Morgunblaðið - 19.08.1994, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 1994 7
Norskur fiskifræðmgur
Veiðarnar
ekki ógnun
við þorsk-
stofninn
TORE Jakobsen, fiskifræðingur við
Hafrannsóknarstofnunina í Bergen,
segir að veiðar íslendinga í Smug-
unni séu ekki bein ógnun við norsk-
rússneska þorskstofninn, þar sem
ekki séu mikilvægar uppeldisstöðvar
fyrir stofninn á hafsvæðinu.
Jakobsen sagði í samtali við Morg-
unblaðið í gær að veiðarnar kunni
engu að síður að hafa áhrif á veiðar
annarra þjóða, t.d. gætu Norðmenn
og Rússar neyðst til að minnka
fiskikvóta sína. Að sögn NTB frétta-
stofunnar hafa skip íslenskra út-
gerða og skip undir hentifána veitt
um 22.000 tonn það sem af er árinu
en það er um 7% af norska kvótanum.
Smáþorsk í Smugunni er helst að
finna í suð-austurhluta hennar og
er aðeins um lítinn hluta af þorsk-
stofninum að ræða. Sá fullvaxta
þorskur sem íslendingar veiða fer inn
á og út af svæðinu í leit að æti.
Þegar litlir árgangar þorsks ganga,
veiðist lítið í Smugunni.
Um verndarsvæðið við Svalbarða
gegnir hins vegar allt öðru máli.
Svæðið er mun stærra og um 25%
af uppeldisstöðvum þorsksins eru
innan verndarsvæðisins. Segir Jak-
obsen að fískifræðingar telji því mik-
ilvægt að takmarka veiðar þar. Er
svæðinu lokað þegar mikið hefur
veiðst af undirmálsfiski.
Norges Fiskarlag
Aðgerða
krafist í
máli ræðis-
mannsins
Ósló. Morgunblaðið.
„VIÐ teljum það með öllu óásættan-
legt að norskur ræðismaður skuli
vinna gegn mikilvægum hagsmunum
Norðmanna og stefnu norskra stjórn-
valda með því að senda togara til
að stunda sjóræningjaveiðar í Bar-
entshafi. Norsk stjórnvöld verða að
grípa til viðeigandi aðgerða í máli
þessu,“ segir Jon Lauritzen, talsmað-
ur Norges Fiskarlag, heildarsamtaka
hagsmunaaðiia í norskum sjávarút-
vegi.
Stjórn samtakanna hefur ekki
krafist þess beinlínis að ræðismaður-
inn á Akureyri verði settur af. Lau-
ritzen lætur hins vegar nægja að
minna á að norsk stjórnvöld hafi
áður látið til sin taka i sambærilegum
málum. „Við göngum út frá því að
svo verði einnig nú,“ segir Lauritzen.
Talsmaður norska utanríkisráðu-
neytisins, Ingvard Havnen, segir að
ekki hafi verið afráðið hvemig brugð-
ist verði við veiðum fiskiskipa ræðis-
mannsins í Smugunni. „Við bíðum
eftir skýrslu frá sendiráðinu í
Reykjavík og væntum þess að þar
komi fram skýringar ræðismannsins.
Fyrst þarf að afla allra upplýsinga
í máli þessu. Þá fyrst getum við tjáð
okkur um hugsanleg viðbrögð," seg-
ir Havnen.
Það hefur aðeins gerst einu sinni
á síðari árum að ræðismaður Norð-
manna hafi verið leystu." frá störfum.
Það gerðist 1. janúar 1993 er stjórn-
völd gátu ekki sætt sig við framferði
aðalræðismanns Noregs í Guate-
mala. Sá hafði í viðtali varið fjölda-
morð á indíánum í landinu sem sak-
aðir voru um að vera „flugumenn
kommúnista". Þáverandi utanríkis-
ráðherra Noregs, Thorvald Stolten-
berg, lýsti þá yfír því að ekki væri
unnt að una því að ræðismenn gæfu
ranga mynd af viðhorfum og stefnu
norsku ríkisstjórnarinnar.
Við lýsum eftir
áhugasömum
samstarfsaðilum
um sölu á
áhugaverðri
nyjung.
17. september n.k. verður tímamótadagur hjá öllum sem
hafa áhuga á að hljóta glæsilega vinninga í leikjum og
happdrættum. Þetta laugardagskvöld verður fyrsti
BINGÓLOTTÓ þátturinn sýndur í opinni dagskrá á Stöð 2.
BINGÓLOTTÓ, sem verður á dagskrá alla laugardaga, er
þáttur þar sem áhorfendur bæði í sjónvarpssal og heima í
stofu keppast við að vinna verðmæti fyrir milljónir á
milljónir ofan.
Til þess að njóta spennunnar og skemmtunarinnar til fulls er
nauðsynlegt að næla sér í BINGÓLOTTÓ miða. Sölu- og
samstarfsaðilar Happdrættis DAS, leyfishafa Bingólottósins,
forsvarsmenn og eigendur íþróttafélaga, söluturna, verslana
og þvílíkrar starfssemi, sem áhuga hafa á að gerast
söluaðilar Bingólottósins, eru vinsasmlegast beðnir að hafa
sem fyrst samband við aðalskrifstofu Happdrættis DAS í
síma 617117.
þar sem vinningarnir fást
á laugardagskvöldum
í opinni dagskrá