Morgunblaðið - 19.08.1994, Síða 24

Morgunblaðið - 19.08.1994, Síða 24
24 FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 1994 MORGUNBLAÐIÐ STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Haraldur Sveinsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 691100. Auglýsingar: 691111. Askriftir: 691122. SÍMBRÉF: Ritstjórn 691329, frétt- ir 691181, íþróttir 691156, sérblöð 691222, auglýsingar 691110, skrif- stofa 681811, gjaldkeri 691115. Áskriftargjald 1.400 kr. á mánuði innan- lands. í lausasölu 125 kr. eintakið. SAMEIGINLEGIR HAGSMUNIR ÞVÍ HEFUR verið haldið fram af hálfu norskra sendimanna á úthafsveiðiráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í New York að íslenzka sendinefndin hafi horfið frá fyrri málflutningi sínum á ráðstefnunni og standi nú ekki lengur með svokölluðum kjarna- hópi strandríkja. Norski sjávarútvegsráðherrann, Jan Henry T. Olsen, sendi íslendingum skeyti úr ræðustóli á ráðstefnunni og sagði Smuguveiðar íslenzkra togara stríða gegn anda Hafréttar- sáttmála Sameinuðu þjóðanna. Þegar betur er að gáð, eru hins vegar sömu almennu áherzlur í ávarpi Olsens sjálfs og ræðu Helga Ágústssonar sendiherra, formanns íslenzku sendinefndarinnar. Báðir leggja áherzlu á að víðtækt samkomulag náist á ráðstefnunni - sem er ekki sjálfgef- ið, því að sum ríki telja sér hag í því að stjórnleysi ríki í úthafs- veiðum. Báðir eru talsmenn þess að smíðaður verði lagalegur rammi úthafsveiða, sem sé í formi bindandi samnings. Báðir kveða ríkt á um að markmið ríkja þeirra séu fiskvernd og ábyrg stjórnun auðlinda. Loks leggja báðir höfuðáherzlu á hagsmuni strandríkja. Þó er sá munur á, að íslenzki sendiherrann tekur sérstaklega fram að réttur strandríkja til að setja reglur á úthafs- svæðum geti ekki verið einhliða. Norski ráðherrann lætur svo um mælt að Hafréttarsáttmálinn hafi tryggt fiskveiðistjórnun undir fullveldisrétti strandríkja, og að útfærsla lögsögu strand- ríkja í 200 mílur hafi verið „risaskref“ - en þar fóru íslendingar í fararbroddi og voru stórstígastir Norður-Átlantshafsþjóða. Noregur og Island eiga sömu hagsmuna að gæta hvað varðar stjórnun fiskveiða á úthafinu. Það er báðum í hag að settar verði alþjóðlegar reglur, sem tryggja friðsamlega og hnökra- lausa sambúð nágrannaþjóða og vernd fiskistofna, sem þegnar beggja ríkja byggja afkomu sína á, þótt í mismiklum mæli sé. Að mörgu leyti eru fiskveiðiflotar ríkjanna í sömu aðstöðu og gagnar ekki að reyna að breiða yfir það; íslenzk skip veiða í Barentshafi utan norsku lögsögunnar og norsk skip eru til dæm- is að karfaveiðum á Reykjaneshrygg, rétt fyrir utan lögsögu íslands - og nota reyndar íslenzk flottroll við veiðarnar, þótt þau séu bönnuð í norskri landhelgi. Það er þess vegna báðum ríkjum í hag að settar verði alþjóð- legar reglur um stjórn veiða á úthafinu. Á grundvelli sameigin- legrar afstöðu til slíkra reglna og innan ramma þeirra, ber ríkjun- um að ganga til samninga, bæði um fiskveiðiheimildir í Barents- hafi og veiðirétt norskra skipa á svæðum, sem liggja að ís- lenzkri lögsögu. íslenzk stjórnvöld hafa margoft gert lýðum Ijóst að þau eru tilbúin til slíkra samninga. Norskir stjórnmálamenn, sem telja sig þurfa að bíta í skjaldarrendur til að tryggja stuðning fiski- manna í Norður-Noregi við aðild að Evrópusambandinu, ættu að hugsa sig betur um. f Morgunblaðinu í gær kemur fram að íslenzki flotinn í Smugunni geti veitt um 600 tonn af þorski á dag að meðaltali. Hvern dag, sem líður án þess að setzt sé að samningaborði og réttaróvissa ríkir áfram í Smugunni, eru norsk- ir sjómenn að missa spón úr aski sínum, og líklegt er að ís- lenzki flotinn geti náð að veiða mun meiri þorsk en hugsanlegar umsamdar veiðiheimildir gætu numið. Norðmenn eiga því jafn- mikilla hagsmuna að gæta og íslendingar að gengið verði til samninga. Óbilgirni norskra stjórnmálamanna getur