Morgunblaðið - 10.07.1994, Qupperneq 38
38 SUNNUDAGUR 10. JÚLÍ 1994
SKOÐUN
MORGUNBLAÐIÐ
EITT fremsta tónskáld
allra u'ma var lista-
maðurinn Richard
Wagner. Um hann seg-
ir breski Wagnersér-
fræðingurinn Emest
Newmann eitthvað á
þessa leið:
„Hann var einstakt
fyrirbæri í samanlagðri
sögu listanna ... Sér-
hver persóna hans, sér-
hver atburðarás var
sköpuð samhliða í
hugarheimi tónskálds,
leikritaskálds, hljóm-
sveitarstjóra, leik-
gerðarmanns, lát-
bragðshöfundar og textahöfundar.
Slík samsetning hafði aldrei verið
þjá einum og sama einstaklingnum
áður, það hefur ekki gerst síðan
og mun að öllum líkindum aldrei
koma fyrir aftur.“
Höfuðverk þessa snillings, og þar
með allra tónbókmenntanna, er fjór-
söngleikurinn Niflungahringurinn
þ.e. Rínargullið, Valkyijumar, Sig-
urður Fáfnisbani og Ragnarök. Inn-
blástur í þetta mikla verk sækir
Wagner beint í íslenskar bókmenntir.
Arið 1988 heimsótti ég Wagner-
safnið í Bayreuth gagngert til þess
l^jð kynna mér þær bækur, sem þar
kynnu að finnast af íslenskum bók-
menntum. Mértil mikillar undmnar
fann ég, með aðstoð Giinthers Fisc-
hers bókasafnsfræðings, flölda
bóka á íslenskri tungu, sem höfðu
verið í persónulegu bókasafni tón-
skáldsins. Má þar nefna m.a. Völu-
spá, Sæmundar-Eddu, Snorra-
Eddu, Heimskringlu, Völsunga-
sögu, riddarasögur o.fl. Um þessa
heimsókn skrifaði ég grein í Morg-
unblaðið 23. mars 1989. Eftirþessa
heimsókn gerði ég mér enn betur
grein fyrir hvílíkar gersemar bók-
menntir okkar eru og fékk þá hug-
mynd, að nauðsynlegt væri að gera
fólki kunnug tengsl ópera Wagners
yið þær. Mér datt í hug hvort hægt
væri að fá vísindamenn, einn eða
fleiri, t.d. íslenskan og þýskan, til
þess að gera ýtarlega úttekt á þessu
efni. Einu sinni sem oftar, þegar
ég var í heimsókn hjá Dr. Kurt
Schier prófessor í Múnchen ræddi
ég þetta mál við hann. Hann var
því mjög hlynntur, að úttekt yrði
gerð á þessu efni og afmarkaði efn-
ið með spurningunn. Á þýsku hljóm-
ar spumingin þannig:
„Welchen Einfluss hatte die
isliindische Literatur auf das Leben
und Werk Richard Wagners?"
Einnig ræddi ég þetta mál við
Jónas Kristjánsson, forstöðumann
liandritastofnunar Árna Magnús-
■zraonar. Hann var strax mjög jákvæð-
ur og áhugasamur.
Jónas hringdi í mig er von var á
Wolfgang Wagner hingað til lands
á vegum Listahátíðar í ársbyijun
1993. Hann sagði mér að Wolfgang
hefði áhuga á að skoða íslensku
handritin. Ég iét fréttastofu Stöðv-
ar 2 strax vita og átti Ómar Ragn-
arsson langt viðtal við Wagner við
það tækifæri. Ég skrifaði Valgarði
Egilssyni forstöðumanni Listahátíð-
ar bréf og skýrði honum frá áhuga-
máli okkar Jónasar og bað hann
að tala máli okkar við Wagner.
Valgarður var svo vinsamlegur að
bjóða mér heim til sín 26. janúar
1993 að hitta Wolfgang Wagner
og ræða þessi mál við hann sjálfur.
Jónas Kristjánsson var eriendis um
þessar mundir og fór ég því einsam-
all. Á heimili Katrínar Fjeldsted og
Valgarðs var vinnufundi samstarfs-
-tnanna þeirra að ljúka. Auk hús-
bænda voru þar Wolf-
gang og kona hans
Gudrun Wagner, Ámi
Tómas Ragnarsson
læknir og kona hans
Selma Guðmundsdóttir
píanóleikari svo og
Ruth Magnússon.
Þetta var stjórn Lista-
hátíðar í Reykjavík
1994, sem hafði sýnt
Wagnerhjónunum
handritin í Ámastofn-
un fyrr um daginn og
skoðað mögulega staði
til þess að sýna Wagn-
er-óperu. Þetta ágæta
fólk hafði sagt Wagner
frá grein minni í Morgunblaðinu og
heilsaði hann mér einkar vingjam-
lega. Ég sagði honum frá áhuga
okkar Jónasar Kristjánssonar.
