Morgunblaðið - 19.08.1994, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 19.08.1994, Qupperneq 4
4 FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 1994 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Brosmild börn í Neskirkju NESKIRKJA stendur þessa dagana fyrir fjölbreyttu nám- skeiði fyrir börn á aldrinum sex til tíu ára. Að sögn sr. Guð- mundar Óskars Olafssonar, að- stoðarprests, er markmiðið að fræða börnin, kynna þeim um- hverfi sitt og leyfa þeim að gleðjast saman. Það er starfs- fólk kirkjunnar sem vinnur að æskulýðsmálum sem hefur veg og vanda af námskeiðinu sem varað hefur alla þessa viku. Vegna mikillar eftirspurnar verður efnt til annars nám- skeiðs í næstu viku en sr. Guð- mundur Óskar segir að um þijátíu börn sæki hvort nám- skeið um sig. Hann segir að um sé að ræða frumraun í starfi Neskirkju sem full ástæða sé að rækta áfram. Morgunblaðið/Golli Umhverfisráðherra hefur gefið út reglugerð vegna villidýralaga Bannað að nota byssur sem taka fleiri en tvö skothylki VEIÐAR á heiðagæs og grágæs mega hefjast frá og með 20. ágúst og standa til 15. mars skv. reglugerð sem umhverfisráðherra gaf út í gær vegna nýsamþykktra villidýralaga. I frétta- tilkynningu ráðuneytisins segir að ákvörðun um veiðitíma rjúpu verði birt síðar. Skv. villidýralögunum eru allir fuglar friðaðir nema annað sé tekið fram í reglugerðinni. í henni afléttir umhverfisráðherra friðun á einstökum fuglategundum. Þannig er friðun á fjórum teg- undum, svartbak, sílamáfi, silfurmáfí og hrafni, aflétt allt árið. Friðun er aflétt á nokkrum tegund- um á tímabilinu frá 1. sept.-15. mars, s.s. fýl, dílaskarfí, toppskarfí, blesgæs, stokkönd, hávellu, hettumáfí og ritu. Friðun álku, langvíu, teistu og lunda er aflétt á tímabilinu 1. sept.-lO. maí. Óheimilt að veiða fugl í sárum Skv. reglugerðinni er óheimilt að þeyta flaut- ur, fljúga flugvélum eða vera með annan hávaða að óþörfu í grennd við fuglabjörg. Aldrei má skjóta fugl í fuglabjörgum og óheimilt er að veiða fugl í sárum. Reglugerðin heimilar öllum íslenskum ríkis- borgurum sem og erlendum ríkisborgurðum með lögheimili hér á landi fuglaveiðar í almenningum, á afréttum utan landareigna lögbýla og utan netlaga landareigna. Landeigendum einum eru heimilar fuglaveiðar og ráðstöfunarréttur þeirra á landareign sinni. Tekið er fram að veiðar eru aðeins heimilar í þeim tilgangi að nýta verðmæti i kjöti og öðrum afurðum eða til að veijast tjóni. Er sérhveijum veiðimanni skylt að hirða bráð sína og særi veiði- maður fugl ber honum að elta hann strax uppi og aflífa ef þess er nokkur kostur. Ekki má selja fugla sem festast í netum Reglugerðin tiltekur nákvæmlega þær veiðiað- ferðir sem óheimilt er að beita. Við veiðar er m.a. óheimilt að nota eitur eða svefnlyf, steina, barefli, eggvopn, skutla, stunguvopn eða áþekka hluti. Þó má nota barefli við hefðbundnar veiðar á fýls-, súlu- og skarfsungum. Óheimilt er að nota sjálfvirk skotvopn, svo og handhlaðnar fjöl- skotabyssur (pumpur) og hálfsjálfvirk skotvopn með skothylkjahólfum sem taka fleiri en tvö skothylki. Einnig er bannað að nota fótboga eða gildrur við veiðar, rafbúnað sem getur drepið eða rotað, segulbandstæki eða aðra rafknúna hljóð- gjafa, búnað til að lýsa upp skotmörk, spegla eða annan búnað sem blindar og búnað til þess að miða í myrkri með rafeindatækjum er stækka eða breyta ímyndinni. Fugla er drepast í netum sem lögð eru til fiskveiða eða kópaveiða, má ekki bjóða til sölu, selja, kaupa, gefa né þiggja að gjöf og lifandi fugla skal greiða úr neti og sleppa. Þá getur umhverfísráðherra nú heimilað mynda- og kvikmyndatöku af örnum, fálkum, snæuglum og haftyrðlum við hreiður en um leið er felld úr gildi eldri reglugerð um bann við myndatökum af þessum fuglum. Morgunblaðið/Magnús Fjalar Blindös í IKEA „ÞETTA hefur gengið betur en við