Morgunblaðið - 19.08.1994, Síða 10
10 FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 1994
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Tveir harðir
árekstrar í
Eyjafirði
TVEIR bílar lentu harkalega sam-
an rétt sunnan við Ólafsfjörð um
klukkan hálfníu í fyrrakvöld. Ann-
ar harður árekstur varð svo í gær
annars staðar í Eyjafirði, á mótum
Grenivíkurvegar og Norðurlands-
vegar.
Ökumenn beggja bílanna, sem
skullu saman í Ólafsfirði, voru
fiuttir á Fjórðungssjúkrahúsið á
Akureyri. Að sögn lögreglunnar á
Ólafsfirði voru ökumennirnir, mað-
ur og kona, einir í bílum sínum,
sem eru taldir ónýtir eftir árekstur-
inn. Ekki er vitað hve alvarleg
meiðsl fólksins voru.
Áreksturinn í gær var einnig
harður og voru tveir farþegar úr
öðrum bílnum, mæðgin frá Húsa-
vík, fluttir á slysadeild FSA, en
meiðsli þeirra voru minniháttar.
Bílarnir voru hins vegar mikið
skemmdir, sérstaklega annar.
í gær varð einnig slys á Höfða-
hlíð á Akureyri. Reiðhjóll og bíll
rákust saman og var hjólreiðamað-
urinn fluttur á slysadeild.
Morgunblaðið/Svavar Magnússon
BÍLARNIR sem lentu í árekstrinum við Ólafsfjörð í fyrrakvöld.
Þeir eru báðir taldir ónýtir.
Eflingu matvæla-
iðnaðar fagnað
NYKJÖRIÐ Héraðsráð Eyjafjarð-
ar samþykkti bókun, á fyrsta fundi
sínum, 11. ágúst, þar sem fagnað
er ákvörðun um eflingu matvæla-
iðnaðar í Eyjafirði.
Ályktunin er svohljóðandi:
„Héraðsráð Eyjafjarðar fagnar
eindregið samþykkt ríkisstjórnar-
innar um eflingu matvælaiðnaðar
í Eyjafirði, og þakkar Halldóri
Blöndal, landbúnaðarráðherra,
forgöngu hans í því máli. Héraðs-
ráð Eyjafjarðar bindur miklar von-
ir við að með þessari ákvörðun
ríkisstjórnarinnar geti orðið þátta-
skil í atvinnulífi og framleiðslu-
málum á Eyjaijarðarsvæðinu, en
leggur jafnframt áherslu á að víð-
tækt samstarf verði á milli allra
þeirra sem standa að framkvæmd
þessa máls.“
BAR
OPIÐ:
miövikudaga: 20:00 - 01:00
fimmtudaga: 20:00 - 01:00
föstudaga: 20:00 - 03:00
laugardaga: 20:00 - 03:00
sunnudaga: 20:00 -.01:00
S r
Maríubakki 22 - opið hús
Mjög góð vel skipulögð 4ra herb. íb. á 1. hæð fyrir miðju
ásamt aukaherb. í kj. Nýl. eldh., þvottah. í íb. Suðursv. Svefn-
álma. Gervihnsjónv. o.fl. Áhv. húsnlán (40 ára) + húsbréf sam-
tals 4,3 millj. Hagst. verð aðeins 6.950 þús. Þér er boðið að
skoða hjá Ingibjörgu á morgun, laugardag, kl. 14-18.
Gimli, fasteignasala,
Þórsgötu 26, sími 25099.
Gerðhamrar - sérhæð
Yfir 150
börn dvöldu
á Hólavatni
í sumar
Árleg kaffisala
sumarbúðanna á
sunnudaginn
150 fm glæsileg efri sérhæð í tvíbýli ásamt 75 fm bíl-
skúr. íbúðin er nánast fullkláruð. 4 góð svefnherbergi,
flísalagt baðherbergi og gott þvottahús. Tvöfaldur bíl-
skúr. Sér garður, fallegt útsýni. Hagstæð áhvílandi lán.
Möguleiki að taka minni eign uppí. Verð 12,8 milljónir.
Frekari upplýsingar hjá:
HÚSAKAUP fasteignamiðlun,
Suðurlandsbraut 52, Rvik, sími 68 28 00.
