Morgunblaðið - 19.08.1994, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 19.08.1994, Blaðsíða 20
20 FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 1994 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Danskur blásarakvintett í Norræna húsinu DEN Danske Blæserkvintett heldur tónleika í fundarsal Norræna húss- ins mánudaginn 22. ágúst og hefj- ast þeir klukkan 20.30. Blásarak- vintettinn kemur við hér á landi á leið sinni til Grænlands þar sem kvintettinn heldur tónleika á næstu vikum. Kvintettinn skipa: Vemer Nioco- let flauta, Bjom Carl Nielsen óbó, Soren Birkelund klarinett, Bjorn Fosdal hom og Peter Bastian fag- ott. Flutt verða verk eftir Mozart: Divertimento nr. 1 í Es-dúr, Peter Rasmussen, Jacques Ibert og Blás- arakvintett op. 43 eftir Carl Nielsen. Danski blásarakvintettinn hefur leikið saman frá 1968. Tónlistar- mennirnir hafa í gegnum árin kynnt sér kammertónlist og fengið leið- beiningar hjá Marcel Moyse í París og hljómsveitarstjóranum og heim- spekingnum Sergiu Ceiibidache. Kvintettinn hefur haldið ótal tón- leika í Danmörku og á Norðurlönd- unum og víðar í Evrópu, fyrrver- andi Sovétríkjunum og í Suður- Ameríku. Efnisskráinn er fjölbreytt og nær frá J.S Bach til Per Norgárds. Kvintettinn hefur frum- flutt fjölda nýrra verka, og spilar einnig tónverk sem hafa verið um- skrifuð fyrir blásarakvintett. Den Danske Blæserkvintet hefur leikið inn á fjölda hljómplatna og komið fram í útvarpi og sjónvarpi. Þá hefur kvintettinn komið fram sem fulltrúar Danmerkur á vegum hins opinbera og við dönsku hirðina. NYR LADfl IVIeð'þessum nýja Lada Sport færðu kærkomið tækifæri til að eignast kraftmikinn og góðan bíl sem hefur alla burði á við margfalt dýrari jeppa. Bíllinn er þægilegur í akstri. með rúmgóðu farangursrými og í alla siaði mun betur útbúinn en áður. Líttu á Lada Sport áður en þú heldur lengra. Það borgarsig... ... í beinhörðum peningum. SPORT Öflugri og betur útbúinn Síærra og aðgengilegra farangursrými Ný og kraftmeiri 1700 cc vél Betri sæti ■ meö ullaráklæöi Ný og breytt innrétting Léttara stýri ú " y / Aukabúnaður á mynd: alfelgur og toppgrind ÁRMÚLA 13 • SfMI: 68 12 00 • BEINN SÍMI: 3 12 36 ( KAROLA Schlegelmilch ásamt verkum sýnum í Portinu í Hafnar- firði. Form landslagsins MYNDLIST I* o r t i ð LJÓSMYNDAVERK Karola Schlegelmilch Opið alla daga (nema þriðjudaga) kl. 14-18 til 28. ágúst. Aðgangur og sýningarskrá ókeypis. LISTAMIÐSTÖÐIN í Straumi við Hafnarfjörð er nokkuð sérstakt fyrirbæri fyrir ýmissa hluta sakir, en þar er rekin öflug starfsemi, þó hljótt fari. Þarna hefur bæjarfé- lagið aðstoðað listamenn við að koma sér upp vinnuaðstöðu á kyrrlátum stað rétt utan við skark- ala bæjarlífsins, og þar er einnig að finna gestaíbúð og vinnustofur fyrir erlent listafólk, sem sækist eftir að vinna hér í lengri eða skemmri tíma. Þetta síðastnefnda er rétt að nefna sérstaklega, því oftar en ekki hafa þessir listamenn haldið sýningar á verkum sínum áður en þeir hafa haldið til síns heima; þær eru nú orðnar nokkuð margar síðustu árin, og hafa vissu- lega verið ágæt viðbót við listalífið í landinu. Karola Schlegelmilch er tæp- lega þrítug þýsk listakona, sem hefur búið í Straumi yfir sumar- mánuðina, en er senn á förum, og sýningin í Portinu því eins konar lokaþáttur dvalarinnar. Karola hefur þó þegar tengst íslenskri myndlist, en hún var meðal fjölda þátttakenda í hinni stóru P-sýn- ingu, sem haldin var í iðrum Borg- arkringlunnar í síðasta mánuði. Listnám Karolu endurspeglar leit hennar að þeim miðli, sem hún vill helst vinna við, en það spann- ar listmálun og síðan kvikmyndir, einkum á því sviði sem gjarna er nefnt tilraunakvikmyndir. Af upp- lýsingum í sýningarskrá má ráða að kvikmyndagerðin hefur verið umfangsmest, og hefur listakonan hlotið ýmsar viðurkenningar fyrir verk sín á því sviði. Þetta er vert að hafa í huga við skoðun sýningarinnar, því að þrátt fyrir að Karola vinni hér með ljós- myndir af landslagi, ber uppsetn- ing verkanna með sér viðhorf hreyfingarinnar fremur en það við- horf kyrrðar og festingar augna- bliksins, sem tengt er Ijósmyndun. Hér er heldur ekki verið að leita eftir glæstum myndum af þekkt- um stöðum, heldur eru það formin í landslaginu, sem heilla listakon- una, og á hve fjölbreyttan hátt má nálgast þau. Yfirskrift sýning- arinnar, „Áruraðir — samsafn af ljósmyndaverkum um skynjun á landslagi“, túlkar ágætlega þessa ætlun hennar. í ýmsum verkanna vinna upp- setning, Ijósmyndir og textar sam- an og mynda eina heild. í bestu verkunum af þessu tagi nær Ka- rola að skapa taktfasta hrynjandi með myndum og texta, eins og t.d. í „Samsíða“, eða að textinn bendir áhorfendum á þá formgerð; sem er sterkust í myndunum. I öðrum tilvikum eru þessi samsettu verk hins vegar sundurlaus og ómarkviss, og ljósmyndirnar megna ekki að gefa þessum verk- um þann ferskleika, sem einkennir bestu verkin. Slíkum verkum er ofaukið, og þau rýra gildi þeirra uppsetninga, sem takast vel. í hliðarsal eru nokkur verk þar sem raðir ljósmynda eru megin- þátturinn. Hér hefur auga lista- konunnar fyrir formum landslags- ins notið sín hvað best, og til verða ýmsar áhugaverðar tengingar. Þannig breytist hafaldan í há fjöll, hlykkjóttur fjallvegur verður að brotnum skriðjökli, og raðir af skógartrjám tengjast skyndilega j fríðum flokki léttklæddra dans- meyja. Þessar myndraðir sýna glögg- 1 lega, að Karola vinnur vel úr myndefni sem röð áreita, og má ætla að það komi enn betur fram í kvikmyndum hennar; form lands- ins eru hér sett í víðara samhengi með vinnulagi sem minnir helst á hreyfingu myndramma á kvik- myndafilmu í gegnum sýningar- vél. Úrvinnsla ljósmyndanna ber þess merki, að þær eru ekki aðal- 1 atriði sýningarinnar; skarpari prentun og betri lýsing hefði bætt þar mikið, einkum í samsettu verk- unum. Myndhugsun listakonunnar kemst hins vegar ágætlega til skila, og má ljóst vera af verkun- um hér að kvikmyndin stendur hjarta hennar næst, og er vonandi að landsmenn eigi kost á að kynn- ast þeirri hlið listsköpunar Karolu við gott tækifæri. Eiríkur Þorláksson I

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.