Morgunblaðið - 10.07.1994, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 10.07.1994, Qupperneq 22
22 SUNNUDAGUR 10. JÚLÍ1994 STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI FRAMKVÆMDASTJÓRI RITSTJÓRAR Árvakur hf., Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð 691100: Auglýsingar: 691111. Askriftir 691122. SÍMBRÉF: Ritstjórn 691329, frétt- ir 691181, íþróttir 691156, sérblöð 691222, auglýsingar 691110, skrif- stofa 681811, gjaldkeri 691115. Áskriftargjald 1.400 kr. á mánuði innan- lands. í lausasölu 125 kr. eintakið. UTFLUTNINGUR A ÞEKKINGU IMORGUNBLAÐINU í gær var frá því skýrt, að starfsmenn Flugleiða hefðu um skeið unnið að stofnun flugfélags á Indlandi í samvinnu við indverskan auðjöf- ur. Hinn indverski aðili fjármagn- ar fyrirtækið en Flugleiðir leggja til alia þekkingu á sviði flug- rekstrar, viðhalds og stjórnunar. Að auki á fyrirtækið kost á að eignast fjórðung í hinu nýja flug- félagi. Hér er á ferðinni eitt dæmi af allmörgum um, að útflutningur á þekkingu er að verða umfangs- mikil útflutningsgrein hjá okkur íslendingum. Þótt mikil fátækt ríki á Indlandi er engu að síður mikil uppsveifla í efnahags- og atvinnuiífi þar. Pétur J. Eiríks- son, framkvæmdastjóri markaðs- sviðs Flugleiða, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að efnað- ir Indverjar væru álíka margir og íbúar Bretlandseyja. Margt bendir til þess, að hér sé á ferð- inni mikið tækifæri fyrir Flug- leiðamenn og þar með þjóðina alla. Hvers vegna leita Indverjar samstarfs við okkur íslendinga á þessu sviði? Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða, sagði í sam- tali við Morgunblaðið í gær, að ástæðurnar væru þær, að félagið hefði gott orð á sér í öryggismál- um, það væri einkarekið og nógu lítið til þess að vera sveigjanlegt og snart í snúningum. Vafalaust á hér líka hlut að máli sú stað- reynd, að við íslendingar erum slík smáþjóð, að engum dettur í hug, að við seilumst til óeðlilegra áhrifa á einu sviði eða öðru og það skiptir áreiðanlega máli fyrir þjóðir, sem eiga sér langa sögu, sem nýlendur evrópskra stór- velda. Flugleiðamenn eru að flytja út sína þekkingu á fíugrekstri til Indlands. Víða um heim starfa íslendingar að uppbyggingu og þróun sjávarútvegs ekki sízt hjá fátækum þjóðum, sem skortir þekkingu. Við erum þar að flytja út þekkingu okkar í sjávarútvegi. íslenzkar verkfræðistofur hafa að undanförnu í sívaxandi mæli leitað verkefna víða um heim, í Miðausturlöndum, í Kína, í Eystrasaltslöndunum og víðar. Þær eru að leitast við að flytja út þekkingu. íslenzkir sérfræð- ingar í jarðhita hafa komið við sögu í öðrum löndum í viðleitni til þess að hagnýta jarðhita. Þar höfum við sérþekkingu og um- talsverða reynslu. Einnig á því sviði erum við að flytja út þekk- ingu. Þannig mætti lengi telja. íslenzka þjóðin er í hópi hinna bezt menntuðu í heimi. Islenzkir námsmenn hafa stundað nám við fremstu háskóla hins vestræna heims og standa að því leyti jafn- fætis ungu fólki í öðrum löndum. Sú mikla þekking, sem hér er saman komin á mörgum sviðum, er augljóslega að verða verðmæt útflutningsvara. Þannig skilar sér sú mikla fjárfesting, sem við höf- um lagt í menntun þjóðarinnar og sumum hefur þótt nóg um. Reynsla okkar af útflutningi þekkingar er góð. Þessi útflutn- ingsstarfsemi hefur tekizt vel og skilað raunhæfum árangri. Er ekki orðið tímabært að vinna skipulegar að þessum útflutningi, en kannski hefur verið gert fram til þessa? í því sambandi má t.d. minna á, að við eigum