Morgunblaðið - 10.07.1994, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 10.07.1994, Blaðsíða 40
40 SUNNUDAGUR 10. JÚLÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ + IÞROTTIR KNATTSPYRNA Brasilíski knattspyrnusnillingurinn Pele gagnrýnir Diego Armando Maradona harðlega Hegðun hans er óafsakanleg FRÆGASTI knattspyrnumaður sögunnar, Brasilíumaðurinn Pele, gagnrýndi framferði Diego Armando Maradona harkalega í síð- ustu viku. Við lyfjapróf á HM kom í Ijós að Maradona hafði not- að ólögleg lyf og ákvað argentínska sambandið íframhaldi af því að Maradona yrði ekki meira með og Alþjóða knattspyrnu- sambandið, FIFA, tekur málið ekki fyrir fyrr en eftir úrslitakeppn- ina. Pele segir framkomu knattspyrnustjörnunnar algjörlega óafsakanlega og honum til mikillar skammar. Ef Maradona væri 17 ára ungling- ur mætti hugsanlega fyrirgefa honum, en hann er að taka þátt í fjórðu Heimsmeistarakeppninni og hann á að vita að svona lagað getur hann ekki gert. Hann hefur enga afsökun," segir Pele, sem lék á sínum tíma fjórum sinnum í heimsmeistara- keppni eins og Maradona. Pele segir að tilraunir argentín- skra fjölmiðla til að fegra gjörðir Maradona dæmi sig sjálfar. Fjölmiðl- ar í Argentínu hafa látið að því liggja að FIFA og forseti þess, Brasilíumað- urinn Joao Havelange, hafi viljað hnekkja á Maradona og viljað hann út úr keppninni. „Þetta dæmir sig sjálft. Lögin eru til staðar og þau eru fyrir alla, ekki bara fyrir Argent- ínu. Það er sama hver hefði lent í þessu, viðkomandi hefði verið rekinn úr keppni. Þessar ásakanir eru ógeð- felldar og fáránlegar," segir Pele. „ „Það er dapurlegt til þess að vita “'áð Maradona skuli aldrei hafa íhugað þá ábyrgð sem fylgir því að vera besti knattspyrnumaður heims. Hann hefur aldrei getað nýtt sér hæfileika sína á knattspymuvellinum til góðs utan hans. Ég veit ekki hver ástæðan er. Ef til vill er það vegna fjölskyldu- aðstæðna hjá honum, eða þá trúar- legur bakgrunnur. Allir vilja gera eins og stjörnumar gera og þær eiga að vera fyrirmynd unglinga í heimin- um. Maradona hefði átt að læra af fyrri reynslu þegar hann var dæmdur í bann vegna neyslu kókaíns. Hann fékk tækifæri til að ná sér út úr ruglinu en hann klúðraði því. Þó hann sé núna orðinn of gamall til að vera knattsyrnuhetja er hann enn ungur og á allt lífið framundan. Með þetta hneyksli á bakinu verður lífið ekkert sældarbrauð," segir Pele. Pele er annars ánægður með fram- gang mála á HM og þá sérstaklega með framtíð knattspyrnunnar í Bandaríkjunum í huga, en hann lék með New York Cosmos á áttundaára- tugnum þegar tilraun var gerð til að gera knattspyrnu að vinsælli íþrótt þar vestra. „Ég held að heims- meistarakeppnin núna verði mikil lyftistöng fyrir knattspyrnuna í Bandaríkjunum og það kæmi mér ekki á óvart þó nokkuð margir leik- menn sem hér leika muni leika í deildinni hjá Bandaríkjamönnum á næsta ári. Ég er viss um að það verða nokkrir þekktir knattspyrnu- menn sem munu leika í deildinni, rétt eins og í Japan. Ég sé það núna, svona eftir á, að síðast þeger tilraun var gerð til að rífa knattspyrnuna upp í Bandaríkj- unum voru gerð nokkur mistök, en ég held að menn hafi lært af reynsl- unni og mér sýnist sem draumur minn um góða deild í Bandaríkjunum sé að verða að veruleika. Undirstaðan verður einnig tryggð því mjög mikill áhugi er á knattspyrnu meðal ung- viðsins í Bandaríkjunum. Knatt- spyrna á eftir að verða ein af stærstu íþróttunum hér en hún mun reyndar hvorki keppa við ameríska fótboltann né hafnaboltann. Heimsmeistarakeppnin hefur verið frábær hingað til og ég er viss um að mínir menn, Brasilíumenn, munu standa sig vel. Brasilía hefur góðan mannskap en hefur ekki leikið nógu vel ennþá. Liðið er of lengi að koma boltanum af miðjunni og til framlínu- mannanna. Sóknirnar eru ekki nógu hraða ennþá þrátt fyrir að leikmenn ráði yfir tækni til að leika mun hrað- ar og koma þannig í veg fyrir að mótheijinn geti skipulagt vöm sína,“ sagði Pele. Reuter Maradona Maradona hefur margoft sýnt að hann er besti knatt- spyrnumaður heims, en Pele segir hann ekki hafa náð að nýta sér það utan vallarins. Hann hafi ekki verið sú fyrir- mynd sem stjörnur verða að vera og hann telur að Mara- dona eiga erfitt líf fyrir hönd- um. Hér að ofan fagnar Maradona marki sínu gegn Grikkjum. Hér til hliðar sýnir hann snilli sína með knöttinn og á myndinni þar fyrir neðan er hann á æfingu ásamt Bati- stuta og Ruggeri. Á myndinni hér fyrir neðan er Maradona sem ungur maður ásamt Pele og Havelang, sem argentísk- ir fjölmiðlar saka um að standa að baki „ofsóknun- um“ gegn Maradona. « í I cí L I i i i i C

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.