Morgunblaðið - 19.08.1994, Síða 23

Morgunblaðið - 19.08.1994, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 1994 23 Höfuildur Intrannmi Verið væri að kjósa um stjórnar- myndunarumboðið í síðari umferð- inni. Eftirlitshlutverk þingsins með framkvæmdavaldinu yrði mun virk- ara og þannig myndi þingræði í landinu eflast. Það má eflaust sýna fram á það með mörgum dæmum að þetta eftirlitshlutverk hefur verið veikt. Nægir þar að nefna ýmsar nefndir og ráð sem kosnar eru af Alþingi til dæmis bankaráð Seðla- bankans. Rökin fyrir því að gera forseta ábyrgan fyrir stjórnarat- höfnum er meðal annars minnkandi áhrif sérhagsmuna og meira yrði hugsað um heildarhagsmuni en fyrr. Með framangreindu myndi allt miðstjórnarvald í landinu eflast en það hefur alltaf verið veikt gegnum Islandssöguna. Öll ákvörðunartaka yrði agaðri, yfírvegaðri og mark- vissari. Með þessu eru komnar for- sendur fyrir tveggjaflokkakerfí sem er í deiglunni hérlendis. Ekkert er því ti! fyrirstöðu að flokkarnir á vinstri væng stjórnmálanna samein- ist nema ef vera skýldi stjómar- skrárbreyting og þá sérstaklega breyting á kjördæmaskipan lands- ins. Annað þarf ef til vill meiri tíma til að þróast. Markmiðið hlýtur allt- af að vera hið sama; opið og lýðræð- islegt þjóðfélag. Það er vonandi að ráðamenn þjóð- arinnar hafi kjark og dug til að taka stórar ákvarðanir á lýðveldisárinu. Nú er rétti tíminn. Loks má minna á að eins og með aðild að Evrópu- sambandinu ætti einnig að þurfa þjóðaratkvæðagreiðslu til mikil- vægra stjórnarskrárbreytinga sem varða jafnmikilvæg grundvallar mannréttindi sem kosningaréttur er. MINNINGAR LEGSTEINAR MANFRED WORNER „ÞAÐ ER rétt að ráða Þjóðverja í starfið. En er þetta rétti Þjóðverj- inn?“ Þessi orð urðu fleyg á sínum tíma, þegar allt benti til þess að Dr. Manfred Wöm- er, fv. varnarmálaráð- herra Þýskalands, tæki við af Lord Carr- ington sem aðalfram- kvæmdastjóri NATO á árinu 1988. Þessi ummæli stað- festa það sem þá var á flestra vitorði, að ráðning Wörners í þetta mikilvæga embætti var býsna umdeild á sínum tíma. Hann var ekki einasta yngsti maðurinn, 53 ára gamall, til að takast á við þetta veigamikla starf fram að þeim tíma; hann var fyrsti Þjóðveijinn sem til greina kom að fela starfið. Og hann hlaut í upp- hafi að gjalda samanburðar við forvera sinn, Lord Carrington, sem hafði tekist að móta embættið mjög í sinni mynd. Sú mynd þótti aðlað- andi og því ekki heiglum hent að feta í fótspor hans. Það tók Manfred Wömer ekki langan tíma að kveða niður raddir efasemdarmanna. Heiðarleiki hans, hæfni og hollusta við sameiginlega hugsjón fór ekki milli mála. Man- fred Wörner var hörkutól, sem hélt fast á sínum málstað; en sex ára reynsla hans sem varnarmálaráð- herra Þýskalands kom honum að góðu gagni í þessu starfi. Meir en tveggja áratuga reynsla sem þing- maður á Sambandsþinginu í Bonn, þar af lengi vel í stjórnarandstöðu, kenndi honum nauðsyn pólitískrar málamiðlunat', til þess að ná málum fram. Sú djúpa sannfæring sem hann hafði fyrir nauðsyn varnar- samstarfs Evrópu og Norður- Ameríku stuðlaði að stefnufestu á öru breytingaskeiði samtakanna. Manfred Wörner reyndist því vandanum vaxinn. Hann ávann sér smám saman virðingu þjóðarleið- toga og utanríkisráðherra banda- lagsþjóðanna og að lokum jafnvel væntumþykju. Hann var maður sem fór vaxandi af verkum sínum. íslendingar eiga Manfred Wörn- er þakkarskuld að gjalda, sem vert er að minnast, nú J>egar hann er allur. A við- kvæmu augnabliki í samningaviðræðum ís- Iendinga við bandarísk stjómvöld um endur- skoðun varnarsamn- ingsins, virtist sem hvorki gengi né ræki í viðræðum samnings- aðila. í tengslum við utanríkisráðherrafund bandalagsins í Brussel í desember 1993 leitaði ég persónulega eftir aðstoð Wörners. Það var ekki einasta að hann tæki máli mínu vel heldur sýndi hann í viðræðum okkar skarpan skilning á kjarna málsins. Hann reyndist hollráður og áhrifamikill. Og hann stóð við hvert orð sem hann sagði. Hann tók málið upp á æðstu stöðum í bandaríska stjórn- kerfinu af fullri einurð. Ég er ekki í minnsta vafa um að persónuleg íhlutun hans átti dijúgan hlut að því að tryggja farsæl málalok. Þess vegna er sérstök ástæða fyrir okk- ur íslendinga að heiðra minningu Manfreds Wörners. í dag munu þjóðarleiðtogar, ut- anríkisráðherrar og varnarmála- ráðherrar bandalagsþjóðanna koma saman í höfuðstöðvum bandalagsins til þess að heiðra minningu Manfreds Wörners við hátíðlega athöfn. Það staðfestir að það var vel ráðið á sínum tíma að velja Þjóðveija í embætti aðalfram- kvæmdastjóra NATO. Og að Manf- red Wörner var rétti Þjóðveijinn — réttur maður á réttum stað. Fyrir hönd íslensku ríkisstjórnar- innar færi ég ekkju hans og íjöl- skyldu okkar innilegar samúðar- kveðjur. Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra. Flutningskostnaður innifalinn. Stuttur afareiðslufrestur. Fáið mynaalistann okkar. fiA 720 BorqarfirSi eystra, sími 97-29977 fiBABÆRT AFMÆLISTILBOÐ

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.