stóran hóp af sérmenntuðu fólki á sviði heil- brigðisþjónustu, sem hefur góða menntun og starfsreynslu. Um allan heim er að finna þjóðir, sem búa við vanþróað heilbrigðiskerfi. Þarna kann að vera verk að vinna fyrir okkar sérfræðinga. Þarna kann að vera útflutningsmarkað- ur fyrir þekkingu okkar á þessu sviði, sem ástæða er til að gefa gaum. HELGI 60. ÉG RAKST EINN- ► ig á samtal eftir Valtý Stefánsson við Staun- ing forsætisráðherra Dana, • en ástæðulaust að staldra Splttll við það þótt fróðlegt sé að skoða samtöl Valtýs frá byrj- un, en á þessum tíma hafði hann einungis verið ritstjóri Morgunblaðsins í tvö ár. Ég sný mér fremur að viðtali við Einar Benediktsson, einnig frá þessu ári (1926), ný- kominn úr Bandaríkjaför þarsem hann hafði verið í sjö mánuði, einkum í New York, í erindagerðum fyrir Fossafé- lagið Titan. En það er annað efni en Titan sem dregur að sér athygli mína, það er þessi spuming og svarið við henni - og þeim sem á eftir koma: - Já, en við erum vopnlausir og hlutlausir, skaut jeg inní (orðræður um framtíð Grænlands og íslands). Vopnlausir - já, það erum við, sagði Einar, það veit sá sem alt veit, en við erum líka fyrsta þjóðin, sem vopn- laus hefír fengið algert (leturbr. M.J.) sjálfstæði, svo engin reynsla er fyrir hvemig slíku reiðir af. - Og hvað um hlutleysið? Danir sendu út tilkynningu um hlutleysi vort hjer á ámnum. Þeir sem mest höfðu við okkur munu hafa svarað henni. Mjer er ókunnugt um hvort svar hef- ir komið frá þeim, sem mest lá á, að svöraðu, hvort þeir viðurkendu .að þannig skyldi það vera. Við höfðum skákað í því skjólinu, að við væram svo lítilfjörlegir að engir vissu um okkur, tæki eftir okkar. En hve lengi helst það? Heimurinn er farinn að taka eftir okkur. Eða hvað um Englendinga? Skyldi það eigi liggja ærið beint við að þeir taki eftir okkur, hjema und- ir handaijaðrinum á sjer? Englendingar þurfa mat. Þeir framleiða aðeins 2/5 af nauðsynlegum matvælaforða handa sjer. Þeir hafa haft aðdrætti frá fjarlægum löndum, frá blökkumönnum og alskonar lýð. Nú era þessar þjóðir að gera uppreisn, lyfta af sjer okinu, heimta frelsi. Þær vilja ekki fæða Bretann upp á sömu skilmála og áður. Hve mikið gætu Englendingar fengið hjer af mat? - Og fossamir hjerna gætu létt undir með vinnulýðnum. - En til þess að Englendingar gætu fengið hjer lífsnauð- synjar svo um munaði, þyrfti fólk að flytjast hingað frá útlöndum. - Vitanlega. En hvi skyldum við spoma við fólki sem hingað hefði erindi, hjer gæti unnið og auðgað land og þjóð. Það væri hið sama og hindra líf í blóðlausan líkama. - En hvemig fer þá með þjóðemið og tunguna? - Hjer kemur fram þessi alkunni og almenni misskiln- ingur um vemdun tungunnar. Fram að þessu hefír íslensk- an varðveist á tungu alþýðunnar. Slíkt er ómögulegt nema í einangrun og fámenni. Varðveisla tungunnar er með því einu móti framkvæmanleg, að þjóðin verði svo efnum búin, að hún geti eignast ágætar mentastofnanir, háskóla, sem hefír bestu mönnum á að skipa, mentastofn- un, sem best verður allra í norrænum fræðum. Þannig hugsuðu fyrstu forgöngumennimir til háskóla vors. Fyrir þeim vakti það, að gera hann að miðstöð norrænna fræða. Læknaskóli, lagaskóli o.þvíuml. átti að vera aukaatriði við þá stofnun. Þjóðin getur eigi borið slíkar stofnanir nema fólkinu ijölgi að mun. En vemdun tungunnar á vöram alþýðu er ómöguleg er fram líða stundir. Hámenningin ein get- ur varðveitt tunguna (leturbr. M.J.). Þá var best mál rit- að og talað í Tyrklandi er aðeins 7. hver maður í landinu var Tyrki.