Wolfgang varð mjög áhugasamur
og sagðist vera reiðubúinn að gera
allt sem hægt væri til að greiða
götu þessa máls. Ég spurði hvort
ég mætti nefna nafn hans í þessu
sambandi. Hann hélt nú það, til
þess væru þeir þarna í Bayreuth.
Ég skyldi bara skrifa beint til hans
persónulega eða spyija eftir honum
sjálfum næst þegar ég væri á ferð-
inni. Nýr forstjóri, ungur maður,
29 ára, Sven Friedrich, hefði verið
ráðinn og myndi hann aðstoða okk-
ur.
Ég sagði Wolfgang frá þeirri
hugmynd okkar að fá þýskan og
íslenskan námsmann til þess að
rannsaka efnið, sem hluta af námi
sínu, og koma til Bayreuth í þeim
tilgangi. Wolfgang sagði sjálfsagt
að taka á móti slíkum manni og
veita honum vinnuaðstöðu. Þijár
vinnuaðstöður væm í Bayreuth, en
væru þær uppteknar myndi hann
sjálfur koma honum fyrir.
Talið barst að öðru. Hann sagði
að þetta væri sín fyrsta heimsókn
til Islands. Hann var himinlifandi
yfír heimsókn sinni í Árnastofnun.
Þar fékk hann að handleika fmm-
gögn verka, sem afí hans hafði
byggt Niflungahring sinn á. Einnig
fékt hann þar skýringar forstöðu-
mannsins á þýðingu Guðrúnarkviðu
fyrir verk Wagners. Fomar bók-
menntir bar á góma og hversu þær
drægju upp mannlega hugsun,
ástríður og hegðun, einföldum,
skýmm og sterkum litum. Svo
sterkum að ef við fæmm að meta
atburði, persónuleika og framferði
söguhetjanna á hefðbundinn mæli-
kvarða sýndist okkur nútímarnönn-
um flest þetta fólk altekið vitfirr-
ingu. En hefur nokkuð breyst? Líti
maður í kringum sig, nú á okkar
tímum, virðist trylling manna síst
minni. Hún hefur aðeins verið
tæknivædd. Manndráp nútímans
eru miklu meiri, og þau eru grimm-
úðlegri og andstyggilegri en heila-
spuni hinna fornu höfunda gat
fóstrað. Morðin hafa verið „mekan-
íseruð“ og á þessari morðóðu öld
höfum við upplifað mestu manndráp
samanlagðrar mannkynsögunnar.
Mannskepnan væri eina skepna
jarðar sem dræpi aðra af sama
stofni í stórum stíl. Samt væri
maðurinnm æðsta verk sköpunar-
innar. Sagt væri að Guð hafí skap-
að manninn í eigin mynd. Eftir því
væri þetta hræðilegur Guð.
Hinu eilífa böli, þversögn manns-
ins og takmörkum er lýst með sterk-
um dráttum á þrunginn hátt í hinum
kynngimögnuðu bókmenntum okk-
ar. Þessi sannindi eru viðfanfgsefni
Wagners. Hann vekur áhorfandann
til umhugsunar en bendir á lausn:
Fórnfæring ástarinnar.
Höfuðverk þessa snill-
ings, og þar með allra
tónbókmenntanna, er
ungahringurinn þ.e.
Rínargullið, Valkyrjurn-
ar, Sigurður Fáfnisbani
og Ragnarök. Jóhann
J. Olafsson sýnir hér
fram á að innblásturinn
í þetta mikla verk sæki
Wagner beint í íslenskar
bókmenntir.
Wolfang Wagner hefur áhuga á
að sviðsetja óperur afa síns á sem
flestum stöðum. Fyrir þremur árum
hefðu þær verið fluttar í fyrsta sinn
á Nýja-Sjálandi, þar áður á Japans-
eyjum. Nú yrði eyjan Island næst.
Hin nýja styttri útfærsla væri hans
hugmynd og yrði hún flutt fyrst á
íslandi. Ámi Tómas Ragnarsson
hafði áður sagt mér frá þessari
hugmynd og að Þjóðleikhúsið hefði
verið valið. Wolfgang Wagner stakk
upp á Þingvöllum undir berum
himni en menn voru ekki tilbúnir
að taka áhættu af veðurfarinu.
Hugmyndin um Þingvelli er mjög
Snorri Sturluson
athygliverð. Til forna héldu ger-
manskar þjóðir þing sín undir ber-
um himni. Þingvellir eru líklega
einn af mjög fáum slíkum þingstöð-
um, sem enn er hægt að staðsetja
og ganga að í óbreyttri mynd. Hann
er örugglega mestur og glæsileg-
astur slíkra þingstaða og ennþá í
notkun. Væntanlega koma Þing-
vellir til greina við kvikmyndun
Niflungahrings Wagners í framtíð-
inni.
