Morgunblaðið - 19.08.1994, Síða 25

Morgunblaðið - 19.08.1994, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 1994 25 Morgunblaðið/Þorkell k Stefánsdóttir, Þorkell Ágúst irdóttir voru öll á meðal nem- mn að þessu sinni. óri og Kristín Njálsdóttir hjá mvistir við nemendur með trega ;nuði. umarskólans. Nemendur í tréiðn I á meðan félagar þeirra í málm- iman grill. segir sumarnámskeiðið í greininni hafa komið í góðar þarfir. Helga Björk er á sama máli og segir að leiðsögnin í bókiðn komi til með að nýtast henni vel en hún nemur fjöl- miðlafræði. Þorkell Ágúst telur fyrir- komulagið sem er við lýði í Sumar- skólanum kjörið til eftirbreytni. „Það er mjög nytsamlegt að hafa þijár vikur til að einbeita sér að sama efninu. Þar að auki hafa kennararn- ir meiri tíma til að sinna þörfum hvers og eins.“ Að hans mati er -------- námið sem boðið er upp á afar frumlegt og segir hann ljóst að námskeiðun- um sem kennd eru sem aukagreinar sé bersýni- lega ekki eingöngu ætlað i býður frum- nam að fylla upp í tímann. Fjórmenningarni'r fullyrða að á heildina litið hafi nemendur við Sum- arskólann fyrst og fremst verið þar áhugans vegna. Inn á milli hafi þó slæðst einn og einn sem einungis hafi hugsað sér gott til glóðarinnar fjárhagslega. Þeir sem mættu með því hugarfari til leiks hafi hins vegar heltst fljótt úr lestinni. Þessir fulltrú- ar nemenda eru á einu máli um að mun léttara hafi verið yfir Sumar- skólanum en almennt tíðkist um framhaldsnám. Kannski eru orð Þor- kells Ágústs lýsandi fyrir andann í þessu sumarstarfsnámi Iðnskólans og Reykjavíkurborgar? „Þetta er búið að vera mjög ánægjulegt. Það var ekki kvöð að mæta á morgnana heldur einfaldlega gaman!“ h VESTARI sigketillinn í Vatnajökli eftir hlaupið síðastliðinn föstudag. Hágöngur i baksýn. Fok á jökulleir og fíngerðum sandi ógnar byggð í Skaftárhreppi, Beðið eftir stærra hlaupi til að meta áhrif aðgerða Eystri ketillinn í Vatnajökli, sem jafnan veldur stór- um hlaupum í Skaftá, er fullur og líklegt að annað hlaup sé í vændum í ánni. Skaftárhlaup valda mikl- um spjöllum þótt mikilfengleg séu og ógna byggð í Skaftárhreppi. Helga Kr. Einarsdóttir ræddi við vatna- og jarðvegsfræðinga eftir nýafstaðið hlaup en verið er að kanna til hvaða aðgerða megi grípa til að stemma stigu við afleiðingunum. FJÓRTÁN stór Skaftárhlaup hafa orðið frá því mælingar hófust hjá Vatnamælingum Orkustofnunar á sjötta ára- tugnum. Hlaupunum er skipt í stór og lítil eftir því hvaðan úr Vatnajökli þau koma en meðalvatnsrennsli árinn- ar getur sexfaldast í minni hlaupum og fjórtánfaldast í þeim stærri. Tals- vert hlaupvatn er enn í ánni en venju- lega tekur það viku til tíu daga að skila sér að fullu í minni hlaupum. Meðalrennsli síðustu 39 ára í Skaftá þar sem hún rennur við bæinn Skaft- árdal er 155 m3 á sekúndu og varð hæst 670 m3/sek. á miðnætti 12. ág- úst sl. Til samanburðar má geta að langtímameðaltal vatnsrennslis síðast- liðinna 55 ára fyrir Elliðaár er 5 mVsek. Því má segja að vatnsmagnið hafi verið á við 134 Elliðaár þegar hlaupið náði hámarki í síðustu viku. Fullur ketill Hlaupvatnið kom að þessu sinni úr vestari katli, sem svo er nefndur, norð- vestan við Grímsvötn í Vatnajökli en þaðan eiga minni hlaup jafnan upptök sín. Eystri ketillinn, sem valdur