Morgunblaðið - 10.07.1994, Síða 34

Morgunblaðið - 10.07.1994, Síða 34
34 SUNNUDAGUR 10. JÚLÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM Leikur í Rómeó og Júlíu MARTEINN Arnar Marteinsson hefur nýlokið námi frá Guildford- leiklistarskólanum í London og hefur verið boðið að leika í sér- stakri uppfærslu á Rómeó og Júlíu. „Búlgarskur leikstjóri hringdi í mig,“ segir Marteinn, „sem mér skilst að sé einn af fremstu leikstjórum landsins og reyndar fræg poppstjarna líka, og bauð mér hlutverk prestsins í Rómeó og Júlíu.“ Leikstjórinn hafði séð lokaverkefni skólans þar sem Marteinn lék prinsinn Sidd- harta og eftir það hringdi hann í Dag. Þessi uppfærsla á leikritinu um Rómeó og Júlíu á að gerast í Serbíu og þau eiga að koma frá sitthvorri þjóðinni. „Ég verð væntanlega Vestur-Evrópu mað- urinn sem reynir að friða hinar stríðandi þjóðir með þeim afleið- ingum að þær deyja báðar. Ástir þeirra eru tákn um þann kærleik sem bindur mennina saman. Sagt er að Shakespeare hafí séð sig í hlutverki prestsins.“ Marteinn segir að það sé gaman að fá tækifæri til að leika í Shakespeare uppfærslu í Englandi: „Sjaldgæft er að útlend- ingar fái slík hlutverk, þar sem strangar kröfur eru gerðar um afbragðs enskukunnáttu." Mar- teinn fékk mjög góða dóma í Surrey Advert- iser fyrir hlutverk sitt í leikritinu „Þá kyssti hann mig“ eftir Philip Goulding. Hann segir að það sé alltaf gaman að fá um sig góða og rétt- mæta gagnrýni, einkum ef hún sé uppbyggileg. Þegar hann er spurður hvort hann ætli að reyna frekar fyriv sér í Eng- landi svarar hann: „Eg er íslendingur og er bú- inn að eyða þremur árum í að læra um breska kónga, breska sögu og breskar bókmenntir. Nú MARTEINN Arnar Marteinsson bregður á leik í London. þrái ég upprunann og vildi gjamr an fá tældfæri til að leika í ís- lensku leikhúsi." Leikkonan vinsæla Emma Thompson. Emma Thomp- son útskrifaðist úr gamanháskóla ►LEIKKONAN Emma Thomp- son útskrifaðist úr Cambridge- háskóla og þykir vera afbragðs gamanleikari, eins og sannaðist meðal annars í kvikmyndinni Ys og þys út af engu (Much Ado About Nothing). Hún er ekki eini gamanleikarinn sem hefur útskrifast þaðan. Monty-Python hópurinn kemur líka úr Cam- bridge-háskóla og Stephen Fry ■, og Hugh Laurie sem iéku í þáttunum um Jeeves og Wooster og gamanmyndinni Vinir Péturs (Peter’s friends). Þetta er því sannkallaður gaman-háskóli. Hún segist hafa leikið í einu leik- riti „Travesties“ eftir Tom Stoppard þegar hún var í skól- anum. Hún var í hlutverki Gwendolen og hlaut góðar und- irtektir, en þar reynir mikið á fjörlega túlkun leikarans. Fáir vita að í kvikmyndunum Ys og þys út af engu og Vinir Péturs lék móðir Emmu, Phyllida Law. „Hún er leikari af gamla skólanum," segir Emma, „sem bjóst aldrei við að leika annað heldur en Shake- speare. Þegar hún var ung hlökkuðu líka allar konur til fertugsaldursins. Það er annað en í dag þegar konur líta á fer- tugsaldurinn sem fallöxi." Hálskirtlarnir féllu ekki í kramið NOKKRIR ljósmyndaranna sem eiga verk á sýningunni í New York. Börk- ur Amarson er lengst til vinstri og Svanur Kristbergsson þriðji