“ KANNSKI ERU þessi orð dálítið íhugunarefni vl X #nú um stundir. Þjóðskáld geta stundum haft meiri tilfínningu fyrir umhverfí sínu en annað fólk en þau era ekki á hveijum degi í Bréfí til blaðsins! En ef þetta er rétt hjá skáldinu væri ástæða til að greiða há- skólakennuram bankastjóralaun í staðinn fýrir þau tra- bantlaun sem stungið er uppí þá einsog hverri annarri dúsu við hver mánaðamót. Það er dýrt að vera íslending- ur, sagði nóbelsskáldið, og við eigum að greiða vel fyrir þau forréttindi. [í Rhodymenia Palmata, sem nefnt var í síðasta þætti, segir Halldór Laxness: VII. (Framhald) Höfum við elskast? Hvað hefur gerst? Skildirðu mig? Skilja, það er verst. Únga mær, þú er annað en ég. Sál þín er mér alskostar annarleg. Líkami þínn var aldrei líkami minn. Út verð ég borinn. Þú ferð aftur inn. Þú ert sá sem geinginn grætur góðvin sinn. Hann er farinn farinn farinn. Þú fínnur hann aldrei meir. Þú ert einsog öspin, - eg var sunnanþeyr: döggvuð titrar króna þín í kvöld þegar hann deyr. VIII. (Niðurlag næst) Hver kældi heitt og heitti kalt þá haugeldurinn brann? Guð er sá sem einn er alt og einginn blekkir hann. Við skulum kveðjast vina mín - vertu nú hraust að ári verður það altof seint. Óðar er haust. IX. (Ennniðurlag) Tveir eram vér leitendur og Iifendur hans, grímubúnir guðir í gervi konu og manns; báðir þrá hið Eina; bágt eiga þeir. Báðir era blekkíng. Tvisvar tveir era tveir. Einn hnípir eftir þegar annar deyr. Ég kasta á yður kveðju, hvoragt eram við til. Drottinn er hið Eina og hið eina sem ég skil. Ásýnd guðs á himnum er alt sem ég vil.] M (meira næsta sunnudag) MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. JÚLÍ 1994 23 REYKJAVÍKURBRÉF Laugardagur 9. júlí ENDURSKrPULAGNING Sainsi' pa hf. með nýrri eigr.araðild, sem gengið var frá í gær, föstudag, er mikilvæg tíðindi á íslenzkum flutninga- markaði. Með henni er tryggt, að samkeppni ríki áfram í sjóflutningum á milli íslands og annarra landa. Það hefur mikla þýðingu fyrir íslenzkt atvinnu- og viðskiptalíf, svo og fyrir Eimskipafélag íslands hf., sem hefði komizt í óþolandi aðstöðu gagnvart umhverfí sínu hér heima fyrir, ef félagið hefði settö að mestu eitt að sjóflutningum til og frá íslandi. Þá er það einnig mikils- vert fyrir Landsbanka íslands, sem hefur verið aðaleigandi Samskipa hf. í nokkur misseri, að losna úr þeirri stöðu, sem vissu-, lega hefur verið óþægileg gagnvart einum stærsta viðskiptavini bankans, þ.e. Eim- skip. Með þeirri breytingu, sem orðin er á eignaraðild að Samskipum hf., er þetta fyrrverandi Sambandsfyrirtæki komið í eigu nokkurra einkafyrirtækja, íslenzkra og eins erlends, en sum þessara fyrirtækja voru hluti af Sambandshópnum á meðan hann var og hét. Einn hinna nýju eigenda hafði á orði við undirskrift samninga, að með þessum breytingum mætti segja, að pólitískir múrar í viðskiptalífinu, sem löng- um hefðu aðskilið Sambandsfýrirtæki og einkaframtak, væru fallnir og það er nokk- uð til í því. Þegar horft er til baka telst það senni- lega nokkurt afrek, hvernig Landsbankan- um hefur tekizt að komast út úr viðskipt- um sínum við Samband ísl. samvinnufé- laga, sem fyrir nokkrum árum var einn stærsti viðskiptaaðili bankans. Sjálfsagt liggur ekki enn fyrir, hvert heildartap bankans verður á viðskiptunum við SÍS en líklega hefur bankanum tekizt að lág- marka það tap mjög. Það hefur verið umdeild aðferð hjá bankanum, að taka við rekstri gamalla Sambandsfyrirtækja eins og