Heimsókn til Bayreuth
Við Jónas Kristjánsson ræddum
oft um það okkar á milli hvernig
hægt væri að ráðast í það verk að
rannsaka tengsl bókmennta okkar
og tóniistar Wagners. Hér á landi
eru margar stofnanir sem sinna
menningarmálum en allar fjárvana
og hafa ákveðnum og sérstökum
skyldum að gegna. Mörg nöfn komu
upp og var rætt við ýmsa fræði-
menn. Ég skrifaði Wolfgang Wagn-
er og bar fram erindið eins og um
var talað. Hann staðfesti bréflega,
það sem hann hafði sagt í Reykja-
vík, að hann hefði mikinn áhuga á
þessu viðfangsefni, og myndi gera
allt sem hann gæti til að styðja
þetta mál. Forstöðumaður skjala-
safnsins væri mjög hæfur fagmað-
ur.
í nóvember 1993 átti ég erindi
til Múnchen og datt í hug að nota
ferðina til þess að hitta menn í
Bayreuth og athuga aðstæður. Ég
fékk Dr. Hubert Seelow háskóla-
kennara í norrænum fræðum við
háskólann í Erlanger til að slást í
för með mér. Seelow er kvæntur
íslenskri konu, Kolbrúnu Haralds-
dóttur, og talar íslensku lýtalaust.
Gerði ég mér jafnframt vonir um
að Seelow gæti tekið þetta rann-
sóknarverkefni að sér. Við ókum
til Bayreuth og gerðum boð fyrir
Steffan Jöris í „Festspielhaus",
óperuhúsi Wagners, en Jöris var
sérstakur fulltrúi Wolfgangs Wagn-
ers í öllu því sem snerti væntanlega
uppfærslu Niflungahringsins í
Reykjavík næsta vor (27. maí
1994). Jöris kallaði á Wolfgang
Wagner, sem kom til okkar að
vörmu spori, heilsaði okkur glað-
lega og bauð okkur velkomna. Ég
kynnti Dr. Seelow fyrir honum.
Wagner ræddi mikið um væntan-
lega uppfærslu Niflungahringsins í
Reykjavík og sagði að stytting
verksins stæði nú yfir. Tvær aðferð-
ir væru til umræðu um það hvernig
tengja ætti kaflana saman. Onnur
væri sú að tvinna tónlist þeirra
þátta sem valdir yrðu með tón-
fléttu, sem samin yrði sérstaklega
í þeim tilgangi. Það hefði hins veg-
ar ekki gefíst vel t.d. í Brussel þar
sem stytt gerð hringsins hefði verið
sýnd á tveimur kvöldum. Hin að-
ferðin væri sú að tengja kaflana
með töluðum þáttum. Hann vær
hlynntari seinni aðferðinni. Ég af-
henti Wagner nýjasta hefti Óperu-
blaðsins, þar sem mikið var fjallað
um væntanlega uppfærslu. Hann
varð mjög ánægður með að fá það.
Því næst bað hann Steffan Jöris
að fylgja okkur til Wagner-safns-
ins, sem er í hinum enda bæjarins
í Villa Wahnfried, sem var heimili
Richards Wagners síðustu ár hans.
í Bæjaralandi er skammdegi í nóv-
ember eins og á íslandi, því var
skollið á myrkur er við komum á
safnið. Þar tók á móti okkur Sven
Friedrich. Einnig fékk ég aftur að
heilsa upp á gamlan kunningja,
Gúnther Fischer, sem hafði aðstoð-
Richard Wagner
að mig í síðustu heimsókn minni.