frá vinstri. MTV-kvik- myndaverð- launin afhent Wayne og Garth um B|örk þegar þeir völdu hana sem eina af TOP TEN MUCICAL BABES: „Strangely-monickered lcelandic babe in toyland. I'm sorry she's just not human. She's either an alien or an animatronic puppet created by Jim Henson's Creature Workshop. Garth says he'd like to Bjork her. I assume it was a suggestive reference to sexual intercourse." BÖRKUR Arnarson ljós- myndari og Svanur Krist- bergsson skáld eru fulltrúar íslands á ljósmyndasýningu frá Norðurlöndum sem opnuð var nýverið í salarkynnum alþjóðlegu ljósmyndastofnun- arinnar „ICP“ í New York. Sýningin nefnist „Stranger Than Paradise“ og er ætlað að kynna hvernig ungir lista- menn í þessum löndum hag- nýta sér ljósmyndatæknina í verkum sínum. Stephen Henry Madoff, ritstjóri tíma- ritsins Art News, valdi verkin. Börkur og Svanur vinna verkin í sameiningu og notast við ljósmyndir, hluti og texta. Þeir hafa áður haldið sýning- ar í Reykjavík og Póllandi. „Við eigum þarna tvö verk,“ segir Börkur. „Við köllum þau Sár 1 og 2. Þriðja verkið var einhverra hluta vegna ekki sett upp. Kannski hefur þeim mislíkað að það voru hálskirtl- arnir úr mér.“ Ljósmyndar- arnir sem eiga myndir á sýn- ingunni eru um tuttugu tals- ins og flestir ungir að árum. Alþjóðlega ljósmynda- stofnunin sem þykir ein helsta miðstöð ljósmyndunar í Bandaríkjunum, hvort sem um er að ræða sýningar eða fræðslu, stendur fyrir henni í samvinnu við „American- Seandinavic Foundation". Börkur neitar því ekki að það sé heiður að sýna á stað sem þessum: „New York er auðvit- að miðja listaheimsins í dag og okkur er sagt að flöldi gesta á sýningunni gæti orðið 15-20.000 manns. Það er jj ekki svo lít- ið.“ ÞAÐ VAR mikið um dýrðir þegar MTV-kvik- myndaverðlaunin fyrir árið 1994 voru afhent. Meðal verðlaunahafa má nefna Robin Williams sem hlaut verðlaun fyrir bestan gamanleik og Aliciu Silverstone sem hlaut verðlaun fyrir bestu frumraunina. Verðlaunin féllu þó í skuggann á ærslalátum Holly wood-stjamanna um kvöldið. Dennis Rodman spurði Tom Arn- old hvort hann fengi stefnumót við Roseanne og Elle MacPherson talaði um einka- líf sitt: „Ég er ekki trúlofuð, ég er ógift og eftir kvöldið í kvöld er eins víst að ég verði ekki á föstu“. Chris Isa- ak fór úr skyrt- unni og stillti sér upp við hliðina á lifandi og bronslitaðri eftirmynd Öskarsverðlaunastyttunnar, eftir að Bon Jovi hafði veðjað 300 dollur- um eða 21.000 ísl. krónum um að hann þyrði það ekki. Spuming hvort ekki hefði þurft að bjóða Amold Schwarzen- egger á svæðið til að passa upp á liðið. Alicia Silvers- tone knúsar verðlaunin sem hún fékk. Hér sjást Courtney Love og Michael Stripe í verslunarleið- angri fyrir hátíðina. Mark- viss gítar- leikari ►HLJÓMSVEIT- IN Pavement spilað með Sonic Youth á tónleikaferð um Evrópu fyrir tveimur árum. „Á hverju kvöldi kom Steven mér á óvart,“ segir Lee Ran- aldo gítarleik- ari Sonic Yoth. „Spilamennska hans er látlaus og lagviss, en samt virðast hljómarnir sem hann nær úr gít- arnum hjá sér alltaf hitta í mark.“ FOLK

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.