Morgunblaðið - 19.08.1994, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 1994 9
FRÉTTIR
Drangeyjarsundmenn stungu
sér til sunds.
ÞEIR rifjuðu upp liðin afreksverk í lauginni. F.v.: Axel Kvaran,
Pétur J. Eiríksson og Eyjólfur Jónsson.
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
SUNDGARPARNIR fóru að Reykjum og ornuðu sér í lauginni,
en vatnið er 55 gráður svo það verður að kæla það fyrir baðferð.
Sundkappar á fomum slóðum
FIMM íslendingar hafa á seinni
tímum þreytt Drangeyjarsund,
en fyrstur manna til að synda
úr Drangey til lands var Grettir
Ásmundarson eins og segir frá í
Grettis sögu. Þremur sundkapp-
anna var í byijun vikunnar boðið
til Drangeyjar og var það Jón
Eiríksson, oft nefndur Drangeyj-
aijarl, sem stóð fyrir boðinu.
Sundkapparnir þrír eru Pétur
J. Eiríksson, sem synti frá
Drangey til lands 1936, Eyjólfur
Jónsson, sem er sá eini sem hefur
tvisvar sinnum þreytt Drangeyj-
arsund, árin 1957 og 1959, og
Axel Kvaran, sem synti úr
Drangey 1961.
Jón rekur fyrirtækið Drangeyj-
arferðir og kvaðst hann hafa
langað til að bjóða köppunum á
fomar slóðir. „Ég held að þeir
hafi haft dálítið gaman af þessu.
Þeir fóru út í Drangey og tveir
þeirra gengu upp á eyna. Síðan
sigldum við upp að Reykjum og
þeir böðuðu sig í
Reykjalauginni,“ sagði Jón.
Auk þeirra fyrrnefndu synti Erl-
ingur Pálsson yfirlögregluþjónn
Drangeyjarsund árið 1927 og var
það í fyrsta sinn eftir hið sögu-
fræga sund Grettis Ásmundar-
sonar, en talið er að hann hafi
synt til lands úr eynni árið 1030.
Margar þjóðsögur eru tengdar
við Drangey og segir frá einni
þeirra í Landið þitt, ísland. Segir
þar frá því að „Guðmundur bisk-
up góði hafi tekið að vígja eyna
vegna þess hve margir höfðu
farist þar með sviplegum hætti.
En þegar hann var langt kominn
að vígja allt bjargið kom tröllsleg
loppa fram úr bjarginu og bað
vætturin Guðmund hætta vígsl-
unni vegna þess að einhvers stað-
ar yrðu vondir að vera. Er það
algengt máltæki síðan. Skildi
hann þá hluta af bjarginu eftir
óvígðan og heitir það Heiðna-
bjarg. Aldrei er sigið í það. í
bjarginu era ljósleitar rákir er
mynda krossmark. Heitir þar
Kross ogþykir mikil furðusmíð.“
ERUx
ÞEIR AÐ
FÁ’ANþl?
Erfið
sambúð
við Svartá
VEIÐI gengur vel í Svartá og er
hún trúlega eina áin á Norðanverðu
landinu þar sem veiði getur talist
viðunandi. Þar höfðu veiðst um
miðja viku 204 laxar, sem er 26
löxum minna heldur en á sama tíma
í fyrra. Aftur á móti er þá verið
að bera saman við metveiðisumar.
Síðast var tveggja daga holl með
9 laxa, en þar á undan 23 laxar á
þremur dögum og tvö tveggja daga
holl sem fengu 15 laxa hvort. Veitt
er á þtjár stangir. Aflinn er blanda
af smáum laxi og stórum, allt að
18-20 punda. Það er þó ekki sam-
felld hamingja í Svartárdalnum, því
veiðimenn hafa orðið fyrir miklum
truflunum vegna vegagerðar-
manna sem hafa ótrauðir sótt efni
í sjálfan árfarveginn. Að minnsta
kosti þrír góðir veiðihyljir eru úr
sögunni vegna efnistökunnar, auk
þess sem veiðimenn hafa mátt við
það una að jarðýtur kæmu skrölt-
andi ofan í til þeirra, eða að athafn-
ir vegagerðarinnar við gamla brú-
arstæðið í Hlíðará hefur gruggað
ána alla fyrir neðan ármót.
Jörundur Markússon leigutaki
Svartár sagði farir sínar ekki slétt-
ar og sagði ástandið vera „til há-
borinnar skammar fyrir eigendur
Bólstaðahlíðar, Vegagerðina og
undirverktaka hennar, það væri
gengið þama um með yfirgangi og
djöfulgangi," eins og hann orðaði
Morgunblaðið/Einar S. Einarsson.
Enn koma hingað menn frá
öllum heimshornum til lax-
veiða þótt úr því hafi dregið
hin seinni ár. Hér er Jórd-
aníumaðurinn Shamir Has-
an með tæplega 8 punda lax
sem hann veiddi í Elliðaán-
um fyrir skömmu.
það. Þetta væri þeim mun verra
til afspurnar, að leitað hefði verið
eftir áliti fiskifræðings hjá Veiði-
málastofnun og hefði sá aðili mælt
eindregið á móti efnistöku á vissum
svæðum, m.a. þar sem efnistaka
hefur nú farið fram. Hefði hann
bent á að nóg efni væri neðar, nær
Blöndu, og efnistaka þar hefði ekki
haft neina truflun eða eyðileggingu
í för með sér. „Framkvæmdum
þama átti að Ijúka 15. ágúst, en
það hefur eitthvað tafist. Vonandi
að þessu fari að linna þannig að
veiðimenn geti stundað sína iðju í
friði. En sárin á ánni standa eftir
og vonandi að náttúran sjálf græði
þau sem fyrst,“ sagði Jörundur.