Samskipa og halda þeim í rekstri þang- að til nýir kaupendur kæmu til sögunnar. í þessum efnum skipti auðvitað máli, að bankinn héldi þannig á málum, að tap hans yrði sem minnst. Þá má ekki gleyma því, að fjölmörg dæmi eru um það" erlend- is, að bankar eigi um lengri eða skemmri tíma hlut í fyrirtækjum og hefur sums staðar gefízt vel svo sem í Þýzkalandi, þar sem bankar hafa frá stríðslokum a.m.k. verið eignaraðilar að fjölmörgum voldug- um fyrirtækjum. Nú hefur Landsbankinn komið Samskip- um af höndum sér til nýrra eigenda, þ. á m. þýzks skipafélags, sem hefur lagt fram nokkra fjármuni í nýju hlutfé og mun hugsanlega leggja fram verulega meira fé til reksturs Samskipa hf. Einhveijir kunna að spyija, hvort hér sé verið að stíga fyrsta skrefíð til þess, að íslenzk flutninga- fyrirtæki komizt í eigu útlendinga. Nú á tímum eiga áhyggjur af slíku tæpast við. Undanfarin ár hefur mjög verið um það rætt, að hvetja þyrfti erlend fyrirtæki til þess að fjárfesta á íslandi. Fyrir nokkrum árum hafði verið tekin um það grundvallar- ákvörðun í stjórn Flugleiða hf. að selja SAS verulegan hlut í félaginu. Af því varð ekki á þeim tíma. Morgunblaðið lýsti stuðningi við þau áform og má þó segja, að þar hafi verið um meira álitamál að ræða, þar sem Flugleiðir eru eina íslenzka fyrirtækið, sem heldur uppi áætlunarflugi á milli íslands og annarra landa. En miðað við þá ákvörðun stjórnar Flugleiða, sem ekki sætti gagnrýni á þeim tíma, geta menn tæpast haft nokkuð við það að at- huga, að þýzkt skipafélag komi inn í rekst- ur Samskipa. Þess er einnig að gæta, að auðvitað gæti erlent fyrirtæki komið inn á hlutabréfamarkaðinn hér og gert hlut- höfum í Eimskipafélaginu tilboð, sem þeir teldu sig varla geta hafnað. Hið sama á við um önnur íslenzk fyrirtæki utan sjávar- útvegsins. Við lifum í nýrri veröld að þessu leyti. Ljóst er, að þau einkafyriitæki, sem gerzt hafa hluthafar í Samskipum hf., eru sterk og öflug og fyrir þeim vakir augljós- lega að tryggja virka samkeppni á sjóflutn- ingamarkaðnum hér, bæði sjálfum sér og öðrum til hagsbóta. Hins vegar á eftir að koma í Ijós, hvernig til tekst um rekstur Samskipa hf. Með aðild nýrra aðila að fyrirtækinu og verulegri aukningu hluta- fjár, sem bersýnilega skilar sér í beinhörð- um peningum í rekstur fyrirtækisins, hefur væntanlega verið lagður traustur grunnur að rekstri í framtíðinni. En veldur hver á heldur. Samkeppni á íslenzkum sjóflutn- ingamarkaði hefur löngum verið hörð og óvægin og tekið á sig ýmsar myndir. Bak- hjarlar Samskipa hf. eru hins vegar sterk- ir og aðild hins þýzka fyrirtækis á vafa- laust eftir að koma fyrirtækinu til góða. Aðalatriðið er, að samkeppni hefur ver- ið tryggð og það fer bezt á því fyrir alla aðila. Okkar litla samfélag þolir illa skort á samkeppni á hvaða sviði, sem er, hvort sem um er að ræða flutninga á sjó eða í lofti, bankastarfsemi, fjölmiðla eða aðra þætti atvinnulífsins. Enda er reynsla okkar sú, að þar sem eðlileg samkeppni fær að blómstra verða til öflug einkafyrirtæki þjóðinni allri til hagsbóta. Launasam- anburður SKOÐANIR ERU mjög skiptar um það, hve mikið sé að marka þann . ' launasamanburð, sem svo mjög hefur verið til umræðu að undanfömu eftir að ASÍ setti fram stað- hæfíngar um, að laun opinberra starfs- manna og bankamanna hefðu hækkað umfram laun almennra launþega. í sam- tali við Morgunblaðið í gær, föstudag, sagði Friðrik Sophusson, fjármálaráð- herra, um launavísitöluna, sem Hagstofa íslands gefur út: „Hún er allsendis