þorðum að vona. Það er búin að vera blindös frá því klukkan tíu í morgun,“ sagði Gestur Hjaltason, verslunar- stjóri, þegar Iíða fór að lokum fyrsta opnunardags hinnar nýju verslunar IKEA í Holtagörðum. Hann taldi að um þrjú til fjögur þúsund manns hefðu verið á svæðinu í einu þegar mest var, en Bónus, Rúmfatalagerinn og ÁTVR eru einnig með aðstöðu í sama húsnæði. Gestur sagði að nýja húsnæðið væri meira en helmingi stærra en hið gamla í Kringlunni, en engu að síður væri verslunin troðfull. Morgunblaðið/Golli Morgunblaðið/Magnus Fjalar GESTIR skoða sýninguna Leiftur frá lýðveldisári - bæjarmál 1944 í Ráðhúsinu í Reykjavík. Bæjarmál 1944 SÝNINGIN Leiftur frá lýðveldisári - bæjarmál 1944 var opnuð í Ráð- húsi Reykjavíkur í gær, á afmælis- degi Reykjavíkurborgar. Forseti borgarstjórnar, Guðrún Ágústsdótt- ir, opnaði sýninguna formlega og sagði m.a. að gildi svona sýninga væri mikið þar sem þær sýndu fram á gildi þess að varðveita skjöl og ljósmyndir frá daglegu lífí okkar. Svanhildur Bogadóttir, borgar- skjalavörður, tók undir orð Guðrúnar og hvatti stofnanir borgarinnar til að mynda daglegt líf á stofnunum þar sem slíkar myndir væru ómetan- leg gögn. Sýningin fjallar um starfsemi Reykjavíkurbæjar og bæjarmál lýð- veldisárið 1944 með ljósmyndum, eftirgerð skjala og textum. Það var Lýðveldisnefnd Reykjavíkur sem átti frumkvæðið að sýningunni en það er nefndin ásamt Borgarskjalasafni Reykjavikur og Ljósmyndasafni Reykjavíkurborgar sem standa að sýningunni. Sýningin gefur innsýn í bæjarbrag í Reykjavík árið 1944 og kennir þar ýmissa grasa. Á sýningunni má m.a. lesa kaupsamning Reykjavíkur við Strætisvagna Reykjavíkur hf., en fyrirtækið varð að bæjarfyrirtæki 1944. Auk þess má lesa kvörtunar- bréf frá Utvegsbankanum vegna pylsuverslunar í Kolasundi og eru forsvarsmenn ekki par hrifnir af svöngum viðskiptavinum verslunar- innar. Ný könnun Gallups Stjórnin hefur 46% fylgi RÍKISÚTVARPIÐ birti í gærkveldi skopanakönnun, sem Gallup á íslandi gerði um fylgi stjórnmálaflokk- anna. Samkvæmt könnun- inni hefur ríkisstjórnin nú um 46% fylgi. Sjálfstæðisflokkurinn fær 38% Samkvæmt könnuninni nýtur Sjálfstæðisflokkurinn nú um 38% fylgis og er það svipað fylgi og í síðustu al- þingiskosningum. Fram- sóknarflokkurinn nýtur nú fylgis 20,7% og hefur aukið fylgið um 2% frá kosningum, Alþýðubandalagið hefur nú 13,7% og tapar einu pró- senti, kvennalistinn fær 12% og bætir við sig 4% og Al- þýðuflokkurinn fær 8,7% og tapar 7%. Listi Jóhönnu Sig- urðardóttur fær 5%. Óákveðnir voru 14%. Símaskráin leiðrétt VERIÐ er að bera út viðauka við símaskrána vegna mis- taka sem urðu við vinnslu skrárinnar fyrir þetta ár. Segir Hrefna Ingólfsdóttir upplýsingafulltrúi Pósts og síma að leiðréttingarnar fel- ist í nokkrum gulum síðum með nöfnum lækna sem fall- ið hafi út, auk einhverra fyr- irtækja. Einnig fylgir blað- síða með leiðréttingum á símanúmerum einstaklinga að sögn Hrefnu. Segir hún ennfremur að ný skrá yfír farsímanúmer sé einnig á leiðinni. Tveir piltar týndust TVEGGJA fimmtán ára pilta var saknað um skamma hríð í gær. Piltamir urðu viðskila við félaga sína í fjallgöngu á Esjunni og var farið að ótt- ast um þá á nítjánda tíman- um. Þeir fundust skömmu síðar heilir á húfí á toppi fjallsins fyrir ofan Vallá. Það var þyrla Landhelgisgæsl- unnar sem hafði upp á piltun- um og flutti þá til byggða. Markarvegur fallegastur MARKARVEGUR var til- nefnd fegursta gata Reykja- víkur á afmæli borgarinnar í gær. Útibú Landsbanka íslands við Langholtsveg og Fönix við Hátún 6a fengu viðurkenningu fyrir góðan frágang lóða og fagurt um- hverfi. Fjölbýlishúsalóðin Hæðargarður 1-27 fékk við- urkenningu fyrir góðan frá- gang. Þá var Norska bakarí- ið, Fischersundi 3, verðlaun- að fyrir velheppnaðar endur- bætur á húsinu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.