Morgunblaðið - 19.08.1994, Blaðsíða 18
18 FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 1994
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Yfirsýn og
endurmat
MYNPLIST
II a I' n a r b o r g
MÁLVERK
Úr safni Hafnarborgar/Úr safni Þor-
valdar Guðraundssonar.
Opið alla daga (nema þriðjudaga)
kl. 12-18 til 29. ágúst.
Aðgangur ókeypis.
Sýningarskrá 200 kr.
TIL AÐ njóta myndlistar sem
best má segja með vissri einföldun
að aðeins þurfi að hafa tvennt í
huga: Að forðast að horfa alltaf til
baka, og að forðast að horfa aldrei
til baka.
Myndlist - sem önnur mannanna
verk - þarf að vera í stöðugri
endurskoðun, og viðhorf til þess
sem eitt sinn var, breytast í Ijósi
þess sem gerist síðar. Þannig hefur
nútímalistin áhrif á hveijum augum
við lítum eldri list, sem fyrir vikið
endumýjast og gegnur til nýrra iíf-
daga; sá sem einblínir á hið liðna
og skeytir engu um þá listsköpun,
sern fer fram í samtímanum, fer á
mis við þessa endurnýjun viðhorf-
anna. A sama hátt má segja að sá,
sem hrífst aðeins af samtímalist,
en afneitar því sem eldra er, geti
aldrei lært fyliilega að meta það
sem fyrir augu ber; til þess vantar
hið sögulega samhengi listanna,
sem er óvéfengjanlega sá grunnur
sem sem listamenn byggja á (eða
leitast við að rífa niður) hverju sinni.
ÞesSar hugleiðingar eru hér sett-
ar á blað í tilefni tveggja sýninga
í Hafnarborg, þar sem m.a. er gerð
tilraun til að sjá myndlist síðustu
áratuga í nýju samhengi, og fá
þannig nýja yfírsýn á hvað hefur
verið að gerast í íslenskri myndlist.
Úr landslagi í abstrakt
Sú kenning, að íslensk abstrakt-
list sé sprottin með beinum eða
óbeinum hætti úr hinni sterku hefð
landslagsmálverka, sem íslenskir
listamenn hafa lengst af alist upp
við, er í sjálfu sér ekki ný. En hún
hefur sjaldnast komist mikið lengi-a
en á hugmyndastigið; hér hefur
henni hins vegar verið fylgt eftir
með því að setja upp sýningu með
úrvali verka í eigu Hafnarborgar,
þar sem tengd eru saman landslags-
verk og abstraktmyndir.
Þessum verkum er raðað í
ákveðna flokka og þannig leitað
eftir formlegum skyldleika þeirra í
fletinum. í sumum tilvikum er litið
til verka eins listamanns, s.s. Sveins
Björr.ssonar, en verk hans „Frá
Krísuvík" (1958) og „Móðir jörð“
(1993) eiga sér óneitanlegan skyld-
leika í jarðlitum og hinni láréttu
áherslu flatarins. Aðrar samsetn-
ingar kunna við fyrstu sýn að virð-
Vetrarblaðíð frá Rowan er komíð
íúð fl'Orni
Rowanklúbbfélagar vinsamlegast
vitiíð blaðsíns í versluninni.
OWAN
K.MI I IN(< Mapa/inc .Nurnbcr 10 ájjfe.
DLS/f.M ns
Kaffc l'awcll
Kirn Hargreaves
Harílinjí
Marfin Sforey
Saslni Kagan
Arnamla (iriffitbj:
therowan
RfcCVCLEIiSXO&Y
JN H KV\riO\AÍ.
f ATWAI.K SfíOWA
IM» kVÍKV. V,Í)H
■'■r'. ...
zm.
STORKURINN
aaimueiisCuti
Kjörgarði, Laugavegi 59, sími 18258
Eitt blab fyrir alla!