Toppárnar
Enn eru borgfirsku ámar Norð-
urá og Þverá í efstu sætunum, en
skammt undan er þriðja stóráin í
héraðinu, Grímsá, og Rangárnar. Á
miðvikudagskvöld voru komnir
1456 laxar úr Norðurá og 1430
úr Þverá og Kjarrá. Grímsá og
Rangámar stóðu í um 1200 fiskum
hvor. I þeim báðum er veitt mun
lengur heldur en í Norðurá og
Þverá. „Fiskur er enn að ganga
og eystri áin hefur tekið nokkuð
við sér,“ sagði Þröstur Elliðason
leigutaki Ytri Rangár í gærdag.
Olafur Haukur Ólafsson varafor-
maður SVFR og Jón Ólafsson einn
leigutaka Þverár vom sammála um
að nóg væri af laxi, en veðurguðirn-
ir réðu ferðinni úr því sem komið
væri. 18 punda lax veiddist í
Kaupamannapolli í Norðurá í gær-
morgun, laxinn, sem var hængur,
veiddi Ragnheiður Ólafsdóttir á
agnið „Wiggly Brown Charm“, sem
mun vera nett nafn fyrir ánamaðk!
Lélegt í Laugardalnum...
Veiði hefur gengið illa að undan-
fömu í Laugardalsá við Djúp. Jón
I. Pálsson sem var að koma af
bökkum árinnar sagði 130 laxa
vera skráða til dagsins 15. ágúst.
„Þetta er orðið vatnslaust og fiskur
virðist ijúka beint í Laugarbóls-
vatnið. Við ferigum aðeins þijá
laxa, þar af tvo sem drengirnir
mínir 5 og 7 ára fengu á maðk og
flotholt í Affallinu. Við sáum fiska
í Dagmálafljóti og Blámýrarfljóti,
en ekki marga og alla legna,"
bætti Jón við.
Reytist úr Elliðaánum...
í gærmorgun vom komnir 819 lax-
ar úr Elliðaánum sem er þokkaleg-
asta veiði, en á sama tíma í fyrra
voru þó komnir 1035 fiskar á land.
Teljarinn hafði skráð 1925 laxa í
gærmorgun, en 2572 fiska á sama
tima í fyrra. Þetta er því talsvert
minna heldur en síðasta sumar.
Dagsveiði síðustu daga hefur verið
12 ti! 16 laxar. í fyrradag veiddist
14,5 punda hængur í Efri Móhyl.
Það var Rúnar Gíslason sem fékk
laxinn á fluguna Dentist númer 8.
Stjóm Landsbókasafns-
Háskólabókasafns skipuð
MENNTAMÁLARÁÐHERRA hefur
skipað stjórn Landsbókasafns Is-
lands - Háskólabókasafns, þ.e. hinn-
ar nýju stofnunar sem taka á til
starfa í Þjóðarbókhlöðu 1. desember
nk. sbr. lög nr. 71/1994.
f stjórninni eiga sæti: Dr. Jóhann-
es Nordal,_skipaður án tilnefningar,
Vésteinn Ólason, prófessor og Þor-
steinn I. Sigfússon, prófessor, til-
nefndir af háskólaráði, Egill Skúli
Ingibergsson, verkfræðingur, til-
nefndur af Rannsóknarráði íslands
og Kristín Indriðadóttir, yfirbóka-
vörður, tilnefnd af Bókavarðafélagi
íslands.
Jóhannes Nordal hefur verið skip-
aður formaður stjórnarinnar og Þor-
steinn I. Sigfússon varaformaður.
Skipunartími er fjögur ár.
Forsætisráð-
herra við út-
för Wörners
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra
hélt í gærmorgun áleiðis til Brussel
til að vera við útför Manfreds Wörn-
ers, áður framkvæmdastjóra Atl-
antshafsbandalagsins.
I för með forsætisráðherra er
Eyjólfur Sveinsson, aðstoðarmaður
forsætisráðherra.
Franskir kjólar nýkomnir
Verð frá kr. 18.800
TGSS
Neðst viS
Dunhaga,
s: 622230
Opið virka daga
kl. 9-18,
laugardaga
kl. 1Q-14
Fólk er alltaf
að vinna
í Gullnámunni:
76 milljónir
Vikuna 11. ágúst til 17. ágúst voru
samtals 76.231.431 kr. greiddar út
í happdrættisvélum um allt land.
Þetta voru bæði veglegir Silfurpottar og
fjöldinn allur af öðrum vinningum.
Silfurpottar í vikunni:
Dags. Staður: Upphæð kr.:
11. ág. Kringlukráin . 131.536
11. ág. Kringlukráin 61.212
11 • ág. Mamma Rósa, Kópavogi 51.334
13. ág. Hofsbót, Akureyri .. 326.696
13. ág. Hótei Örk, Hveragerði 73.817
15. ág. Ölver .. 228.761
16. ág. Lukkupotturinn, Lækjargötu. .. 127.297
16. ág. Ölver .. 149.207
17. ág. Kringlukráin 81.421
17. ág. Háspenna, Laugavegi 96.423
17. ág. Mónakó 83.477
Staða Gullpottsins 18. ágúst, kl. 11:49
var 13.463.318 krónur.
Silfurpottarnir byrja alltaf í 50.000 kr. og Gullpottarnir í 2.000.000 kr.
og hækka síðan jafnt og þétt þar til þeir detta.
I
í
í