SUMARSTARFI KFUM og KFUK
að Hólavatni í Eyjafirði lýkur á
sunnudaginn með árlegri kaffi-
sölu. Rúmlega 150 börn dvöldu í
sumarbúðum félaganna í sumar.
Sumarbúðirnar voru fyrst rekn-
ar árið 1965 og verður því haldið
upp á 30 ára afmæli þeirra næsta
sumar. í sumar voru sex dvalar-
flokkar fyrir drengi og stúlkur og
dvöidu yfir 150 börn á Hólavatni.
Sumarbúðastjórar voru hjónin
Laufey Gísladóttir kennari og sr.
Sigfús Ingvason prestur í Kefla-
vík.
Miklar framkvæmdir voru við
hús og lóð og nú er alveg búið
að endurbyggja neðri hæð skál-
ans. Mikil uppbygging hefur verið
á staðnum og m.a. unnið að skóg-
ræktarmálum og gróðursettar
2.000 plöntur í sumar.
Árleg kaffisala sumarbúðanna
að Hólavatni verður á sunnudag-
inn, 21. ágúst, og stendur yfir frá
kl. 14.30 til 18.00.
Kvennalistakonur á
yfirreið um Norður-
og Austurland
KVENNALISTAKONUR á Norður-
landi eystra og Austurlandi verða á
ferð um kjördæmin á næstu vikum
ásamt þingkonum sínum. Tilgahgur-
inn er að hitta sveitastjórnarmenn,
fólk úr atvinnumála- og skólanefnd-
um og aðra íbúa sveitarfélaganna.
Kvennalistakonur fara þessa ferð af
áhuga á að kynna sér hvaða mál
brenna heitast á fólki um þessar
mundir, hvaða uppbygging er í gangi
og hvar má ætla að helst sé vaxta-
broddur í framleiðslu og atvinnulífi.
Kvennalistakonur leggja af stað
til Vopnafjarðar á sunnudaginn, 21.
ágúst, og^ halda þar opinn fund um
kvöldið. Á leiðinni koma þær við í
Mývatnssveit og verða í Myllunni í
Hótel Reynihlíð kl. 12-14.
Á mánudag koma þær við á hesta-
mannamóti í Þistilfirðinum og kl.
20.30 um kvöldið verða þær í félags-
heimilinu á Þórshöfn. Kvennalista-
konur halda síðan til Raufarhafnar
á þriðjudagsmorgunm og verða á
Hótel Norðurljósi frá kl. 10 tii 12,
í stjórnsýslumiðstöðinni Öxi á Kópa-
skeri kl. 14-16 og í Skúlagarði kl.
17. Þær enda þessa fyrstu ferð svo
með fundi í Snælandi á Húsavík um
kvöldið kl. 20.
Minna um
ber en
í fyrra
SYSTURNAR í Hjarðarholti,
Hulda og Sigríður Árnadætur
voru í berjamó á Þelamörk í
blíðviðrinu um miðjan dag í
gær, er ljósmyndara bar að
garði. Þetta var þriðji dagurinn
í röð sem þær komu á staðinn
í þeim tilgangi að tína ber; tals-
vert er af berjum á svæðinu,
en þær sögðu þó minna um þau
en á sama tíma í fyrra. Hulda
er fjær á myndinni en Sigríður
nær.
Listasumar ’94
Myndlistasýning
Listasumar ’94 hefur
staðið fyrir myndlistasýn-
ingum í verslunarglugga
Vöruhúss
KEA í
göngugöt-
únni á Akur-
eyri. Þar sýnir nú Sig-
urður Árni Sigurðsson.
Hann hóf myndlistarnám
við Myndlistaskólann á Ak-
ureyri en útskrifaðist frá
Myndlista- og handíðaskóla
íslands 1987 og hélt þá til
framhaldsnáms í Frakk-
landi þar sem hann hefur
verið búsettur síðan. Sig-
urður hefur haldið fjölda
einka- og samsýninga bæði
hér heima og erlendis. Um
þessar mundir stendur yfir
sýning á verkum hans á
Kjarvalsstöðum og í októ-
ber sýnir hann í Listasafn-
inu á Akureyri.
Morgunblaðið/Bjöm Gíslason