aðeins stefnt málinu í óefni. EIRÍKUR SKIPHERRA EINN AF merkilegri kapítulum íslandssögu hefst með lög- unum um vísindalega verndun fiskimiða landgrunnsins árið 1948 og lýkur með útfærslu fiskveiðilögsögunnar í 200 mílur árið 1975. Meðal þeirra, sem hæst bar í sögu þessa tímabils, var Eiríkur Kristófersson, skipherra, sem lézt í hárri elli, 102 ára að aldri, 16. ágúst síðastliðinn. Eiríkur Kristófersson hóf sjómennsku á morgni aldarinnar, árið 1907, og skilaði sextíu starfsárum á Islandsmiðum. Hann vann hálfa öld við skipstjórn, þar af fjörutíu ár sem stýrimaður og skipherra hjá Landhelgisgæzlunni. Hann varð þjóðkunnur fyrir framgöngu sína í þorskastríðinu 1958-1961 og virtur vel, bæði af þeim erlendum mönnum, sem hann átti í höggi við, og löndum .sínum. Hann átti hlut að björgun 640 skipa á starfs- ferli sínum sem stýrimaður og skipherra. Með Eiríki skipherra er genginn nafntogaður afreks- og dreng- skaparmaður, sem lifði allar þjóðlífsbreytingar Iíðandi aldar og var í fylkingarbtjósti við vörzlu landhelginnar á örlagatímum. Hann gegndi mörgum trúnaðarstörfum og hlaut að vonum fjölda viðurkenninga. Morgunblaðið sendir aðstandendum hans hugheilar samúðar- kveðjur. VERKMENIMTUN Sumarskóla Iðnskólans og Reykjavík- urborgar slitið í annað sinn Ekki kvöð að mæta á morgnana Atvinnu- og menntunarátak Iðnskólans í Reykjavík og Reykjavíkurborgar hefur endurspeglast í starfi Sumarskólans tvö síðustu ár. Aðstandendur skólans segja að þær breytingar sem gerðar voru á starfs- háttum hans í ár hafi skilað sér en í fyrra olli tilraun- in nokkrum vonbrigðum. Orri Páll Ormarsson var viðstaddur skólaslitin nú og heyrði hljóðið í nemend- um og aðstandendum skólans sem eru afar ánægð- ir með afrakstur sumarsins. Reykjavíkurborg og Iðnskól- inn hleyptu í fyrra af stokkunum átaki til að efla menntun og atvinnu- möguleika ungs atvinnulauss fólks. Sumarskóli var settur á laggirnar og ungu fólki á aldrinum 16-20 ára stóð skyndilega til boða launað nám. Tilgangur þessa tilraunaverkefnis var margþættur. Fyrst og fremst var því ætlað að stemma stigu við atvinnuleysi en jafnframt að kynna iðngreinar og laða fólk sem ekki hafði spreytt sig á framhaldsnámi að skólunum. Forsvarsmenn Sumar- skólans viðurkenna að fyrsta starfs- ár hans hafi valdið vonbrigðum. Brottfall nemenda varð mikið og þeir sem entust allt sumarið voru vanir framhaldsskólanemar en ekki atvinnulausi forgangshópurinn. Eðli málsins samkvæmt var starfsemi skólans því tekin til gagngerrar end- urskoðunar í vetur sem leið og sú vinna virðist hafa borið ávöxt. I það minnsta var allt annað hljóð komið í strokkinn við önnur skólaslit Sum- arskólans sem fram fóru í gær. Aherslum breytt verulega íþrótta- og tómstundaráð Reykja- víkur hefur annast skólahaldið fyrir hönd borgaryfirvalda. Kristín Njáls- dóttir, fulltrúi ráðsins í skólastjórn, segir að ákveðið hafi verið að breyta áherslum verulega fyrir þetta miss- eri. í fyrra hafi komið í ljós að þeir aðilar sem hrökkluðust frá námi voru þeir sem ekki voru vanir setu á skólabekk. Kristín segir að mikil áhersla hafi verið lögð á bóknám í fyrra og það hafi einfald- lega ekki höfðað til fjöld- ans. Hún segir að eftir umtalsverðar bollalegging- ar hafi skólastjórn því grip- ið til þess ráðs að stytta námskeiðin, draga úr bóknámi og leggja höfuðáherslu á verklegar greinar. Þá mun aldurstakmarkið hafa verið hækkað í 25 ára. Afleið- ingarnar segir hún vera þær að bróð- urpartur þeirra nemenda sem hóf námið í vor hafi hlotið hámarksein- ingafjölda að launum. Að sögn Kristínar skiptist námið í sumar í þrjú þriggja vikna nám- skeið. í stað þess að fá sumamámið metið við hefðbundnar námsbrautir framhaldsskólanna eins og var í fyrra segir hún að nemendur geti nú nýtt þær einingar sem þeir höfðu upp úr krafsinu sem ótilgreint val. „Nemendur tóku engin próf heldur öðluðust þeir þær tvær einingar sem í boði eru fyrir hvert námskeið með því að sýna fram á 80% mætingu." Kristín segir að nemendur hafi feng- ið greiddar 30 þúsund krónur hafi þeir lokið við fyrsta námskeiðið, 35 þúsund fyrir það næsta og 40 þús- und fyrir hið síðasta. Hún segir að launagreiðslurnar á síðari námskeið- unum tveimur hafi verið háðar mæt- ingu. „Ef nemendur mættu ekki var það dregið af laununum þeirra.