hefur verið að stærri hlaupum í Skaftá til þessa, er fullur svo varla mótar fyrir honum á jöklinum og segir Árni Snorrason forstöðumaður Vatnamæl- inga Orkustofnunar líklegt að annað hlaup sé á næsta leiti. Segir hann að liðnir séu 36 mánuðir frá síðasta stóra hlaupi, sem sé þremur mánuðum lengra en lengst hafi áður liðið milli hlaupa. Jökulhlaupum fylgir jafnan mikil brennisteinslykt þótt svo hafi ekki verið að þessu sinni og nefnir Árni sem dæmi að í Skeiðarárhlaupum þekkist það að lyktin hafi orðið svo megn að fuglar hafi drepist. Þótt um lítið hlaup hafi verið að ræða var þetta Skaftárhlaup óvenju- legt að því leyti að vatnið hljóp i Hverf- isfljót, sem ekki hefur gerst áður, að sögn Árna, og þrefaldaðist vatns- magnið í ánni um tíma, úr 100 m3/sek. í 350 mVsek. Mælingar hófust í Skaftá árið 1951 á vegum raforkumálastjóra og varð fyrst vart við hlaup í ánni árið 1955, en áin hefur hlaupið með nokkuð reglulegum hætti síðan að hans sögn. „Fljótlega kom í ljós að þetta voru tvenns konar hlaup sem talsvert eru frábrugðin hvort öðru. Annars vegar eru hlaup úr vestari katlinum við Grímsvötn sem eru miklu minni hvað varðar hámarksrennsli og heildarvatnsmagn. Hins vegar er eystri ketillinn, þaðan sem öll stærri hlaup hafa komið,“ segir Árni. En katlarnir eru taldir vera í tengslum við jarðhita- svæði Grímsvatna. Segir Árni ennfremur að fyrsta stóra hlaupið eftir að vatnshæðarsíriti var settur í ána 1967 hafi orðið 1970, en þá mældist rennslið mest 1.380 mVsek., sem er á við 276 Elliðaár. Einnig sé hlaupið frá 1984 mjög stórt, þá mældist rennslið 1.440 mVsek., sem er á við vatnsmagn 288 Elliðaáa. „Skýringin á því að vatnið hleypur að þessu sinni í Hverfisfljót er væntanlega sú að Síðujökull hljóp fram í vetur. Þegar jökullinn skríður lækkar hann og það ásamt þrýstingsbreytingum getur nægt til þess að beina hlaupinu inn á nýtt vatnasvið." 13 milljónir tonna af auri Skaftárhlaupum fylgir jafnan mikill aur og stendur héraðinu, það er Skaft- árhreppi, mikil ógn af hamskiptum árinnar. Ekki er ljóst hversu mikið barst fram með hlaupinu nú en sam- kvæmt mælingum Orkustofnunar var heildarsvifaur í síðasta hlaupi, sem varð 1991, um 2,4 milljónir tonna. „Svifaur er það sem flyst með vatninu en svo er heilmikið af sandi og aur með botni sem mælist ekki enda verð- ur grófara efnið eftir,“ segir Árni. Var haidin ráðstefna í mars á þessu ári á vegum Landgræðslu ríkisins og Land- græðslufélags Skaftárhrepps og þar kom fram í máli Páls Imslands hjá Raunvísindastofnun Háskóla íslands að mælir við Sveinstind, sem er um 20 kílómetra frá upptökum Skaftár, hefði mælt frá þremur upp í níu tonn af auri á sekúndu í hlaupum í ánni. Sagði Páll að áætlað væri að 13 millj- ónir tonna af gruggi hafi borist með árvatninu í síðustu fjórum hlaupum. Þegar áin hleypur flæðir vatnið upp úr farveginum og breiðist um næsta nágrenni og segir Ámi að við Skaftá renni það á hraunið þar sem vatnið lóni uppi og aurinn falli út. „Það er þessi aur sem fýkur af stað, og oft er um að ræða jökulleir, sem er mjög fíngerður, og sand sem veldur gróður- eyðingu. Hlaupið í Hverfisfljóti var til dæmis það mikið að það mun bitna verulega á gróðri í nágrenninu. Við sjáum það ljóslega að vatn hefur kom- ið upp á hraunið og mun hafa