óhæf í slíkum samanburði og það sést bezt á því, að 500 manna úrtak liggur til grund- vallar mati Hagstofunnar á launaþróun almennra launþega samanborið við, að upplýsingar liggja fyrir um rúmlega 15 þúsund opinbera starfsmenn." Þá benti fjármálaráðherra á, að starfandi væru tvær opinberar nefndir, sem hafi það hlut- verk að fylgjast með kjaraþróun einstakra hópa og launaþróun almennt og sagði síð- an: „Það hefur áður verið bent á það í fjölmiðlum, að niðurstöður þessara nefnda stangist á við niðurstöður Hagstofunnar. Laun landverkafólks innan ASI hækkuðu um 20,1% á sama tímabili og könnun Hagstofunnar tók til en laun opinberra starfsmanna hækkuðu á hinn bóginn um 18,8% skv. útreikningum nefndanna." Tímaritið Vísbending hefur blandað sér í þessar umræður og í nýju tölublaði þess segir m.a.: „Það fyrsta, sem vekur athygli í málflutningi ASI er, að þar er því haldið fram, að ekkert launaskrið hafi orðið með- al félagsmanna þess frá upphafí þjóðar- sáttar, þ.e. að launahækkanir hafi ekki verið umfram þau 14,6%, sem samið hefur verið um á þessu tímabili. Fyrirliggjandi gögn frá Kjararannsóknamefnd aðila vinnumarkaðarins benda hins vegar til, að greitt tímakaup hjá ASÍ-landverkafóIki hafi hækkað um 18,3% frá fyrsta ársfjórð- ungi 1990 til fyrsta ársfjórðungs þessa árs. Hafa þá töluleg áhrif starfsaldurs- hækkana verið dregin frá, en þau eru metin 0,6% á ári, sem er talið raunhæft að miða við. Til samanburðar hækkaði launavísitala um 16,2% milli sömu ársfjórð- unga. Opinber gögn gefa því til kynna, að laun félagsmanna ASÍ hafi hækkað að meðaltali um 2,1% umfram launavísitölu á tíma þjóðarsáttarinnar. Samkvæmt þessu væri hægt að halda því fram, að hækkun launavísitölunnar stafi einkum af launaskriði á almennum vinnumarkaði." Hagstofan hefur hins vegar sitt að segja um þá útreikninga Kjararannsóknarnefnd- ar, sem bæði Friðrik Sophusson og Vís- bending vitna til. í greinargerð, sem Hag- stofan sendi frá sér um málið segir m.a.: „í umræðum að undanförnu hafa niður- stöður Iaunavísitölunnar verið bornar sam- an við efni úr ársfjórðungskönnunum Kjararannsóknarnefndar ASI, VSÍ, Sam- Morgunblaðið/Ingvar taka iðnaðarins og VMS ... Jafnframt hefur verið vitnað til birts efnis Kjararann- sóknarnefndar opinberra starfsmanna ... Nauðsynlegt er í þessu sambandi, að fram komi skýrt, að þessi gögn eru ekki sam- bærileg við launavísitöluna og frekar en hún eru þau ekki einhlít eða auðtúlkuð. Má fyrst nefna, að athuganir KAV, KOS og Hagstofu byggjast á ólíkum aðferðum og niðurstöður þeirra verða því ekki born- ar saman með óyggjandi hætti. í annan stað er úrtak KAV ekki valið af handa- hófí, nær misvel til hinna ýmsu atvinnu- greina og starfsstétta og hefur oft reynzt frekar óstöðugt.“ Hagstofan gerir fleiri athugasemdir við útreikninga Kjararannsóknarnefndar at- vinnuveganna og segir t.d.: „Tölur KAV fyrir launþega innan ASÍ þetta tímabil eru vandtúlkaðar. Talnaraðirnar sýna oft tölu- verðar og ekki mjög trúverðugar sveiflur frá einum ársfjórðungi til annars. Breyt- ingar einstakra hópa innan ASÍ eru mjög mismiklar og svipar niðurstöðunum að því leyti til opinberra starfsmanna. Þá eru niðurstöður 1. ársfjórðungs 1990 svo bjag- aðar, að naumast virðist skynsamlegt að miða við þær.