“ Sumarið góður tími til náms Kristín segir að Iðnskólinn hafi hýst mikið af áhugasömu fólki í sum- ar. Rýmið hafí reyndar ekki verið fullnýtt en það hafi aðallega stafað af því að rúmlega tuttugu manns til viðbótar hafi verið skráðir en aldrei rekið nefíð inn í gættir skólans. Hún segir að þessu hafi fylgt nokkur rösk- un. Fækka hafi þurft greinum þar sem áætlaður nemendafjöldi náðist ekki. Þá bendir Kristín á að sumir nemendur hafi horfíð frá námi í miðj- um klíðum til að fara í sumarleyfi með fjölskyldum sínum. Þrátt fyrir þetta segir Kristín að skýrt hafí kom- ið fram í könnun sem gerð var með- al nemenda á dögunum að þeir teldu sumarið síst lakari tíma til að leggja stund á nám en veturinn. Kristín er sannfærð um að það hafí verið rétt ráðstöfun að auka hlut verknámsins á kostnað bók- anna. Meðal þeirra greina sem voru á boðstólnum hjá Sumarskólanum þetta árið voru málmiðn, tréiðn, hár- iðn, fataiðn, rafiðn, bílgreinar og matvælaiðn, sem naut mestrar hylli samkvæmt liðskönnun nemenda. Að sögn Kristínar nýttu nemendur nám- ið til margvíslegra hagnýtra verka. Til að mynda hafi þeir snúið heim með skrifborð og grill í farteskinu svo eitthvað sé nefnt. Þá hafi nemendur í bílgreinum náð tökum á minniháttar viðgerðum, félagar þeirra i bókiðn gefið út blað og þannig mætti lengi telja. Ennfremur bendir Kristín á að fyrirlestrar og annað innlegg af ýmsu tagi sem ÍTR stóð fyrir hafi fallið í góðan jarðveg. Meðal þess sem boðið var uppá var sálfræði, heimspeki, dans, sund, listir og nám- skeið í hraðlestri sem Kristín segir að hafí slegið í gegn. Samkvæmt fyrrnefndri könnun hafa langflestir nemendur hug á að nýta sér námið á vinnumarkaðnum í framtíðinni. Hugmyndir frá nemendum Kristín er ekki í nokkrum vafa um að starfsgrundvöllur sé fyrir Sumarskólann í framtíðinni. Slíkar hafi undirtektirnar verið í sumar. Þá séu borgaryfirvöld, sem fjármagna SIGURÐUR Waage, Helga Björi Óttarsson og Ragnheiður Harða enda við Sumarskólí HELGA Björnsdóttir kennslustj íþrótta- og tómstundaráði slíta sa og sök SÝNISHORN af vinnu nemenda S fengu það verkefni að smíða bort iðn settu ss starfsemina, öll af vilja gerð. Hún segir að í sumar hafi verið gefíð út sérstakt námsefni fyrir sumarskól- ann og sé hugmyndin sú að bjóða upp á það víðar. Að'sögn Kristínar er vel hugsanlegt að sumarnám sem þetta verði þegar fram líða stundir tekið upp á landsbyggðinni. „Hlut- verk okkar aðstandendanna er að þróa skólann og gera hann eins skemmtilegan og hægt er. Við leggj- um sérstaka áherslu á að fá hug- myndir frá nemendum sjálfum og erum staðráðin í að halda ----------- starfinu áfram meðan þörf Skóliltr krefur.“ - Þorkell Ágúst Óttars- P** . son, Ragnheiður Harðar- dóttir, Helga Björk Stef- ánsdóttir og Sigurður Waage stund- uðu öll nám við Sumarskólann í sum- ar. Þau ljúka sundur um það einum munni að framtakið sé lofsvert. Þar sem starfstíminn skiptist í þrjú tíma- bil gefst nemendum færi á að fá innsýn í þrjár greinar. „Það er gagn- legt að hafa tækifæri til að fá innsýn í margar ólíkar greinar,“ segir Helga Björk sem í sumar kynnti sér tölvur, bókiðn og matvælaiðn. Félagar hennar taka í sama streng og ljúka miklu lofi á fjölbreytileikann sem einkenndi skólann. Ekki kvöð að mæta Öll hafa þau hug á að nýta sér þá þekkingu sem námið í Sumarskó- lanum hefur fært þeim. Sigprður stefnir á nám í tréiðn í vetur og Höfuðáhersla á verklegar greinar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.