mjög skaðleg áhrif á gróðurfar. Og hvað Skaftá varðar getur enginn hamið gróðureyðingu af hennar völdum nema með gríðarlega miklum fjármunum," segir Árni. Afleitt ástand Ólafur Arnalds, jarðvegsfræðingur hjá Rannsóknastofnun landbúnaðar- ins, segir ástand á gróðri á nokkrum svæðum í grennd við Skaftá afleitt. „Þetta versnar ár frá ári og það er ljóst að sandur kemst einhvern tíma í Lakagíga þótt ómögulegt sé að segja fyrir um hvenær það verður,“ segir Olafur. Sandur hefur þegar fokið í nokkra gíga að hans sögn og er búið að kortleggja eyðilegginguna í hrepp- inum. í framhaldi af því hafa heima- menn stofnað Landgræðslufélag Skaftárhrepps sem fyrr var getið. „Önnur svæði eins og til dæmis Eld- hraunið hafa orðið fyrir barðinu á foki og þar er sandur að ganga yfir gamb- urmosann, sem er mjög sérstætt nátt- úrufyrirbæt'i." Einnig segir Ólafur að svæði við Syðri-Ófæru hafi farið undir sand í tveimur síðustu hlaupum og hætta sé á að eyðingin ágerist með hverju ári. Hann segir að erfitt sé að segja nákvæmlega fyrir um hvernig þróunin verði en ekki sé óalgengt að eyðiieggingin fari hægt af stað en taki síðan einhver stökk. Segir hann þrennt koma til greina til varnar. í íyrsta lagi að beita fyrirhleðslum til að koma í veg fyrir að land fari undir árvatnið í hlaupum. í öðru lagi að búa til varanleg lón til að koma í veg fyr- ir fok og í þriðja lagi að búa til varnar- garða með því að sá mel til að hefta sandfokið. Tungulækur og Grenlækur renna út í Skaftá í Landbroti og á þessum slóðum renna einnig Eldsvatn og Jóns- kvísl í Meðallandi sem allt eru mikil veiðivötn. Eldvatnið er til dæmis talin vera besta sjóbirtingsá landsins og vatnið undan hrauninu hefur verið nýtt vegna bleikjueldis. Bændur í ná- . grenninu eiga því talsverðra hags- ' muna að gæta. Nú fer fram að beiðni Vegagerðarinnar, Landgræðslunnar og Skaftárhrepps úttekt á vegum Orkustofnunar á lindarrennslinu und- an Skaftáreldahrauni og Landbrots- hrauni til að kanna afleiðingar þess verði ekkert að gert og eins ef til ein- hverra ráðstafana verði gripið. Frey- steinn Sigurðsson jarðfræðingur og Kristinn Einarsson vatnafræðingur standa að rannsóknunum og hafa gert ýmsar mælingar í samvinnu við heima- menn. Beðið eftir stærra hlaupi Árni Snorrason segir nokkuð náin tengsl milli Skaftár og grunnvatns í “ Landbroti og sé verið að bíða eftir stærra hlaupi til þess að átta sig betur á tengslunum. „Áður en menn gera eitthvað við farvegina verða menn að átta sig betur á þessum tengslum sem er markmiðið með rannsókninni. Þau koma skýrast fram þegar hleypur því þá fer vatnið inn á hraunið. Það er svo mikið af efnum í hlaupvatninu sem hægt er að greina í lindum neðar í sveitinni. Verið er að glíma við marga þætti og spurningin er auðvitað sú hvar hagsmunirnir eru mestir og þann- ig verða menn að vinna þetta,“ segiiy Arni en þættirnir eru uppblástur, land- eyðing og grunnvatnsáhrif. „Við erum að tala um gróðureyðingu í byggð og það má hugsa sér að með tíð og tíma fyllist hraunið algerlega af sandi, ef þetta er algerlega látið óáreitt. Það er ekki langt í það að sandfokið fari að ógna allri byggð á svæðinu. Við sjáum hvað hefur gerst frá 1955 og_ þetta vex ár frá ári,“ segir hann loks.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.