Morgunblaðið - 19.08.1994, Síða 11

Morgunblaðið - 19.08.1994, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 1994 11 Nám í Noregi í haust? LANDIÐ Háskóli verslunarinnar hefur pláss fyrir norræna stúdenta. Tveggja ára háskólanám Háskólanám á sviði hagfræði-stjórnsýslu þar sem athyglin beinist fyrst og fremst að vöruviðskiptum. Samsvarar 40 punktum í norska menntakerfinu. Hægt er að hefja nám beint á öðru ári. Viðbótarár í stjórnun og alþjóðavæðingu (3. námsárið) Viðbótarárið er nýtt af nálinni og nýtur stuðnings norskra Lverslunarfyrirtækja sem bjóða þeim nemendum STYRK sem Ijúka skólaárinu 94/95. Námið er óhefðbundið, byggir á raunverulegum aðstæðum og gefur möguleika á dvöl k erlendis. Inntökukröfur: Viðkomandi verður að hafa ^ staðist að minnsta kosti tveggja ára háskólanám eða nám á háskólastigi. Takmarkaður fjöldi. Námið hefst 31. ágúst 1994. Kennsla fer fram á norsku og ensku. Hringdu í dag til að fá upplýsingar í síma 90 47 66 90 35 55. Við erum til húsa í nýju húsnæði í um 20 kílómetra fjarlægð frá Ósló. KOMPETANSESENTERET VH VAREHANDELENS H0YSKOLE Johan Drengsrudsvei 52, P.B. 53, I37I Asker, Norge. OMPETANSESENTERET Aðalfundur Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga á Klaustri - kjarni málsins! 11 ttóliivörimun a götumarkað 1 II t> ÍdiN g l u n n a r SLÁ IflHlNN í ÚTSÖLURNAR Kýniuni l>ri»' nyju w — [JJ vöruui •• MZaru, VÍMNNt Ú1Á GÖTU ■ YíRÐIÐ HfflUR »R GU-U mw - goton min Morgunblaðið/Sigurður Jónsson NÝKJÖRIN stjórn SASS ásamt framkvæmdastjóra. Hjörtur Þórarinsson framkvæmdastjóri, Stein- þór Ingvarsson, Guðmundur Svavarsson, ÓIi Már Aronsson, Ólafía Jakobsdóttir, Bjarni Jónsson, Sigurður Jónsson og Kristján Einarsson. A Olafía Jakobsdóttir formaður NÝR formaður var kjörinn á aðal- fundi Samtaka sunnlenskra sveitar- félaga á Kirkjubæjarklaustri 12. og 13. ágúst, Ólafía Jakobsdóttir Skaft- árhreppi sem er fyrsta konan til að gegna því embætti innan samtak- anna. Óssur Skaprhéðinsson um- hverfisráðherra, einn gesta fundar- ins kvaðst fylgjandi því að ríkið að- stoðaði sveitarfélög við fráveitu- framkvæmdir. 25 ár eru frá stofnun Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga. Stein- grímur Ingvarsson fráfarandi for- maður gat þess í sínu ávarpi að margt hefði breyst á þessum tíma og margt sem áður var baráttumál þætti nú sjálfsagður hlutur. Á fundinum voru samþykktar ályktanir þar sem skorað er á heil- brigðisráðherra að tryggja fjármagn svo hægd- sé að hefjast handa við byggingu 2. áfanga Sjúkrahúss Suð- urlands. Einnig var skorað á heil- brigðisyfirvöld að bæta sjúkrahúsinu þann niðurskurð sem átt hefur sér stað undanfarin ár og bitnar á þjón- ustu við sunnlenska íbúa. í ályktun til umhverfisráðherra var fagnað vinnu við að undirbúa úrbætur í frárennslismálum og bent á að átak í þeim efnum væri mikil- vægt fyrir matvælaframleiðsluhérað eins og Suðurland. Fagnað var þeim skilningi ráðherra á fundinum að aðstoða þyrfti sveitarfélög sem losa þyrftu frárennsli á viðkvæmum stöð- um og á nauðsyn þess að ríkissjóður aðstoði þau við úrbætur. Þá var þess óskað að virðisaukaskattur af efni og vinnu við fráveitur yrði felldur niður. í annarri ályktun í mála- flokknum var bent á nauðsyn þess að fram fari heildarkönnun varðandi neysluvatnsgæði, fráveitur, sorp- hirðu og förgun úrgangs. Aðalfundur SASS styður þau áform að flytja rekstur grunnskóla til sveitarfélaga en í ályktun þess efnis var áhersla lögð á að sveitar- félögunum verði tryggðar tekjur til að sinna verkefninu. Einnig að ganga þyrfti frá réttindamálum starfsmanna grunnskólans áður en yfirfærslan ætti sér stað. Þá var hvatt til aukinnar samvinnu á sviði skólamála og að stjórn SASS mótaði tiilögur að samstarfi sveitarfélaga og verksviði fræðsluráðs. „Það er góð tilfmning að vera kosin sem formaður samtakanna. Þetta tekur undir baráttu kvenna að láta að sér kveða. Eg er mikill stuðningsmaður jafnréttis kynjanna og hef mikinn áhuga á umhverfis- og ferðamálum en skólamálin verða aðalverkefni samtakanna fram á næsta ár,“ sagði Ólafía Jakobsdóttir nýkjörinn formaður SASS. Með henni í stjórn eru Sigurður Jónsson, Selfossi, Kristján Einarsson, Sel- fossi, Bjarni Jónsson, Ölfushreppi, Guðmundur Svavarsson, Hvolsveili og Steinþór Ingvarsson, Gnúpvetja- hreppi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.