BENEDIKT Gunnarsson: í ljósaskiptunum.
ast fjarlægar, s.s. mynd Gísla Jóns-
sonar „Frá Þingvöllum" og verk
Benedikts Gunnarssonar,. „1 ljósa-
skiptunum"; þrátt fyrir ólíka liti og
viðfangsefni eru hinir formrænu
þættir myndbyggingarinnar hins
vegar ekki svo fjarri hvor öðrum,
þegar betur er að gáð.
Myndbyggingin kemur fram sem
sterkasti þátturinn í flokki lands-
lagsmynda eftir Sigurð Sigurðsson,
Jón Þorleifsson og Svein Þórarins-
son, sem settar eru við hlið
abstraktmyndar eftir Eirík Smith;
hrynjandin í þessum ólíku verkum
re}mist við nánari athugun ótrúlega
samstíga.
Og þegar áhorfendur eru farnir
að venjast þeirri tilhugsun, sem
sýningin býður upp á, verður ekki
betur séð en gjörólík verk Jóhann-
esar Kjarvals („Fyrir sunnan Hafn-
arfjörð") og Veturliða Gunnarsson-
ar („Sumamótt á Breiðafirði“) kall-
ist á yfír salinn; hefðbundið lands-
lag og sléttumynd í anda abstrakt-
expressionisma geta þannig tengst
óljósum böndum.
í inngangi sínum bendir Jón
Proppé- á að í raun sé það ávallt
háð ákvörðun listamannsins hvaða
vinnubrögð hann telur henta hveiju
viðfangsefni: „Listmálari sem ekki
hefur fest sig í einhverri kreddu
getur beitt fyrir sig hvaða aðferð
sem honum sýnist, svo fremi sem
honum fínnst málverkið sem hann
vinnur að kalla á hana.“ Og hann
heldur áfram, með tilvísun til lands-
ins:
„Túlkun þessa landslags kveikir
eitthvað í myndfletinum sem kallar
á fijálsari útfærslu en kyrrlátar
skógartjamir meginlandsins. Áður
en málarinn veit af hefur málverkið
losnað alveg frá fyrirmyndinni og
unnið sér í staðinn tilvemrétt sem
sjálfstætt framlag til veraldar lit-
anna og formanna". - Abstrakt
kviknar af landslaginu.
Með þessari sýningu er tæpt á
mjög áhugaverðu viðfangsefni, sem
þjónar ekki aðeins sögulegum til-
gangi, heldur gæti einnig skipt
miklu um viðhorf og skilning al-
mennings á nútímalist. Vonandi
verður þetta efni tekið upp sem
fyrst í stærra samhengi og rannsak-
að betur, en listunnendur ættu að
kynna sér sýninguna hér gaum-
gæfílega sem fyrsta innlegg í þá
umræðu.
Úr safni Þorvaldar
Guðmundssonar
í Sverrissal getur að líta nokkuð
úrval teikninga og vatnslitamynda
eftir Jóhannes Kjarval, sem er að
fínna í safni Þorvaldar Guðmunds-
sonar, en hann hefur um áratuga
skeið verið einn þekktasti lista-
verkasafnari landsins. Safn hans
er mikið að vöxtum, en Þorvaldur
hefur lagt sig sérstaklega eftir að
eignast verk Kjarvals, og er þar um
ómetanlegan fjársjóð að ræða.
Olíumálverkin eru án efa kunn-
asti hluti þessa safns, en Kjarval
vann einnig mikið í aðra miðla, sem
ekki er síður vert að kynnast, eins
og áður hefur verið nefnt. Á sýning-
unni hér hefur því verið valin sú
leið að einbeita sér að teikningum
og vatnslitamyndum, og er það vel.
Fyrst má nefna að á sýningunni
eru m.a. tvær litlar vatnlitamyndir
frá Danmörku, væntanlega frá
námsárum Kjarvals þar. Þessar
myndir eru um flest ólíkar því sem
við þekkjum frá hans hendi, í anda
þeirrar rómantísku anguiTærðar,
sem gjarna ríkti í landslagsmyndum
á síðustu öld.