Friedrich bauð okkur á skrifstofu
sína, sem var mjög mikið lýst af
hvítu flúrljósi. Vinnustaður hans er
í hliðarbyggingu við safnið. Sonur
tónskáldsins, Sigfried, faðir Wolf-
gangs, lét reisa þetta hús fyrr á
öldinni og bjó þar. Ekkja hans
Winnfried bjó þar til dauðadags
1980. í einu horni skrifstofunnar
var uppbúið kaffíborð, sem Fried-
rich bauð okkur Seelow og Jöris
að setjast við. Friedrich sýndi okkur
nokkrar bækur á íslensku, gamla
kunningja, sem hann hafði látið
sækja úr bókastafni Wagners. Völu-
spá, Sæmundar-Eddu og Snorra-
Eddu. Við ræddum mikið um hvaða
áhrif þessar bækur hefðu haft á
tónlist Wagners. Þjóðveijarnir full-
yrtu að Wagner hefði sáralítið sótt
í hin þýsku Niflungaljóð. Wagner
hefði sótt mest allt efni sitt í hinar
íslensku bókmenntir. Hinn sterki,
mergjaði og magnaði stíll fornbók-
menntanna hefði haft mikil áhrif á
sköpunargáfu meistarans og
ímyndunarafl. Friedrich endurtók
að aðgangur að safninu og gögnum
þess stæði okkur opinn og jafnvel
væri hann tilbúinn að ganga lengra
í þeim efnum en venjulegt er. Steff-
ÁHRIF ÍSLENSKRA
FORNSAGNA Á LÍF OG
VERK WAGNERS
Jóhann J. Ólafsson
fjórsöngleikurinn Nifl--
an Jöris kvaddi okkur og fór aftur
upp í óperuhúsið þar sem hann
myndi bíða okkar en Friedrich leiddi
okkur þessu næst út í Wagner-safn-
ið Villa Wahnfried. Búið var að loka
safninu, svo við fengum einkasýn-
ingu undir leiðsögn Friedrichs. Fyr-
ir utan æviatriði Wagners sjálfs er
gerð grein fyrir flutningi verka
hans í Bayreuth frá upphafi til vorra
daga. Þó bendir Friedrich á að
þriðja ríkinu sé sleppt og þurfí að
bæt úr því. Greinilegt er að hinn
ungi maður (29) lítur þessa hörmu-
legu atburði með augum sagnfræð-
ingsins og rannsakandans og telur
ósanngjarnt að umfjöllun um tón-
skáldið líði fyrir gjörðir manna sem
misnotuðu nafn þess hálfri öld eftir
að það lést. Þetta þurfí að leiðrétta.
Þótt hægt sé að samþykkja þetta
út af fyrir sig finnum við hinir eldri
að við erum meira undir áhrifum
þessara atburða en hinir yngri.
Engin mynd er af Snorra Sturlu-
syni né handritunum og þyrfti að
fylla upp í þá eyðu sem fyrst. Við
kveðjum nú Friedrich með miklu
þakklæti og skundum aftur upp í
„Festspeilhaus“.
Þar er allt harðlæst enda kiukkan
orðin sex svo við beijum húsið utan
þar til Jöris opnar fyrir okkur til
þess að ganga með okkur um bygg-
inguna. Húsið er reist eftir hug-
myndum Wagners sem hafði til fyr-
irmyndar óperuhús í Ríga og fom
grísk leikhús. Húsið var hugsað sem
sumaróperuhús eingöngu og því
engin upphitun í því enda svalt þama
inni þennan nóvemberdag. Húsið er
og léttbyggt úr timbri og múrsteins-
bindiverki. Hljóðeinangra þurfti þak-
ið með steinull því þotur fljúga yfir
það og tmfla tónlistarflutning.
Hvorki hljómsveitin né stjómandi
hennar sjást úr áhorfendasal. Því
er ekkert klappað þegar hann geng-
ur í hljómsveitargryfjuna. Af sömu
ástæðum em hljóðfæraleikaramir
ekki í kjólfötum, heldur þægilegum
fötum t.d. gallabuxum og stutterma-
bolum. Hljómsveitarstjórinnn sljóm-
ar sitjandi og á hver sinn stól sér-
smíðaðan. Ég fékk að reyna stól
Daniels Barenboims.
Jöris sýndi okkur allt sviðið og
þann flókna sviðsbúnað, sem notað-
ur er. Áhrifamikið var að sjá hinn
Wolfgang Wagner
djúpa kjallara úr tilhöggnu grjóti
gerðan af hörðum höndum fyrir 120
árum. Meitilförin töluðu sínu máli.
Á sumrin bætast 900 starfsmenn
við þá 60 sem starfa allt árið. Nú
er klukkan að ganga átta. Við See-
low þökkum Jöris fyrir greiðvikni
hans, löngu eftir hans vinnutíma,
og kveðjum.
Greiðvikni gestgjafa okkar vitnar
um vilja þeirra til þess að hjálpa
okkur við rannsókn efnisins:
„Hvaða áhrif höfðu íslenskar fom-
bókmenntir á líf og verk Richards
Wagners?"
Við síendurtekinn flutning Nifl-
ungahringsins um allan heim er
stöðugt verið að velta upp nýjum
hliðum verksins, dýpka skilning
manna á því og túlka það á nýjan
hátt. Þess vegna myndi slík rann-
sókn vera flytjendum og áhorfend-
um mjög að skapi. Okkur væri þetta
kærkomið tækifæri til þess að vekja
áhuga manna á bókmenntum okkar.
Eins og málum er háttað yrði slík
rannsókn varla gerð nema undir
forystu menntamálaráðuneytisins.
Höfundur er stórkaupmadur í
Rcykjnvík.