Morgunblaðið - 10.07.1994, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 10.07.1994, Blaðsíða 8
8 SUNNUDAGUR 10. JÚLÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Gjörið svo vel, nú ætlar hans hágöfgi, Karl Bretaprins, að sýna ykkur að hann er bara ósköp venjulegur maður . . . HORFT yfir land bókagerðarmanna þar sem á að leg-gja nýjan átján holu golfvöll. Land bóka- gerðarmanna undir átján holu golfvöll FYRIRHUGAÐ er að byggja átján holu golfvöll á landi Fé- lags bókagerðarmanna í Miðdal innan við Laugarvatn rétt við sumarbústaðabyggð félags- manna. Það er golfklúbbur Dalbúa, sem mun gera golfvöll- inn og reka hann en samningur milli félagsins og golfklúbbsins var undirritaður í gær. Fram- kvæmdir eru þegar hafnar við níu holu golfvöli en Dalbúar fjármagna framkvæmdina að sögn Sæmundar Árnasonar for- manns Féiags bókagerðar- manna. Félagið leggur til landið og aðstöðu til reksturs. GolfvöIIur- inn verður engin einkaparadís bókagerðarmanna að sögn Sæ- mundar heldur munu þeir fá afslátt á völlinn og njóta þess að hafa átján holu golfvöll í næsta nágrenni við sumarbú- staðina. Að öðru leyti verður golfvöllurinn rekinn eins og venjulegur völlur og opinn öll- um. Sömdu óperu við ævintýri Jónasar Hallgrímssonar Hlutar óperunnar voru fluttir í Rúmeníu við góðan orðstír FINNUR Torfi Stef- ánsson tónskáld og Sveinbjörn I. Bald- vinsson rithöfundur sömdu fyrir Listahá- tíð Hafnarfjarðar 1993 óperuna „Leggur og skel“ byggða á ævintýri Jónasar Hallgríms- sonar. Vegna kostn- aðar var ekki hægt að setja hana upp á listahátíðinni en Kammersveit Hafn- arfjarðar lék hluta úr henni á listahátíð í Rúmeníu í apríl síð- astliðnum. Viðtök- urnar voru mjög góðar að sögn Sverr- is Ólafssonar fram- kvæmdastjóra lista- hátíðarinnar. Listahátíðar- nefndin greiddi höf- undum óperunnar tvær milljónir fyrir hana og er hún því í eigu Hafnarfjarð- arbæjar. Finnur Torfí samdi tónlist- ina en Sveinbjörn textann og er hún skrifuð fyrir fáa söngvara og litla hljómsveit. „Þetta er mjög spennandi stykki. Kammersveit Hafnar- fjarðar flutti hluta úr óperunni á tónlistarhátíð í Rúmeníu við gríðarlega fínan orðstír og ég meira að segja heyrði mikið um hana talað á tónlistarhátíð á Spáni núna nýlega," sagði Sverr- ir Ólafsson í samtali við Morgun- blaðið. „Þessi ópera var samin fyrir listahátíð 1993. Finnur Torfi er gestalistamaður í listam- iðstöðinni Straumi og þar af leið- andi var þetta kannski að hluta til afrakstur vinnu hans hér,“ sagði hann. Leikföng lítils drengs Finnur Torfi Stefánsson segir að óperan sé byggð á ævintýri Jónasar Hallgrímssonar, sem var samið í anda H. C. Andersens. Aðalpersónurnar eru leikföng í eigu lítils drengs, leggur og skel. Leggurinn verður hrifinn að skelinni, sem fínnst hann þó ekki. nógu góður fyrir sig. Svo skilja leiðir þegar skelin fer fýrir óheppni á öskuhauga á meðan leggurinn kemst til æðri metorða. Þegar leggurinn lendir svo einnig fyrir óheppni á ösku- haugunum og hittir skelina stendur hann frammi fyrir erfiðu vali; á hann að vera eftir hjá skelinni, sem hann elskar, eða fara aftur í virð- ingarstöðuna við fyrsta tækifæri. Finnur segir þetta vera harm- þrungið drama með spaugilegu ívafi og eru leikföngin tákn fyrir menn. Hann segir óperuna end- urspegla nútímann. Fjórir söngvarar taka þátt í sýning- unni en þeir bregða sér í ýmis hlutverk og leikur tólf manna kammersveit undir. Finnur segist hafa tekið nokkra búta úr óperunni og sett saman í svítu fyrir Kammersveit Hafn- arfjarðar til að spila S Rúmeníu og gefí svítan góða hug- mynd um tónlistina í óperunni. Hún sé nútímaleg án þess þó að vera óað- gengileg. Hann á von á því að óperan verði tekin til sýn- ingar næsta sumar. Varð að skera niður „Við höfum verið að reyna að koma sem flestum listamönnum hér fyrir og þetta var náttúrlega alveg kjörið tækifæri til að láta hann skrifa þetta verk, kannski vegna þess að stefnan hjá Lista- hátíð Hafnarfjarðar hefur verið sú að taka ákveðinn hlut af áætluðum kostnaði í að semja ný verk af öllu tagi,“ sagði hann. Finnur Torfi og Sveinbjörn I. Baldvinsson fengu um tvær millj- ónir króna greiddar fyrir óperuna „Legg og skel“ að sögn Gunnars Gunnarssonar, formanns stjórn- ar listahátíðarinnar. „Þetta verk á Hafnarfjarðarbær. Því miður þegar við fórum að leggja þetta dæmi niður fyrir okkur þá sáum við að það hefði orðið svo dýrt að setja óperuna upp að við treystum okkur ekki í það. Við urðum að skera niður og sáum þann kostinn vænstan að skera þarna,“ sagði Gunnar. Hann vonar að hægt verði að setja hana upp hvort sem um verði að ræða leikræna uppsetn- ingu eða konsertuppfærslu. Finnur Torfi Stefánsson Sveinbjörn I. Baldvinsson 18 punda úr EUiðaánum „ÞAÐ VAR kannski mest gaman að því að fá svona stóran fisk í Elliðaánum, ég hef að mestu stundað stórfískaárnar Sogið og Stóru-Laxá, en aldrei fengið stærri lax en 15 punda. Svo þegar maður setur í þann stóra þá er það í Ell- iðaánum, sem eru ekki beinlínis þekktar fyrir stóra fiska,“ sagði Hákon E. Guðmundsson, sem veiddi 18 punda hæng í Efri-Kistu í Elliðaánum síðdegis á föstudag. Svo stórir laxar eru fátíðir í Elliða- ánum. Laxinn veiddi Hákon á Blue Charm míkrótúbu númer 12 með taum að 0,30 sverleika. „Þetta var allt í nettari kantinum og því var þetta mjög spennandi, því laxinn lét illa, strikaði mikið og stökk nokkrum sinnum. Þetta var hörkufiskur og það tók mig þijú kortér að ná honum. Það er svo sem ekki langur tími miðað við stærð laxins og bún- aðinn, en hann hefur slitið sér út við hamaganginn,“ sagði Hákon.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.