Morgunblaðið - 10.07.1994, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 10.07.1994, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. JÚLÍ1994 25 MINIMINGAR ASDIS SIGRUN FINNBOGADÓTTIR +Ásdís fæddist á Krofstöðum í Skálavík í Hóls- hreppi 6. apríl 1921. Hún lést á Borgarspítalanum 3. júli síðastliðinn. Hún var dóttir hjónanna Margrét- ar Sigmundsdóttur og Finnboga Sig- urðssonar. Systkini hennar voru Jó- hanna (látin), Sig- urrós (látin), Stef- ania, húsmóðir i Miðhúsum, Herdís (látin), Elías bifreiðastjóri í Grundarfirði, og Sigurður (lát- inn). Ásdís ólst upp frá þriggja ára aldri hjá Ólafi Ólafssyni og Dagbjörtu Kristjánsdóttur í Skálavik í Mjóafirði. Hinn 2. desember 1944 giftist hún Jóni Jakobssyni og bjuggu þau fyrst í Miðhúsum, þá í Skálavík, en frá árinu 1953 í Hörgshlíð. Börn Ásdísar eru: Heiðrún, bóndi í Svansvík, gift Krisljáni Péturssyni, Dagbjört Kristjana, búsett á Seyðisfirði, gift Páli Ágústssyni, Jakob Þorgeir, bú- settur á ísafirði, kvæntur Ingi- björgu Karlsdóttur, Margrét Þórdís, búsett á ísafirði, gift Kristni Njálssyni og Finnbogi Sigurður, bóndi í Hörgshlíð. Fósturdætur Hörgshliðarhjón- anna eru þær Gerður Elíasdótt- ir, systurdóttir Jóns, býr á Isafirði, ekkja Inga Hermanns- sonar, og Magnea Karlsdóttir, búsett í Hveragerði, gift Hall- dóri Jónssyni. Ásdís verður jarðsungin frá Vatnsfjarðar- kirkju á morgun. í vetur. Þessi vetur varð að fleiri vetnim og sumrum og Ólafur í Skálavík hélt áfram að gefa telpunum að borða. Það var þeim huggun að vera þó ekki aldar upp á sveit. En uppeldi sitt greiddu þær með vinnu sinni margfaldlega, því allir algengri vinnu vöndust þær fljótt. Æskuárin liðu við störf og leik. í Skálavík var alltaf fjöl- mennt og þar ólust upp fleiri böm en þær syst- ur og mörg gamalmenni áttu þar sín síðustu æviár, en allir þurftu að vinna og vinna mikið. Svona var nú lífið i þá daga. Engu að síður var margra ánægjustunda oft minnst og margt var brallað í glöð- um leik, þá eins og nú. Þær systur voru að vonum mjög samrýndar og alla ævina bjuggu þær svo gott sem hlið við hlið, húsmaeður í sömu sveit. Þær giftu sig báðar í Skálavík 2. desember 1944 og tvisvar fermdu þær samtímis. Enginn var heldur meiri aufúsu- gestur í Miðhúsum en Ásta frænka, þegar hún var í heimsókn var hátíð í bæ. Það var gaman að heyra á tal þeirra systra, því margar voru sameiginlegu minningamar. Heimili þeirra Hörgshlíðarhjón- anna var annálað myndar- og rausnarheimili. Þar var lengst af fjallskilarétt og víst er að gangna- menn muna móttökumar í Hörgs- hlíð. Það er lýsandi fyrir Ástu að þegar Heiðrún dóttir hennar settist að í Svansvík þá bað Ásta hana að minnast þess að taka alltaf vel á móti leitarmönnunum. í Hörgshlíð áttu skjól sín síðustu æviár Þorgerð- ur móðir Jóns, Þórarinn Einarsson og seinna dóttir Þórarins, Elín, sem nú dvelur á Elliheimilinu á ísafirði. Ástu var sérlega lagið að hlynna að og hjúkra þeim er á þurftu að halda. Óhætt er að fuliyrða að öll þau böm og unglingar sem áttu sumardvöl í Hörgshlíð minnast mætra hjóna, hlýju og natni sem gætt var í hvívetna. Ekki hefur víða verið jafn gest- kvæmt og í Hörgshlíð og allir þáðu þar góðan beina. Myndarskapur húsfreyjunnar og gestrisni þeirra hjóna var einstök. Létt lund og bjartsýni voru hennar einkenni og alltaf var hún tilbúin að miðla öðr- um. Á þessari kveðjustund er okkur efst í huga þakklæti til okkar ást- kæm frænku, allar samvemstund- irnar með henni em perlur í sjóði minninganna. Guð blessi minningu hennar og styrki í sorg aldraða fósturmóður, systkini, böm, bamaböm og aðra ástvini. Systurnar frá Miðhúsum. t Frænka okkar, JÓNA KR. JÓNSDÓTTiR, fyrrverandi kennari, MiStúni 52, Reykjavík, lést í Hrafnistu aðfaranótt 8. júlí. Elfn Marfa og Þórdfs Jóna Siguröardætur. t Konan mín, SVAVA EYVINDSDÓTTIR, Suöurengi 28, Selfossi, lést í Landspítalanum þann 8. júlí sl. Böðvar Stefánsson. t Bróðir okkar, ÓMAR HREINN MAGNÚSSON, Fálkagötu 20B, varð bráðkvaddur á heimili sínu 5. júlí. Jarðarför auglýst síðar. Systkini hins látna. D03 LEGSTEINAR MOSAIK H.F. Hamarshöfða 4 — slmi 681960 HJARTKÆR móðursystir hefur flutt heim. Eftir sitjum við enn um sinn og rifjum upp liðnar stundir. Árið 1924 er fátt til ráða hjá fátæku bamafólki þegar veikindi sækja það heim. Þeirra eina fast- eign er heilsan og þegar hún brást, blasti það eitt við að leita aðstoðar sveitarstjóma. Ekki hefur þótt væn- legt að láta alla ljölskylduna sigla á sveitina og reynt var að ráða fram úr þannig að sem minnstur kostnað- ur hlytist af. Börnunum fimm var komið fyrir þar sem hægt var. Sig- urrós fer til ömmu sinnar, Rósu, þau Herdís og Eiías til föðurbróður síns, Guðbjarts, en þær Ásdís og Stefanía til Oiafs Ólafssonar í Skálavík, sem sagði sem svo að hann skyldi gefa telpunum að borða + Ástkær eiginkona mín, GUÐRÚN Ó. Þ. BJARNADÓTTIR JOHNSON ZOÉGA, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 13. júlí kl. 10.30. Helgi H. Zoéga og fjölskylda. ttt Krossar á leiöi I viöarlit andi r ogm nstur, Mismunandi mym Isimi 9I-35M9 oq 35735 Blómastofa Friðfinns Suöurlandsbraut 10 108 Reykjavík. Simi 31099 Opið öll kvöld til kl. 22,- einnig um helgar. Skreytingar við öll tilefni. Gjafavörur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.