Morgunblaðið - 19.08.1994, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 1994 15
VIÐSKIPTI
GSM-farsímakerfíð
*
Oánægja
með verð-
lagningu
„ERLENDIS eru GSM-símtækin
niðurgreidd gegn notkunarsamn-
ingum, og kosta því aðeins brot
af því sem þau kosta hérlendis. Á
móti er ódýrara að tala í símana
hér,“ sagði Kristján Gíslason
stjómarformaður íslenskra fjar-
skipta í samtali við Morgunblaðið.
„Við erum ósáttir við að fyrirkomu-
lag þessara hluta sé öðruvísi hér-
lendis, því fólk kvartar við okkur
að álagning sé of há, þar sem
tækin eru dýr miðað við það sem
það sér erlendis. Póstur og sími
hefur hins vegar ekki viljað taka
þessa gagnrýni til greina, enda er
þeim hrósað fyrir að hafa ódýr sím-
gjöld.“ Kristján telur að þetta leiði
til þess að margir hafi hug á að
kaupa símtæki erlendis, þótt slíkt
sé illmögulegt án þess að gera
notkunarsamning í viðkomandi
landi.
Notendur erlendis
betur settir
Morgunblaðið birti í gær saman-
burð á símgjöldum í GSM-kerfum
víða í Evrópu, þar sem fram kom
að ódýrast er að tala í símana
hérlendis. „Menn verða hins vegar
að taka tillit til þess, að víða erlend-
is eru tækin allt að því gefins, að
því gefnu að menn skrifi undir
notkunarsamning til ákveðins
tíma,“ sagði Kristján. „Við verðum
að laga okkur að því viðskiptaum-
hverfi sem við búum við, hvort sem
okkur líkar betur eða ver.“ Að-
spurður sagðist hann telja notend-
ur erlendis betur setta en eigendur
GSM-síma hérlendis, þar sem fjár-
festingarkostnaður væri lægri, og
þeir gætu stjórnað kostnaðinum
sjálfir með því hversu mikið þeir
notuðu tækin. „Póstur og sími virð-
ist hins vegar ekki taka þessi sjón-
armið gild, sem stafar eflaust af
því að hérlendis ríkir ekki sam-
keppni á þessu sviði líkt og gerist
víðast erlendis.“
Póstur og sími: óeðlilegir
viðskiptahættir
Haraldur Sigurðsson hjá Pósti
og síma segir, að niðurgreiðslur
símtækja eins og þær tíðkast er-
lendis séu óeðlilegir viðskiptahætt-
ir. „Samkeppnisráð í Danmörku
bannaði þetta fyrirkomulag þar.
Er til samanburðar hægt að ætlast
til þess að Skeljungur greiði niður
bíla fyrir fólk gegn því að það
kaupi hjá þeim bensín? Við sjáum
ekki rök fyrir því að hækka gjald-
ið í símkerfinu til að greiða söluað-
ilum símtækja út í bæ sem eru
okkur óviðkomandi, þótt slíkt tíðk-
ist erlendis," sagði Haraldur. Hann
sagðist aðspurður ekki geta útilok-
að að fyrirkomulaginu yrði breytt
kæmi til uppsetningar einkarekins
GSM-kerfis til viðbótar kerfi Pósts
og síma, ef rekstraraðilar slíks
kerfis myndu greiða niður tæki.
„Ef samkeppnisaðilar færu að nota
svipaða óeðlilega viðskiptahætti og
þekkjast í þessari grein erlendis
gætum við illa haldið að okkur
höndum," sagði Haraldur.
Innilegustu þakkir til allra þeirra, sem glöddu
mig á áttrœðisafmœlinu, 2. ágúst sl., meÖ heim-
sóknum, gjöfum og kveðjum.
Sérstaklega þakka ég fjölskyldu minni fyrir
ógleymanlegan dag.
Ella Halldórsdóttir.
KONUR TAKIÐ EFTIR!
Kynning á snyrtivörum verður
í Hraunbergsapóteki, Hraunbergi 4,
efra Breiðholti, í dag frá kl. 1 2-17.
10% kynningarafsláttur.
Opið alla helgina til kl. 23.00.
HRAUNBERGSAPÓTEK, Hraunbergi 4, sími 74970.
91-884422
og við sendum þér bæklinginn um hæl gegn
350 kr. greiðslu.
^ Skólinn er að byrja
Frábær skólafatnaður á börnin í miklu úrvali.
H&M Rowells
I Húsi verslunarínnar
Þúsundir íslendinga þekkja gæði
fatnaðarins frá Hennes & Mauritz.
Þeir vita að í Hennes & Mauritz fá þeir
fallegan og góðan fatnað á dömur,
herra og börn á mjög hagstæðu verði.
Verslun okkar er í Húsi verslunarinnar,
Kringlunni 7.
► Póstverslun Hennes & Mauritz
Náðu þér í nýja haust- og vetrarbæklinginn
frá H&M Rowells. 300 blaðsíður af fallegum
fatnaði.
Hringdu í síma
► FJOLSKYLDUNNH
m
RCWELLS
UTSALA10-60
o
Opið lausardac
kl. 10-16.
oAFSL.
SPORTBÚÐIN
Ármúla 40.Símar 813555 og 813655