
FRJEBI
MANNA
VIDSKIPTI
ATVINNULÍF
Reyk-
ofn í súr-
heysturni
18
MEÐ FLUGIÐ
í BLÓÐINU
B