Morgunblaðið - 10.07.1994, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 10.07.1994, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. JÚLÍ 1994 31 I TILKYNNING TIL NOTENDA I Drengileg framkoma Tekið undir með Sveini Guðjónssyni Frá Ingunni Ríkharðsdóttur: Sveinn Guðjónsson skrifaði á dögunum grein þar sem hann gerði að umtalsefni mjög svo ámælis- verða framkomu ákveðins hóps stuðningsmanna ÍA á leik KR. Har- aldur Sturlaugsson skrifar á móti og reynir að leiða að því getum að skrif blaða um Guðjón Þórðarson séu ef til vill skýringin á þeim hróp- um og aðkasti sem hann og fjöl- skylda hans hefur orðið fyrir. Mikið væri það nú gott fyrir suma ef svo væri. Árásir og svívirðingar Ég þekki nefnilega aðra sögu sem er mjög svipuð þeirri sem nú hefur orðið að blaðaefni. Systir mín, borin og barnfædd á Akra- nesi, var einn heitasti stuðnings- maður ÍA á sínum tíma og hvatti þá áfram af sínum mikla raddstyrk sem hentaði Skagamönnum ágæt- lega þá. Síðan flytur hún burt, eign- ast sína fjölskyldu og er svo óhepp- in að sonur hennar leikur í 1. deild. Nú skyldi maður ætla að fólk geti sett sig í þau spor að auðvitað held- ur maður með sínu barni, fylgist með gengi þess liðs og hvetur það til dáða. En þannig er það ekki. Systir mín hefur orðið að þola stöð- ugar árásir og svívirðingar af hálfu (hluta) stuðningsmanna Skaga- manna fyrir það eitt að hvetja „sitt“ lið. Árásir sem aðallega hafa verið með hrópum og svívirðingum og í eitt skiptið gekk það svo langt að á hana voru lagðar hendur. Sonur hennar er baulaður niður ef hann meiðist ekki nógu mikið og svona væri lengi hægt að telja. Á einum leiknum stóð dóttir hennar upp og treysti sér ekki til að sitja undir þeim hrópum sem að fjölskyldu hennar voru gerð. Nú erum við ekki að tala um einhver handahófs- kennd orðaskipti á milli stuðnings- manna liða. Hér er um að ræða skipulagt aðkast að „gömlum“ Skagamanni sem er orðinn of há- vær og fyrirferðamikill af því að hann kallar á annað lið. Þess vegna held ég að tilraun Haraldar til að útskýra þá hegðun sem var upphaf- ið að þessum blaðaskrifum falli um sjálfa sig. Ég held, að það sem að er, sé að bæði Guðjón og systir mín, sem hafa verið atkvæðamikil fyrir Skagamenn utan vallar sem innan í gegnum árin, hafa nú söðl- að um og það er eitthvað sem ekki passar. Það læra börnin sem fyrir þeim er haft Alvarlegast finnst mér þó þegar fólk segir, hún/hann er nú enginn engill á vellinum og finnst jafnvel í lagi að koma svona fram við fólk. Skyldi þessu sama fólki finnast það ef það sjálft eða einhver úr þeirra fjölskyldu þyrfti að þola svona? Nei, ég held að þá komi annað hljóð í fólk. Annað er líka að á áhorf- endapöllum eru ungir áhorfendur sem eru fljótir að tileinka sér það sem fyrir þeim er haft og læra ef til vill að það sé allt í lagi að hegða sér svona. Það er rétt hjá Haraldi að það er erfitt að koma í veg fyrir að ein- hver slæðist yel slompaður inn á völlinn. Hins vegar held ég að Knattspyrnuráð Akraness ætti að beina þeim tilmælum til stuðnings- mannafélags síns að það sé ekki að smala fólki á krá til að „hita upp“ fyrir leik. Það er alveg sama hversu stóra sigi'a Skagamenn vinna úti á vellinum, þeir tapa allt- af á meðan hluti af áhangendum þeirra fær átölulaust að hegða sér eins og þeir eru farnir að gera. Markmiðið fyrir alla ætti að vera drengileg framkoma utan vallar sem innan. INGUNN RÍKHARÐSDÓTTÍR, Akranesi. Hinn 1. janúar 1995 verður núverandi Loran-C staðsetningarkerfi lagt niður Frá sama tíma verður GPS gervihnattakerfið aðalstaðsetningarkerfi við Island. Samtímis því að núverandi Loran-C kerfi verður iagt niður hefst rekstur nýs lorankerfis, svo kallaðs NELS kerfis. Hætt verður að senda út loranmerki frá stöðvunum á Gufuskálum og á Grænlandi. Búast má við að þetta nýja kerfi nýtist ekki við vestanvert landið. Athugið að breyta þarf Loran-C tækium svo að hægt sé að nota þau við NELS kerfið. Til að bæta þjónustu við notendur, sem þurfa meiri nákvæmni en GPS kerfið gefur, hefur samgönguráðuneytið staðið fyrir uppbyggingu á Ieiðréttingarkerfi sem gefur notendum 5 til 10 metra staðsetningarnákvæmni á hafsvæðinu umhverfis Island. Vita- og hafnarmálastofnun sér um rekstur leiðréttingarstöðva og eru fimm af sex þegar komnar í notkun og áætlað er að sú síðasta verði tilbúin fyrir áramót. Athygli notenda er vakin á því að mikill munur getur verið á staðsetningum eftir því í hvaða staðsetningarkerfi þær eru gerðar. Það er því ekki hægt að finna stað mældan í Loran-C kerfinu með GPS (eða NELS tækjum), Loranpunktasöfn verða því ónothæf. Unnið er að því að breyta Loran tölum í GPS tölur. Nánari upnlýsingar veitir Vita- oe hafnamálastofnun, sími 91-600000. Samgönguráðuneyti RÁÐUNEYTI FLUTNINGA, FJARSKIPTA OG FERÐAMÁLA Gagnasafn Morgunblaðsins Allt efni sem birtist í Morgun- blaðinu og Lesbók verður fram- vegis varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskil- ur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endur- birtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. RI01SIOGUR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.