“ Hagstofan segir ennfremur: „Sam- kvæmt þessu hafa laun opinberra starfs- manna og bankamanna hækkað um nær 3% meira en laun á almennum vinnumark- aði á þessu tímabili." Og einnig: „í reynd er þó líklegt, að munurinn sé nokkru minni en felst í launavísitölunni. Þetta stafar af því, að sennilega gætir ofmats í tölum Hagstofunnar um launabreytingar opin- berra starfsmanna m.a. vegna vandkvæða á að einangra starfsaldurshækkanir. Á móti sýnist líklegt að nokkurs vanmats gæti í tölum hennar um breytingar á al- mennum vinnumarkaði vegna ófullkomn- ari gagna um launaþróun en hjá hinu opin- bera. Ekki verður betur séð en að tölur KAV og KOS styðji þessa niðurstöðu." Niðurstaða Vísbendingar er hins vegar þessi: „Heildarniðurstaðan er því í raun sú, að ekki er hægt að bera saman launa- þróunina með vitrænum hætti við núver- andi aðstæður." Hækkanir af ýmsum ástæðum FRIÐRIK SOPH- usson mótmælir því ekki, að hækkanir hafi orðið hjá ein- stökum hópum op- inberra starfs- manna, en segir: „Við höfum ekki dregið dul á það, að laun hafa óhjákvæmilega hækkað í nokkrum stéttum á þessu tíma- bili en bendum jafnframt á, að ástæðurnar eru eðlilegar. Laun lögreglumanna og toll- varða hækkuðu t.a.m. á grundvelli niður- stöðu gerðardóms. Hæstiréttur felldi ný- verið dóm í máli flugumferðarstjóra, sem olli nokkurri hækkun afturvirkt og loks hafa launabreytingar átt sér stað í nokkr- um stéttum í kjölfar sameiningar stéttarfé- laga, hagræðingar eða skipulagsbreytinga í stofnunum." Aðrir hafa í tilefni af þessum umræðum vakið athygli Morgunblaðsins á, að „hækk- anir“ geti orðið til með ýmsum hætti. Þannig hafa einstakir bankastarfsmenn haft samband við blaðið og upplýst, að þeir hafi ekki orðið varir við hækkanir hjá sjálfum sér eða í nánasta starfsumhverfi. Þeir benda á, að starfsmönnum banka hafi fækkað á undanförnum árum. Hafí sú fækkun fyrst og fremst orðið hjá fólki á lægri launum hafí meðaltals laun „hækk- að“ í upplýsingagjöf til Hagstofu án þess, að um raunverulega hækkun hafí verið að ræða. Hér á landi eru nokkrir aðilar, sem safna saman tölulegum upplýsingum um rekstur þjóðarbúsins. Þar má nefna Þjóðhagsstofn- un, Seðlabanka, Hagstofu, hagdeildir at- vinnuvegasamtaka og verkalýðsfélaga og fleiri aðila. Að þessari upplýsingasöfnun vinnur fjölmennur hópur sérmenntaðs fólks. Það er nánast með ólíkindum, að ekki skuli til aðgengilegar upplýsingar um Iaunaþróun í landinu, sem menn geta ver- ið sammála um, að séu sæmilega réttar. Fyrir nokkrum árum var íslenzkur námsmaður við erlendan háskóla að vinna að ritgerð um íslenzk efnahagsmál. Er- lendum háskólakennara og leiðbeinanda kom á óvart, hversu vanþróaðar og tak- markaðar upplýsingar um stöðu efnahags- mála hér voru að hans mati og í raun og veru tæpast nægilega traustur grundvöllur fyrir slíkri umfjöllun um íslenzk efnahags- mál. Það skiptir hins vegar meginmáli, að þessi upplýsingasöfnun sé traust og að menn geti verið sammála um, að svo sé vegna þess, að mikilvægar ákvarðanir eru teknar á grundvelli þessara upplýsinga. Er ekki ráð, að þeir, sem um þessi mál fjalla, setjist niður og ræði sín í miili, hvernig hægt er að koma upplýsingasöfn- un um þróun efnahagsmála í þann farveg, að það þurfí ekki að vera deiluefni, hvort hægt sé að taka mark á tölunum? Hvern- ig er t.d. hægt að taka mark á launavísi- tölu Hagstofunnar við útreikning láns- kjaravísitölu, ef ekkert er að marka launa- vísitöluna að öðru leyti?! „Ljóst er, að þau einkafyrirtæki, sem gerzt hafa hluthafar í Sam- skipum hf., eru sterk og öflug og fyrir þeim vakir augljóslega að tryggja virka samkeppni á sjó- flutningamark- aðnum hér, bæði sjálfum sér og öðrum til hags- bóta.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.