Algjöra andstæðu þessa má fínna
í tveimur líkamsstúdíum frá námsár-
unum, þar sem karlmannslíkaminn
er dreginn sterkum dráttum, mark-
aður af skuggum og vöðvabyggingu,
sem Kjarval átti eftir að leita til síð-
ar. - Þessi tvö pör mynda sýna
glögglega, að í listnámi skiptir mestu
að ná tökum á sem breiðustum
grunni ólíkra miðla og myndefna,
sem síðar má vinna úr til að þróa
persónulegan stíl og vinnubrögð.
Margar myndanna hér eru and-
litsmyndir, sem á stundum eru
dregnar upp í fáum, einföldum
dráttum, líkt og hinar þekktu
drengjamyndir, eða þá að litskrúð
og línuspil listamannsins fyllir allan
flötinn, eins og í myndinni „Tvö
andlit“ (þar sem reyndar má greina
fleiri svipi í fletinum).
Fleiri áhugaverðar myndir má
nefna, s.s. líflega mynsturgerð í
„Fugl í hrauni á Þingvöllum", en
að öllu samanlögðu er hér ágætt
tækifæri til að endurnýja kynnin
við þessa hlið á listsköpun Kjarvals
og endurmeta framlag hans á því
sviði. - Vonandi kemur að því fyrr
en síðar að sett verður upp vegleg
sýning á úrvali verka úr því mikla
safni sem hér fæst nokkur nasasjón
af, og Þorvaldur Guðmundsson hef-
ur komið sér upp af mikilli þraut-
seigju og eljusemi.
Með þessum sýningum fylgir lítil
en skemmtilega unnin sýningar-
skrá, þar sem bæði er að fínna
ágæta texta og Ijósmyndir af
nokkrum þeirra verka, sem eru á
veggjunum. Er rétt að hvetja fólk
til að kynna sér hugleiðingar sem
þar koma fram, um leið og það
nýtur sýninganna.
Eiríkur Þorláksson
Nýr sýn-
ingar-
salur
NÝR sýningarsalur í Gallerí Fold
verður tekinn í notkun laugardag-
inn 20. ágúst kl. 14.00. Gallerí
Fold er nú flutt á Laugaveg 118d,
gengið inn frá Rauðarárstíg. Fyrst-
ur til að sýna í nýja salnum verður
Bragi Ásgeirsson, Iistmálari, en í
kynningarhorni Foldar sýnir Sara
Vilbergsdóttir pastelmyndir.
Bragi Ásgeirsson
Bragi er fæddur í Reykjavík árið
1931. Hann stundaði nám við
Myndlista- og handíðaskólann
1947-50, Listaháskólann í Kaup-
mannahöfn 1950-52 og aftur
1955-56, Listaháskólann og List-
iðnaðarskólann í Osló 1952-53 og
í Listháskólanum í Munchen
1958-60.
Bragi hefur haldið fjölmargar
einkasýningar hérlendis og erlendis
og tekið þátt í samsýningum víða
um heim. Verk hans eru í eigu
helstu safna hérlendis og margra
safna erlendis. Hann hefur fengið
flölda viðurkenninga fyrir verk sín
og störf.
Bragi hefur kennt við Myndlista-
og handíðaskóla íslands frá 1956
og verið myndlistargagnrýnandi
Morgunblaðsins frá 1966.
Sara Vilbergsdóttir
Sara er fædd á ísafirði árið 1956.
Hún stundaði nám við Myndlista-
og handíðaskóla íslands og fram-
haldsnám við Statens Kunstaka-
demi í Osló. Hún hefur haldið
nokkrar einkasýningar og tekið
þátt í mörgum samsýningum hér á
landi og erlendis. Hún hefur fengið
nokkrar viðurkenningar fyrir verk
sín.
Sýningarnar standa yfir til 3.
september. Opið er í Fold daglega
frá klukkan 10.00 til 18.00 nema
sunnudaga frá klukkan 14.00 til
18.00. Allar myndirnar eru til sölu.